Fréttablaðið - 23.10.2003, Blaðsíða 6
6 23. október 2003 FIMMTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76,15 -0,50%
Sterlingspund 128 0,02%
Dönsk króna 11,97 -0,15%
Evra 88,98 -0,13%
Gengisvísitala krónu 125,89 0,14%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 292
Velta 3.261,7 milljón
ICEX-15 1.882,26 0,86%
Mestu viðskiptin
Fjárfestingarf. Straumur 265.760.654
Pharmaco hf. 216.078.263
Landsbanki Íslands hf. 175.790.514
Kaupþing Búnaðarbanki hf.111.549.810
Bakkavör Group hf. 94.645.863
Mesta hækkun
Austurbakki hf. 3,27%
Kögun hf. 1,94%
Líftæknisjóðurinn hf. 1,89%
Opin Kerfi Group hf. 0,54%
Mesta lækkun
Pharmaco hf. -3,13%
Bakkavör Group hf. -2,41%
SÍF hf. -2,00%
Sæplast hf. -1,35%
Samherji hf. -1,14%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.624,1 -1,3%
Nasdaq* 1.907,3 -1,7%
FTSE 4.285,6 -1,5%
DAX 3.513,9 -1,9%
NK50 1.365,5 -0,6%
S&P* 1.032,9 -1,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hver er leiðtogi Sinn Fein, stjórn-málaafls Írska lýðveldishersins?
2Hvað heitir töframaðurinn sem lokaðisig inni í plexiglerbúri yfir Thames-
ánni í London í 44 daga?
3Hvaða fyrrum þingmaður Sjálfstæðis-flokks sneri aftur í flokkinn á dögun-
um eftir hálfs árs fjarveru úr flokknum?
Svörin eru á bls. 47
Ný rannsókn á kynlífsmarkaðnum á Íslandi:
Eyða milljarði í
kynlífsiðnaðinn
KYNLÍFSMARKAÐUR Kynlífsmarkað-
urinn á Íslandi veltir að lágmarki
einum milljarði króna á ársgrund-
velli. Þetta er niðurstaða nýrrar
rannsóknar sem unnin var fyrir
Jafnréttisnefnd Reykjavíkur-
borgar. Markmiðið var að kort-
leggja ungan en vaxandi kynlífs-
iðnað hérlendis en til hans teljast
meðal annars nuddstofur, vændi,
myndbönd, símaþjónusta og nekt-
ardansstaðir.
Rannsóknin leiðir ekki einung-
is í ljós að karlmenn eru helsti
markhópur kynlífsiðnaðarins hér
á landi, heldur eru það einnig
karlmenn sem reka og stjórna
þeim fyrirtækjum sem bjóða þá
kynlífstengda þjónustu sem er í
boði hérlendis.
„Kastljósinu hefur alltaf verið
beint að konum,“ segir Drífa Snæ-
dal viðskiptafræðingur, en hún
vann verkefnið fyrir Jafnréttis-
nefndina. „Þær eru og hafa verið
táknmynd kynlífs og klámiðnaðar
á Íslandi. Þrátt fyrir það eru það
karlmenn sem undantekningar-
laust standa á bak við þennan iðn-
að. Þessari ímynd viljum við
gjarna breyta.“ ■
Viðskipti stöðvuð
og reikningi lokað
VIÐSKIPTI Lögmaður sláturhússins
Ferskra afurða undrast mjög
framgöngu Kaupþings Búnaðar-
banka í máli sláturhússins en því
var hafnað um áframhaldandi
greiðslustöðvun í Héraðsdómi
Norðurlands vestra í fyrradag.
„Niðurstaða úrskurðarins er
sú að fyrirtækið geti lítið gert
nema semja við Búnaðarbankann
um sínar skuldir,“ segir Stein-
grímur Þormóðsson, lögmaður
Ferskra afurða. „Það er náttúr-
lega alveg rétt að fyrirtækið er
mjög háð bankanum.“
Steingrímur segir að rekstur
fyrirtækisns hafi ekki gengið
sérlega vel á fyrri hluta ársins,
en í maí hafi orðið breyting á því.
„Þá var gerður samningur við
Bónus og Europrís, sem ráða yfir
80% af kjötmarkaðnum. Eftir það
seldi fyrirtækið fyrir um 30
milljónir króna á mánuði fyrir
utan virðisaukaskatt en þegar
komið er fram í september setur
bankinn fyrirtækinu stólinn fyrir
dyrnar. Hann sendi viðskiptavin-
um bréf þar sem farið er fram á
að þeir kaupi ekki kjöt af fyrir-
tækinu að svo stöddu.“
Steingrímur segist ekki skilja
hvers vegna bankinn hafi gert
þetta því ef fyrirtækið hefði
fengið að selja áfram óáréitt
væri staðan önnur en hún er í
dag. Fyrirtækinu hefði án efa
tekist að minnka birgðirnar og
skuldirnar verulega. Hann segir
að í júlí hafi bankinn lokað veltu-
reikningi fyrirtækisins og aftur
um miðjan ágúst.
„Það gefur augaleið að það er
erfitt að reka fyrirtæki við þess-
ar aðstæður. Ég myndi telja þetta
óeðlilega viðskiptahætti en bank-
inn hefur sjálfsagt aðra skoðun á
því.“
Aðspurður hvort eitthvað ann-
að en gjaldþrot blasi við fyrir-
tækinu segir Steingrímur: „Það
er verið að meta stöðuna. Hún er
náttúrlega ekki góð og ljóst að
það þarf að fara í einhverja
nauðasamninga.“
Einn helsti samkeppnisaðili
Ferskra afurða er Kaupfélag
Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins grunar forráðamenn
Ferskra afurða að Kaupfélagið
komi á einhvern hátt inn í málið
þar sem kaupfélagsstjórinn,
Þórólfur Gíslason, situr einnig í
bankaráði Búnaðarbankans.
trausti@frettabladid.is
Öryrkjadómurinn:
Lítil áhrif á
efnahag
EFNAHAGSMÁL Ekki er gert ráð fyr-
ir því að það hafi mikil áhrif á
efnahagslífið að ríkið þurfi að
greiða einn til einn og hálfan
milljarð króna til öryrkja vegna
dóms Hæstaréttar í síðustu viku.
Bolli Þór Bollason, skrifstofu-
stjóri efnahagsskrifstofu fjár-
málaráðuneytisins, segir að gert
sé ráð fyrir því að útgjöldin aukist
á fjáraukalögum þessa árs og þar
af leiðandi sé gert ráð fyrir minni
afgangi af ríkissjóði en búist var
við. Aðalatriði í þessu máli sé að
hér sé um greiðslu í eitt skipti að
ræða og þar af leiðandi breytist
ekki aðrar forsendur. ■
FLUGSTÖÐIN Á
KEFLAVÍKURFLUGVELLI
130 flugvirkjar Flugleiða á Keflavíkurflug-
velli hafa hótað verkfalli í næstu viku.
Flugvirkjar hjá
Flugleiðum:
Vongóðir
um lausn
KJARAMÁL „Vonandi verður ekki
verkfall. Það eru nokkrir dagar til
stefnu og við höfum góða von um
að þetta lagist,“ segir Kristján
Kristinsson, sem leiðir samninga-
nefnd flugvirkja hjá Flugleiðum í
kjaraviðræðum við Samtök at-
vinnulífsins. Flugvirkjar hafa hót-
að fyrsta verkfalli sínu í 50 ár í
næstu viku, sem myndi leiða til
þess að millilandaflug Flugleiða
stöðvaðist.
Kristján segir viðræðurnar
mjakast í rétta átt og að fundirnir
verði lengri með hverjum degin-
um. „Skrúfan er að herðast. Síð-
ustu skrefin eru alltaf þyngst,“
segir hann. ■
Lögreglan á Húsavík:
Skyttur virða
veiðibann
LÖGREGLAN Lögreglan á Húsavík
fór upp á fjöll og heiðar til að at-
huga hvort rjúpnaveiðibannið
væri virt. Á hálendinu sáust för
eftir bíla og mannaferðir en engar
byssur. Segir lögreglan skytturn-
ar allt eins hafa getið verið á ferð-
inni til að skoða fuglana og láta
sig dreyma og ekki sé ástæða til
annars en að halda að bannið sé
virt í hennar umdæmi. ■
Snjóbræðslurör
25 mm PEM–hitaþol 50°/5bar
8120400
39kr./m57 kr./m
Nú fást snjóbræðslurör í innkeyrsluna
eða göngustíginn
á ótrúlega
góðu verði
Lögmaður Ferskra afurða segir viðskiptahætti Kaupþings Búnaðar-
banka óeðlilega. Bankaráðsmaður er kaupfélagsstjóri eins helsta keppi-
nautarins. Í athugun er hvort bjarga megi fyrirtækinu frá gjaldþroti.
BANKARÁÐ BÚNAÐARBANKANS
Héraðsdómur Norðurlands vestra féllst í
fyrrdag á kröfu Kaupþings-Búnaðarbanka
um að greiðslustöðvun Ferskra afurða yrði
ekki framlengd.
NIÐURSTÖÐURNAR KYNNTAR
Drífa Snædal og Hildur Jónsdóttir kynntu
niðurstöðurnar úr rannsókn Jafnréttis-
nefndar Reykjavíkurborgar um kynlífsmark-
aðinn hér á landi.
SAMRUNI Í HUGBÚNAÐI Hugbún-
aðarfyrirtækin Landsteinar og
Strengur hafa gengið frá samn-
ingum um sameiningu og munu
hér eftir heita Landsteinar
Strengur.
■ Viðskipti