Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 24
24 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
HEIMSMETSTILRAUN
Francis Joyon leggur úr höfn í Brest í
Frakklandi síðastliðinn laugardag. Joyon
ætlar að sigla einn síns liðs umhverfis
hnöttinn á skemmri tíma en aðrir hafa
gert. Núgildandi heimsmet er 93 dagar,
þrjár klukkstundir, 57 mínútur og 32 sek-
úndur.
NBA-deildin:
Billups og Garnett bestir
KÖRFUBOLTI Chauncey Billups,
bakvörður hjá Detroit, og
Kevin Garnett, framherji hjá
Minnesota, voru valdir bestu
leikmenn síðustu viku í Austr-
inu og Vestrinu í NBA-deildinni
í körfubolta. Billups skoraði að
meðaltali 23,0 stig, tók 5,0 frá-
köst og gaf 7,8 stoðsendingar í
þremur sigrum Pistons í fjórum
leikjum.
Garnett og félagar hans í
Timberwolves voru hins vegar
taplausir í þremur leikjum vik-
unnar þar sem Garnett var
með 25,3 stig, tók 15,0 fráköst,
gaf 6,0 stoðsendingar og varði
3,0 skot að meðaltali í leik. Aðr-
ir sem voru nefndir fyrir góða
frammistöðu í vikunni voru
Baron Davis hjá New Orleans,
Allen Iverson hjá Philadelphia,
Amare Stoudemire hjá Phoen-
ix, Brad Miller hjá Sacra-
mento, Tim Duncan hjá San
Antonio, Andrei Kirilenko hjá
Utah og Etan Thomas hjá
Washington. ■
Stefnum á sigur
Keflvíkingar mæta portúgalska liðinu CAB Madeira
á heimavelli í Bikarkeppni Evrópu í kvöld.
KÖRFUBOLTI Keflavík leikur í kvöld
þriðja leik sinn í Bikarkeppni Evr-
ópu í kvöld er liðið tekur á móti
portúgalska félaginu CAB
Madeira. Keflavík hefur unnið
einn leik í keppninni og tapað ein-
um, rétt eins og hin þrjú liðin í
riðlinum. Leikurinn í kvöld er því
gríðarlega mikilvægur fyrir Kefl-
víkinga því ef þeir ætla sér að
komast upp úr riðlinum er algjör
skylda hjá þeim að klára heima-
leikina.
Keflvíkingar stóðu í ströngu
um helgina er þeir tóku þátt í úr-
slitum Hópbílabikarsins þar sem
þeir töpuðu gegn Njarðvíkingum í
úrslitum. Þeir voru með unninn
leik fyrir síðasta leikhluta en
glutruðu forskotinu niður á ævin-
týralegan hátt. „Ég hef engar
áhyggjur af því að tapið komi til
með að sitja í mönnum,“ sagði
Guðjón Skúlason, sem þjálfar
Keflavíkurliðið ásamt Fali Harð-
arsyni, í samtali við Fréttablaðið í
gær. „Við rífum okkur upp enda
megum við ekkert vera að því að
væla yfir þessum úrslitum. Það
sem verra var er að við misstum
Hjört Harðarson í meiðsli og hann
spilar ekkert með okkur fyrr en
eftir áramót. Annar Kaninn okkar
fór síðan úr lið á putta en hann
kippti honum sjálfur aftur í liðinn
og verður með í kvöld.“
Portúgalarnir eru með frekar
hávaxið lið þar sem meðalhæðin
er um tveir metrar. Guðjón segir
að Keflvíkingar muni reyna að
sprengja gestina með hröðum
leik. „Við munum keyra grimmt
á þá og reyna að fá þá til þess að
elta okkur. Stórir strákar verða
fljótt þreyttir þegar þeir þurfa
að hlaupa mikið og því verðum
við að spila hratt,“ sagði Guðjón
en hann vonast eftir því að fólk
flykkist á leikinn og styðji við
bakið á liðinu. „Síðasti heima-
leikur okkar í keppninni var
bráðfjörugur og maður hefur
heyrt fólk tala um að það hlakki
mikið til næsta leiks. Vonandi
fjölmennir fólk á völlinn og styð-
ur við bakið á okkur. Við ætlum
okkur ekkert annað en sigur í
þessum leik og möguleikar okkar
á sigri eru meiri ef fólk styður
við bakið á okkur.“ ■
Evrópukeppni kvennaliða:
Úrslitin
standa
FÓTBOLTI Aganefnd UEFA hefur kveð-
ið upp úr um það að úrslitin í leik
Kolbotn og Malmö FF í átta liða úr-
slitum Evrópukeppni kvennaliða
standi óbreytt. Aganefndin telur að
Malmö hafi ekki ætlað að hafa rangt
við þegar félagið skipti inn á vara-
manni sem var ekki á leikskýrslu.
Malmö var samt sem áður sektað um
3.000 svissneska franka vegna mis-
taka við skýrslugerðina en getur
áfrýjað dómnum.
Malmö sigraði 2-0 í leiknum síð-
astliðinn laugardag og þarf Kolbotn
því að vinna með þriggja marka mun
þegar félögin mætast að nýju í Val-
hall knatthúsinu í Osló á laugardag. ■
U-16 landslið í körfu:
Til Englands
og Eistlands
KÖRFUBOLTI Íslensku U-16 lands-
liðin í körfubolta keppa í Eng-
land og Eistlandi í undankeppni
Evrópumótanna á næsta ári.
Bæði lið eru í B-deild og keppa
strákarnir í Manchester 6. til 15.
ágúst en stelpurnar keppa í Tall-
inn 30. júlí til 8. ágúst.
Lið strákanna er í riðli með
Makedoníu, Svíþjóð, Tékklandi,
Ungverjalandi, Írlandi, Austur-
ríki, Hollandi og gestgjöfum
Englands en lið stelpnanna er í
riðli með Lettlandi, Litháen,
Finnlandi, Englandi, Svíþjóð, Ír-
landi, Hollandi og gestgjöfum
Eistlands. ■
U-17 lið karla í fótbolta:
Keppir í
milliriðli EM
FÓTBOLTI Íslenska U-17 landslið karla
í fótbolta leikur í milliriðli með Eng-
lendingum, Armenum og Norð-
mönnum í undankeppni Evrópu-
mótsins. Keppni í riðlinum fer fram
á Englandi í lok mars á næsta ári.
Íslendingar leika fyrst gegn Norð-
mönnum, þá Englendingum og loks
Armenum.
Í undanriðli keppninnar unnu Ís-
lendingar Albani og Litháa en gerðu
jafntefli við Rússa. Rúrik Gíslason,
leikmaður HK, var fimmti marka-
hæsti leikmaður undankeppninnar
ásamt sex örðum leikmönnum með
fjögur mörk. ■
Evrópukeppni félagsliða:
Ekki leikið í Tyrklandi
FÓTBOLTI Neyðarnefnd UEFA ákvað í
gær að færa þrjá leiki í Evrópu-
keppnum félagsliða frá Tyrklandi
vegna sprengjutilræðanna í Istan-
búl fyrr í þessum mánuði. Leik
Galatasaray og Juventus í Meistara-
deildinni, sem átti að fara fram í
kvöld, hafði þegar verið frestað um
viku en eftir ákvörðun neyðar-
nefndarinnar verður hann leikinn
utan Tyrklands. Leikur Besiktas og
Chelsea í Meistaradeildinni, sem
fram fer 9. desember, verður einnig
leikinn á hlutlausum velli.
Leik Maccabi Haifa og Valencia í
UEFA-bikarkeppninni hafði þegar
verið frestað til 11. desember. Hann
átti upphaflega að fara fram í
tyrknesku borginn Izmir vegna
skálmaldarinnar í Ísrael en ekki
liggur fyrir hvar hann verður leik-
inn. ■
KEVIN GARNETT
Kevin Garnett, framherji hjá Minnesota, var
valinn besti leikmaður síðustu viku ásamt
Chauncey Billups, bakverði hjá Detroit.
CHELSEA
Chelsea leikur við tyrkneska félagið Besikt-
as á hlutlausum velli í Meistaradeildinni.
ÚRSLIT LEIKJA Í B-RIÐLI
Keflavík - Ovarense 113-99
CAB Madeira - Hyeres Toulon 111-92
Ovarense - CAB Madeira 82-77
Hyeres Toulon - Keflavík 107-91
Staðan
CAB Madeira 2 1 1 188:174 3
Keflavík 2 1 1 204:206 3
Hyeres Toulon Var 2 1 1 199:202 3
Ovarense Aerosoles 2 1 1 181:190 3
Leikir kvöldsins
Keflavík - CAB Madeira
Hyeres Toulon Var - Ovarense Aerosoles
GUÐJÓN SKÚLASON
Síðasti heimaleikur okkar í keppninni var bráðfjörugur og maður hefur heyrt fólk tala um
að það hlakki mikið til næsta leiks.
LEIKIR
19.15 Keflavík keppir við CAB
Madeira í Keflavík í Evrópukeppni bikar-
hafa í körfubolta.
19.15 Breiðablik og Haukar keppa
í Smáranum í suðurriðli RE/MAX-deildar
karla í handbolta.
20.00 ÍR og UMFN leika í Selja-
skóla í 1. deild kvenna í körfubolta.
SJÓNVARP
18.30 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og er-
lendis.
19.00 Western World Soccer
Show (Heimsfótbolti West World) á Sýn.
19.30 UEFA Champions League á
Sýn. Bein útsending frá leik Ajax og AC
Milan.
21.40 UEFA Champions League á
Sýn. Útsending frá leik Chelsea og
Spörtu Prag.
22.50 Handboltakvöld á RÚV.
23.00 Körfuboltakvöld á RÚV. Út-
sending frá leik Keflavíkur og CAB
Madeira í Evrópukeppninni í körfubolta.
23.30 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og er-
lendis.
hvað?hvar?hvenær?
23 24 25 26 27 28 29
NÓVEMBER
Miðvikudagur