Fréttablaðið - 26.11.2003, Qupperneq 16
16 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Bréf til blaðsins
Öryggismál við Breiðholtslaug
Vegna umfjöllunar um öryggis-mál við Breiðholtslaug og slys
sem þar hafa orðið viljum við
starfsmenn laugarinnar koma eftir-
farandi á framfæri.
Í Fréttablaðinu 17. nóvember
síðastliðinn er vitnað í fyrrverandi
starfsmann laugarinnar sem ekki
vill láta nafns síns getið.
Haft er eftir starfsmanninum
fyrrverandi að „ein vaktin, sú sem
var á vakt þegar slysið varð í vik-
unni hafi ekki haldið öryggisæfingu
í tvö ár“. Við vitum að sjálfsögðu
ekki hvað manninum gengur til með
þessari yfirlýsingu en staðreyndir
málsins eru þær að undanfarin sex
ár hefur þessi vakt haft öryggisæf-
ingar þriðju hverja viku. Ekki er
tekið fram í reglum að slíkar æfing-
ar skuli haldnar heldur hafa starfs-
menn og stjórnendur tekið þær upp
að eigin frumkvæði. Þótt sundlaug-
arvörður hafi ekki ýtt á neyðar-
hnapp er ljóst að aðrar aðgerðir
hans voru í fullu samræmi við það
sem gera á í svona tilfelli, sem að
okkar mati sýnir að þrátt fyrir
meinta gleymsku sé þjálfun starfs-
manna í góðu lagi þegar að neyðar-
tilvikum kemur. Fyrra slysið sem
nefnt er í greininni í Fréttablaðinu
sýnir það sama. Við laugina er að
sjálfsögðu allur sá öryggisbúnaður
sem krafist er í reglum um þá starf-
semi sem þar fer fram. Allar rök-
studdar ábendingar fyrrverandi
starfsmanns og annarra um úrbæt-
ur í öryggismálum sundstaða eru ör-
ugglega vel þegnar. Okkur finnst
líklegt, eins og starfsmaðurinn fyrr-
verandi talar, að hann hafi lagt fram
raunhæfar tillögur til úrbóta í ör-
yggismálum í Breiðholtslaug þegar
hann starfaði þar. Okkur hefði
einnig fundist eðlilegt að hann gerði
grein fyrir þeim og nýtti sem rök-
stuðning fyrir gagnrýni sinni. Í
blaðagreininni kemur hins vegar
ekkert annað gagnrýnivert fram en
meint gleymska sundlaugarvarðar-
ins að þrýsta á öryggishnappinn ef
frá er talin ósönn yfirlýsing um ör-
yggisæfingar. Það er auðvelt fyrir
þann sem þarf hvergi nærri að koma
að hreykja sér eins og hani á haug
og gerast dómari í aðskiljanlegum
málum vitandi að í krafti nafnleynd-
ar verður aldrei gerð krafa um að
hann standi fyrir máli sínu.
Það er öllum erfið lífsreynsla að
verða vitni að slysum sem þessum
og sárast að ná ekki að veita aðstoð
í tæka tíð sem þó var ekki í þessu
tilfelli. Sömuleiðis finnst okkur sárt
að þurfa að sitja undir órökstuddum
dylgjum um að við sinnum ekki
starfsskyldum okkar.
Við sendum aðstandendum
drengsins sem fyrir slysinu varð
okkar bestu kveðjur og óskum
þess að hann nái skjótum og góð-
um bata. ■
Ríkisstjórn Reykásanna
Allir þekkja Ragnar Reykásþeirra Spaugstofumanna.
Hann er persónugervingur henti-
stefnunnar, kann öllum öðrum
betur að haga seglum eftir vindi,
venda sínu kvæði í kross ef hon-
um þykir henta. Ragnar Reykás á
fáa sína líka. Það er helst að hann
finni jafningja sína í ríkisstjórn
Íslands. Hún hefur átt stórfeng-
lega spretti í uppákomum af því
tagi sem Ragnar er
kunnur fyrir.
Að öðrum ólöst-
uðum stendur for-
sætisráðherrann
flestum framar
hvað þetta varðar.
Að undanförnu höf-
um við kynnst
v a n d l æ t a r a n u m
Davíð Oddssyni
með seðlabúntið í
annarri hendinni,
volgt úr fjárhirsl-
um Búnaðarbank-
ans, og Passíu-
sálma Hallgríms
Péturssonar í
hinni. Þetta er sami
maður og fyrir ör-
fáum misserum
hvatti þjóðina til
dáða í lífsgæða-
k a p p h l a u p i n u ,
gróðavonin væri
eft irsóknarverð
var okkur þá sagt;
eignagleði var hug-
takið sem forsætis-
ráðherra notaði. Gott ef hann boð-
aði þetta ekki í Hóladómkirkju.
Menn tóku að sjálfsögðu for-
sætisráðherra sinn á orðinu og
gerðust nú margir óskaplega
eignaglaðir. Á þessum tíma var
farið að gera samninga af því tagi
sem nú eru í umræðunni við unga
fjárgróðamenn í stórfyrirtækjum
landsins. Einhverjir stjórnendur
Íslandsbanka höluðu þá inn eitt
hundrað milljónir eða svo á slík-
um samningum. Í Stjórnarráðinu
kipptu menn sér ekki upp við
þetta enda var þar sagt að hinn
frjálsi markaður ætti að sjá um
sína. Allt tal um að viðkomandi
einstaklingar hefðu fengið vænan
heimanmund af opinberu fé, úr
fjárfestingarsjóðum atvinnulífs-
ins sem þá höfðu nýlega verið
einkavæddir undir hatti FBA,
væri öfundartal.
Í anda eignagleðinnar
Í Stjórnarráðinu var því líka
tekið með þegjandi þögninni þeg-
ar stjórnendur Landsbankans
opnuðu auðugum viðskiptavinum
sínum skattskjól á Ermarsundinu.
Það væri skiljanlegt að slíkir
menn vildu hafa „sín stærri mál“
út af fyrir sig var haft eftir einum
bankastjóranum. Það mál neydd-
ust ráðherrar þó til að ræða á Al-
þingi því bankinn var þá enn í rík-
iseigu.
Til var það fólk sem óaði við
allri þessari eignagleði sem for-
sætisráðherrann vildi innræta
þjóðinni og var ríkisstjórnin
vöruð við að fara geyst og of langt
út á þessar brautir. Haft var á orði
að menn skyldu ganga hægt um
þær gleðinnar dyr sem Davíð
Oddsson vildi vísa þjóðinni inn
um. Aftur og ítrekað komu fram
varnaðarorð til forsætisráðherr-
ans og bankamálaráðherrans
varðandi frekari einkavæðingu.
Gagnrýnendur sögðu það ekki
vera sáluhjálparatrði að banka-
starfsemi væri á hendi opinberra
aðila en að öllum líkindum væri
það þó besta vörnin gegn einokun
og hvers kyns misnotkun að halda
ríkisbönkunum í almannaeign. Sú
hætta væri nefnilega raunveruleg
í okkar litla samfélagi að sömu
menn og nú væru að ná undir sig
atvinnulífi þjóðarinnar myndu
einnig ná tangarhaldi á bönkun-
um. Þá væri voðinn vís því bank-
ana gætu þeir notað til að búa í
haginn fyrir sjáfa sig til frekari
áhrifa í atvinnulífinu. Hætta væri
á því að þeir misnotuðu aðstöðu
sína á þennan hátt og að sjálf-
sögðu einnig að þeir mökuðu
krókinn í anda eignagleðinnar.
Engar áhyggjur sagði Valgerð-
ur bankamálaráðherra, ríkið á
ekkert að skipta sér af því sem
gerist á markaði. Hún sagði að
ríkisstjórnin myndi sjá fyrir því
að bönkunum yrði borgið í hönd-
um sérstakra kjölfestufjárfesta.
Þeir eru nú farnir að taka til hend-
inni og afraksturinn af starfi
þeirra að koma í ljós.
Eignaglöðu mennirnir vita hins
vegar ekki hvaðan á þá stendur
veðrið og endurtaka sjálfir í fjöl-
miðlum nokkurra mánaða gömul
orð vandlætaranna í Stjórnarráð-
inu um að það sé úrelt að stjórn-
málamenn skipti sér af bönkum.
Og ef menn voga sér að þrengja
að okkur með lögum segir fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Búnað-
arbanka – sem talar væntanlega í
nafni kjölfestufjárfestanna sem
þau Davíð og Valgerður fundu –
þá förum við bara eitthvað annað!
Þessa hugsun orðaði stjórnarfor-
maður Kaupþings Búnaðarbanka í
útvarpsfréttum á þá leið að bank-
inn væri í reynd ekkert íslenskur,
þetta væri alþjóðlegur banki!
Einstaklega vel heppnuð
aðgerð
Á þessum punkti erum við sem-
sagt stödd núna. Forsætisráðherra
les upp úr Passíusálmum og Val-
gerður Sverisdóttir lýsir hneyksl-
an og furðu. Mér er „ögrað“, sagði
hún á forsíðu Mogga um atferli
ráðamanna bankanna. Ekkert af
þessu þarf að koma okkur á óvart
af hálfu þessarar Reykása-ríkis-
stjórnar. Það er þó óneitanlega
hrollvekjandi að þau virðast ekk-
ert ætla að læra af afleiðingum
eigin gjörða. Þannig segir banka-
málaráðherrann á Alþingi í tilefni
nýlegrar bankamálaumræðu, að
„einakvæðingarferlið sé einhver
best heppnaða aðgerð stjórn-
valda“. Þarf frekari vitnanna við?
Ragnar Reykás er prýðilegur í
Spaugstofunni. Öðru máli gegnir
þegar hann eða hans líkar fara
með völdin í Stjórnarráði Íslands.
Þá kárnar gamanið. ■
■
Til var það fólk
sem óaði við
allri þessari
eignagleði sem
forsætisráð-
herrann vildi
innræta þjóð-
inni og var rík-
isstjórnin vöruð
við að fara
geyst og of
langt út á þess-
ar brautir. Haft
var á orði að
menn skyldu
ganga hægt um
þær gleðinnar
dyr sem Davíð
Oddsson vildi
vísa þjóðinni
inn um. Aftur
og ítrekað
komu fram
varnaðarorð til
forsætisráð-
herrans og
bankamálaráð-
herrans varð-
andi frekari
einkavæðingu.
fiar sem allar fer›ir til Dublin í haust eru
uppseldar, ver›ur farin aukafer› í beinu
leiguflugi helgina 4. - 7. desember.
Ekta kráarstemmning, frey›andi Guinness,
frábærar verslanir og jólin a› koma!
32.020 kr.
Flugsæti me› sköttum
49.720 kr.*
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum
um land allt. www.urvalutsyn.is
* Innifali›: Flug, skattar, gisting
m/morgunv. og íslensk fararstjórn.
Ekki innifali›: Akstur til og
frá flugvelli erlendis.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
28
85
11
/2
00
3
sta›greitt á mann í tvíb‡li
í 3 nætur á Hotel Burlington.
Um menningu
Pétur Tryggvi skrifar:
Þegar gullfiskar eru settir í mat-vinnsluvél og þeim leyft að synda
þar svolitla stund áður en þeir eru
maukaðir lifandi, þá telst það menn-
ingarviðburður. Þegar þetta var gert
á listamenningarsýningu urðu at-
vinnugagnrýnendur himinlifandi að
geta tekið jákvæða afstöðu til ein-
hvers sem storkaði fólkinu.
Þegar fatahönnuðurinn hefur um-
vafið fallegar konur litunum í ár er
það menningarviðburður þegar þær
ganga hálfklæddar og krossfættar
fram og aftur skoðunarbrettið.
Þegar húsmóðirin saumar falleg-
an jólakjól á dóttur sína er hins veg-
ar litið til þess sem menningarleysis
eða fátæktar. Enda hefur hún ekki
ráð á að taka þátt í nýjustu menningu
líðandi dags sem gjarnan er gefin
inn með teskeið gegn vægu gjaldi.
Stórátak í menningarmálum er að
byggja menningarhús um allt land til
að hýsa skrípaleiki og drasl af ýmsu
tagi. Húsakynnin hafa einnig nota-
gildi fyrir þá þorpsbúa sem enn hef-
ur ekki verið hagrætt úr atvinnu
sinni. Þar fá þeir að skoða ljósmynd-
ir af bænum sínum eins og hann var,
þrútinn af lífsgleði og vilja í verkum.
Ferðamannastraumurinn um sjávar-
plássin hrífst af framtakinu. Sá
straumur er einmitt liður uppbygg-
ingar í atvinnu- og menningarmálum
landsbyggðarinnar.
Utan við menningarhúsin ráfar
hin raunverulega menning í
krampadráttum. Það er sá
mannauður sem skapast af fólkinu í
því umhverfi sem það lifir við,
hvort heldur litið er til hins félags-
lega umhverfis, atvinnumála eða
náttúrunnar sjálfrar.
Þegar sveitabæir hafa verið
lagðir í eyði og komnir í niðurníðslu
verður veitt ómældu fé til að gera
þá upp í menningarlegum tilgangi.
Þetta verða kölluð menningar-
sveitasetur. Þangað verða ráðnir
leikarar á sumrin til að leika hús-
bændur og hjú með uppstoppaðar
kindur sér til aðstoðar. Nokkrar lif-
andi kýr og dýralæknir verða á
staðnum og þar fá ferðamenn að
smakka ógereyðilagða mjólk úr
snafsaglasi gegn vægu gjaldi.
Ágætu frumsýningargestir! Við
erum hér saman komin til að efla
menningu þessa lands! ■
Andsvar
■ Starfsmenn Breiðholtslaugar skrifa
um öryggismál við laugina.
Umræðan
ÖGMUNDUR JÓNASSON
■ alþingismaður skrifar um nýjustu tíð-
indi í bankamálum.
DAVÍÐ ODDSSON
„Þetta er sami maður og fyrir örfáum misserum hvatti þjóðina til dáða í lífsgæðakapphlaupinu, gróðavonin væri eftirsóknarverð var okkur
þá sagt; eignagleði var hugtakið sem forsætisráðherra notaði. Gott ef hann boðaði þetta ekki í Hóladómkirkju.“