Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.11.2003, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 26.11.2003, Qupperneq 10
10 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR ■ Slysfarir MESTI FERÐAKOSTNAÐUR 2002 Vegagerðin 174.009.492 Landspítalinn 173.880.418 Háskóli Íslands 151.006.105 Utanríkisráðuneytið* 132.482.342 Alþingi 109.464.321 *Aðalskrifstofa Heimild: Fjármálaráðuneytið Landbúnaðarnefnd ræðir loðdýrarækt: Þess virði að styðja greinina LANDBÚNAÐUR „Ég tel það þess virði að styðja við bakið á loð- dýraræktinni. Þetta eru vörur á heimsmarkaði og verðið sveifl- ast gríðarlega fram og til baka,“ segir Drífa Hjartardótt- ir, formaður landbúnaðarnefnd- ar Alþingis, um vanda loðdýra- bænda. Fulltrúar greinarinnar funda með landbúnaðarnefnd í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og rætt um tillögur til að koma til móts við loðdýra- bændur. Guðni Ágústsson landbúnað- arráðherra hefur kynnt ríkis- stjórninni skýrslu loðdýra- bænda þar sem lagt er til að fóðurgjald verði lækkað. Sam- kvæmt fjárlögum fá loðdýra- bændur úthlutað um 15 milljón- um króna úr ríkissjóði, sem er sama upphæð og þeir fengu í fyrra, en um 40 manns stunda minka- og refarækt á Íslandi. Formaður landbúnaðarnefndar segir að málið verði vandlega skoðað. „Loðdýrabændur hér á landi reka myndarleg bú og það er mikilvægt að þeir fái tæki- færi til að halda því áfram. En þótt þeir þurfi á stuðningi að halda núna þá þýðir það ekki að þeir þurfi endalausa aðstoð. Ástandið er slæmt núna og við viljum reyna að koma til móts við þá,“ segir Drífa Hjartar- dóttir. ■ Fjárnám eftir eigendaskipti Ungum hjónum, sem nýverið höfðu keypt húsnæði í Reykjanesbæ, brá illilega þegar fjárnámskröfu á hendur seljanda hafði verið þinglýst á húsnæðið. Hjónin höfðu þá fyrir nokkru þinglýst kaupsamningi. Mistök segir sýslumannsembættið í Reykjavík, löglegt segir sýslumannsembættið í Reykjanesbæ. HÚSNÆÐISMÁL „Okkur dauðbrá,“ segja ung hjón sem undirrituðu kaupsamning að húsnæði þann 22. september síðastliðinn. Þá var veð- bókarvottorð fyrirliggjandi, sem sýndi að aðeins voru þau veð á hús- inu, sem kaupendum hafði verið kynnt. Samningnum var þinglýst 7. október. Síðan átti að ganga frá af- sali 15. nóvember sl. „Þann 13. nóvember hringdi maðurinn minn í fasteignasöluna Eignakaup sem við höfðum keypt húsið hjá,“ segir Helena Dröfn Levísdóttir, annar kaupenda húss- ins. „Við vildum fullvissa okkur um að öll gögn yrðu til staðar og að við gætum gengið frá afsalinu á þess- um tiltekna degi, þar sem við þurftum að ferðast milli sveitarfélaga. Sá sem þar varð fyrir svörum sagði að f a s t e i g n a s a l a n myndi hafa sam- band við okkur. Síð- an heyrðum við ekk- ert frá henni fyrr en 19. nóvember, fjórum dögum eftir að ganga átti frá afsalinu. Þá var okkur tjáð að upp væri komið vandamál. Fjárnám upp á tæpar 400.000 krónur væri komið á húsið. Um væri að ræða gamla vísaskuld seljanda þess. Fjárnáminu var þinglýst á húsið 27. október, tuttugu dögum eftir að við höfðum látið þinglýsa kaupsamn- ingnum. Þá áttum við eftir 600.000 ógreidd af kaupverði, sem skyldi greiðast við afsal.“ Hjónin voru afar ósátt við að fá fjárnám á húsið eftir að kaupsamn- ingi hafði verið þinglýst. Þau töldu að þau sem kaupendur hefðu þar með enga tryggingu fyrir því að kaupin gengju fram eins og lagt hefði verið upp með. „Þetta er rangt,“ sagði Þórir Hallgrímsson, lögmaður hjá sýslu- mannsembættinu í Reykjavík, um þinglýsingu fjárnámsins á húsið eftir þinglýsingu kaupsamnings. „Ég geri ráð fyrir að þarna sé um mistök að ræða að fjárnáminu skuli vera þinglýst inn á eignina. Þegar maður á eign og selur hana eru kaupendur komnir með skilyrtan kauprétt að eigninni og ekki unnt að gera fjárnám í henni fyrir skuldum seljandans. Hins vegar mætti gera fjárnám í kröfum selj- andans til þeirra greiðslna sem ættu eftir að koma úr kaupsamn- ingnum.“ „Þetta hefur verið gert hérna áður en ég byrjaði hér og haldið áfram eftir það,“ sagði Ólafur Hreinsson, fulltrúi sýslumanns- embættisins í Keflavík. „Við teljum að þetta hafi stoð í lögum. Þarna er greinilega eitthvert misræmi, sem þarf skoðunar við.“ jss@frettabladid.is Kauphöll Íslands: Færeyingar mæta VERÐBRÉF Kauphöll Íslands og Virðisbrævamarkaður Föroya undirrituðu viljayfirlýsingu um samstarf um færeyskan verðbréfamarkað sem skráður verði í Kauphöll Íslands. Samn- inginn undirrituðu Þórður Frið- jónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, og Sigurd Poulsen, bankastjóri Landsbanka Fær- eyja. Samhliða voru skráðir þrír nýir flokkar færeyskra skulda- bréfa sem gefnir eru út af land- stjórninni fyrir sem svara 18 milljörðum íslenskra króna. ■ ■ Hjónin voru afar ósátt við að fá fjárnám á húsið eftir að kaupsamningi hafði verið þinglýst. Breska leyniþjónustan: Njósnað um bandamenn PAKISTAN, AP Pakistönsk stjórnvöld eru reið í garð Breta í kjölfar frétta um að breska leyniþjónust- an, MI5, hafi komið fyrir hlerun- arbúnaði í sendiráði Pakistans í London. Talsmaður pakistanska utan- ríkisráðuneytisins lýsti í gær von- brigðum stjórnar sinnar með að bresk stjórnvöld hefðu engar upp- lýsingar gefið sér. „Átti hlerunin sér stað? Já eða nei?“ spurði hann á blaðamannafundi. Sunday Times greindi frá því fyrr í mánuðinum að MI5 hefði klúðrað njósnaverkefni í pakist- anska sendiráðinu. Bresk stjórn- völd hafa ekkert tjáð sig um mál- ið, hvorki opinberlega né við stjórnvöld í Pakistan. ■ Ríkisendurskoðun: Bíður gagna frá varnarliði RANNSÓKN Ríkisendurskoðun bíður enn eftir gögnum frá varnarliðinu til að geta lokið vinnu við rann- sókn á því hvort bókhald þess stemmi við bókhald Sölunefndar varnarliðseigna. Rannsóknin beinist að því hvort misferli eða bókhaldsóreiða hafi átt sér stað hjá Sölunefndinni. Sigurður Þórðarson ríkisend- urskoðandi sagði að lokið væri rannsókn þeirra gagna sem fyrir lægju. Nú væri beðið staðfesting- ar á því frá varnarliðinu hvað það hefði afhent til sölu. Að henni fenginni væri hægt að ljúka rann- sókninni. ■ DRÍFA HJARTARDÓTTIR Formaður landbúnaðarnefndar Alþingis segir þess virði að styðja við loðdýrarækt á Íslandi. ALFREÐ ÞORSTEINSSON Ábyrgur fyrir starfsemi Sölunefndar varnar- liðseigna. REYKJANESBÆR Fulltrúi sýslumannsins í Keflavík segir það hafa tíðkast og geri enn, að fjárnámi sé þinglýst á húsnæði, sem skuldari hefur selt, þótt nýir eigendur séu með þinglýstan kaupsamning í höndunum. KOMINN AF GJÖRGÆSLU Fjórtán ára drengur, sem var bjargað frá drukknun í Breiðholtslaug 11. nóv- ember, er nú á batavegi. Honum hafði verið haldið sofandi í lungna- og hjartavél á gjörgæsludeild en var fluttur af deildinni í fyrradag. Svonaerum við MIKIÐ ÚRVAL af peysum og bolum á frábæru verði. Þú færð jólagjöfina hjá okkur. Mjódd - Sími 557 5900

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.