Fréttablaðið - 23.10.2003, Blaðsíða 15
krabbamein í ættinni eru líkurnar
mjög litlar að það berist áfram.
Svo margir óvissu- og utanaðkom-
andi þættir hafa áhrif á slíkt að
fólk ætti ekki að vera hrætt vegna
þess.“ ■
BJÖRGUN Svein Ludvigsen, sjávarút-
vegsráðherra Noregs, er óánægður
með framgöngu eigenda fjölveiði-
skipsins Guðrúnar Gísladóttur sem
sökk við strönd Norður-Noregs í
fyrrasumar. Eigendurnir fengu ár
til að reyna endurheimt skipsins, en
norska sjávarútvegsráðuneytinu
brast þolinmæði í byrjun mánaðar-
ins og tók sjálft ábyrgð endurheimt
flaksins frá hafsbotni, en eigendun-
um verður sendur reikningur. Norð-
menn telja að síldarfarmur og olía í
skipinu séu mengunarvaldur.
„Við munum ná skipinu upp og
sjá um fiskinn og olíuna fyrir hönd
eigendanna. Þetta er gert sam-
kvæmt alþjóðlegum og norskum
lögum. Ég er afar óánægður með
það hversu langan tíma þetta tók
hjá eigendunum og ég hef gagnrýnt
þá harkalega. Við urðum að bregð-
ast við í byrjun október vegna um-
hverfishættunnar,“ segir Ludvig-
sen. ■
15FIMMTUDAGUR 23. október 2003
LAUFEY TRYGGVADÓTTIR
Segir að mörgum hafi brugðið við tilkynn-
ingu Íslenskrar erfðagreiningar um
arfgengi krabbameins.
SANDGERÐI
Stærstur hluti af kvóta bæjarbúa er horf-
inn. Sameining við HB var dýrkeypt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
séu afleiðingar kvótakerfisins. Nú
verði Sandgerðingar að bretta
upp ermar og ná veiðirétti sínum
til baka. Þar horfir hann til þess
að Eimskip muni selja sjávarút-
vegshluta fyrirtækisins sem er að
hluta HB á Akranesi.
„Ef til þess kemur að Brim
verði leyst upp eins og margt
bendir til þá verðum við Sand-
gerðingar að vera tilbúnir til að
kaupa þann hluta sem við áttum í
kvóta þessa risa. Hlutur Sand-
gerðis í hitaveitunni ætti að
leggja sig á næstum tvo milljarða
króna en ég teldi nóg að leggja
helming þeirra fjármuna í að
kaupa kvóta til að endurselja
þeim sem vilja gera héðan út,“
segir Grétar Mar, sem reyndar ef-
ast um að ráðamenn í Sandgerði
deili með sér þeirri skoðun.
„Þetta er auðvitað hrikaleg
staða sem sveitarfélög eru komin
í þegar þau þurfa að selja frá sér
eignir til þess að reyna að kaupa
aftur til sín veiðiréttinn. Héðan
hafa horfið um 90 prósent af kvót-
anum og við verðum að bregðast
við þótt með örþrifaráðum sé,“
segir Grétar Mar.
rt@frettabladid.is
Þjófur dæmdur:
Níu mánuði
í fangelsi
DÓMUR 24 ára maður hefur verið
dæmdur í níu mánaða fangelsi
fyrir ýmis brot.
Hann var dæmdur fyrir að
hafa í slagtogi við tvo aðra neytt
veitinga á matsölustað, að verð-
mæti rúmar þrjú þúsund krónur,
án þess að geta greitt fyrir þær.
Einnig fyrir að stela nokkrum
áfengisflöskum og dýrum vindl-
um að verðmæti tæpar áttatíu
þúsund krónur. Þá stal hann líka
bíl, langloku og upptakara.
SVEIN LUDVIGSEN
Norska sjávarútvegsráðherranum brast þolinmæðin við íslenska eigendur Guðrúnar Gísla-
dóttur í byrjun október, en þá hafði skipið legið á hafsbotni í rúmt ár.
Sjávarútvegsráðherra Noregs um Guðrúnu Gísladóttur:
Óánægður með
íslenska eigendur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/J
Ó
N
T
R
AU
ST
I