Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 2

Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 2
2 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR „Við teljum svona milljarð á dag í þessu tilviki. Í mörgum öðrum til- vikum getum við hins vegar talið hátt í tíu milljarða á dag.“ Hjálmar Vilhjálmsson hjá Hafró stjórnaði talningu á loðnu vestur af Vestfjörðum. Í ár taldi hann tíu milljarða; og þótti lítið. Spurningdagsins Hjálmar, hvað voruð þið eiginlega lengi að telja upp í tíu milljarða? Biskup blessi deilu- aðila í Dalabyggð Bóndinn á Garpsstöðum lýsir ógnarástandi í Dalabyggð. Vill að bisk- upinn komi í Búðardal og bindi enda á deilurnar. DEILUR „Ef hér á að verða einhver hreinsun á öll sveitarstjórnin að segja af sér. Linni þessu ástandi ekki getur allt gerst,“ segir Þor- grímur Guðbjartsson, bóndi á Garpsstöðum í Dalabyggð og kosn- ingastjóri L-listans, um það ógnar- ástand sem ríkir í byggðinni eftir að Guðrúnu Jónu Gunnarsdóttur, leiðtoga L-listans, var vikið úr sæti oddvita og úr nefndum á vegum sveitarfélagsins. Guðrún Jóna hef- ur verið beðin að halda sig frá vinnustað sínum á Heilsugæslunni í Búðardal þar sem hún starfar sem hjúkrunarforstjóri. Ástæðan er sú að grunsemdir eru uppi um að hún hafi í leyfisleysi farið inn á sjúkraskrár pólitískra andstæð- inga sinna. Sjálf segir hún að yfir- læknirinn hafi farið inn á tölvu- kerfið á hennar aðgangsorði. Þetta mál er nú til rannsóknar hjá Sýslu- manninum í Búðardal, sem nýtur aðstoðar tölvudeildar Ríkislög- reglustjóra. Deilur hafa geisaði í sveitarfé- laginu allt síðan sölu Hitaveitu Dalamanna bar á góma og til stóð að selja hana Orkubúi Vestfjarða. Þá áttu ryskingar sér stað milli Guðrúnar Jónu og hjóna í byggðar- laginu. Oddvitinn er sagður hafa sparkað í eiginmanninn á við- kvæman stað en eiginkonan sló þá oddvitann krepptum hnefa í auga- stað svo glóðarauga hlaust af. Tæplega fjörutíu Dalamenn komu saman til fundar í vikunni til þess að ræða stöðuna. „Fundurinn mótmælir þessari aðför sem gerð hefur verið að mannorði Guðrúnar Jónu,“ segir í ályktun fundarins. Þorgrímur á Garpsstöðum segir ástandið í annars friðsamlegu sam- félagi Dalamanna vera einkar dap- urt. „Ég hef aldrei upplifað aðra eins úlfúð. Biskup Íslands þyrfti að koma í Dalabyggð til að blessa,“ segir Þorgrímur. Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, sem heldur sig heima þessa dag- ana, sagði við Fréttablaðið að þetta ástand væri vissulega erfitt. „En ég mun ekki gefast upp og fara af staðnum,“ segir hún. rt@frettabladid.is Jón Ólafsson kaupsýslumaður vegna ummæla forsætisráðherra: Deilt um lögfræði en ekki þjófnað FÉSÝSLA Heimildir Fréttablaðsins herma að Jón Ólafsson kaup- sýslumaður kanni nú möguleika þess að stefna Davíð Oddssyni forsætisráðherra fyrir rógburð vegna þeirra orða sem Davíð lét falla um hann í tengslum við sölu Jóns á öllum eignum á Íslandi. „Ég get ekkert sagt um það á þessari stundu,“ segir Jón Ólafs- son aðspurður um það hvort hann hyggist leita réttar síns fyrir dómstólum vegna ummæla sem lýsa því að Kaupþing - Bún- aðarbanki hafi keypt þýfi og Jón Ólafsson sé þar af leiðandi þjóf- ur. Gagnrýni forsætisráðherra beinist að því að Jóni hafi verið gert kleift að selja allar sínar eignir og fara úr landi um það bil sem skattrannsóknarstjóri er að ljúka viðamikilli rannsókn á um- svifum Jóns sem gæti leitt til þess að hann fái himinháar álög- ur. „Ég hef ekki svikið undan skatti. Það er aðeins deilt um lögfræði og hefur ekkert með það að gera hvort ég hef gert eitthvað rétt eða rangt,“ segir Jón. ■ Starfsgreinasambandið leggur fram kröfur fyrir samninga: 110.000 krónur fyrir dagvinnuna SAMNINGAR Starfsgreinasamband- ið vill tryggingu fyrir því að greiðslur fyrir dagvinnu verði ekki lægri en 110.000 krónur á mánuði frá og með næstu áramót- um og að tekin verði upp ný launa- tafla. Verði fallist á þetta er sam- bandið reiðubúið að semja til fjög- urra ára. Þetta kemur fram í kröfugerð sem forystumenn Starfsgreina- sambandsins kynntu fyrir fulltrú- um Samtaka atvinnulífsins í gær. Mest áhersla er lögð á að tekin verði upp ný launatafla og að lægstu laun hækki. Samkvæmt kröfugerð Starfsgreinasambands- ins er farið fram á 30% hækkun lægstu launa og 19% launahækk- un almennt. Lágmarkstekjutrygg- ing fyrir dagvinnuna á að vera 110.000 krónur á næsta ári, 117.000 frá 1. janúar 2005, 124.000 2006 og 130.000 krónur frá ára- mótum 2007. Starfsmenn Starfsgreinasam- bandsins hafa reiknað kostnaðar- auka vinnuveitenda vegna kröfu- gerðarinnar til 24,9%. ■ Bandaríkjaþing: Ný lyfjalög samþykkt WASHINGTON, AP Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær róttækar breytingar á bandaríska heilbrigðistryggingakerfinu, Medi- care, með 54 atkvæðum gegn 44. Talsmenn meirihlutans telja að með samþykktinni sé aðgengi aldr- aðra að lyfseðilsskyldum lyfjum stórbætt, en kostnaður við nýju lögin er talinn vera tæplega fjögur hundruð milljarðar Bandaríkja- dala, að sögn AP-fréttastofunnar. Talsmenn demókrata, sem flest- ir voru mótfallnir breytingunni, telja að tryggingafélög og lyfja- framleiðendur fái of mikið fyrir sinn snúð. ■ Unglingar sækja um hæli: Fyrsta sinn hérlendis FLÓTTAMENN Tveir piltar frá Sri Lanka sem komu hingað til lands á laugardag og óskuðu hælis sem pólitískir flóttamenn eru fyrstu flóttamennirnir undir lögaldri sem koma hingað til lands án þess að vera í fylgd forráðamanns. Vegna ungs aldurs þeirra verður að taka öðruvísi á máli þeirra en eldri flóttamanna og fjölskyldna þar sem er hvort tveggja fólk sem hefur náð lögaldri og yngri ein- staklingar. Ungur aldur þeirra verður til þess að Rauði krossinn og aðrir sem að málinu koma fara öðruvísi að en áður. „Það breytir bara því að barnaverndaryfirvöld koma að þessu máli. Við förum örlítið öðru- vísi með þeirra mál. Þeir eru í um- sjá okkar með manneskju með sér allan tímann,“ segir Þórir Guð- mundsson hjá Rauða krossinum. Rauði krossinn var með náms- stefnu í mars, í samráði við Flótta- mannahjálp Sameinuðu þjóðanna, um hvað gerist þegar börn sækja um pólitískt hæli. Menn voru því meðvitaðir um að þetta gæti gerst þó það hafi aldrei gerst hérlendis áður. ■ Skerðing bóta: Leita álits STJÓRNMÁL Efnahags- og viðskipta- nefnd Alþingis ákvað á fundi að leita lögfræðiálits á því hvort áform ríkisstjórnarinnar um að skerða vaxtabætur um 600 millj- ónir króna stangist á við stjórnar- skrárbundin réttindi. Einhugur var innan nefndar- innar um að fá utanaðkomandi að- ila til að kanna hvort um íþyngj- andi afturvirk ákvæði væri að ræða, en samkvæmt frumvarpinu mun hlutfall við útreikning á vaxtabótum lækka úr 7% niður í 5,5% og snertir það um fjögur þúsund manns. ■ L. PAUL BREMER Landstjóri Bandaríkjamanna í Írak segir að uppreisnarmönnum hafi ekki tekist að beygja bandaríska hernámsliðið. Uppreisnarmenn í Írak: Árásir á heimamenn BAGDAD, AP Á undanförnum tveim- ur vikum hafa uppreisnarmenn í Írak beint spjótum sínum að Írök- um sem starfa hjá bandaríska hernámsliðinu en árásum á bandaríska hermenn hefur fækk- að. Á sama tíma hefur herinn ráð- ist af hörku gegn uppreisnar- mönnum, segir L. Paul Bremer, landstjóri Bandaríkjanna í Írak. Bremer fullyrðir að árásar- mönnunum muni ekki takast að fæla Íraka frá því að vinna með hernámsliðinu. „Þeim tókst ekki að skjóta bandalagsþjóðunum skelk í bringu og nú reyna þeir að hræða saklausa Íraka,“ sagði Bremer. Talið er að að minnsta kosti 250 Írakar hafi farist í árásum upp- reisnarmanna síðan stríðinu lauk 1. maí. ■ edda.is „Hressileg saga, rennileg og skemmtilega skrifuð í stuttu máli afbragðs afþreying ... mæli hiklaust með henni“ – Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is „Mikið plott ... sterk persónu- sköpun“ – Þorgerður E. Sigurðardóttir, Kastljósið „Mæli hiklaust með henni“ JÓN ÓLAFSSON Þessi mynd var tekin á Reykjavíkur- flugvelli daginn sem Jón hélt af landi brott með einkaþotu eftir að hafa selt allt sitt á Íslandi. KARL SIGURBJÖRNSSON Dalamenn vilja að hann komi í heimsókn til að blessa stríðandi fylkingar. BÚÐARDALUR Samfélagið skiptist í stríðandi fylkingar; með og á móti fyrrverandi oddvita. KRÖFUGERÐIN KYNNT Forysta Starfsgreinasambandsins fundaði með forystu Samtaka atvinnu- lífsins í gær. Evrusvæðið: Stórveldin fá undanþágu BRUSSEL, AP Fjármálaráðherrar að- ildarlanda evrusamstarfsins sam- þykktu í gær að leggja ekki sektir á ríkissjóði Frakklands og Þýska- lands fyrir að brot á stöðugleika- sáttmálanum. Sáttmálinn kveður á um að fjár- lagahalli í aðildarríkjunum megi ekki vera meiri en 3% af landsfram- leiðslu, en útlit er fyrir að bæði ríki rjúfi þann múr bæði í ár og á næsta ári. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.