Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.11.2003, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 26.11.2003, Qupperneq 16
16 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR ■ Bréf til blaðsins Öryggismál við Breiðholtslaug Vegna umfjöllunar um öryggis-mál við Breiðholtslaug og slys sem þar hafa orðið viljum við starfsmenn laugarinnar koma eftir- farandi á framfæri. Í Fréttablaðinu 17. nóvember síðastliðinn er vitnað í fyrrverandi starfsmann laugarinnar sem ekki vill láta nafns síns getið. Haft er eftir starfsmanninum fyrrverandi að „ein vaktin, sú sem var á vakt þegar slysið varð í vik- unni hafi ekki haldið öryggisæfingu í tvö ár“. Við vitum að sjálfsögðu ekki hvað manninum gengur til með þessari yfirlýsingu en staðreyndir málsins eru þær að undanfarin sex ár hefur þessi vakt haft öryggisæf- ingar þriðju hverja viku. Ekki er tekið fram í reglum að slíkar æfing- ar skuli haldnar heldur hafa starfs- menn og stjórnendur tekið þær upp að eigin frumkvæði. Þótt sundlaug- arvörður hafi ekki ýtt á neyðar- hnapp er ljóst að aðrar aðgerðir hans voru í fullu samræmi við það sem gera á í svona tilfelli, sem að okkar mati sýnir að þrátt fyrir meinta gleymsku sé þjálfun starfs- manna í góðu lagi þegar að neyðar- tilvikum kemur. Fyrra slysið sem nefnt er í greininni í Fréttablaðinu sýnir það sama. Við laugina er að sjálfsögðu allur sá öryggisbúnaður sem krafist er í reglum um þá starf- semi sem þar fer fram. Allar rök- studdar ábendingar fyrrverandi starfsmanns og annarra um úrbæt- ur í öryggismálum sundstaða eru ör- ugglega vel þegnar. Okkur finnst líklegt, eins og starfsmaðurinn fyrr- verandi talar, að hann hafi lagt fram raunhæfar tillögur til úrbóta í ör- yggismálum í Breiðholtslaug þegar hann starfaði þar. Okkur hefði einnig fundist eðlilegt að hann gerði grein fyrir þeim og nýtti sem rök- stuðning fyrir gagnrýni sinni. Í blaðagreininni kemur hins vegar ekkert annað gagnrýnivert fram en meint gleymska sundlaugarvarðar- ins að þrýsta á öryggishnappinn ef frá er talin ósönn yfirlýsing um ör- yggisæfingar. Það er auðvelt fyrir þann sem þarf hvergi nærri að koma að hreykja sér eins og hani á haug og gerast dómari í aðskiljanlegum málum vitandi að í krafti nafnleynd- ar verður aldrei gerð krafa um að hann standi fyrir máli sínu. Það er öllum erfið lífsreynsla að verða vitni að slysum sem þessum og sárast að ná ekki að veita aðstoð í tæka tíð sem þó var ekki í þessu tilfelli. Sömuleiðis finnst okkur sárt að þurfa að sitja undir órökstuddum dylgjum um að við sinnum ekki starfsskyldum okkar. Við sendum aðstandendum drengsins sem fyrir slysinu varð okkar bestu kveðjur og óskum þess að hann nái skjótum og góð- um bata. ■ Ríkisstjórn Reykásanna Allir þekkja Ragnar Reykásþeirra Spaugstofumanna. Hann er persónugervingur henti- stefnunnar, kann öllum öðrum betur að haga seglum eftir vindi, venda sínu kvæði í kross ef hon- um þykir henta. Ragnar Reykás á fáa sína líka. Það er helst að hann finni jafningja sína í ríkisstjórn Íslands. Hún hefur átt stórfeng- lega spretti í uppákomum af því tagi sem Ragnar er kunnur fyrir. Að öðrum ólöst- uðum stendur for- sætisráðherrann flestum framar hvað þetta varðar. Að undanförnu höf- um við kynnst v a n d l æ t a r a n u m Davíð Oddssyni með seðlabúntið í annarri hendinni, volgt úr fjárhirsl- um Búnaðarbank- ans, og Passíu- sálma Hallgríms Péturssonar í hinni. Þetta er sami maður og fyrir ör- fáum misserum hvatti þjóðina til dáða í lífsgæða- k a p p h l a u p i n u , gróðavonin væri eft irsóknarverð var okkur þá sagt; eignagleði var hug- takið sem forsætis- ráðherra notaði. Gott ef hann boð- aði þetta ekki í Hóladómkirkju. Menn tóku að sjálfsögðu for- sætisráðherra sinn á orðinu og gerðust nú margir óskaplega eignaglaðir. Á þessum tíma var farið að gera samninga af því tagi sem nú eru í umræðunni við unga fjárgróðamenn í stórfyrirtækjum landsins. Einhverjir stjórnendur Íslandsbanka höluðu þá inn eitt hundrað milljónir eða svo á slík- um samningum. Í Stjórnarráðinu kipptu menn sér ekki upp við þetta enda var þar sagt að hinn frjálsi markaður ætti að sjá um sína. Allt tal um að viðkomandi einstaklingar hefðu fengið vænan heimanmund af opinberu fé, úr fjárfestingarsjóðum atvinnulífs- ins sem þá höfðu nýlega verið einkavæddir undir hatti FBA, væri öfundartal. Í anda eignagleðinnar Í Stjórnarráðinu var því líka tekið með þegjandi þögninni þeg- ar stjórnendur Landsbankans opnuðu auðugum viðskiptavinum sínum skattskjól á Ermarsundinu. Það væri skiljanlegt að slíkir menn vildu hafa „sín stærri mál“ út af fyrir sig var haft eftir einum bankastjóranum. Það mál neydd- ust ráðherrar þó til að ræða á Al- þingi því bankinn var þá enn í rík- iseigu. Til var það fólk sem óaði við allri þessari eignagleði sem for- sætisráðherrann vildi innræta þjóðinni og var ríkisstjórnin vöruð við að fara geyst og of langt út á þessar brautir. Haft var á orði að menn skyldu ganga hægt um þær gleðinnar dyr sem Davíð Oddsson vildi vísa þjóðinni inn um. Aftur og ítrekað komu fram varnaðarorð til forsætisráðherr- ans og bankamálaráðherrans varðandi frekari einkavæðingu. Gagnrýnendur sögðu það ekki vera sáluhjálparatrði að banka- starfsemi væri á hendi opinberra aðila en að öllum líkindum væri það þó besta vörnin gegn einokun og hvers kyns misnotkun að halda ríkisbönkunum í almannaeign. Sú hætta væri nefnilega raunveruleg í okkar litla samfélagi að sömu menn og nú væru að ná undir sig atvinnulífi þjóðarinnar myndu einnig ná tangarhaldi á bönkun- um. Þá væri voðinn vís því bank- ana gætu þeir notað til að búa í haginn fyrir sjáfa sig til frekari áhrifa í atvinnulífinu. Hætta væri á því að þeir misnotuðu aðstöðu sína á þennan hátt og að sjálf- sögðu einnig að þeir mökuðu krókinn í anda eignagleðinnar. Engar áhyggjur sagði Valgerð- ur bankamálaráðherra, ríkið á ekkert að skipta sér af því sem gerist á markaði. Hún sagði að ríkisstjórnin myndi sjá fyrir því að bönkunum yrði borgið í hönd- um sérstakra kjölfestufjárfesta. Þeir eru nú farnir að taka til hend- inni og afraksturinn af starfi þeirra að koma í ljós. Eignaglöðu mennirnir vita hins vegar ekki hvaðan á þá stendur veðrið og endurtaka sjálfir í fjöl- miðlum nokkurra mánaða gömul orð vandlætaranna í Stjórnarráð- inu um að það sé úrelt að stjórn- málamenn skipti sér af bönkum. Og ef menn voga sér að þrengja að okkur með lögum segir fram- kvæmdastjóri Kaupþings Búnað- arbanka – sem talar væntanlega í nafni kjölfestufjárfestanna sem þau Davíð og Valgerður fundu – þá förum við bara eitthvað annað! Þessa hugsun orðaði stjórnarfor- maður Kaupþings Búnaðarbanka í útvarpsfréttum á þá leið að bank- inn væri í reynd ekkert íslenskur, þetta væri alþjóðlegur banki! Einstaklega vel heppnuð aðgerð Á þessum punkti erum við sem- sagt stödd núna. Forsætisráðherra les upp úr Passíusálmum og Val- gerður Sverisdóttir lýsir hneyksl- an og furðu. Mér er „ögrað“, sagði hún á forsíðu Mogga um atferli ráðamanna bankanna. Ekkert af þessu þarf að koma okkur á óvart af hálfu þessarar Reykása-ríkis- stjórnar. Það er þó óneitanlega hrollvekjandi að þau virðast ekk- ert ætla að læra af afleiðingum eigin gjörða. Þannig segir banka- málaráðherrann á Alþingi í tilefni nýlegrar bankamálaumræðu, að „einakvæðingarferlið sé einhver best heppnaða aðgerð stjórn- valda“. Þarf frekari vitnanna við? Ragnar Reykás er prýðilegur í Spaugstofunni. Öðru máli gegnir þegar hann eða hans líkar fara með völdin í Stjórnarráði Íslands. Þá kárnar gamanið. ■ ■ Til var það fólk sem óaði við allri þessari eignagleði sem forsætisráð- herrann vildi innræta þjóð- inni og var rík- isstjórnin vöruð við að fara geyst og of langt út á þess- ar brautir. Haft var á orði að menn skyldu ganga hægt um þær gleðinnar dyr sem Davíð Oddsson vildi vísa þjóðinni inn um. Aftur og ítrekað komu fram varnaðarorð til forsætisráð- herrans og bankamálaráð- herrans varð- andi frekari einkavæðingu. fiar sem allar fer›ir til Dublin í haust eru uppseldar, ver›ur farin aukafer› í beinu leiguflugi helgina 4. - 7. desember. Ekta kráarstemmning, frey›andi Guinness, frábærar verslanir og jólin a› koma! 32.020 kr. Flugsæti me› sköttum 49.720 kr.* Úrval-Úts‡n Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is * Innifali›: Flug, skattar, gisting m/morgunv. og íslensk fararstjórn. Ekki innifali›: Akstur til og frá flugvelli erlendis. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 28 85 11 /2 00 3 sta›greitt á mann í tvíb‡li í 3 nætur á Hotel Burlington. Um menningu Pétur Tryggvi skrifar: Þegar gullfiskar eru settir í mat-vinnsluvél og þeim leyft að synda þar svolitla stund áður en þeir eru maukaðir lifandi, þá telst það menn- ingarviðburður. Þegar þetta var gert á listamenningarsýningu urðu at- vinnugagnrýnendur himinlifandi að geta tekið jákvæða afstöðu til ein- hvers sem storkaði fólkinu. Þegar fatahönnuðurinn hefur um- vafið fallegar konur litunum í ár er það menningarviðburður þegar þær ganga hálfklæddar og krossfættar fram og aftur skoðunarbrettið. Þegar húsmóðirin saumar falleg- an jólakjól á dóttur sína er hins veg- ar litið til þess sem menningarleysis eða fátæktar. Enda hefur hún ekki ráð á að taka þátt í nýjustu menningu líðandi dags sem gjarnan er gefin inn með teskeið gegn vægu gjaldi. Stórátak í menningarmálum er að byggja menningarhús um allt land til að hýsa skrípaleiki og drasl af ýmsu tagi. Húsakynnin hafa einnig nota- gildi fyrir þá þorpsbúa sem enn hef- ur ekki verið hagrætt úr atvinnu sinni. Þar fá þeir að skoða ljósmynd- ir af bænum sínum eins og hann var, þrútinn af lífsgleði og vilja í verkum. Ferðamannastraumurinn um sjávar- plássin hrífst af framtakinu. Sá straumur er einmitt liður uppbygg- ingar í atvinnu- og menningarmálum landsbyggðarinnar. Utan við menningarhúsin ráfar hin raunverulega menning í krampadráttum. Það er sá mannauður sem skapast af fólkinu í því umhverfi sem það lifir við, hvort heldur litið er til hins félags- lega umhverfis, atvinnumála eða náttúrunnar sjálfrar. Þegar sveitabæir hafa verið lagðir í eyði og komnir í niðurníðslu verður veitt ómældu fé til að gera þá upp í menningarlegum tilgangi. Þetta verða kölluð menningar- sveitasetur. Þangað verða ráðnir leikarar á sumrin til að leika hús- bændur og hjú með uppstoppaðar kindur sér til aðstoðar. Nokkrar lif- andi kýr og dýralæknir verða á staðnum og þar fá ferðamenn að smakka ógereyðilagða mjólk úr snafsaglasi gegn vægu gjaldi. Ágætu frumsýningargestir! Við erum hér saman komin til að efla menningu þessa lands! ■ Andsvar ■ Starfsmenn Breiðholtslaugar skrifa um öryggismál við laugina. Umræðan ÖGMUNDUR JÓNASSON ■ alþingismaður skrifar um nýjustu tíð- indi í bankamálum. DAVÍÐ ODDSSON „Þetta er sami maður og fyrir örfáum misserum hvatti þjóðina til dáða í lífsgæðakapphlaupinu, gróðavonin væri eftirsóknarverð var okkur þá sagt; eignagleði var hugtakið sem forsætisráðherra notaði. Gott ef hann boðaði þetta ekki í Hóladómkirkju.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.