Fréttablaðið - 30.08.2003, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 30.08.2003, Blaðsíða 34
■ ■ KVIKMYNDIR Sjá www.kvikmyndir.is  Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800  Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900  Háskólabíó, s. 530 1919  Laugarásbíó, s. 553 2075  Regnboginn, s. 551 9000  Smárabíó, s. 564 0000  Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500  Sambíóin Keflavík, , s 421 1170 ■ ■ SÝNINGAROPNUN  15.00 Höggmyndasýningin Meist- arar formsins verður opnuð í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, opnar sýninguna formlega. Sýningin sem kemur frá Ríkislistasafninu í Berlín, var í Listasafninu á Akureyri í sumar og hlaut mikla athygli.  16.00 Sýningin “4 colours 4 ladies“, opnar í listhúsi Ófeigs Skóla- vörðustíg 5. Um er að ræða fjórar norskar textilliiðnaðarkonur: Hilde Horni, Torill Haugsvær Wilberg, Tove Nordstad og Inger Lise.  16.00 Pétur Kjærnested frumsýnir heimildamynd sína um ástandið í Palestínu í Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5. Myndina tók Pétur í Palestínu í mars 2003, viku áður en stríðið braust út í Írak,og sýnir hún kaldan veruleikann á átakasvæðum Palestínu og Ísrael. Myndin verður sýnd á klukkutíma fresti en sýningar standa til 13. september.  16.00 Andri Páll Pálsson og Brynja Guðnadóttir opna myndlista- sýningu í Gallerí Undirheimar, Ála- fossvegi 31, Mosfellsbæ. Sýningin kall- ast Fenjavík og saman stendur af ljós- myndum og innsetningu. Hún stendur til 14. september.  Opnun á sýningu Charlottu Sverris- dóttur á olíumálverkum í kaffihúsinu Te og Kaffi að Laugavegi 27.  Opnun á sýningu Ernu Hafnes sem hefur yfirskriftina „Ímyndávegg“ . Sýning- in er í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akra- nesi. Þetta er fyrsta einkasýning Ernu og eru verkin á sýningunni olíu- og vatns- litaverk. Sýningin stendur til 7. septem- ber. ■ ■ TÓNLIST  12.00 Tónleikar í Hallgrímskirkju. Þar leikur Hörður Áskelsson þrjú verk Air og Gavottu eftir breska 19. aldar tón- skáldið Samuel Wesley, Offertoire úr orgelmessu eftir François Couperin og Passacagliu og fúgu í c-moll eftir Johann Sebastian Bach.  16.00 Sigurður Flosason leikur ásamt Andreu Gylfadóttur. Þetta eru lokatónleikar í sumartónleikaröð Jóm- frúarinnar. ■ ■ LEIKLIST  20.00 Kvetch sýnt í Borgarleik- húsinu.  20.00 Rómeó og Júlía sýnt í Borg- arleikhúsinu í samstarfi við Vesturport og Íslenska dansflokkinn.  20.00 Poppea sýnt í Borgarleik- húsinu. Það er Sumaróperan sem stendur að sýningunni ■ ■ FUNDIR  20.00 Kínaklúbbur Unnar heldur Kínakynningu í húsi Kínaklúbbsins að Njálsgötu 33. Unnur Guðjónsdóttir mun kynna 18. hópferðina með myndasýn- ingu. ■ ■ SAMKOMUR  13.00 Í tilefni af Menningarvöku Akureyrar býður Minjasafnið á Akureyri upp á sögugöngu. Gengið verður um elsta hluta Glerárþorps og rifjuð upp saga gömlu húsanna og íbúa þeirra undir leiðsögn Hönnu Rósu Sveinsdótt- ur safnvarðar. Gangan leggur af stað frá gamla skólahúsinu í Sandgerðisbót og líkur henni við Glerárstíflu.  23.30 Upplestur á draugasögum í Minjasafninu, Aðalstræti 58, í tilefni af Menningarvöku Akureyrar. Fjöllista- hópurinn Circus Atlantis leggur safninu lið við að skapa trúverðuga umgjörð um lesturinn. ■ ■ SÝNINGAR  Danski myndlistarmaðurinn Claus Hugo Nielsen sýnir verk sín í Gallerí Dvergi við Grundarstíg 21, 101 Reykja- vík. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 17-19 til 31. ágúst.  Baldvin Ringsted og Jóna Hlíf Hall- dórsdóttir eru með myndlistarsýningu í Bögglageymslunni, Listagilinu á Akur- eyri. Opið virka daga 17-22 og um helg- ar 14-18. Sýningin stendur til 1. septem- ber.  Kristján Guðmundsson er með sýn- ingu í Kompunni, Kaupvangsstræti 23. Akureyri. Á sýningunni er eitt verk gert úr plasti og gulli. Einnig verður til sýnis og sölu bókverkið (DOKTORSRITGERÐ) eftir Sigrúnu Þorsteinsdóttur og Kristján, sem kom út fyrr á þessu ári. Sýning Kristjáns er opin daglega 14-17 til 4. september.  Cesco Soggiu og Karl Kristján Dav- íðsson sýna í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti. Sýningin stendur til 28. ágúst.  Myndlistarmaðurinn Sólveig Alda Halldórsdóttir sýnir verk sitt Upp-skurð- ur á Vesturveggnum í Skaftfelli Bistro á Seyðisfirði. Verk Sólveigar samanstendur af texta sem unnin er upp úr dagbókar- færslum William Burroughs og hennar eigin. Sýningin stendur til 5. september og er opin alla daga frá kl. 11 til 24.  Ljósmyndarinn Peter Funch er með sýninguna „Las Vegas - Made by man“ í Kling og Bang gallerí, Laugavegi 23.  Guðbjörg Lind hefur opnað mál- verkasýningu í aðalsal Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnar- fjarðar. Viðfangsefni Guðbjargar Lindar hafa frá upphafi verið tengd vatni, fyrst fossum og síðar óræðum og ímynduð- um eyjum á haffleti.  Anna Jóelsdóttir hefur opnað sýn- inguna Flökt í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar. 34 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR hvað?hvar?hvenær? 27 28 29 30 31 1 2 ÁGÚST Laugardagur Einar Örn Benediktsson heldurtónleika á Gauk og Stöng í kvöld að tilefni þess að sýning Smekkleysu á Listasafni Reykja- víkur, Humar & Frægð, lýkur á morgun. Titill sýningarinnar er tilvitnun í íslenska útgáfu Sykur- molalagsins Regína, þar sem Einar Örn kallar; „Ég vil ekki neitt, humar eða frægð!“. Setning- in þýddist svo upp á enskuna sem; „I really don’t like lobster“. Sýningin opnaði 13. september og hefur Smekkleysa staðið fyrir nær stanslausri dagskrá þar sem haldnir hafa verið tónleikar og sýndar myndir innan um þá sýn- ingargripi sem hanga á veggjun- um. Í kvöld ætlar Einar Örn svo að flytja lög af væntanlegri plötu sinni, Ghostigital, sem hann vann með Birgi Erni Thoroddsen eða Curver eins og hann kallar sig stundum. „Þetta er upphafið af frekari landvinningum hjá okkur,“ segir Einar Örn. „Fyrstu alvöru tónleik- arnir okkar á Íslandi og upphafið af tónleikasyrpu okkar. Næst för- um við út að spila í Tate Modern í London í nóvember. „ Undirleiksmenn Einars Arnars og Curver verða að mestu leyti þeir sömu og á tónleikum hans í London í apríl. Elís Pétursson, Óð- inn Örn Hilmarsson, sonurinn Hrafnkell Flóki (kallaður Kaktus) en við bætist Mínus gítarleikarinn Frosti Logason sem kemur einnig við sögu á plötunni. Gaukurinn opnar kl. 21 og er opið á meðan húsrúm leyfir. Um upphitun sjá Kritikal Maaz, Exos og Tómar THX. ■ Humri slitið ALLIR ALDURSHÓPAR FRÁ 4 ÁRA. Innritun í síma: 561 5620 frá kl. 14-17 Háteigsvegi • Sími 561 5620 SIGTRYGGUR MAGNASON Menningin lifnar alltaf meðhaustinu um það leyti sem lömbin fara sína fyrstu og síðustu ökuferð í sláturhúsin,“ segir Sig- tryggur Magnason rithöfundur. „Tvær flottustu leiksýningar síð- asta árs, Kvetch og Rómeó og Júlía eru nauðsynlegar í upp- lifanasafnið og það sama má segja um Krýningu Poppeu sem Sumaróperan snaraði upp með snilldarbrag. Svo væri ekki galið að bregða sér á Klapparstíginn í Gallerí i8 og berja augum sund- sýningu Hlyns Hallssonar.“  Val Sigtryggs Þetta lístmér á! Hinn blóði drifni sunnudagur íDerry (sem Bretar kalla Londonderry) var 30. janúar, 1972. Breski herinn hefur eftirlit með mótmælagöngu fólks sem krefst borgaralegra réttinda. Hermenn taka að skjóta á göngu- fólkið. 28 manns liggja eftir í valnum, 13 eru látnir. Bloody Sunday er leikin heim- ildamynd sem lýsir því hvernig valdbeiting getur farið úr bönd- unum. Í stað þess að reyna að út- skýra í einni kvikmynd „vand- ræðin“ á Norður-Írlandi fer Peter Greengrass þá leið að vekja áhorfendur til umhugsunar um hið almenna með því að beina at- hygli þeirra að hinu sérstaka. Það er að segja, með því að lýsa at- burðum sorgardagsins 30. janúar 1972 í smáatriðum eru áhorfend- ur knúðir til að hugsa um allar þær hörmulegu blóðsúthellingar sem hafa átt sér stað í samskipt- um nágrannaþjóða okkar, Íra og Englendinga, á síðustu áratugum. Þetta er mögnuð mynd. Nokkurs konar „Saving Private Ryan“ - fyrir fullorðna. Þráinn Bertelsson UmfjöllunKvikmyndir BLOODY SUNDAY: (Blóðugur sunnudagur) Aðalhlutverk: James Nesbitt, Mike Edwards, Tim Piggott-Smith, Bernadette Devlin, Kevin McCorry, Eamonn McCann Handrit og leikstjórn: Peter Greengrass Blóðsúthellingar á sunnudegi ■ TÓNLEIKAR EINAR ÖRN Væntanleg plata Einars Arnar og Bibba Curver kemur út um allan heim í október. Vefur Einars ghostigital.com er uppfærður reglulega. Myndbönd af nýju plötunni eru væntanleg innan skamms. ✓ ✓ ✓ ✓ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.