Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 8

Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 8
8 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR Ráðherrann loks vaknaður „Þróun Íslands úr lokuðu klíku- samfélagi til opins markaðar átti sér stað á mettíma. Svo hratt hafa tólf ár á valdastóli liðið að forsætisráðherrann er rétt núna að átta sig á því hvað hann hefur verið að bardúsa uppí Stjórnarráði.“ Glúmur Baldvinsson í Morgunblaðinu 25. nóvember. Ekkert skuldasvall „Ég get ekki tekið undir að félög í Reykjavík stundi skuldasvall í skjóli styrkja.“ Stefán Konráðsson í Fréttablaðinu 25. nóvember. Sjálfstraust er mikilvægt „Ég er með þeim betri en það verða aðrir að meta það hvort ég sé sá besti.“ Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, í DV 25. nóvember Orðrétt Hvalir á þurru landi: Yfir 100 dýr dauð á ströndinni ÁSTRALÍA, AP Á annað hundrað grindhvalir og tíu höfrungar fundust dauðir á afskekktri strönd á eynni Tasmaníu í Ástral- íu. Vísindamenn eru komnir til Point Hibbs til að rannsaka dýrin og reyna að komast að því hvað olli því að þau rak á land. Leitt hefur verið að því líkum að rán- dýr á borð við háhyrninga hafi hrakið hvalina og höfrungana að ströndinni en einnig er talið hugs- anlegt að dýrin hafi gleymt sér við fæðuleit. Algengt er að hvali reki á fjör- ur í sunnanverðri Ástralíu. ■ Markmið án viðmiðunar Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir alþingismaður undrast að engar heild- stæðar tölur séu til um slys í landinu. Heilbrigðisáætlun gerir ráð fyrir fækkun slysa á árabilinu 2000 til 2010. Slysaskrá Íslands nær enn til fárra. SLYS „Það vekur athygli mína að menn settu sér þau markmið að fækka slysum til 2010 en hafa engar tölur til að miða við,“ segir Ásta Ragnheið- ur Jóhannes- dóttir, alþingis- maður Samfylk- ingar, sem spurði heilbrigð- isráðherra hvað liði samræmdri slysaskráningu á Íslandi. Í svari til alþingismannsins kemur fram að landlæknisemb- ættið og slysavarnaráð hafi haft frumkvæði að samræmdri slysa- skráningu með smíði Slysaskrár Íslands. Til varð miðlægur gagna- banki þar sem ólíkir aðilar skrá slys sem verða á Íslandi. Þingmaðurinn spurði hvort til væru tölur um fjölda slysa frá því að lög um slysavarnaráð, nr. 33/1994, voru sett. Í svarinu kemur fram að ekki eru til heildstæðar tölur um fjölda allra slysa fyrir tilkomu Slysa- skrár Íslands enda sé henni ætlað að bæta úr því. Í svarinu er ítrekað að Slysaskrá Íslands sé þróunar- verkefni og gert sé ráð fyrir að þeim sem skrá slys fjölgi smám saman á næstu tveimur til þremur árum. Eina heilbrigðisstofnunin sem sinnir skráningu er slysadeild Landspítala – Háskólasjúkrahúss. Þá segir að til þess að heilsugæslu- stöðvar geti tekið þátt í skráningu í Slysaskrá Íslands hafi þurft að ákveða hvernig best væri tækni- lega að varpa gögnunum í gagna- bankann. Heilsugæslustöðvar séu nú að taka upp þetta kerfi hver af annarri og muni á næstu mánuðum geta hafið skráningu. Í svarinu kemur fram að eitt tryggingafélag, Tryggingamið- stöðin, hafi frá upphafi skráð slys í Slysaskrá Íslands en VÍS og Sjó- vá-Almennar séu nú að huga að tengingu við skrána með vörpun úr kerfum sínum. „Hvernig vitum við hvort slys- um fækkar á þessu 10 ára tímabili sem heilbrigðisáætlun nær yfir ef við höfum ekki skráningu yfir þau slys sem verða?“ spyr Ásta Ragn- heiður. rt@frettabladid.is Borgir Bandaríkjanna: Detroit hættulegust ST. LOUIS, AP Detroit í Michigan hefur tekið sæti St. Louis í Missouri sem hættulegasta borg Bandaríkjanna, samkvæmt nýrri könnun. St. Louis er í öðru sæti, Atlanta í Georgíu í því þriðja, þá Camden í New Jersey og höfuðborgin Wash- ington. 350 bandarískar borgir með yfir 75.000 íbúa eru með í könnun- inni. Tekið er mið af upplýsingum Bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, um tíðni morða, nauðgana, rána, lík- amsárása, innbrota og bílaþjófnaða. Öruggustu borgirnar eru Amherst í New York, Brick Township í New Jersey og Mission Viejo í Kali- forníu. ■ STRANDAÐIR HVALIR Vísindamenn frá náttúrufræðisafni Tasmaníu hafa þegar hafist handa við að rannsaka hvalina til að komast að því hvað rak þá í dauðann. SLYS Stefnt er að samræmdri skráningu allra slysa í landinu en tvö ár eru í að það markmið náist. ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR Spurði um slysaskráningu á landinu. Þjónusta borgarinnar: Meiri ánægja KÖNNUN Nær þrír af hverjum fjórum borgarbúum telja þjón- ustu Reykjavíkurborgar við íbú- ana mjög eða frekar góða sam- kvæmt þjónustukönnun Gall- ups. 14,6% segja þjónustuna mjög góða og 58,3% telja hana frekar góða. Einungis 6,5% telja þjónustuna slæma, þar af tvö prósent mjög slæma. Fimmti hver borgarbúi telur þjónustuna hvorki góða né slæma. Ánægja með þjónustu borg- arinnar hefur aukist frá síðustu þjónustukönnun. Þá fékk þjón- usta borgarinnar einkunnina 3,6 á kvarðanum 1-5 þar sem fimm þýðir að þjónustan sé mjög góð en einn að hún sé mjög slæm. Nú fær þjónusta borgarinnar einkunnina 3,8 en einkunnin fjórir þýðir að þjónustan sé frekar góð. ■ FLÓRÍDA, AP Bandaríska geimferða- stofnunin, NASA, áætlar að það muni kosta sem svarar að minnsta kosti 21 milljarði íslenskra króna að gera nauðsynlegar endurbætur á bandarískum geimskutlum. Stofnunin hefur orðið að endur- skipuleggja geimferðaáætlun sína eftir að geimskutlan Columbia fórst í lendingu 1. febrúar. Nefnd sem rannsakaði Col- umbia-slysið sendi frá sér skýrslu með tillögum til úrbóta fyrir tveimur mánuðum. Síðan hefur NASA borist fjöldi ábendinga víðs vegar að um það hvernig megi bæta öryggi geimskutlanna. Sér- fræðingar fara yfir allar tillög- urnar og leggja mat á þær. ■ FLUGTAK Geimskutlan Columbia fórst í lendingu 1. febrúar á þessu ári. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Geimferðaáætlun NASA: Kostnaðarsam- ar endurbætur „Hvernig vitum við hvort slysum fækkar? Vantar þig gatara? 550 4111 Verslun 550 4100 • Fax 550 4101 • www.office1.is • pontun@office1.is Foreldrar - Stöndum saman Leyfum ekki eftirlitslaus ferðalög unglinga.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.