Fréttablaðið - 30.08.2003, Síða 38
Augun 38 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
Þetta var ágætlega viðburðaríkvika, sérstaklega framan af,“
segir Hallgrímur Thorsteinsson út-
varpsmaður á Útvarpi Sögu þegar
hann er spurður um vikuna sem
var. „Ég var eiginlega allt í öllu. Ég
var grasekkill því konan var í Dan-
mörku. Ég þurfti að skipuleggja
mjög þétt hvað ég ætti að hugsa um
á hverjum tíma því ég get ekki
hugsað um margt í einu. Um leið
þurfti ég að raða hlutunum hverj-
um á eftir öðrum og um leið fjölg-
aði hlutum á dagskránni. En allt
gekk þetta nú upp með því að
breyta skipulagshæfileikum.“
Hallgrímur segir vinnuvikuna
hafa verið fjöruga. Ásamt félögum
sínum á Útvarpi Sögu á hann í við-
ræðum við Norðurljós um rekstur
útvarpsstöðvarinnar sem félagarn-
ir eru að taka við. „Þessi útvarps-
vinna er alltaf jafn skemmtileg,“
segir Hallgrímur. Hann hefur vita-
skuld fylgst með fréttum af upp-
sögnum fjölmiðlamanna. „Sumpart
er ég alveg orðinn ónæmur fyrir
þessu. Í vikunni fékk ég í viðtal til
mín Sigurð Snævarr, bróður Árna,
en í millitíðinni var Árna sagt upp,
þannig að þessi atburður var ansi
nálægt viðmælanda. Ég ræddi
þetta aðeins í þættinum, en þetta
koma ansi illa við mig. Svona hlutir
eru alltaf erfiðir. Sjálfur hef ég í
gegnum tíðina lent í nokkrum upp-
sögnum hjá Norðurljósum og Út-
varpsfélaginu. Ég fann það sérstak-
lega eftir þáttinn að þetta hafði
fengið meira á mig en ég hélt, enda
Árni samstarfsmaður minn til
margra ára.“ ■
Vikan sem var
HALLGRÍMUR THORSTEINSSON
■ segir vinnuvikuna hafa verið fjöruga.
Ásamt félögum sínum á Útvarpi Sögu á
hann í viðræðum við Norðurljós um
rekstur útvarpsstöðvarinnar sem félag-
arnir eru að taka við.
Imbakassinn
Hann hefur horft til margra átta
að undanförnu enda að vinna að
stórvirki. Augun lýsa djúphygli og
frumleika og stundum hlýju. Hver
á augun?
Fjörug vika
Ég geri nú yfirleitt mest lítið enhorfi alltaf á Gísla Martein í
sjónvarpinu og fylgist með því
hvort það sé góð mynd á eftir,“
segir Salome Þorkelsdóttir, fyrr-
um alþingismaður, en hún er hætt
á þingi.
„Nú ræð ég sjálf hvað ég geri.
Hér áður fyrr þurfti maður að
gegna þessum skyldum og það gat
vissulega verið skemmtilegt en
oft erfitt. Kom svolítið niður á
fjölskyldunni fannst mér og því er
ég mjög ánægð núna þegar ég
þarf ekki að gera annað en það
sem ég vil gera.“
Salome segist ekki fara oft í
leikhús en sinfóníutónleika sækir
hún, þeir eru bara ekki á laugar-
dögum. Því er laugardagskvöld í
huga hennar lykill að góðri
afslöppun. Stundum koma samt
gestir í mat, fjölskylda eða vinir,
en á sunnudögum kemur öll hers-
ingin í kaffi til hennar. Og þá er nú
kátt á hjalla.
„En þegar ég var ung stúlka
voru laugardagskvöldin yfirleitt
helguð bíóferðum. Við fórum
ofsalega mikið í bíó á laugardags-
kvöldum í gamla daga. Þá var auð-
vitað ekki sjónvarp og bíó því
mikil upplifun. En böll fór ég ekki
á á laugardagskvöldum því þau
voru daginn eftir, á sunnudegin-
um, hjá til dæmis Oddfellow. Þau
voru haldin seinni part dags og
maður naut þeirra mjög vel,“
segir Salome og minnist líka laug-
ardagskvölda í útilegum með fjöl-
skyldunni:
„Þegar krakkarnir voru ung
fórum við mikið í útilegur með
alla fjölskylduna. Þetta var áður
en það komst í svona mikla tísku
að ferðast um landið og því voru
færri á ferð með tjöldin sína þá en
eru nú. Helstu staðirnir okkar
voru Landmannalaugar og Hvera-
vellir, sem voru auðvitað sann-
kallaðar óbyggðir, en mjög rólegt
og huggulegt að eyða helginni
þar.“
Í kvöld, sem og önnur laugar-
dagskvöld, reynir Salome samt að
hafa eitthvað gott í matinn og svo
er það Gísli Marteinn. Gaman að
vita hver verður hjá honum í
kvöld. ■
SALOME ÞORKELSDÓTTIR
Þótt hún sé sest í helgan stein er nóg að
gera hjá henni í félagsstörfum en nú ræð-
ur hún sér alveg sjálf.
Laugardagskvöld
SALOME ÞOKELSDÓTTIR
■ fyrrum alþingismaður, vill helst ekki
missa af Gísla Marteini á laugardags-
kvöldum en eldar þó eitthvað gott og
bíður stundum í mat.
HALLGRÍMUR THORSTEINSSON.
„Ég þurfti að skipuleggja mjög þétt hvað ég ætti að hugsa um á hverjum tíma því ég get
ekki hugsað um margt í einu.“
JPV-útgáfa hefur sent frá sérþrjár nýjar bækur og 2 af
þeim eru barnabækur eftir
Francescu Simon. Sú fyrri
heitir Skúli skelfir fær lús og
hin heitir Skúli skelfir
gabbar tannálfinn.
Teikningar gerir Tony
Ross en höfundurinn er
breskur en bækur henn-
ar henta best krökkum á
aldrinum 5-9 ára, segir í
fréttatilkynningu frá út-
gefanda. En fullorðinsbókin
sem JPV
sendir frá
sér er verð-
launasgana
Skuggaleikir
efir José Car-
los Somoza í
þýðingu
Hermanns Stef-
ánssonar. Um
bókina sagði í
Sunday Tel-
egraph: „Afar
frumlegur
spennutryllir.
Hnyttin og hug-
vitssamlega skrif-
uð saga þar sem
hver ráðgátan tek-
ur við af annarri ...
Fullkomin
skemmtun.“ The
Times voru sam-
mála og þar stóð:
„Þessi vitræna
glæpasaga er
hreinlega frábær
og mun höfða til
allra sem hrifust
af Nafni rósarinn.“
Skynjun mín á verk hans
er af hliðstæðum toga!
Hann er tvímælalaust
einn helsti meistari póst-
módernísku stefnunnar
og smágerð ljóðræna
texta hans er tímalaus!
■ Nýjar bækur
(Hannes Hólmsteinn Gissurarson.)
Prósaverk Dorowskys
höfðu óumdeilanlega djúp-
stæð áhrif á sálarlíf mitt!
Mynd hans af leit mann-
eskjunnar að lífsfyllingu
gerði mig bókstaflega orð-
lausan!
Horfir alltaf á
Gísla Martein