Fréttablaðið - 30.08.2003, Blaðsíða 33
33LAUGARDAGUR 30. ágúst 2003
! "
#
"
$$
! %
!""
&
'
( ()
( ## &
$
"
&
# #
( ## &
$
*
( ###"!"
$ %&
'( $ ) $"!"
*%$
# &
+
## $
&
$
,- ( &
##
&
.#/ &
.0$#0
'
(
"!"
%!"+
1
,#
'
Loksins lifnaði yfir dönskurokksenunni. Rokksveitin The
Raveonettes er nú kannski ekk-
ert svo ýkja frumleg en hún
bjargar því sem bjargað verður
hjá Dönunum.
Í fyrra gaf dúettinn út plötuna
Whip It Up, fengu góða dóma alls
staðar og tryggðu sér útgáfu um
allan heim. Nú gerir sveitin gott
betur og skilar af sér betri plötu.
Draugalegi samsöngurinn er enn
til staðar en nú eru lögin öll í h-
dúr en ekki h-moll. Þetta þýðir
auðvitað að bjartara er yfir öll-
um lögunum og því meira stuð í
gangi. Gott ef ég hef ekki pirrað
samstarfsfólk mitt á Fréttablað-
inu með heljarinnar tátipli á
meðan platan rann í gegn.
Eini gallinn er að hér er sveit-
in enn líkari The Jesus and Mary
Chain en á fyrri plötunni. Ef það
væri ekki fyrir kvenrödd Sharin
Foo, þá væri auðveldlega hægt
að ljúga að mér að þetta væri ný
plata frá þeim. Fyrir þá sem ekki
þekkja þá sveit þá mætti líkja
þessari tónlist við það ef lög
poppsveita fyrri hluta sjöunda
áratugarins á borð við The
Shangri-La’s, The Chiffons og
The Ronettes væri leikin af rusl-
rokksveit.
En verum ekkert að pirra okk-
ur á þessu. The Jesus and Mary
Chain er löngu dauð og því rými
fyrir óskilgetinn tvíbura á borð
við þennan. Svo rennur platan
vel í gegn og er hin fínasta föstu-
dagsplata frá upphafi til enda.
Nú birtir yfir lególandi.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
The Raveonettes:
Chain Gang of Love
Birtir yfir
lególandi
■ ■ SKEMMTANIR
23.00 Hljómsveitin Singapor Sling
leikur á Grand Rokk.
23.00 Rúnar Júlíusson leikur
ásamt hljómsveit á Fjörukránni í Hafn-
arfirði.
Hljómsveit Geirmundar Valtýsson-
ar leikur á Odd-Vitanum á Akureyri.
The Cowboys leika á Hestakránni.
Dj Benni leikur á Hverfisbarnum.
Brimkló leikur í Hlégarði, Mosfells-
bæ.
Svensen og Hallfunkel leika á
Gullöldinni.
Gulli Reynis verður í Búðarklettin-
um í Borgarnesi.
Sváfnir Sigurðarson verður í Cata-
línu í Kópavogi.
Atli skemmtanalögregla verður á
Felix.
Þór Bæring verður á Glaumbar og
leikur fyrir gesti.
Danssveitin Sín leikur á Græna
Hattinum á Akureyri.
Bogomil Font verður á Nasa við
Austurvöll.
Sigga Beinteins og Grétar Örvars
leika fyrir dansi ásamt hljómsveit á
Players í Kópavogi.
Hljómsveitin Spútnik heldur dúndr-
andi skóladansleik á Sölku Húsavík.
Gullfoss og Geysir verða með Hval-
veiðihátíð á Þjóðleikhúskjallaranum.
Hin ástsæla gleðisveit Gilitrutt leikur
á Krákunni í Grundarfirði.
Dansleikur á veitingahúsinu Vitanum
í Sandgerði. Hljómsveitin Prima leikur
fyrir dansi en hún spilar fjölbreytta dans-
tónlist, rokk og ról, Suður-Ameríska tón-
list, gömlu dansana, kántrí og gömul og
góð íslensk popp- og dægurlög. Dans-
leikurinn er haldinn í tilefni af Sandgerð-
isdögum.
Dúettinn Acustic skemmtir á Ara í
Ögri.
Hermann Ingi jr. mun skemmta
gestum á Búálfinum í Hólagarði.
Þórhallur leikur á 22.
Skítamórall leikur í Sjallanum á Ak-
ureyri og fangar þannig „Menningarnótt
Akureyrar“.
hvað?hvar?hvenær?
27 28 29 30 31 1 2
ÁGÚST
Laugardagur
1Breskir kvik-myndadagar.
Hvíla sig á þess-
um amerísku.
2Barbró áAkranesi.
Buff með
spældu eggi. 25
mínútna akstur.
3Ísbúðin íFákafeni
að kvöldi til.
Staður fyrir
stefnumót.
Frábær
stefnumót.
4Hundasýningí Reiðhöll
Gusts í Kópa-
vogi. Sjón er
sögu ríkari.
5Freddy vs.Jason... Mesti
hryllingur árs-
ins.
ráð5fyrir helgina