Fréttablaðið - 27.10.2003, Page 14

Fréttablaðið - 27.10.2003, Page 14
Ólafur Ragnar Grímsson hefurenn ekki tilkynnt hvort hann hyggist bjóða sig fram til að sitja þriðja kjörtímabilið sem forseti. Ef kosningar fara fram munu þær verða haldnar eftir um átta mánuði. Ef Ólafur Ragnar ætlar ekki fram er tíminn að verða helst til skammur fyrir hugsanlega frambjóðendur að gera upp hug sinn og þjóðina til að kynnast þeim og meta. Ólafur Ragn- ar hlýtur því að eyða þessum vafa á allra næstu dögum eða vikum. Í könnun sem Fréttablaðið birtir í dag kemur fram að um 68 prósent kjósenda vilja að Ólafur Ragnar verði áfram forseti. Um 12 prósent eru óákveðin en tæpt 21 prósent kjósenda vill ekki að Ólafur Ragnar verði forseti á næsta kjörtímabili. Það er erfitt að meta hvort þetta er góður stuðningur við Ólaf Ragnar eða hvort andstaðan við framboð hans sé mikil eða lítil. Við Íslending- ar höfum hingað til almennt staðið að baki forseta okkar. Eini sitjandi forsetinn sem hefur þurft að gang- ast undir kosningu – Vigdís Finn- bogadóttir – sigraði þær kosningar með flestum greiddum atkvæðum. Það getur því líklega ekki talist mik- ill stuðningur við sitjandi forseta að 68 prósent kjósenda vilji hann áfram. Að sama skapi verður það að teljast nokkur andstaða að 21 pró- sent kjósenda vilji ekki að forsetinn haldi áfram. Ólafur Ragnar er lík- lega sá forseti sem hefur mátt þola mestu andstöðu í upphafi ferils síns. Þessi könnun sýnir að andstaða við hann er enn nokkur – Ólafi Ragnari hefur tekist að draga úr henni en enn er um fimmtungur kjósenda því mótfallinn að hann haldi áfram. Þegar litið er yfir feril Ólafs Ragnars er erfitt að benda á eitt- hvað sem getur valdið því að and- staða við hann er svona langvarandi. Það er ekki hægt að sjá að hann hafi gert neitt af sér. En á móti getur ver- ið erfitt að benda á eitthvað sem hann hefur gert sem er fallið til þess að auka traust til hans eða vinsæld- ir. En forsetastarfið er nú einu sinni þessu marki brennt – það skiptir ef til vill ekki mestu hvað er gert held- ur fremur hvernig. Í kosningabaráttunni fyrir tæp- um átta árum gaf Ólafur Ragnar til kynna að hann myndi beita embætt- inu til að grípa inn í mál ef hann teldi að gjá væri að myndast milli vilja þings og þjóðar. Sjálfsagt gætu flestir nefnt einhver dæmi þess að hann hefði mátt íhuga þessa stöðu á umliðnum kjörtímabilum en líklega væru þau dæmi misvísandi og ólík – og í engum tilfellum hefur mikill meirihluti þjóðarinnar verið ein- huga. Ólafur Ragnar talaði í kosn- ingabaráttunni um að sameina tvenns konar þrá Íslendinga; að vera sannir heimsborgarar og sann- ir Íslendingar. Hann vildi með öðr- um orðum nota stöðu forsetaemb- ættisins til að fleyta þjóðernishug- myndum okkar nær heiminum í dag. Sjálfsagt hafa menn misjafna skoðun á hvernig til hefur tekist – og fer það þá eftir afstöðu til þjóðernis eða alþjóðahyggju hvers og eins. ■ Úttekt VSÓ-ráðgjafar á þvíhvort hægt væri að koma óperu fyrir í Borgarleikhúsinu var gerð fyrir Reykjavíkur- borg. Athugunaraðilinn, VSÓ- ráðgjöf, er hinn sami og gaf ráð um byggingu Tónlistarhúss þar sem niðurstaðan var að ekki væri æskilegt að fá inn óperu. Helsti forsvarsmaður VSÓ-ráð- gjafar, Stefán P. Eggertsson, verkfræðingur og formaður Samtaka um byggingu Tónlist- arhúss, hefur persónulega lengi lagst gegn því að ópera fái inni í Tónlistarhúsinu. Niðurstaða út- tektar VSÓ þurfti ekki að koma á óvart þegar líka er haft í huga að ráðamenn borgarinnar hafa ítrekað reynt að leysa vanda Borgarleikhússins með því að troða í það Íslensku óperunni - þvert gegn vilja hennar. Niðurstaða VSÓ varð því sú að það væri fjárhagslega hag- kvæmara að setja óperuna inn í Borgarleikhús en í Tónlistar- hús. Að vísu þarf að stækka að- alsal Borgarleikhússins upp í 850 sæti og rústa með því bygg- ingunni. Ekki var skoðuð sú augljósa lausn að óperusýning- ar fengju inni í stóra (1500 manna) sal Tónlistarhússins, lausn sem fv. menntamálaráð- herra var búinn að lofa. Stærri leikhús óþörf Það hefur sést að brýn þörf er fyrir stækkun á áhorfendasölum leikhúsanna. Þar er fullt hús ekki alger nauðsyn því oft eru aðeins 5-10 leikarar í sýningu og stundum miklu færri. Hver kvöldsýning kostar ekki svo mikið. Því er allt öðruvísi farið við óperusýningar. Þar eru 5-10 einsöngvarar, 40 manna kór og stór hljómsveit. Hátt í hundrað manns á fullum launum á hverju kvöldi. Eins gott að salurinn sé fullsetinn, annars stæði kvöldið ekki undir sér. Laun óperulista- manna hafa hækkað svo mikið að stútfullur 500 manna salur skilar samt tapi. Það kallar á miklu stærri sal. Leikhús og ópera fara illa saman Hagsmunir óperu og leikhúss fara ekki saman hvað stærð sal- arins varðar. Litlir salir nýtast leikhúsum, en sjaldnast óperu. Í leikhúsi keppir ópera líka við leikrit um vinsælustu kvöldin. Það gengur aðeins að sýna stór sviðsstykki (leikrit eða óperur) tvö kvöld í viku, föstudaga og laugardaga. Fyrir 40 árum þeg- ar Þjóðleikhúsið var óperuhúsið okkar urðu leikarar stundum fúlir þegar óperan fékk helg- arnar á meðan þeir urðu að leika fyrir hálftómum kofanum í miðri viku. Þetta olli spennu milli listgreinanna og það mun auðvitað aftur gerast í Borgar- leikhúsinu verði af samkrulli þeirra. Hins vegar þarf sinfón- íutónlist ekkert á helgunum að halda. Ópera keppir ekki um sömu kvöld við Sinfóníuna og hentar sambýli þeirra því vel. Allt annan hljómburð þarf líka fyrir talað orð en tónlist. Það var þó einmitt einhver mis- skilningur um hljómburð, sem olli því að sumir lögðust gegn því að Ópera fengi inni í Tón- listarhúsi. Sagt var að ópera og sinfónía þyrftu mismunandi hljómburð, það er mesta firra. Þótt það væri leiðrétt sátu þeir fastir við sinn keip og þögðu, þar á meðal óháði ráðgjafinn Stefán P. Eggertsson. Hann og Samtök hans um Tónlistarhús hafa ekki sagt opinbert orð um málið, en í staðinn komið ár sinni vel fyrir borð meðal ráða- manna og nú komnir vel á veg með að láta þá byggja fyrir sig rándýrt hús sem mun valda meiri deilum en það leysir. Það kaldhæðna er að um leið og þeir heimta betri hljómburð fyrir Sinfóníuna má Óperan eiga sig og þeirra vegna þola enn verri hljómburð en nú er í Háskóla- bíói. ■ Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um stuðning þjóðarinnar við forseta sinn. 14 27. október 2003 MÁNUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Tríóið sem stýrir Reykjavíkur-listanum gerði þrenn afdrifa- rík mistök í samskiptum sínum við Steinunni Birnu Ragnarsdótt- ur. Í fyrsta lagi að sjá til þess að skoðanir hennar á framtíð Aust- urbæjarbíós kæmu ekki fram í borgarstjórn í kjölfar þess að hafa ekki hlustað á hana í hverju málinu á fætur öðru; í öðru lagi að hlusta ekki á hana þegar hún vildi ræða þessi mál; í þriðja lagi að yppa öxlum opinberlega þegar hún sagði sig úr borgarstjórn. Á sérhverju stigi málsins mögnuðu þeir vandræðin í stað þess að leysa þau og almenningur fær á tilfinninguna að í ráðhúsið skorti nú pólitíska forystu, pólitískt næmi - pólitíska auðmýkt. Vildu þeir losna við hana? Viðtal í Morgunblaðinu þann 22. október við Árna Þór Sigurðs- son, leiðtoga Vinstri-grænna í borginni - og samflokksmann Steinunnar Birnu - segir nokkra sögu um viðhorf atvinnustjórn- málamanns gagnvart manneskju sem ekki lifir og hrærist í stjórn- málum. Árni Þór er dugmikill maður og velviljaður en sé að marka viðtalið virðist hann ævin- lega hafa misst heyrnina í grennd við Steinunni Birnu. Ekki virðist hann sakna hennar en lætur hafa eftir sér að sér finnist „viðbrögð hennar vera svolítið yfirdrifin“. Fram kemur að þau hafi átt með sér fund þar sem hún hafi tilkynnt að hún væri búin að ákveða að segja af sér. Hann segist nú ásaka sig fyrir að „ekki hafi fyrst verið látið á það reyna hvort hægt væri að gera breytingar að hennar skapi. Hann hafði áður alls ekki gert sér grein fyrir að málið væri svona alvarlegt í hennar huga“. Það hefði hann gert ef hann hefði hlustað á hana, en hann heyrði aldrei í henni. Hann hlust- aði ekki á sjónarmið fulltrúa Vinstri grænna í menningarmála- nefnd borgarinnar, sjónarnið sem hann hefði mátt vita að eiga sér mikinn hljómgrunn meðal kjós- enda Reykjavíkurlistans. Honum þykja viðbrögð hennar „yfirdrif- in“ og ekki er á honum að skilja að hann hafi reynt að telja henni hug- hvarf. Þetta er kunnuglegt tal sem maður á að vísu ekki von á frá manni úr nákvæmlega þessum stjórnmálaflokki, en hendir okkur karlmenn stundum þegar við erum of mikið í samvistum við aðra karlmenn á svipuðum aldri. Eitt af kennimörkum Reykjavíkur Þetta er ekki hégómamál. Sam- skiptin við Steinunni Birnu af- hjúpa veikleika í Reykjavíkurlist- anum og afsögn hennar er reiðar- slag fyrir flokkana sem stýra borginni; viðbrögð forystumann- anna eru líka áhyggjuefni fyrir velunnara þessa samstarfs. Svo virðist sem ekki hafi verið hlustað á sjónarmið Steinunnar Birnu í hverju málinu á fætur öðru - og hún jafnvel mætt tortryggni sem talsmaður tónlistarkennara - og málefni Austurbæjarbíós verið dropinn sem fyllti mælinn. Satt að segja hefur maður fylgst hálf gáttaður með því máli enda Austurbæjarbíó eitt af kennimörkum Reykjavíkur. Nið- urrif hússins hefur verið keyrt í gegnum borgarkerfið, nánast af offorsi - skyndilega er hlaupinn óvæntur dugnaður í Reykjavíkur- listann í byggingarmálum og nú virðist loksins eiga að drífa í þeir- ri þéttingu byggðar sem talað var um að stefna að þegar listinn komst til valda, í stað þess að reisa næsta borgarhverfi til dæm- is uppi á Esjunni. Það er jákvætt að sjá að borgaryfirvöld hafi í hyggju að lífga upp á það hverfi sem í eina tíð hét austurbærinn; þetta hverfi er mjög ákjósanlega í sveit sett en þarfnast endurnýjun- ar. Austurbæjarbíó er miðja þessa hverfis, það er sjálft Samkomu- húsið, það er Hið Sögufræga Hús sem hvert hverfi þarf á að halda og eins og öll merkileg hús á það sér sín blómaskeið og sín niður- lægingarskeið. Hin plebbalega diskómálning á húsinu minnir á mesta niðurlægingarskeið þess þegar það var kallað Bíóbær eða eitthvað ámóta og fyrsta verkið í endurreisn hússins ætti að vera að endurheimta hina sérkennilegu - og sérreykvísku - rauðu skelja- sandsáferð sem húsið prýddi. Í þessu húsi naut maður ýmissa eft- irminnilegustu tónleika ævinnar í kammertónlist og djassi; þarna horfði ég líka í menntó á magnaða óperu eftir Stefán Jón Hafstein um Rauðhettu minnir mig - þar sem hann fór á kostum - og þarna stóð ég meira að segja sjálfur og söng kántríafbrigði af óðinum til móður Sylvíu með honum Eiríki vini mínum... Slíkar minningar eiga margir Reykvíkingar um þetta glæsilega hús, allir þessir viðburðir hafa gefið því sál, og enn í dag er þetta eitt besta tón- leikahús landsins: Í tíð Reykjavík- urlistans hefur ekki verið offram- boð af slíku húsnæði, nema síður sé. Maður rífur ekki bara umyrða- laust eitt af fáum húsum þessa borgarhluta með sál með þeim orðum að þeir sem tregðast við sýni „yfirdrifin“ viðbrögð. Nóg er af ljótum og sorglegum húsum á þessu svæði. Mætti ekki rífa Hlemm? Og útbúa einhvers staðar vistlegt athvarf fyrir það fólk sem þar heldur sig? ■ Atvinnu- leysisbætur of lágar Guðmundur skrifar: Mánaðarleg upphæð atvinnu-leysisbóta er í dag rúmar 77.000 krónur. Af þessum kexaurum ætlast ríkisstjórn Ís- lands til þess að þiggjandi slíkr- ar upphæðar borgi húsnæðis- kostnað og kaupi sér í matinn í þrjátíu daga. Staðreyndin er þessi: Hver fermetri húsnæðis er á 1000 til 1.500 krónur. Það þýðir að 2ja herbergja íbúð er á 50.000-65.000 krónur. Þá stendur eftir umtalsverð upphæð til þess að kaupa sér í matinn og jafnvel að taka þátt í félagslega vænu samfélagi. Auðvitað kost- ar ekkert að vera á bíl og hafa það nokkuð viðunandi. Þúsund- um er haldið á mörkum örbirgð- ar með það að markmiði að við- komandi hljóti að koma sér í vinnu fyrr eða síðar. Lögbinda þarf strax lág- marksframfærslu með tvær staðreyndir að markmiði. Ann- ars vegar „allir þurfa þak yfir höfuðið“ og „matur er mannsins megin“. Morkinn hugsunarhátt- ur stjórnvalda virðist vera „reddið ykkur sjálf“ og „drepist bara úr svengd“. Hvað á maður eiginlega að halda. Vantar pen- inga? Hvers konar kerfi er þetta eiginlega! ■ Reiðarslag fyrir Reykjavíkurlistann ■ Bréf til blaðsins Óperu ekki í Tónlistarhús? Forseti með stuðning – og andstöðu                                 !                  "          Um daginnog veginn GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON ■ skrifar um borgarmál Umræðan ÁRNI TÓMAS RAGNARSSON ■ læknir skrifar um byggingu Tónlistar- arhúss og framtíð Óperunnar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.