Fréttablaðið - 26.11.2003, Page 4

Fréttablaðið - 26.11.2003, Page 4
4 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR Á að setja einhverjar reglur um hámarkslaun stjórnenda einkafyrirtækja? Spurning dagsins í dag: Er það góð hugmynd hjá Halldóri Ás- grímssyni að heimsækja Íran? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 32,1% 47% Nei 20,9%Kemur það ekki við Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is GEORGÍA Hæstiréttur í Georgíu hefur ógilt úrslit umdeildra þing- kosninga sem haldnar voru 2. nóv- ember. Stuðningsmenn Shevard- nadzes fóru með sigur af hólmi en erlendir eftirlitsmenn höfðu gert athugasemdir við framkvæmd kosninganna og grunur lék á því að úrslitunum hefði verið hag- rætt. Gamla þingið kom saman að nýju og boðaði til forsetakosninga 4. janúar næstkomandi. Þá verður kosið um eftirmann Eduards Shevardnadzes, sem lét undan þrýstingi og sagði af sér síðastlið- inn sunnudag. Flest bendir til þess að Mikhail Saakashvili, einn helsti leiðtogi stjórnarandstæðinga, verði kjörinn forseti. Tveir nán- ustu samstarfsmenn Shevardna- dzes, Avtandil Jorbenadze utanrík- isráðherra og Koba Narchemas- hvili innanríkisráðherra, hafa sagt af sér. „Í dag er nýtt tímabil að fara í hönd. Við verðum að standa sam- an óháð þjóðerni og pólitískum hagsmunum,“ sagði Nino Burj- anadze, sem gegnir embætti for- seta Georgíu til bráðabrigða. Nýir leiðtogar eru að taka við landi á barmi efnahagshruns og hyggjast óska eftir alþjóðlegri fjárhagsað- stoð. ■ Gagnrýna van- áætlun stjórnvalda Félag framhaldsskólakennara telur 600 milljóna viðbótarframlag frá ríkinu duga skammt og vanta minnst 200 milljónir í viðbót til að sinna lágmarksþjónustu. Minnihlutinn sakar stjórnvöld um blekkingar. ALÞINGI Önnur umræða fjárlaga- frumvarps ársins 2004 fór fram á Alþingi í gær og kynnti meiri- hluti fjárlaganefndar helstu breytingartillögur, þar sem með- al annars var gert ráð fyrir 2,6 milljarða króna tekjuhækkun. Lagt er til að fjárheimild til menntamálaráðuneytisins verði aukin um rúman milljarð og að framhaldsskólar fái 600 milljóna króna viðbótarframlag en sú ákvörðun er tekin í kjölfar end- urskoðunar á nemendafjölda skólanna. Félag framhaldsskóla- kennara gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vanáætla árvisst gróf- lega fjárveitingar til framhalds- skólanna og fjölda nemenda. Fjárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir 16.220 nemendum en fram- haldsskólakennarar telja að fjöldinn verði ekki undir 17.000. „Meirihluti 600 milljóna króna viðbótarframlagsins fer í að borga það sem allan tímann vant- aði upp á að kosta kennslu þeirra 16.220 nemenda sem reiknað var með. Með góðum vilja er hægt að tala um 200 milljóna viðbótar- framlag og fyrir þá fjárhæð má kenna um 400 nemendum. Enn vantar því minnst 200 milljónir til að sinna lágmarksþjónustu við framhaldsskólanemendur,“ segir í ályktun Félags framhaldsskóla- kennara. Sú breyting hefur orðið við vinnslu fjárlagafrumvarpsins í fjárlaganefnd og á Alþingi að allir þættir þess eru nú til umfjöllunar í annarri umræðu en fram til þessa hefur aðeins gjaldahluti þess komið til annarrar umræðu og tekjuhlutinn beðið til þeirrar þriðju. Magnús Stefánsson, for- maður fjárlaganefndar, segir þetta ánægjulega þróun þar sem vinnsla frumvarpsins sé á undan áætlun. Magnús segir fjárlaga- frumvarpið vera metnaðarfullt, ekki síst vegna þess að stefnt sé að afgangi á rekstri ríkissjóðs en samkvæmt breytingartillögum meirihluta fjárlaganefndar er gert ráð fyrir meiri afgangi en frumvarpið segir til um. Einar Már Sigurðarson, fulltrúi minnihlutans í fjárlaganefnd, seg- ir fjárlagafrumvarpið bera öll merki þess að ríkisstjórnin ætli að halda áfram að beita blekkingum eins og undanfarin ár. Hann gagn- rýnir að í stað loforða um skatta- lækkanir hækki bensíngjald og þungaskattur og í stað loforða um hækkun húsnæðislána séu vaxta- bætur húsnæðislána skertar. bryndis@frettabladid.is Eignarhald Norðurljósa: Ekkert ákveðið VIÐSKIPTI Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær hluthafafundur í Norðurljósum verður haldinn. Fyrir fundinum liggur að hækka hlutafé Norðurljósa og að nýir fjárfestar komi að félaginu. Fundinum hefur verið frestað í tvígang. Unnið hefur verið að því að ná sátt um hóp sem koma á að félaginu. Kaupþing Búnaðar- banki er stærsti lánardrottinn fyrirtækisins og hefur umræða um valréttarsamninga stjórn- enda tafið málið. ■ Tillaga sjálfstæðismanna ogframsóknarmanna í Útvarps- ráði sem miðar að því að koma í veg fyrir meinta vinstri slagsíðu var samþykkt á fundi Útvarps- ráðs í gær. Tillagan gengur út á það að ráðist verði í skipulags- breytingar til að allt fréttaefni verði í framtíðinni á ábyrgð fréttasviðs og þar með á ábyrgð Boga Ágústssonar. „...Þannig verði allt efni sem kynnt er og borið fram sem frétt- ir, fréttaþættir eða fréttaskýring- ar unnið af starfsfólki fréttasviðs og samkvæmt starfsreglum RÚV um fréttaflutning. Gildi þetta jafnt um hljóðvarp sem sjón- varp...,“ segir í samþykktinni. „Útvarpsstjóra, forstöðumanni fréttasviðs og framkvæmdastjór- um útvarps og sjónvarps er falið að framfylgja samþykktinni og kynna útvarpsráði.“ Tillaga þessi kom fram í fram- haldi þess að útvarpsstjóri lýsti fréttaskýringaþættinum Speglin- um í tölvupósti sem „Hljóðviljan- um“ og lýsti þeirri vinstri slag- síðu sem þar væri. Ingvar Sverrisson, sem situr í minnihluta útvarpsráðs, greiddi atkvæði gegn tillögunni þar sem hún væri algerlega óþörf. „Það hlýtur að vera skylda yf- irmanna RÚV að leysa úr málum sem upp koma. Það er algerlega ólíðandi að fjölbreytni í dagskrár- gerð verði rústað með þeim hætti. Þó að Flokkurinn sé ekki ánægður með allt það sem sagt er á RÚV er ekki þar með sagt að þeir geti komið á ritstjórnarlegu eftirliti eins og því sem tillagan felur í sér,“ segir Ingvar. ■ Tekið á vinstri slagsíðu innan RÚV: Skipulagsbreytingar samþykktar KHODORKOVSKÍ Ríkasti maður Rússlands verður að líkind- um dreginn fyrir rétt í næsta mánuði. Spillingarmál í Rússlandi: Rannsókn lokið MOSKVA, AP Yfirvöld í Rússlandi hafa lokið rannsókn á máli Mik- haíls Khodorkovskís, ríkasta manns Rússlands. Khodorkovskí og verjendur hans fá nú tækifæri til að fara yfir gögn ákæruvalds- ins en búist er við því að réttar- höld geti hafist þegar í næsta mánuði. Khodorkovskí var handtekinn í október og ákærður fyrir spill- ingu og fjárdrátt. Í kjölfarið sagði hann af sér sem forstjóri olíufyr- irtækisins Yukos. Nýleg skoðana- könnun sýnir að 43% rússnesku þjóðarinnar studdu þá ákvörðun dómstóla að láta Khodorkovskí ekki lausan gegn tryggingu. Að- eins átján prósent voru mótfallinn úrskurðinum. ■ VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Eðlilegt að umræðan vekji athygli erlendis. Kaupréttarmálið: Skaðar ekki samkeppnis- stöðuna BANKAMÁL Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra óttast ekki að það upphlaup sem varð vegna kaupréttarsamninga forstöðu- manna Kaupþings Búnaðarbanka muni skaða samkeppnisstöðu bankans eða annarra íslenskra fjármálafyrirtækja erlendis. „Ég hef ekki trú á að það ger- ist. Erlendir fjölmiðlar hafa fjall- að um þetta mál og þá pólitísku umræðu sem varð vegna þess og það er mjög eðlilegt að það gerist. Stærstu bankarnir hérlendis eru það stór fyrirtæki á alþjóðavísu að það má búast við því að það sé tekið eftir því sem gerist innan þeirra og þeirri umræðu sem verður í tengslum við þá,“ segir Valgerður. Innan viðskiptaráðu- neytisins er unnið að því að endur- skoða lög og reglur um hlutafélög, meðal annars í þeim tilgangi að sporna gegn kaupréttarsamning- um á borð við þá sem stjórnendur Kaupþings Búnaðarbanka áttu að fá en riftu vegna harðra við- bragða. ■ INNBROT Í SKÓLA Brotist var inn í framhaldsskóla í Reykjavík í fyrr- inótt og þaðan stolið skjávarpa. Málið er í rannsókn lögreglu. ÞRIGGJA BÍLA ÁREKSTUR Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Suðurgötu og Strandgötu í Hafn- arfirði í gær. Engin slys urðu á fólki en bílarnir skemmdust nokkuð. BETLAÐ Í TBÍLISI Yfir sextíu prósent íbúa Georgíu eru undir fátæktarmörkum og landið er á barmi efnahagshruns. Eftirmaður Shevardnadzes kjörinn 4. janúar: Hæstiréttur Georgíu ógildir þingkosningar ■ Lögreglufréttir MAGNÚS STEFÁNSSON Formaður fjárlaganefndar kynnti helstu breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið þegar önnur umræða um það fór fram á Alþingi í gær. Hafnarfjörður: Forvarnir gegn einelti FORVARNIR Íþróttabandalag Hafn- arfjarðar, forvarnarnefnd Hafn- arfjarðar og Regnbogabörn stóðu fyrir kynningarfundi í gær vegna útgáfu forvarnarbæklings gegn einelti í íþrótta- og æskulýðs- starfi. Með bæklingnum er ætlað að vinna að forvarnarstarfi gegn einelti og þar eru lagðar línur að fyrirbyggjandi leiðum gegn ein- elti fyrir þá sem vinna með börn- um og unglingum í íþrótta- og æskulýðsstarfi. ■ ÚTVARPSHÚSIÐ Mikið hefur gengið á eftir að útvarpsstjóri sendi út tölvupóst um vinstrislagsíðu Spegilsmanna. FORVARNARBÆKLINGUR KYNNTUR Með bæklingnum er ætlunin að vinna gegn einelti. Konsertmeistarar: Mótmæla stjórn TÓNLIST Guðný Guðmundsdóttir og Sigrún Eðvaldsdóttir, konsertmeist- arar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hafa sent frá sér sameiginlega yfir- lýsingu þar sem þær mótmæla þeim skilningi stjórnar hljómsveitarinn- ar að það fyrirkomuleg, að þær komi ekki saman fram á tónleikum, hafi verið til bráðabirgða. Forsaga málsins er að Sigrún tók við starfi konsertmeistara þegar Guðný var frá vegna veikinda. Nú telur stjórnin að það ástand sé ekki lengur fyrir hendi og fer fram á að þær hverfi aftur til sömu starfs- kjara og áður. Guðný og Sigrún líta svo á að krafan jafngildi uppsögn. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.