Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 4
4 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
Á að setja einhverjar reglur um
hámarkslaun stjórnenda
einkafyrirtækja?
Spurning dagsins í dag:
Er það góð hugmynd hjá Halldóri Ás-
grímssyni að heimsækja Íran?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
32,1%
47%
Nei
20,9%Kemur það ekki við
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
GEORGÍA Hæstiréttur í Georgíu
hefur ógilt úrslit umdeildra þing-
kosninga sem haldnar voru 2. nóv-
ember. Stuðningsmenn Shevard-
nadzes fóru með sigur af hólmi en
erlendir eftirlitsmenn höfðu gert
athugasemdir við framkvæmd
kosninganna og grunur lék á því
að úrslitunum hefði verið hag-
rætt.
Gamla þingið kom saman að
nýju og boðaði til forsetakosninga
4. janúar næstkomandi. Þá verður
kosið um eftirmann Eduards
Shevardnadzes, sem lét undan
þrýstingi og sagði af sér síðastlið-
inn sunnudag. Flest bendir til þess
að Mikhail Saakashvili, einn helsti
leiðtogi stjórnarandstæðinga,
verði kjörinn forseti. Tveir nán-
ustu samstarfsmenn Shevardna-
dzes, Avtandil Jorbenadze utanrík-
isráðherra og Koba Narchemas-
hvili innanríkisráðherra, hafa sagt
af sér.
„Í dag er nýtt tímabil að fara í
hönd. Við verðum að standa sam-
an óháð þjóðerni og pólitískum
hagsmunum,“ sagði Nino Burj-
anadze, sem gegnir embætti for-
seta Georgíu til bráðabrigða. Nýir
leiðtogar eru að taka við landi á
barmi efnahagshruns og hyggjast
óska eftir alþjóðlegri fjárhagsað-
stoð. ■
Gagnrýna van-
áætlun stjórnvalda
Félag framhaldsskólakennara telur 600 milljóna viðbótarframlag frá
ríkinu duga skammt og vanta minnst 200 milljónir í viðbót til að sinna
lágmarksþjónustu. Minnihlutinn sakar stjórnvöld um blekkingar.
ALÞINGI Önnur umræða fjárlaga-
frumvarps ársins 2004 fór fram á
Alþingi í gær og kynnti meiri-
hluti fjárlaganefndar helstu
breytingartillögur, þar sem með-
al annars var gert ráð fyrir 2,6
milljarða króna tekjuhækkun.
Lagt er til að fjárheimild til
menntamálaráðuneytisins verði
aukin um rúman milljarð og að
framhaldsskólar fái 600 milljóna
króna viðbótarframlag en sú
ákvörðun er tekin í kjölfar end-
urskoðunar á nemendafjölda
skólanna. Félag framhaldsskóla-
kennara gagnrýnir stjórnvöld
fyrir að vanáætla árvisst gróf-
lega fjárveitingar til framhalds-
skólanna og fjölda nemenda.
Fjárlagafrumvarpið gerði ráð
fyrir 16.220 nemendum en fram-
haldsskólakennarar telja að
fjöldinn verði ekki undir 17.000.
„Meirihluti 600 milljóna króna
viðbótarframlagsins fer í að
borga það sem allan tímann vant-
aði upp á að kosta kennslu þeirra
16.220 nemenda sem reiknað var
með. Með góðum vilja er hægt að
tala um 200 milljóna viðbótar-
framlag og fyrir þá fjárhæð má
kenna um 400 nemendum. Enn
vantar því minnst 200 milljónir til
að sinna lágmarksþjónustu við
framhaldsskólanemendur,“ segir í
ályktun Félags framhaldsskóla-
kennara.
Sú breyting hefur orðið við
vinnslu fjárlagafrumvarpsins í
fjárlaganefnd og á Alþingi að allir
þættir þess eru nú til umfjöllunar
í annarri umræðu en fram til
þessa hefur aðeins gjaldahluti
þess komið til annarrar umræðu
og tekjuhlutinn beðið til þeirrar
þriðju. Magnús Stefánsson, for-
maður fjárlaganefndar, segir
þetta ánægjulega þróun þar sem
vinnsla frumvarpsins sé á undan
áætlun. Magnús segir fjárlaga-
frumvarpið vera metnaðarfullt,
ekki síst vegna þess að stefnt sé
að afgangi á rekstri ríkissjóðs en
samkvæmt breytingartillögum
meirihluta fjárlaganefndar er
gert ráð fyrir meiri afgangi en
frumvarpið segir til um.
Einar Már Sigurðarson, fulltrúi
minnihlutans í fjárlaganefnd, seg-
ir fjárlagafrumvarpið bera öll
merki þess að ríkisstjórnin ætli að
halda áfram að beita blekkingum
eins og undanfarin ár. Hann gagn-
rýnir að í stað loforða um skatta-
lækkanir hækki bensíngjald og
þungaskattur og í stað loforða um
hækkun húsnæðislána séu vaxta-
bætur húsnæðislána skertar.
bryndis@frettabladid.is
Eignarhald Norðurljósa:
Ekkert
ákveðið
VIÐSKIPTI Ekki hefur enn verið
ákveðið hvenær hluthafafundur í
Norðurljósum verður haldinn.
Fyrir fundinum liggur að hækka
hlutafé Norðurljósa og að nýir
fjárfestar komi að félaginu.
Fundinum hefur verið frestað í
tvígang. Unnið hefur verið að því
að ná sátt um hóp sem koma á að
félaginu. Kaupþing Búnaðar-
banki er stærsti lánardrottinn
fyrirtækisins og hefur umræða
um valréttarsamninga stjórn-
enda tafið málið. ■
Tillaga sjálfstæðismanna ogframsóknarmanna í Útvarps-
ráði sem miðar að því að koma í
veg fyrir meinta vinstri slagsíðu
var samþykkt á fundi Útvarps-
ráðs í gær. Tillagan gengur út á
það að ráðist verði í skipulags-
breytingar til að allt fréttaefni
verði í framtíðinni á ábyrgð
fréttasviðs og þar með á ábyrgð
Boga Ágústssonar.
„...Þannig verði allt efni sem
kynnt er og borið fram sem frétt-
ir, fréttaþættir eða fréttaskýring-
ar unnið af starfsfólki fréttasviðs
og samkvæmt starfsreglum RÚV
um fréttaflutning. Gildi þetta
jafnt um hljóðvarp sem sjón-
varp...,“ segir í samþykktinni.
„Útvarpsstjóra, forstöðumanni
fréttasviðs og framkvæmdastjór-
um útvarps og sjónvarps er falið
að framfylgja samþykktinni og
kynna útvarpsráði.“
Tillaga þessi kom fram í fram-
haldi þess að útvarpsstjóri lýsti
fréttaskýringaþættinum Speglin-
um í tölvupósti sem „Hljóðviljan-
um“ og lýsti þeirri vinstri slag-
síðu sem þar væri.
Ingvar Sverrisson, sem situr í
minnihluta útvarpsráðs, greiddi
atkvæði gegn tillögunni þar sem
hún væri algerlega óþörf.
„Það hlýtur að vera skylda yf-
irmanna RÚV að leysa úr málum
sem upp koma. Það er algerlega
ólíðandi að fjölbreytni í dagskrár-
gerð verði rústað með þeim hætti.
Þó að Flokkurinn sé ekki ánægður
með allt það sem sagt er á RÚV er
ekki þar með sagt að þeir geti
komið á ritstjórnarlegu eftirliti
eins og því sem tillagan felur í
sér,“ segir Ingvar. ■
Tekið á vinstri slagsíðu innan RÚV:
Skipulagsbreytingar samþykktar
KHODORKOVSKÍ
Ríkasti maður Rússlands verður að líkind-
um dreginn fyrir rétt í næsta mánuði.
Spillingarmál í Rússlandi:
Rannsókn
lokið
MOSKVA, AP Yfirvöld í Rússlandi
hafa lokið rannsókn á máli Mik-
haíls Khodorkovskís, ríkasta
manns Rússlands. Khodorkovskí
og verjendur hans fá nú tækifæri
til að fara yfir gögn ákæruvalds-
ins en búist er við því að réttar-
höld geti hafist þegar í næsta
mánuði.
Khodorkovskí var handtekinn í
október og ákærður fyrir spill-
ingu og fjárdrátt. Í kjölfarið sagði
hann af sér sem forstjóri olíufyr-
irtækisins Yukos. Nýleg skoðana-
könnun sýnir að 43% rússnesku
þjóðarinnar studdu þá ákvörðun
dómstóla að láta Khodorkovskí
ekki lausan gegn tryggingu. Að-
eins átján prósent voru mótfallinn
úrskurðinum. ■
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Eðlilegt að umræðan vekji athygli erlendis.
Kaupréttarmálið:
Skaðar ekki
samkeppnis-
stöðuna
BANKAMÁL Valgerður Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra óttast ekki að
það upphlaup sem varð vegna
kaupréttarsamninga forstöðu-
manna Kaupþings Búnaðarbanka
muni skaða samkeppnisstöðu
bankans eða annarra íslenskra
fjármálafyrirtækja erlendis.
„Ég hef ekki trú á að það ger-
ist. Erlendir fjölmiðlar hafa fjall-
að um þetta mál og þá pólitísku
umræðu sem varð vegna þess og
það er mjög eðlilegt að það gerist.
Stærstu bankarnir hérlendis eru
það stór fyrirtæki á alþjóðavísu
að það má búast við því að það sé
tekið eftir því sem gerist innan
þeirra og þeirri umræðu sem
verður í tengslum við þá,“ segir
Valgerður. Innan viðskiptaráðu-
neytisins er unnið að því að endur-
skoða lög og reglur um hlutafélög,
meðal annars í þeim tilgangi að
sporna gegn kaupréttarsamning-
um á borð við þá sem stjórnendur
Kaupþings Búnaðarbanka áttu að
fá en riftu vegna harðra við-
bragða. ■
INNBROT Í SKÓLA Brotist var inn í
framhaldsskóla í Reykjavík í fyrr-
inótt og þaðan stolið skjávarpa.
Málið er í rannsókn lögreglu.
ÞRIGGJA BÍLA ÁREKSTUR Þriggja
bíla árekstur varð á gatnamótum
Suðurgötu og Strandgötu í Hafn-
arfirði í gær. Engin slys urðu á
fólki en bílarnir skemmdust
nokkuð.
BETLAÐ Í TBÍLISI
Yfir sextíu prósent íbúa Georgíu eru undir
fátæktarmörkum og landið er á barmi
efnahagshruns.
Eftirmaður Shevardnadzes kjörinn 4. janúar:
Hæstiréttur Georgíu
ógildir þingkosningar
■ Lögreglufréttir
MAGNÚS STEFÁNSSON
Formaður fjárlaganefndar kynnti helstu breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið þegar
önnur umræða um það fór fram á Alþingi í gær.
Hafnarfjörður:
Forvarnir
gegn einelti
FORVARNIR Íþróttabandalag Hafn-
arfjarðar, forvarnarnefnd Hafn-
arfjarðar og Regnbogabörn stóðu
fyrir kynningarfundi í gær vegna
útgáfu forvarnarbæklings gegn
einelti í íþrótta- og æskulýðs-
starfi. Með bæklingnum er ætlað
að vinna að forvarnarstarfi gegn
einelti og þar eru lagðar línur að
fyrirbyggjandi leiðum gegn ein-
elti fyrir þá sem vinna með börn-
um og unglingum í íþrótta- og
æskulýðsstarfi. ■
ÚTVARPSHÚSIÐ
Mikið hefur gengið á eftir að útvarpsstjóri
sendi út tölvupóst um vinstrislagsíðu
Spegilsmanna.
FORVARNARBÆKLINGUR KYNNTUR
Með bæklingnum er ætlunin að vinna
gegn einelti.
Konsertmeistarar:
Mótmæla
stjórn
TÓNLIST Guðný Guðmundsdóttir og
Sigrún Eðvaldsdóttir, konsertmeist-
arar Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
hafa sent frá sér sameiginlega yfir-
lýsingu þar sem þær mótmæla þeim
skilningi stjórnar hljómsveitarinn-
ar að það fyrirkomuleg, að þær
komi ekki saman fram á tónleikum,
hafi verið til bráðabirgða.
Forsaga málsins er að Sigrún tók
við starfi konsertmeistara þegar
Guðný var frá vegna veikinda. Nú
telur stjórnin að það ástand sé ekki
lengur fyrir hendi og fer fram á að
þær hverfi aftur til sömu starfs-
kjara og áður. Guðný og Sigrún líta
svo á að krafan jafngildi uppsögn. ■