Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 17

Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 17
17MIÐVIKUDAGUR 26. nóvember 2003 Hið ljósa man...sal Frumvarp nokkurra þingkvennaum að gera kaup á vændi refsi- verð er óvænt mál málanna þessa dagana. Ástæðan? Andstaða sjálf- stæðiskvenna við frumvarpið og krossför þeirra gegn því. Fór á fund í Háskólanum í Reykjavík á dögun- um til að kynna mér málið. Meðal frum- mælenda voru Kol- brún Halldórsdóttir, ein af flutningskon- um frumvarpsins, og Sólveig Péturs- dóttir, fyrrverandi ráðherra. Í máli sínu nefndi Kolbrún helstu ástæður frumvarpsins og færði fyr- ir því nokkur rök. Þau helst að lík- ami manneskju væri ekki söluvara og gegn því þyrfti að sporna. Hún nefndi að nauðsyn væri að færa refsiábyrgðina af seljanda þjónust- unnar yfir á kaupanda til að auð- velda sönnunarfærslu. Þá kom hún að rökum sem bitu meira en önnur. Hélt hún því fram að eftirspurn eft- ir vændi hefði minnkað í Svíþjóð og eins mansal. Mansalið hefði færst til landanna í kring eftir gildistöku samsvarandi frumvarps. Sólveig sagði að mansal og vændi sem því tengdist væri eitt stærsta vandamál sem að samfélög- um heimsins stafaði. Eftirspurn eft- ir vændi hefði aukist í Svíþjóð eftir gildistöku laganna og færst í undir- heimana. Taldi hún ýmsa galla á frumvarpinu og sagði að lokum réttast að bíða með málið og sjá til. Kjarni málsins Spurningin sem eftir stendur, og skiptir öllu máli, er hvort þetta hafi virkað í Svíþjóð. Lítið var um svör önnur en að Kolbrún stóð fast á sínu en Sólveig sagði að allir „góðu“ kúnnarnir væru farnir og aðeins þeir „hættulegu“ eftir. Athyglis- vert, hefur þá hættulegu kúnnunum fjölgað svona mikið? Eða er þetta skýrt merki um minni eftirspurn og þá minna mansal? Hún vitnaði m.a. í viðtöl við sænskar vændiskonur sem lýstu því hvernig aðstæður til götuvændis hefðu versnað. Félags- leg vandamál hefðu aukist, ekki eins mikið upp úr því að hafa. Aftur skýr merki um samdrátt í eftir- spurn og minni markað fyrir man- sal. Gefum okkur að lögin virki, hvað er það þá sem mælir á móti þeim? Smávægilegir lagatæknilegir gallar sem lítið mál er að laga? Eða prinsippið að refsa verði vændis- konum fyrir að selja þjónustu sína? Heldur hjákátlegt hjal andspænis einu stærsta vandamáli heims- byggðarinnar. Ætla þingkonur Sjálf- stæðisflokksins að láta hártoganir um lögfræði koma í veg fyrir að þær geri það sem í þeirra valdi stendur til að stoppa þær hörmung- ar sem þúsundir kvenna þola á degi hverjum? Er rétta leiðin að stinga hausnum í sandinn? Það er skylda allra að gera það sem í þeirra valdi stendur. Ef þetta frumvarp yrði til að forða einni manneskju frá man- sali er ekki spurning um að það á rétt á sér. Blóðið til skyldunnar? Ég held að enginn velkist í vafa lengur um að súlustaðirnir voru, og eru kannski enn, angi þessara við- skipta hér á landi. Fjöldi kvenna frá Austur-Evrópu stoppar í mánuð áður en haldið er á næsta áfanga- stað. Las grein í fréttaskýringa- blaðinu Time frá 20. október um lýsingar á mansali til Portúgal frá Brasilíu. Fjallað um afskekktan smábæ sem skyndilega fylltist af íturvöxnum fáklæddum stúlkum. Þar tóku konur bæjarins sig sam- an. Í krafti samstöðunnar fengu þær yfirvöld til að loka búllunum og reka vændiskonurnar á brott. Þetta sýnir í hnotskurn hvað hægt er að gera í krafti samstöðunnar. Ætla Sólveig Pétursdóttir og aðrar þingkonur Sjálfstæðisflokksins að svíkja samstöðuna gegn mansali á þeim forsendum að þær vilji ekki að vændiskonur sleppi refsilaust frá því að segja til kaupenda vænd- is? Tilgangur frumvarpsins er skýr, að sporna við mansali. Ef það að gera kaup á vændi refsiverð er meðalið, er ekki spurning um að meðalið hafi þegar verið helgað af tilganginum? ■ Herstöðin í nýju ljósi Vinstrihreyfingin – grænt fram-boð samþykkti svohljóðandi ályktun á landsfundi sínum í Hvera- gerði um daginn: „Landsfundur Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs fagnar því að útlit er fyrir að dregið verði úr umsvifum Bandaríkjahers á Ís- landi. Við eigum að nota þetta sögu- lega tækifæri til að segja upp her- stöðvarsamningnum frá 1951 og loka NATO-herstöðinni á Miðnes- heiði fyrir fullt og allt. Við viljum að Íslendingar eigi sér ímynd sem frið- söm þjóð. Sú ímynd fer ekki saman við að hafa hér hernaðaraðstöðu fyrir árásargjarnt stórveldi sem meirihluti Evrópubúa lítur nú á sem eina helstu ógnina við heimsfriðinn. Umræða síðustu mánaða hefur sýnt að breytingar á herstöðinni eru óhjákvæmilegar. Þær þurfa að taka mið af hagsmunum íslensku þjóðar- innar en ekki bandarískra hernaðar- yfirvalda. Draga verður Banda- ríkjastjórn til ábyrgðar fyrir þeirri eyðileggingu sem herinn hefur valdið á umhverfi og náttúru. Ís- lenskum stjórnvöldum er skylt að sjá til þess að herinn hreinsi til eft- ir sig í samræmi við ýtrustu kröfur, þótt reikna megi með að það kosti þúsundir ársverka. Jafnframt ber að kanna réttarfarslega stöðu sveit- arfélaga og einstaklinga sem orðið hafa fyrir skakkaföllum af völdum hersetunnar og rétt þeirra til skaða- bóta. Herstöðin hefur komið í veg fyr- ir fjölbreytta og heilbrigða atvinnu- þróun á Suðurnesjum, rétt eins og herstöðvar um allan heim gera. Við brottför hersins opnast óteljandi möguleikar til nýsköpunar í at- vinnulífi á Suðurnesjum.“ Hættuleg herstöð Allt frá því að bandaríski herinn kom árið 1951 hafa vinstrimenn og aðrir unnendur friðar og þjóðfrelsis litið á hann sem mein í íslensku þjóðlífi. Atvinnulíf á Suðurnesjum sýktist illa af þessu meini. Suður- nesin urðu háð hermangi og aðrar atvinnugreinar eiga erfitt uppdrátt- ar. „Þið hafið herinn“ hefur gjarnan verið sagt við Suðurnesjamenn ef þeir hafa leitað eftir fyrirgreiðslu. VG vill losa Suðurnesjamenn og aðra Íslendinga úr þessari sjálf- heldu. Þingmenn VG hafa tvívegis flutt tillögu á Alþingi um að íslensk stjórnvöld leiti eftir samningum um að herinn fari og hreinsi eftir sig – og að við nýtum okkur möguleika til ný- sköpunar í atvinnulífi sem þá opnast. Hægristjórnin íslenska tók það auð- vitað ekki í mál, en hefur lengi legið á hnjánum í Washington og grátbeð- ið um að herinn verði áfram. Þannig var lengt í þeirri hengingaról sem nú herðist að atvinnulífinu og uppsagn- ir rúmlega 100 manna á einu bretti bera vott um. Vinstri grænir halda fund um þá stöðu sem nú er komin upp í her- stöðvarmálinu kl. 20.00 annað kvöld, fimmtud. 27. nóv., á Flughót- eli í Keflavík. Þar mun Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður og for- maður flokksins, reifa herstöðvar- málið í ljósi breyttra aðstæðna í al- þjóðastjórnmálum og öryggismál- um. Einnig mun fólk í bæjarstjórn- um og verkalýðsmálum tjá sig um málið. ■ Umræðan ÞORVALDUR ÖRN ÁRNASON ■ líffræðingur og kennari og formaður VG á Suðurnesjum skrifar um herstöð- ina. Umræðan HAUKUR LOGI KARLSSON ■ formaður SUF skrifar um vændisfrumvarpið. ■ Ætla þingkonur Sjálfstæðis- flokksins að láta hártoganir um lögfræði koma í veg fyrir að þær geri það sem í þeirra valdi stendur til að stoppa þær hörmungar sem þúsundir kvenna þola á degi hverjum?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.