Fréttablaðið - 26.11.2003, Page 10
10 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Slysfarir
MESTI FERÐAKOSTNAÐUR 2002
Vegagerðin 174.009.492
Landspítalinn 173.880.418
Háskóli Íslands 151.006.105
Utanríkisráðuneytið* 132.482.342
Alþingi 109.464.321
*Aðalskrifstofa
Heimild: Fjármálaráðuneytið
Landbúnaðarnefnd ræðir loðdýrarækt:
Þess virði að styðja greinina
LANDBÚNAÐUR „Ég tel það þess
virði að styðja við bakið á loð-
dýraræktinni. Þetta eru vörur á
heimsmarkaði og verðið sveifl-
ast gríðarlega fram og til
baka,“ segir Drífa Hjartardótt-
ir, formaður landbúnaðarnefnd-
ar Alþingis, um vanda loðdýra-
bænda. Fulltrúar greinarinnar
funda með landbúnaðarnefnd í
dag þar sem farið verður yfir
stöðuna og rætt um tillögur til
að koma til móts við loðdýra-
bændur.
Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra hefur kynnt ríkis-
stjórninni skýrslu loðdýra-
bænda þar sem lagt er til að
fóðurgjald verði lækkað. Sam-
kvæmt fjárlögum fá loðdýra-
bændur úthlutað um 15 milljón-
um króna úr ríkissjóði, sem er
sama upphæð og þeir fengu í
fyrra, en um 40 manns stunda
minka- og refarækt á Íslandi.
Formaður landbúnaðarnefndar
segir að málið verði vandlega
skoðað. „Loðdýrabændur hér á
landi reka myndarleg bú og það
er mikilvægt að þeir fái tæki-
færi til að halda því áfram. En
þótt þeir þurfi á stuðningi að
halda núna þá þýðir það ekki að
þeir þurfi endalausa aðstoð.
Ástandið er slæmt núna og við
viljum reyna að koma til móts
við þá,“ segir Drífa Hjartar-
dóttir. ■
Fjárnám eftir
eigendaskipti
Ungum hjónum, sem nýverið höfðu keypt húsnæði í Reykjanesbæ, brá illilega þegar fjárnámskröfu á
hendur seljanda hafði verið þinglýst á húsnæðið. Hjónin höfðu þá fyrir nokkru þinglýst kaupsamningi.
Mistök segir sýslumannsembættið í Reykjavík, löglegt segir sýslumannsembættið í Reykjanesbæ.
HÚSNÆÐISMÁL „Okkur dauðbrá,“
segja ung hjón sem undirrituðu
kaupsamning að húsnæði þann 22.
september síðastliðinn. Þá var veð-
bókarvottorð fyrirliggjandi, sem
sýndi að aðeins voru þau veð á hús-
inu, sem kaupendum hafði verið
kynnt. Samningnum var þinglýst 7.
október. Síðan átti að ganga frá af-
sali 15. nóvember sl.
„Þann 13. nóvember hringdi
maðurinn minn í fasteignasöluna
Eignakaup sem við höfðum keypt
húsið hjá,“ segir Helena Dröfn
Levísdóttir, annar kaupenda húss-
ins. „Við vildum fullvissa okkur um
að öll gögn yrðu til staðar og að við
gætum gengið frá afsalinu á þess-
um tiltekna degi,
þar sem við þurftum
að ferðast milli
sveitarfélaga. Sá
sem þar varð fyrir
svörum sagði að
f a s t e i g n a s a l a n
myndi hafa sam-
band við okkur. Síð-
an heyrðum við ekk-
ert frá henni fyrr en 19. nóvember,
fjórum dögum eftir að ganga átti
frá afsalinu. Þá var okkur tjáð að
upp væri komið vandamál. Fjárnám
upp á tæpar 400.000 krónur væri
komið á húsið. Um væri að ræða
gamla vísaskuld seljanda þess.
Fjárnáminu var þinglýst á húsið 27.
október, tuttugu dögum eftir að við
höfðum látið þinglýsa kaupsamn-
ingnum. Þá áttum við eftir 600.000
ógreidd af kaupverði, sem skyldi
greiðast við afsal.“
Hjónin voru afar ósátt við að fá
fjárnám á húsið eftir að kaupsamn-
ingi hafði verið þinglýst. Þau töldu
að þau sem kaupendur hefðu þar
með enga tryggingu fyrir því að
kaupin gengju fram eins og lagt
hefði verið upp með.
„Þetta er rangt,“ sagði Þórir
Hallgrímsson, lögmaður hjá sýslu-
mannsembættinu í Reykjavík, um
þinglýsingu fjárnámsins á húsið
eftir þinglýsingu kaupsamnings.
„Ég geri ráð fyrir að þarna sé um
mistök að ræða að fjárnáminu skuli
vera þinglýst inn á eignina. Þegar
maður á eign og selur hana eru
kaupendur komnir með skilyrtan
kauprétt að eigninni og ekki unnt
að gera fjárnám í henni fyrir
skuldum seljandans. Hins vegar
mætti gera fjárnám í kröfum selj-
andans til þeirra greiðslna sem
ættu eftir að koma úr kaupsamn-
ingnum.“
„Þetta hefur verið gert hérna
áður en ég byrjaði hér og haldið
áfram eftir það,“ sagði Ólafur
Hreinsson, fulltrúi sýslumanns-
embættisins í Keflavík. „Við teljum
að þetta hafi stoð í lögum. Þarna er
greinilega eitthvert misræmi, sem
þarf skoðunar við.“
jss@frettabladid.is
Kauphöll Íslands:
Færeyingar
mæta
VERÐBRÉF Kauphöll Íslands og
Virðisbrævamarkaður Föroya
undirrituðu viljayfirlýsingu
um samstarf um færeyskan
verðbréfamarkað sem skráður
verði í Kauphöll Íslands. Samn-
inginn undirrituðu Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Kauphallar
Íslands, og Sigurd Poulsen,
bankastjóri Landsbanka Fær-
eyja.
Samhliða voru skráðir þrír
nýir flokkar færeyskra skulda-
bréfa sem gefnir eru út af land-
stjórninni fyrir sem svara 18
milljörðum íslenskra króna. ■
■
Hjónin voru
afar ósátt við
að fá fjárnám á
húsið eftir að
kaupsamningi
hafði verið
þinglýst.
Breska leyniþjónustan:
Njósnað um
bandamenn
PAKISTAN, AP Pakistönsk stjórnvöld
eru reið í garð Breta í kjölfar
frétta um að breska leyniþjónust-
an, MI5, hafi komið fyrir hlerun-
arbúnaði í sendiráði Pakistans í
London.
Talsmaður pakistanska utan-
ríkisráðuneytisins lýsti í gær von-
brigðum stjórnar sinnar með að
bresk stjórnvöld hefðu engar upp-
lýsingar gefið sér. „Átti hlerunin
sér stað? Já eða nei?“ spurði hann
á blaðamannafundi.
Sunday Times greindi frá því
fyrr í mánuðinum að MI5 hefði
klúðrað njósnaverkefni í pakist-
anska sendiráðinu. Bresk stjórn-
völd hafa ekkert tjáð sig um mál-
ið, hvorki opinberlega né við
stjórnvöld í Pakistan. ■
Ríkisendurskoðun:
Bíður gagna frá varnarliði
RANNSÓKN Ríkisendurskoðun bíður
enn eftir gögnum frá varnarliðinu
til að geta lokið vinnu við rann-
sókn á því hvort bókhald þess
stemmi við bókhald Sölunefndar
varnarliðseigna. Rannsóknin
beinist að því hvort misferli eða
bókhaldsóreiða hafi átt sér stað
hjá Sölunefndinni.
Sigurður Þórðarson ríkisend-
urskoðandi sagði að lokið væri
rannsókn þeirra gagna sem fyrir
lægju. Nú væri beðið staðfesting-
ar á því frá varnarliðinu hvað það
hefði afhent til sölu. Að henni
fenginni væri hægt að ljúka rann-
sókninni. ■
DRÍFA HJARTARDÓTTIR
Formaður landbúnaðarnefndar Alþingis
segir þess virði að styðja við loðdýrarækt á
Íslandi.
ALFREÐ ÞORSTEINSSON
Ábyrgur fyrir starfsemi Sölunefndar varnar-
liðseigna.
REYKJANESBÆR
Fulltrúi sýslumannsins í Keflavík segir það hafa tíðkast og geri enn, að fjárnámi sé þinglýst á húsnæði, sem skuldari hefur selt, þótt nýir
eigendur séu með þinglýstan kaupsamning í höndunum.
KOMINN AF GJÖRGÆSLU Fjórtán
ára drengur, sem var bjargað frá
drukknun í Breiðholtslaug 11. nóv-
ember, er nú á batavegi. Honum
hafði verið haldið sofandi í lungna-
og hjartavél á gjörgæsludeild en
var fluttur af deildinni í fyrradag.
Svonaerum við
MIKIÐ ÚRVAL
af peysum og bolum
á frábæru verði.
Þú færð jólagjöfina hjá okkur.
Mjódd - Sími 557 5900