Fréttablaðið - 30.08.2003, Side 28
28 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
MARKAHÆST
Hrefna Jóhannesdóttir er markahæst í
Landsbankadeild kvenna með 21 mark
þegar tvær umferðir eru eftir. Olga Fær-
seth og Margrét Lára Viðarsdóttir hafa
báðar skorað fimmtán mörk og Ásthildur
Helgadóttir fjórtán.
Fótbolti
Stefnum á að
klára mótið í dag
FÓTBOLTI „Við stefnum á að klára
mótið í dag og verðum að gefa allt
sem við eigum í það,“ segir Ást-
hildur Helgadóttir, leikmaður KR
sem mætir Stjörnunni í dag og
geta með sigri tryggt sér Íslands-
meistaratitilinn. „Við búumst við
hörkuleik og gerum ráð fyrir að
þær bakki og leyfi okkur að
sækja. Það er oft erfitt að opna
þannig vörn. Við höfum aðeins
verið að æfa það í vikunni og von-
um að við náum að brjóta ísinn.
Svo eru þær líka með fljóta fram-
herja sem við verðum að passa
okkur á.“
ÍBV er fjórum stigum á eftir
KR og getur enn skákað Vestur-
bæjarliðinu. Til þess að það gangi
eftir þarf ÍBV vinna FH í dag og
KR að tapa á móti stjörnunni. Lið-
in myndu þá mætast í hreinum úr-
slitaleik á miðvikudag. Ásthildur
leikur ekki með KR-ingum í Eyj-
um en komi til úrslitaleiksins
treystir hún samherjum sínum
fullkomlega til að fara þangað og
sigra. Hún ítrekar að það skiptir
öllu að vinna Stjörnuna í dag.
Mhairi Gilmour og fyrirliðinn
Michelle Barr leika síðustu leiki
ÍBV á mótinu en markvörðurinn
Rachel Brown og Karen Burke
skiptu yfir í ensk félög eftir leik
ÍBV og Vals í síðustu viku.
Á morgun heldur Ásthildur til
Svíþjóðar og leikur með Malmö í
haust. Upphaflega stóð til að hún
léki með félaginu gegn Evrópu-
meisturum Umeå á sænsku deild-
inni á morgun en félagaskipti
milli landanna ganga ekki það
hratt fyrir sig. Ásthildur leikur
sinn fyrsta leik með Malmö gegn
Hammarby á miðvikudag.
Malmö er í þriðja sæti deildar-
innar þegar fjórar umferðir eru
eftir. „Þeir telja möguleika Malmö
nokkuð góða. Þrjú efstu liðin eru
öll mjög góð og jöfn og reyta stig
hvert af öðru. Þeir tala um að
þetta verði barátta fram í síðustu
umferð,“ segir Ásthildur.
Eftir leikinn gegn Hammarby
verður hlé á sænsku deildinni
fram í október vegna þátttöku Svía
í lokakeppni heimsmeistarakeppn-
innar. „Það kemur sér ágætlega
fyrir mig því að við eigum að spila
þrjá landsleiki á þessum tíma,“
sagði Ásthildur Helgadóttir.
obh@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Ég er búinn að skrifa
undir samnig við Fredrikstad til
næstu tveggja til þriggja mánaða,“
sagði Ríkharður Daðason. „Það er
klausa í samningnum um að við
tölum aftur saman eftir tvo mán-
uði. Það var fínt fyrir mig að fá inn
þetta atriði um að semja aftur eft-
ir tímabilið, því það er tvennt ólíkt
að spila í efstu deild og 1. deild. Ég
vona að nú verði ég dæmdur af
knattspyrnuhæfileikunum þegar
valið er í lið.“
„Ég mun fara til Fredrikstad
svo fremi sem norska knatt-
spyrnusambandið samþykki samn-
inginn. Samningurinn er til eins
árs en er uppsegjanlegur eftir þrjá
mánuði ef samningar nást ekki um
framhaldið.“ Samningurinn þarf
að fá stimpil sambandsins áður en
lokar fyrir félagaskipti í Noregi
um mánaðarmótin.
Ríkharður getur ekki séð að
Stoke geti haft áhrif á félagaskipt-
in. Hann hafi gert lokasamning við
Stoke og Lillestrøm og ef Stoke tel-
ur sig eiga eitthvað inni þá eiga
þeir það hjá Lillestrøm en ekki hjá
honum. ■
KR gæti tryggt sér sigur í Landsbankadeild kvenna í dag. ÍBV getur
enn náð KR og verður að treysta á liðveislu Stjörnunnar í dag.
ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR
Ásthildur leikur með KR gegn Stjörnunni í dag og heldur til Svíþjóðar á morgun.
Hún leikur með Malmö FF á lokaspretti sænsku deildarinnar í haust.
Norska knattspyrnan:
Ríkharður samdi við Fredrikstad
RÍKHARÐUR DAÐASON
Ríkharður Daðason leikur með 1. deildarfé-
laginu Fredrikstad FK í haust. Félagið er
sem stendur í 3. sæti 1. deildar og á góða
möguleika á að vinna sæti í efstu deild.
13. UMFERÐ
Allir leikir hefjast klukkan 14
FH - ÍBV Kaplakrikavöllur
Þór/KA/KS - Þrótt./Hauk. Akureyrarvöllur
Breiðablik - Valur Kópavogsvöllur
KR - Stjarnan KR-völlur
14. UMFERÐ
Leikirnir verða miðvikudaginn 3. sept.
ÍBV - KR Hásteinsvöllur
Þróttur/Haukar - FH Ásvellir
Valur - Þór/KA/KS Hlíðarendi
Stjarnan - Breiðablik Stjörnuvöllur
KONUR
L U J T Stig
KR 12 10 2 0 32
ÍBV 12 9 1 2 28
Valur 12 8 2 2 26
Breiðablik 12 8 0 4 24
Stjarnan 12 3 2 7 11
FH 12 3 0 9 9
Þór/KA/KS 12 2 0 10 6
Þrótt./Hauk. 12 1 1 10 4
Úrslit 3. deildar:
Leiknir
mætir Núma
FÓTBOLTI Fyrri leikir undanúrslita
3. deildar karla fara fram í dag. Á
Ólafsvíkurvelli tekur Víkingur á
móti Hetti frá Egilsstöðum og í
Breiðholtinu tekur Leiknir á móti
Núma. Síðasttalda liðið lék í ut-
andeildinni í fyrra undir merkj-
um Stúts, en það er skipað göml-
um leikmönnum úr efri deildum.
Báðir leikirnir hefjast klukkan
14.
Þau lið sem vinna í samanlögð-
um leikjum komast upp í aðra
deild. ■
Úrslitakeppni
1. deildar kvenna:
Leikið um
efsta sætið
FÓTBOLTI Fjölnir og Sindri mætast
á Hvolsvelli í úrslitaleik 1. deildar
kvenna í dag. Það lið sem fer með
sigur af hólmi leikur í efstu deild
að ári. Tapliðið leikur við næst
neðsta lið Landsbankadeildarinn-
ar um laust sæti. Leikurinn hefst
klukkan 14. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
VI
LH
EL
M
FÓTBOLTI Keflvíkingar eru nánast
öruggir um að endurheimta sæti
sitt í efstu deild karla að ári en
þeir mæta HK í dag í 16. umferð
1. deildar karla. Keflvíkingar
hafa fimm stiga forystu, á Víking
og Þór sem berjast um annað
sætið, og nægir jafntefli til að
gulltryggja sæti sitt meðal þeirra
bestu.
Baráttan um annað sætið er
hörð. Víkingur gerði jafntefli við
Stjörnuna í gær, 2-2. Þórsarar
unnu Hauka á Akureyrarvelli 3-1
og komust þar með upp að hlið
Víkings.
Víkingar eiga leiki eftir gegn
Breiðablik og toppliði Keflavík-
ur. Þórsarar mæta Stjörnunni í
næstsíðustu umferðinni og
Leiftri/Dalvík heima í lokaleikn-
um.
Botnbaráttan er einnig hörð.
Leiftur/Dalvík mætir Aftureld-
ingu í dag, Haukum í næstsíðustu
umferð og Þór í þeirri síðustu. ■
1. deild karla:
Keflvíkingar nánast
öruggir uppi
ÚRSLIT GÆRDAGSINS:
Breiðablik - Njarðvík 1 - 1
Stjarnan - Víkingur R. 2 - 2
Þór - Haukar 3 - 1
STAÐAN Í 1. DEILD:
Lið L U J T M Stig
Keflavík 15 11 3 1 42:15 36
Víkingur R. 16 8 7 1 25 : 13 31
Þór 16 9 4 3 40 : 29 31
Stjarnan 16 5 8 3 28 : 22 23
Njarðvík 16 4 6 6 31 : 33 18
HK 15 5 3 7 23 : 25 18
Breiðablik 16 5 3 8 19 : 24 18
Haukar 16 4 4 8 19 : 31 16
Afturelding 15 4 2 9 16 : 32 14
Leiftur/Dal. 15 2 2 11 19 : 38 8
LEIKIR DAGSINS:
Keflavík - HK
Afturelding - Leiftur/Dalvík
NÆSTU LEIKIR:
7. september
HK - Afturelding
Njarðvík - Keflavík
Stjarnan - Þór
Leiftur/Dalvík - Haukar
Víkingur R. - Breiðablik
13. september
Afturelding - Njarðvík
Breiðablik - Stjarnan
Haukar - HK
Keflavík - Víkingur R.
Þór - Leiftur/Dalvík
KEFLAVÍK
Gæti tryggt sér sæti í efstu deild
með jafntefli við HK í dag.