Fréttablaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 24
24 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR HEIMSMETSTILRAUN Francis Joyon leggur úr höfn í Brest í Frakklandi síðastliðinn laugardag. Joyon ætlar að sigla einn síns liðs umhverfis hnöttinn á skemmri tíma en aðrir hafa gert. Núgildandi heimsmet er 93 dagar, þrjár klukkstundir, 57 mínútur og 32 sek- úndur. NBA-deildin: Billups og Garnett bestir KÖRFUBOLTI Chauncey Billups, bakvörður hjá Detroit, og Kevin Garnett, framherji hjá Minnesota, voru valdir bestu leikmenn síðustu viku í Austr- inu og Vestrinu í NBA-deildinni í körfubolta. Billups skoraði að meðaltali 23,0 stig, tók 5,0 frá- köst og gaf 7,8 stoðsendingar í þremur sigrum Pistons í fjórum leikjum. Garnett og félagar hans í Timberwolves voru hins vegar taplausir í þremur leikjum vik- unnar þar sem Garnett var með 25,3 stig, tók 15,0 fráköst, gaf 6,0 stoðsendingar og varði 3,0 skot að meðaltali í leik. Aðr- ir sem voru nefndir fyrir góða frammistöðu í vikunni voru Baron Davis hjá New Orleans, Allen Iverson hjá Philadelphia, Amare Stoudemire hjá Phoen- ix, Brad Miller hjá Sacra- mento, Tim Duncan hjá San Antonio, Andrei Kirilenko hjá Utah og Etan Thomas hjá Washington. ■ Stefnum á sigur Keflvíkingar mæta portúgalska liðinu CAB Madeira á heimavelli í Bikarkeppni Evrópu í kvöld. KÖRFUBOLTI Keflavík leikur í kvöld þriðja leik sinn í Bikarkeppni Evr- ópu í kvöld er liðið tekur á móti portúgalska félaginu CAB Madeira. Keflavík hefur unnið einn leik í keppninni og tapað ein- um, rétt eins og hin þrjú liðin í riðlinum. Leikurinn í kvöld er því gríðarlega mikilvægur fyrir Kefl- víkinga því ef þeir ætla sér að komast upp úr riðlinum er algjör skylda hjá þeim að klára heima- leikina. Keflvíkingar stóðu í ströngu um helgina er þeir tóku þátt í úr- slitum Hópbílabikarsins þar sem þeir töpuðu gegn Njarðvíkingum í úrslitum. Þeir voru með unninn leik fyrir síðasta leikhluta en glutruðu forskotinu niður á ævin- týralegan hátt. „Ég hef engar áhyggjur af því að tapið komi til með að sitja í mönnum,“ sagði Guðjón Skúlason, sem þjálfar Keflavíkurliðið ásamt Fali Harð- arsyni, í samtali við Fréttablaðið í gær. „Við rífum okkur upp enda megum við ekkert vera að því að væla yfir þessum úrslitum. Það sem verra var er að við misstum Hjört Harðarson í meiðsli og hann spilar ekkert með okkur fyrr en eftir áramót. Annar Kaninn okkar fór síðan úr lið á putta en hann kippti honum sjálfur aftur í liðinn og verður með í kvöld.“ Portúgalarnir eru með frekar hávaxið lið þar sem meðalhæðin er um tveir metrar. Guðjón segir að Keflvíkingar muni reyna að sprengja gestina með hröðum leik. „Við munum keyra grimmt á þá og reyna að fá þá til þess að elta okkur. Stórir strákar verða fljótt þreyttir þegar þeir þurfa að hlaupa mikið og því verðum við að spila hratt,“ sagði Guðjón en hann vonast eftir því að fólk flykkist á leikinn og styðji við bakið á liðinu. „Síðasti heima- leikur okkar í keppninni var bráðfjörugur og maður hefur heyrt fólk tala um að það hlakki mikið til næsta leiks. Vonandi fjölmennir fólk á völlinn og styð- ur við bakið á okkur. Við ætlum okkur ekkert annað en sigur í þessum leik og möguleikar okkar á sigri eru meiri ef fólk styður við bakið á okkur.“ ■ Evrópukeppni kvennaliða: Úrslitin standa FÓTBOLTI Aganefnd UEFA hefur kveð- ið upp úr um það að úrslitin í leik Kolbotn og Malmö FF í átta liða úr- slitum Evrópukeppni kvennaliða standi óbreytt. Aganefndin telur að Malmö hafi ekki ætlað að hafa rangt við þegar félagið skipti inn á vara- manni sem var ekki á leikskýrslu. Malmö var samt sem áður sektað um 3.000 svissneska franka vegna mis- taka við skýrslugerðina en getur áfrýjað dómnum. Malmö sigraði 2-0 í leiknum síð- astliðinn laugardag og þarf Kolbotn því að vinna með þriggja marka mun þegar félögin mætast að nýju í Val- hall knatthúsinu í Osló á laugardag. ■ U-16 landslið í körfu: Til Englands og Eistlands KÖRFUBOLTI Íslensku U-16 lands- liðin í körfubolta keppa í Eng- land og Eistlandi í undankeppni Evrópumótanna á næsta ári. Bæði lið eru í B-deild og keppa strákarnir í Manchester 6. til 15. ágúst en stelpurnar keppa í Tall- inn 30. júlí til 8. ágúst. Lið strákanna er í riðli með Makedoníu, Svíþjóð, Tékklandi, Ungverjalandi, Írlandi, Austur- ríki, Hollandi og gestgjöfum Englands en lið stelpnanna er í riðli með Lettlandi, Litháen, Finnlandi, Englandi, Svíþjóð, Ír- landi, Hollandi og gestgjöfum Eistlands. ■ U-17 lið karla í fótbolta: Keppir í milliriðli EM FÓTBOLTI Íslenska U-17 landslið karla í fótbolta leikur í milliriðli með Eng- lendingum, Armenum og Norð- mönnum í undankeppni Evrópu- mótsins. Keppni í riðlinum fer fram á Englandi í lok mars á næsta ári. Íslendingar leika fyrst gegn Norð- mönnum, þá Englendingum og loks Armenum. Í undanriðli keppninnar unnu Ís- lendingar Albani og Litháa en gerðu jafntefli við Rússa. Rúrik Gíslason, leikmaður HK, var fimmti marka- hæsti leikmaður undankeppninnar ásamt sex örðum leikmönnum með fjögur mörk. ■ Evrópukeppni félagsliða: Ekki leikið í Tyrklandi FÓTBOLTI Neyðarnefnd UEFA ákvað í gær að færa þrjá leiki í Evrópu- keppnum félagsliða frá Tyrklandi vegna sprengjutilræðanna í Istan- búl fyrr í þessum mánuði. Leik Galatasaray og Juventus í Meistara- deildinni, sem átti að fara fram í kvöld, hafði þegar verið frestað um viku en eftir ákvörðun neyðar- nefndarinnar verður hann leikinn utan Tyrklands. Leikur Besiktas og Chelsea í Meistaradeildinni, sem fram fer 9. desember, verður einnig leikinn á hlutlausum velli. Leik Maccabi Haifa og Valencia í UEFA-bikarkeppninni hafði þegar verið frestað til 11. desember. Hann átti upphaflega að fara fram í tyrknesku borginn Izmir vegna skálmaldarinnar í Ísrael en ekki liggur fyrir hvar hann verður leik- inn. ■ KEVIN GARNETT Kevin Garnett, framherji hjá Minnesota, var valinn besti leikmaður síðustu viku ásamt Chauncey Billups, bakverði hjá Detroit. CHELSEA Chelsea leikur við tyrkneska félagið Besikt- as á hlutlausum velli í Meistaradeildinni. ÚRSLIT LEIKJA Í B-RIÐLI Keflavík - Ovarense 113-99 CAB Madeira - Hyeres Toulon 111-92 Ovarense - CAB Madeira 82-77 Hyeres Toulon - Keflavík 107-91 Staðan CAB Madeira 2 1 1 188:174 3 Keflavík 2 1 1 204:206 3 Hyeres Toulon Var 2 1 1 199:202 3 Ovarense Aerosoles 2 1 1 181:190 3 Leikir kvöldsins Keflavík - CAB Madeira Hyeres Toulon Var - Ovarense Aerosoles GUÐJÓN SKÚLASON Síðasti heimaleikur okkar í keppninni var bráðfjörugur og maður hefur heyrt fólk tala um að það hlakki mikið til næsta leiks. LEIKIR  19.15 Keflavík keppir við CAB Madeira í Keflavík í Evrópukeppni bikar- hafa í körfubolta.  19.15 Breiðablik og Haukar keppa í Smáranum í suðurriðli RE/MAX-deildar karla í handbolta.  20.00 ÍR og UMFN leika í Selja- skóla í 1. deild kvenna í körfubolta. SJÓNVARP  18.30 Olíssport á Sýn. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og er- lendis.  19.00 Western World Soccer Show (Heimsfótbolti West World) á Sýn.  19.30 UEFA Champions League á Sýn. Bein útsending frá leik Ajax og AC Milan.  21.40 UEFA Champions League á Sýn. Útsending frá leik Chelsea og Spörtu Prag.  22.50 Handboltakvöld á RÚV.  23.00 Körfuboltakvöld á RÚV. Út- sending frá leik Keflavíkur og CAB Madeira í Evrópukeppninni í körfubolta.  23.30 Olíssport á Sýn. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og er- lendis. hvað?hvar?hvenær? 23 24 25 26 27 28 29 NÓVEMBER Miðvikudagur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.