Fréttablaðið - 30.08.2003, Side 35
LAUGARDAGUR 30. ágúst 2003 35
MEISTAR FORMSINS
Sýningin er komin frá Akureyri. Hluti hennar er nú í Listasafni Sigurjóns en sú
sýning opnar nú í dag. Alls eru listamennirnir 41 sem eiga verk á sýningunni, bæði
innlendir og erlendir.
Mikið hefur verið að gerast hjáleðurrokksveitinni Singapore
Sling síðustu mánuði. Frá því að
plata þeirra, „The Curse of...“, var
gefin út í Bandaríkjunum af Stinky
Records í sumar hafa plötudóm-
arnir streymt inn.
„Við erum búnir að fá dóma í um
50 dómum. Flestir mjög jákvæðir,“
segir Einar Þór Kristjánsson, eða
Einar Sonic eins og hann er kallað-
ur, gítarleikari sveitarinnar. „Svo
kemur örugglega einhver sleggju-
dómur, við bíðum bara eftir hon-
um.“
Þetta eru engin smá blöð sem
hafa eytt dálkaplássi í sveitina. Hið
virta tónlistartímarit Rolling Sto-
nes gaf plötunni t.d. þrjár stjörnur
af fimm mögulegum. Gagnrýnandi
tónlistarvefjarins allmusic.com
var öllu hrifnari og gaf plötunni
fjórar stjörnur af fimm.
Sveitin ætlar að prufukeyra
nokkur ný lög á tónleikunum í
kvöld sem líklegast verða leikin á
CMJ hátíðinni í New York sem
haldin verður helgina eftir Airwa-
veshátíðina í október. Eftir hana
tekur enn önnur tónleikaferðin um
Bandaríkin við.
Singapore Sling ætlar sér svo að
nýta dauða tímann í nóvember og
desember til þess að hefja vinnslu
á næstu plötu.
Tónleikarnir hefjast strax eftir
miðnætti. Hljómsveitin Sain hitar
upp. ■
SINGAPORE SLING
Boltinn er byrjaður að rúlla fyrir Singapore Sling í Bandaríkjunum.
Nýtt og gamalt
hjá Slingurunum
■ TÓNLEIKAR
Á Café Milanó stendur nú yfir sýn-
ing á málverkum Péturs Péturssonar.
Sýningunni lýkur 7. september.“
Samsýning 20 akureyskra lista-
manna stendur yfir í Ketilhúsinu á Ak-
ureyri.
Sýningin Þrettán + þrjár stendur yfir
í Lystigarðinum á Akureyri. Þetta er
samsýning þrettán norðlenskra lista-
kvenna og þriggja frá Færeyjum.
Sýningar Gjörningaklúbbsins,
Heimis Björgúlfssonar og Péturs Arnar
Friðrikssonar standa yfir í Nýlistasafn-
inu við Vatnsstíg. Gjörningaklúbburinn
opnar á 2. hæð safnsins sýninguna Á
bak við augun. Í norðursal 3ju hæðar-
innar er sýning Heimis Björgúlfssonar
Gott er allt sem vel endar (Sheep in
disguise) og í suðursalnum sýning Pét-
urs Arnar Friðrikssonar Endurgerð.
Sýningarnar standa til 7. september.
Sýning á nýjum verkum Rögnu Sig-
rúnardóttur stendur yfir í Listhúsi
Ófeigs að Skólavörðustíg 5, Reykjavík.
Viðfangsefni Rögnu er blómaskeið lif-
andi hluta og spurningin hvort hræðslan
við að eldast sé það sem takmarkar feg-
urðarmat okkar. Þetta er 13. einkasýning
Rögnu hér á landi.
Sýning á verkum Ragnars Kjartans-
sonar stendur yfir í Listasafni ASÍ.
Íslensk og alþjóðleg samtímalistaverk
eru til sýnis í Safni, Laugavegi 37.
Þrjár sýningar eru í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Þetta eru
sýningarnar Humar eða frægð -
Smekkleysa í 16 ár, Innsýn í alþjóð-
lega samtímalist á Íslandi og Erró
Stríð.
Sumarsýning í Listasafni Íslands á
úrvali verka í eigu safnsins.
Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur yfir
sýning á málverkum Jóhannesar Kjar-
vals úr einkasafni Þorvaldar Guðmunds-
sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur.
Sumarsýning Handverks og Hönn-
unar stendur yfir í Aðalstræti 12. Til sýn-
is er bæði hefðbundinn listiðnaður og
nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni.
Meðal þess sem sýnt er, eru munir úr
tré, roði, ull, hör, leir, selskinni, hrein-
dýraskinni, pappír, silfri og gleri frá 26
aðilum. Sýningin er opin alla daga
nema mánudaga og lýkur 31. ágúst.
Í Þjóðarbókhlöðunni standa yfir
þrjár sýningar. Eins og í sögu nefnist
sýning á samspili texta og myndskreyt-
inga í barnabókum 1910-2002. Þar er
einnig sýning til minningar um Lárus
Sigurbjörnsson, safnaföður Reykvíkinga.
Loks er lítil sýning í forsal Þjóðdeildar á
Heimskringlu og Snorra-Eddu.
Sýning í anddyri Norræna hússins
sem nefnist Vestan við sól og norðan
við mána. Á sýningunni eru ljósmyndir
eftir Ragnar Th. Sigurðsson með texta
eftir Ara Trausta Guðmundsson. Sýning-
unni lýkur 31. ágúst.
Ragnhildur Kristjánsdóttir (Ragsý)
sýnir verk sín á Kaffi Presto, Hlíðarsmára
15 í Kópavogi. Sýningin stendur til 15.
október
Ragnhildur Kristjánsdóttir (Ragsý)
sýnir verk sín í Blómakaffi í Blómaverk-
stæði Betu, Reykjavíkurvegi 60. Hún er
myndlistarmaður mánaðarins til 19.
september.
Sýningin Reykjavík í hers höndum í
Íslenska stríðsárasafninu á Reyðar-
firði er sett upp af Borgarskjalasafni
Reykjavíkur og Þór Whitehead sagn-
fræðingi í samvinnu við Íslenska stríðs-
árasafnið. Á sýningunni getur nú að líta
mun meira af stríðsminjum en áður
sem koma frá Íslenska stríðsárasafninu.
Sumarsýningu í bókasal Þjóðmenn-
ingarhússins, Íslendingasögur á er-
lendum málum, er ætlað að gefa inn-
sýn í bókmenntaarfinn um leið og at-
hygli er vakin á því að fjölmargar útgáfur
Íslendingasagna eru til á erlendum mál-
um.
Sýningin Handritin stendur yfir í
Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er á
vegum Stofnunar Árna Magnússonar.
Einnig er þar sýning sem nefnist Ís-
landsmynd í mótun - áfangar í korta-
gerð.
Hlynur Hallsson sýnir ljósmynda- og
textaverkið „sund - schwimm - swim“ í
gallerí i8, Klapparstíg 33.
Sýning Roni Horn „This is me, this is
you“ í gallerí i8, Klapparstíg 33 er opin
fimmtudaga og föstudaga frá kl. 11 - 18,
laugardaga 13 - 17.
Enn ein sönnunin fyrir því aðhjónabönd í Hollywood endast
ekki varð ljós á
föstudag þegar
hjónin Ethan
Hawke og Uma
Thurman greindu
frá því að þau
væru að skilja.
Ástæðan er sú að
Hawke átti í ástar-
sambandi við kanadíska fyrir-
sætu á meðan hann var við tökur
á mynd þar í landi. Uma komst að
þessu í gegnum slúðurblöðin
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
hans til að halda sambandi þeirra
leyndu. Þau voru gift í fimm ár
og eiga tvö börn saman.
Kántrígoðið Johnny Cash varlagður inn á spítala á fimmtu-
dagskvöldið. Hann ætlaði sér að
koma fram á myndbandaverð-
launahátíð MTV en varð að hætta
við vegna magakveisu. Talsmenn
hans segja að hann sé á batavegi.
Cash, sem er orðinn 71 árs gam-
all, missti nýlega eiginkonu sína.
Colin Farrell segist vera niður-brotinn yfir því að þurfa að
missa af fæðingu fyrsta sonar
síns. Hann er að
eignast barn með
fyrirsætunni
Kim Bordenave
en verður stadd-
ur í Marokkó
við tökur
myndar Oli-
ver Stones
um Alex-
ander
Mikla.
Fréttiraf fólki
✓