Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 8
8 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
Ráðherrann loks vaknaður
„Þróun Íslands úr lokuðu klíku-
samfélagi til opins markaðar
átti sér stað á mettíma. Svo
hratt hafa tólf ár á valdastóli
liðið að forsætisráðherrann er
rétt núna að átta sig á því hvað
hann hefur verið að bardúsa
uppí Stjórnarráði.“
Glúmur Baldvinsson í Morgunblaðinu
25. nóvember.
Ekkert skuldasvall
„Ég get ekki tekið undir að félög
í Reykjavík stundi skuldasvall í
skjóli styrkja.“
Stefán Konráðsson í Fréttablaðinu
25. nóvember.
Sjálfstraust er mikilvægt
„Ég er með þeim betri en það
verða aðrir að meta það hvort
ég sé sá besti.“
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka,
í DV 25. nóvember
Orðrétt
Hvalir á þurru landi:
Yfir 100 dýr dauð á ströndinni
ÁSTRALÍA, AP Á annað hundrað
grindhvalir og tíu höfrungar
fundust dauðir á afskekktri
strönd á eynni Tasmaníu í Ástral-
íu.
Vísindamenn eru komnir til
Point Hibbs til að rannsaka dýrin
og reyna að komast að því hvað
olli því að þau rak á land. Leitt
hefur verið að því líkum að rán-
dýr á borð við háhyrninga hafi
hrakið hvalina og höfrungana að
ströndinni en einnig er talið hugs-
anlegt að dýrin hafi gleymt sér
við fæðuleit.
Algengt er að hvali reki á fjör-
ur í sunnanverðri Ástralíu. ■
Markmið án
viðmiðunar
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir alþingismaður undrast að engar heild-
stæðar tölur séu til um slys í landinu. Heilbrigðisáætlun gerir ráð fyrir
fækkun slysa á árabilinu 2000 til 2010. Slysaskrá Íslands nær enn til fárra.
SLYS „Það vekur athygli mína að
menn settu sér þau markmið að
fækka slysum til 2010 en hafa
engar tölur til að
miða við,“ segir
Ásta Ragnheið-
ur Jóhannes-
dóttir, alþingis-
maður Samfylk-
ingar, sem
spurði heilbrigð-
isráðherra hvað liði samræmdri
slysaskráningu á Íslandi.
Í svari til alþingismannsins
kemur fram að landlæknisemb-
ættið og slysavarnaráð hafi haft
frumkvæði að samræmdri slysa-
skráningu með smíði Slysaskrár
Íslands. Til varð miðlægur gagna-
banki þar sem ólíkir aðilar skrá
slys sem verða á Íslandi.
Þingmaðurinn spurði hvort til
væru tölur um fjölda slysa frá því
að lög um slysavarnaráð, nr.
33/1994, voru sett.
Í svarinu kemur fram að ekki
eru til heildstæðar tölur um fjölda
allra slysa fyrir tilkomu Slysa-
skrár Íslands enda sé henni ætlað
að bæta úr því. Í svarinu er ítrekað
að Slysaskrá Íslands sé þróunar-
verkefni og gert sé ráð fyrir að
þeim sem skrá slys fjölgi smám
saman á næstu tveimur til þremur
árum. Eina heilbrigðisstofnunin
sem sinnir skráningu er slysadeild
Landspítala – Háskólasjúkrahúss.
Þá segir að til þess að heilsugæslu-
stöðvar geti tekið þátt í skráningu
í Slysaskrá Íslands hafi þurft að
ákveða hvernig best væri tækni-
lega að varpa gögnunum í gagna-
bankann. Heilsugæslustöðvar séu
nú að taka upp þetta kerfi hver af
annarri og muni á næstu mánuðum
geta hafið skráningu.
Í svarinu kemur fram að eitt
tryggingafélag, Tryggingamið-
stöðin, hafi frá upphafi skráð slys
í Slysaskrá Íslands en VÍS og Sjó-
vá-Almennar séu nú að huga að
tengingu við skrána með vörpun
úr kerfum sínum.
„Hvernig vitum við hvort slys-
um fækkar á þessu 10 ára tímabili
sem heilbrigðisáætlun nær yfir ef
við höfum ekki skráningu yfir þau
slys sem verða?“ spyr Ásta Ragn-
heiður. rt@frettabladid.is
Borgir Bandaríkjanna:
Detroit
hættulegust
ST. LOUIS, AP Detroit í Michigan hefur
tekið sæti St. Louis í Missouri sem
hættulegasta borg Bandaríkjanna,
samkvæmt nýrri könnun.
St. Louis er í öðru sæti, Atlanta í
Georgíu í því þriðja, þá Camden í
New Jersey og höfuðborgin Wash-
ington. 350 bandarískar borgir með
yfir 75.000 íbúa eru með í könnun-
inni. Tekið er mið af upplýsingum
Bandarísku alríkislögreglunnar, FBI,
um tíðni morða, nauðgana, rána, lík-
amsárása, innbrota og bílaþjófnaða.
Öruggustu borgirnar eru
Amherst í New York, Brick Township
í New Jersey og Mission Viejo í Kali-
forníu. ■
STRANDAÐIR HVALIR
Vísindamenn frá náttúrufræðisafni Tasmaníu hafa þegar hafist handa við að rannsaka
hvalina til að komast að því hvað rak þá í dauðann.
SLYS
Stefnt er að samræmdri skráningu allra slysa í landinu en tvö ár eru
í að það markmið náist.
ÁSTA RAGNHEIÐUR
JÓHANNESDÓTTIR
Spurði um slysaskráningu á landinu.
Þjónusta borgarinnar:
Meiri
ánægja
KÖNNUN Nær þrír af hverjum
fjórum borgarbúum telja þjón-
ustu Reykjavíkurborgar við íbú-
ana mjög eða frekar góða sam-
kvæmt þjónustukönnun Gall-
ups. 14,6% segja þjónustuna
mjög góða og 58,3% telja hana
frekar góða. Einungis 6,5% telja
þjónustuna slæma, þar af tvö
prósent mjög slæma. Fimmti
hver borgarbúi telur þjónustuna
hvorki góða né slæma.
Ánægja með þjónustu borg-
arinnar hefur aukist frá síðustu
þjónustukönnun. Þá fékk þjón-
usta borgarinnar einkunnina 3,6
á kvarðanum 1-5 þar sem fimm
þýðir að þjónustan sé mjög góð
en einn að hún sé mjög slæm.
Nú fær þjónusta borgarinnar
einkunnina 3,8 en einkunnin
fjórir þýðir að þjónustan sé
frekar góð. ■
FLÓRÍDA, AP Bandaríska geimferða-
stofnunin, NASA, áætlar að það
muni kosta sem svarar að minnsta
kosti 21 milljarði íslenskra króna
að gera nauðsynlegar endurbætur
á bandarískum geimskutlum.
Stofnunin hefur orðið að endur-
skipuleggja geimferðaáætlun sína
eftir að geimskutlan Columbia
fórst í lendingu 1. febrúar.
Nefnd sem rannsakaði Col-
umbia-slysið sendi frá sér skýrslu
með tillögum til úrbóta fyrir
tveimur mánuðum. Síðan hefur
NASA borist fjöldi ábendinga víðs
vegar að um það hvernig megi
bæta öryggi geimskutlanna. Sér-
fræðingar fara yfir allar tillög-
urnar og leggja mat á þær. ■
FLUGTAK
Geimskutlan Columbia fórst í lendingu 1.
febrúar á þessu ári.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Geimferðaáætlun NASA:
Kostnaðarsam-
ar endurbætur
„Hvernig
vitum við
hvort slysum
fækkar?
Vantar þig
gatara?
550 4111
Verslun 550 4100 • Fax 550 4101 • www.office1.is • pontun@office1.is
Foreldrar -
Stöndum saman
Leyfum ekki eftirlitslaus
ferðalög unglinga.