Fréttablaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 2
2 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
„Við teljum svona milljarð á dag í
þessu tilviki. Í mörgum öðrum til-
vikum getum við hins vegar talið
hátt í tíu milljarða á dag.“
Hjálmar Vilhjálmsson hjá Hafró stjórnaði talningu
á loðnu vestur af Vestfjörðum. Í ár taldi hann tíu
milljarða; og þótti lítið.
Spurningdagsins
Hjálmar, hvað voruð þið eiginlega
lengi að telja upp í tíu milljarða?
Biskup blessi deilu-
aðila í Dalabyggð
Bóndinn á Garpsstöðum lýsir ógnarástandi í Dalabyggð. Vill að bisk-
upinn komi í Búðardal og bindi enda á deilurnar.
DEILUR „Ef hér á að verða einhver
hreinsun á öll sveitarstjórnin að
segja af sér. Linni þessu ástandi
ekki getur allt gerst,“ segir Þor-
grímur Guðbjartsson, bóndi á
Garpsstöðum í Dalabyggð og kosn-
ingastjóri L-listans, um það ógnar-
ástand sem ríkir í byggðinni eftir
að Guðrúnu Jónu Gunnarsdóttur,
leiðtoga L-listans, var vikið úr sæti
oddvita og úr nefndum á vegum
sveitarfélagsins. Guðrún Jóna hef-
ur verið beðin að halda sig frá
vinnustað sínum á Heilsugæslunni
í Búðardal þar sem hún starfar
sem hjúkrunarforstjóri. Ástæðan
er sú að grunsemdir eru uppi um
að hún hafi í leyfisleysi farið inn á
sjúkraskrár pólitískra andstæð-
inga sinna. Sjálf segir hún að yfir-
læknirinn hafi farið inn á tölvu-
kerfið á hennar aðgangsorði. Þetta
mál er nú til rannsóknar hjá Sýslu-
manninum í Búðardal, sem nýtur
aðstoðar tölvudeildar Ríkislög-
reglustjóra.
Deilur hafa geisaði í sveitarfé-
laginu allt síðan sölu Hitaveitu
Dalamanna bar á góma og til stóð
að selja hana Orkubúi Vestfjarða.
Þá áttu ryskingar sér stað milli
Guðrúnar Jónu og hjóna í byggðar-
laginu. Oddvitinn er sagður hafa
sparkað í eiginmanninn á við-
kvæman stað en eiginkonan sló þá
oddvitann krepptum hnefa í auga-
stað svo glóðarauga hlaust af.
Tæplega fjörutíu Dalamenn
komu saman til fundar í vikunni til
þess að ræða stöðuna. „Fundurinn
mótmælir þessari aðför sem gerð
hefur verið að mannorði Guðrúnar
Jónu,“ segir í ályktun fundarins.
Þorgrímur á Garpsstöðum segir
ástandið í annars friðsamlegu sam-
félagi Dalamanna vera einkar dap-
urt.
„Ég hef aldrei upplifað aðra
eins úlfúð. Biskup Íslands þyrfti að
koma í Dalabyggð til að blessa,“
segir Þorgrímur.
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir,
sem heldur sig heima þessa dag-
ana, sagði við Fréttablaðið að þetta
ástand væri vissulega erfitt. „En
ég mun ekki gefast upp og fara af
staðnum,“ segir hún.
rt@frettabladid.is
Jón Ólafsson kaupsýslumaður vegna ummæla forsætisráðherra:
Deilt um lögfræði en ekki þjófnað
FÉSÝSLA Heimildir Fréttablaðsins
herma að Jón Ólafsson kaup-
sýslumaður kanni nú möguleika
þess að stefna Davíð Oddssyni
forsætisráðherra fyrir rógburð
vegna þeirra orða sem Davíð lét
falla um hann í tengslum við sölu
Jóns á öllum eignum á Íslandi.
„Ég get ekkert sagt um það á
þessari stundu,“ segir Jón Ólafs-
son aðspurður um það hvort
hann hyggist leita réttar síns
fyrir dómstólum vegna ummæla
sem lýsa því að Kaupþing - Bún-
aðarbanki hafi keypt þýfi og Jón
Ólafsson sé þar af leiðandi þjóf-
ur. Gagnrýni forsætisráðherra
beinist að því að Jóni hafi verið
gert kleift að selja allar sínar
eignir og fara úr landi um það bil
sem skattrannsóknarstjóri er að
ljúka viðamikilli rannsókn á um-
svifum Jóns sem gæti leitt til
þess að hann fái himinháar álög-
ur.
„Ég hef ekki svikið undan
skatti. Það er aðeins deilt um
lögfræði og hefur ekkert með
það að gera hvort ég hef gert
eitthvað rétt eða rangt,“ segir
Jón. ■
Starfsgreinasambandið leggur fram kröfur fyrir samninga:
110.000 krónur fyrir dagvinnuna
SAMNINGAR Starfsgreinasamband-
ið vill tryggingu fyrir því að
greiðslur fyrir dagvinnu verði
ekki lægri en 110.000 krónur á
mánuði frá og með næstu áramót-
um og að tekin verði upp ný launa-
tafla. Verði fallist á þetta er sam-
bandið reiðubúið að semja til fjög-
urra ára.
Þetta kemur fram í kröfugerð
sem forystumenn Starfsgreina-
sambandsins kynntu fyrir fulltrú-
um Samtaka atvinnulífsins í gær.
Mest áhersla er lögð á að tekin
verði upp ný launatafla og að
lægstu laun hækki. Samkvæmt
kröfugerð Starfsgreinasambands-
ins er farið fram á 30% hækkun
lægstu launa og 19% launahækk-
un almennt. Lágmarkstekjutrygg-
ing fyrir dagvinnuna á að vera
110.000 krónur á næsta ári,
117.000 frá 1. janúar 2005, 124.000
2006 og 130.000 krónur frá ára-
mótum 2007.
Starfsmenn Starfsgreinasam-
bandsins hafa reiknað kostnaðar-
auka vinnuveitenda vegna kröfu-
gerðarinnar til 24,9%. ■
Bandaríkjaþing:
Ný lyfjalög
samþykkt
WASHINGTON, AP Öldungadeild
Bandaríkjaþings samþykkti í gær
róttækar breytingar á bandaríska
heilbrigðistryggingakerfinu, Medi-
care, með 54 atkvæðum gegn 44.
Talsmenn meirihlutans telja að
með samþykktinni sé aðgengi aldr-
aðra að lyfseðilsskyldum lyfjum
stórbætt, en kostnaður við nýju
lögin er talinn vera tæplega fjögur
hundruð milljarðar Bandaríkja-
dala, að sögn AP-fréttastofunnar.
Talsmenn demókrata, sem flest-
ir voru mótfallnir breytingunni,
telja að tryggingafélög og lyfja-
framleiðendur fái of mikið fyrir
sinn snúð. ■
Unglingar sækja um hæli:
Fyrsta sinn
hérlendis
FLÓTTAMENN Tveir piltar frá Sri
Lanka sem komu hingað til lands á
laugardag og óskuðu hælis sem
pólitískir flóttamenn eru fyrstu
flóttamennirnir undir lögaldri
sem koma hingað til lands án þess
að vera í fylgd forráðamanns.
Vegna ungs aldurs þeirra verður
að taka öðruvísi á máli þeirra en
eldri flóttamanna og fjölskyldna
þar sem er hvort tveggja fólk sem
hefur náð lögaldri og yngri ein-
staklingar.
Ungur aldur þeirra verður til
þess að Rauði krossinn og aðrir
sem að málinu koma fara öðruvísi
að en áður. „Það breytir bara því að
barnaverndaryfirvöld koma að
þessu máli. Við förum örlítið öðru-
vísi með þeirra mál. Þeir eru í um-
sjá okkar með manneskju með sér
allan tímann,“ segir Þórir Guð-
mundsson hjá Rauða krossinum.
Rauði krossinn var með náms-
stefnu í mars, í samráði við Flótta-
mannahjálp Sameinuðu þjóðanna,
um hvað gerist þegar börn sækja
um pólitískt hæli. Menn voru því
meðvitaðir um að þetta gæti gerst
þó það hafi aldrei gerst hérlendis
áður. ■
Skerðing bóta:
Leita álits
STJÓRNMÁL Efnahags- og viðskipta-
nefnd Alþingis ákvað á fundi að
leita lögfræðiálits á því hvort
áform ríkisstjórnarinnar um að
skerða vaxtabætur um 600 millj-
ónir króna stangist á við stjórnar-
skrárbundin réttindi.
Einhugur var innan nefndar-
innar um að fá utanaðkomandi að-
ila til að kanna hvort um íþyngj-
andi afturvirk ákvæði væri að
ræða, en samkvæmt frumvarpinu
mun hlutfall við útreikning á
vaxtabótum lækka úr 7% niður í
5,5% og snertir það um fjögur
þúsund manns. ■
L. PAUL BREMER
Landstjóri Bandaríkjamanna í Írak segir að
uppreisnarmönnum hafi ekki tekist að
beygja bandaríska hernámsliðið.
Uppreisnarmenn í Írak:
Árásir á
heimamenn
BAGDAD, AP Á undanförnum tveim-
ur vikum hafa uppreisnarmenn í
Írak beint spjótum sínum að Írök-
um sem starfa hjá bandaríska
hernámsliðinu en árásum á
bandaríska hermenn hefur fækk-
að. Á sama tíma hefur herinn ráð-
ist af hörku gegn uppreisnar-
mönnum, segir L. Paul Bremer,
landstjóri Bandaríkjanna í Írak.
Bremer fullyrðir að árásar-
mönnunum muni ekki takast að
fæla Íraka frá því að vinna með
hernámsliðinu. „Þeim tókst ekki
að skjóta bandalagsþjóðunum
skelk í bringu og nú reyna þeir að
hræða saklausa Íraka,“ sagði
Bremer.
Talið er að að minnsta kosti 250
Írakar hafi farist í árásum upp-
reisnarmanna síðan stríðinu lauk
1. maí. ■
edda.is
„Hressileg saga, rennileg
og skemmtilega skrifuð í
stuttu máli afbragðs
afþreying ... mæli hiklaust
með henni“
– Úlfhildur Dagsdóttir,
bokmenntir.is
„Mikið plott ... sterk persónu-
sköpun“
– Þorgerður E. Sigurðardóttir,
Kastljósið
„Mæli hiklaust með henni“
JÓN ÓLAFSSON
Þessi mynd var tekin á Reykjavíkur-
flugvelli daginn sem Jón hélt af landi
brott með einkaþotu eftir að hafa selt
allt sitt á Íslandi.
KARL SIGURBJÖRNSSON
Dalamenn vilja að hann komi í heimsókn til að blessa stríðandi fylkingar.
BÚÐARDALUR
Samfélagið skiptist í stríðandi fylkingar;
með og á móti fyrrverandi oddvita.
KRÖFUGERÐIN KYNNT
Forysta Starfsgreinasambandsins
fundaði með forystu Samtaka atvinnu-
lífsins í gær.
Evrusvæðið:
Stórveldin fá
undanþágu
BRUSSEL, AP Fjármálaráðherrar að-
ildarlanda evrusamstarfsins sam-
þykktu í gær að leggja ekki sektir á
ríkissjóði Frakklands og Þýska-
lands fyrir að brot á stöðugleika-
sáttmálanum.
Sáttmálinn kveður á um að fjár-
lagahalli í aðildarríkjunum megi
ekki vera meiri en 3% af landsfram-
leiðslu, en útlit er fyrir að bæði ríki
rjúfi þann múr bæði í ár og á næsta
ári. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M