Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 26

Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 26
■ ■ KVIKMYNDIR  20.00 Lundabíó kynnir kvöldstund í Norræna húsinu samansetta af fimm stuttmyndum sem og sýningu á verð- launaheimildamynd eftir þýska kvik- myndagerðamanninn Dietmar Post, Reverend Billy and the Church of Stop Shopping. Í myndinni er gjörningalista- manninum Reverend Billy, öðru nafni Bill Talen, fylgt eftir í aðgerðum hans í hjarta verslunarsvæðis New York-borgar sem endar með handtöku. ■ ■ TÓNLEIKAR  09.00 Íslandsdeild EPTA, Evrópu- sambands píanóleikara, mun dagana 26.-30. nóvember 2003 standa fyrir II. píanókeppni Íslandsdeildar EPTA. Keppnin fer fram í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, og er hún ætluð efnilegum píanónemendum 25 ára og yngri.  12.30 Graduale Nobili syngur undir stjórn Jóns Stefánssonar verk eftir Báru Grímsdóttur, Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Ásgeirsson (úts.), Gustav Holst, Giuseppe Verdi og Ein- ojuhani Rautavaara á Háskólatónleik- um í Norræna húsinu. Aðgangseyrir kr. 500 en ókeypis er fyrir handhafa stúdentaskírteina.  20.00 Styrktartónleikar fyrir út- varpsstöðina XA Radíó verða haldnir í Austurbæ við Snorrabraut. Bubbi, KK, Ellen og fleiri góðir skemmtikraft- ar koma fram.  20.00 Í tilefni af útgáfu geisla- disks með Strætókórnum verða haldnir útgáfutónleikar í Ými, húsi Karlakórs Reykjavíkur við Skógarhlíð 20. Söngstjóri er Guðmundur Ómar Óskarsson. Davíð Ásgeirsson leikur með kórnum á píanó.  20.30 Lúðrasveit Reykjavíkur heldur tónleika í Borgarleikhúsinu. Einleikar á altósaxófón verður Sigurð- ur Flosason og stjórnandi Lárus Halldór Grímsson.  20.30 Ómar Guðjónsson verður með útgáfutónleika á Hótel Höfn. ■ ■ FYRIRLESTRAR  12.30 Sesselja Guðmundsdóttir iðnhönnuður flytur fyrirlestur í Listahá- skóla Íslands, Skipholti 1, stofu 113. Þar fjallar hún um og sýnir hönnunar- verkefni frá síðustu fimm árum.  16.30 Gunnar Smári Egilsson rit- stjóri veltir því fyrir sér hvort sígild sjón- armið blaðamennskunar eigi undir högg að sækja á félagsvísindatorgi Háskól- ans á Akureyri, Þingvallastræti 23, stofu 14. 26 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 23 24 25 26 27 28 29 NÓVEMBER Miðvikudagur Rúmlega þrjátíu ungir píanó-leikarar setjast í dag og á morgun við píanóið í Salnum í Kópavogi, hver á eftir öðrum, til þess að þreyta keppni um það hverjum tekst best upp við að heilla fimm manna dómnefnd. „Það er bara verulega fín stemning. Allir hafa verið að prófa salinn og þetta er bæði spennandi, svolítið hættulegt og rosa gaman,“ segir Arndís Björk Ásgeirsdóttir píanókennari, sem hefur að mestu séð um skipulagn- ingu keppninnar fyrir hönd Ís- landsdeildar EPTA, Evrópusam- bands píanókennara, sem í ár efn- ir öðru sinni til keppni af þessu tagi hér á landi. „Þetta eru regnhlífarsamtök fyrir evrópska píanóleikara, sem standa bæði fyrir þessari keppni og öðrum álíka í öðrum löndum. Samtökin voru stofnuð í Bretlandi árið 1978 og Ísland var annað landið sem gekk í þetta félag, næst á eftir Bretlandi.“ Íslandsdeild EPTA efndi fyrst til píanókeppni fyrir efnilega pí- anóleikura, 25 ára og yngri, árið 2000. „Þetta gekk svo vel að við ákváðum að það væri upplagt að hafa þetta á þriggja ára fresti,“ segir Arndís. Þá tók 21 nemandi þátt í keppninni, en þetta árið verða keppendurnir 31. „Reyndar sóttu nærri 50 um, en svo heltist fólk úr lestinni eins og gengur og gerist. Þetta er ekk- ert auðvelt.“ Keppnin fer fram í þremur flokkum og fer forkeppni í þeim öllum fram í dag og á morgun. Á laugardaginn verður svo úrslita- keppni og verðlaunaafhendingin fer fram á sunnudag. Dómnefndina skipa þau Anna Guðný Guðmundsdóttir, Anna Þorgrímsdóttir, Halldór Haralds- son og Þorsteinn Gauti Sigurðsson ásamt formanni dómnefndar, Pet- er Toperczer, sem er rektor Lista- akademíunnar í Prag. „Sumir nemendur í píanóleik ætla sér að halda áfram í þessu, en aðrir ekki. Ef fólk ætlar á ann- að borð að halda áfram þá er þetta mjög góður grunnur, ekki bara fyrir sigurvegarann heldur fyrir hvern einasta nemanda sem tekur þátt í þessu. Þetta er mjög mikið prógram sem þarf að und- irbúa og hver og einn hefur of- boðslega gott af að komast í gegnum þetta.“ ■ ■ TÓNLEIKAR Þrjátíu píanóleikarar þreyta kapp Bókið hópa núna! Keramik fyrir alla, Laugavegi 48b, sími 552 2882, www.keramik.is Opið alla virka daga kl. 11-18, laugardaga 13-17, opið hús miðvikudagskvöld kl. 20-23. Hvernig fannst þér í Keramik fyrir alla? Hópurinn okkar kemur einu sinni í mánuði allan ársins hring, við eigum frábært kvöld og framfarirnar eru glæsilegar eins og sjá má heima hjá okkur! Stella 40 ára, ein af stórum hópi. Hlí›asmára 15 Sími 535 2100 D ub lin D ub lin 36.220 kr. Flug og gisting á mann. Innifalið er flug, gisting í 3 nætur á Camden Court og flugvallarskattar. VISA-tilbo› 4.-7. des. VISA korthafar ekki missa af Jón Múli bað um að þessi lögyrðu útsett fyrir blásararsveit. Þetta var með því síðasta sem hann óskaði sér,“ segir Lárus H. Grímsson, stjórnandi Lúðrasveit- ar Reykjavíkur. „Félag tónskálda og textahöf- unda gekk í það mál fyrir hann og fékk Þóri Baldursson til þess að útsetja þessi lög. Svo hafði félagið samband við mig um að flytja þessa tónlist.“ Í kvöld flytur Lúðrasveit Reykjavíkur fjögur lög eftir Jón Múla Árnason í útsetningum Þóris á tónleikum í Borgarleikhúsinu. Allt eru þetta lög úr söngleikjum Jóns Múla og Jónasar Árnasonar, Deleríum Búbónis, Allra meina bót og Járnhausinn. „Alls voru þetta sex lög, sem Þórir útsetti. Lúðrasveitin flutti þau öll á afmælissamkomu Fé- lags tónskálda og textahöfunda nýverið. En í kvöld erum við í fyrsta sinn að flytja þau opinber- lega.“ Á tónleikunum setur lúðra- sveitin sig enn frekar í djassstell- ingar og flytur ýmsa djassstand- arda eftir Duke Ellington, Count Basie og fleiri. Sigurður Flosason kemur til liðs við sveitina og leikur einleik á saxófón í sumum laganna. Tónleikarnir í kvöld eru þeir fyrstu á þessu starfsári Lúðra- sveitar Reykjavíkur. Í febrúarlok verða tónleikar í samvinnu við Listadansskóla Íslands, þar sem Lúðrasveitin leikur ballettónlist við ný íslensk dansverk. Á þriðju tónleikunum, sem verða í mars, stendur svo til að færeyski söngfuglinn Eivör Páls- dóttir syngi nokkur lög með hljómsveitinni. ■ SIGURÐUR FLOSASON Sigurður Flosason blæs einleik á saxófóninn með Lúðrasveit Reykjavíkur í Borgarleikhús- inu í kvöld. Hljómsveitin flytur einnig nokkrar af þekktustu perlum Jóns Múla. Ein síðasta ósk Jóns Múla uppfyllt ■ TÓNLIST SIGURVEGARINN ÚR FYRSTU KEPPNINNI Fyrir þremur árum bar Víkingur Heiðar Ólafsson sigur úr býtum í píanókeppni Íslandsdeildar EPTA. Í dag og á morgun mun fjöldi ungra og efnilegra píanóleikara freista þess að sigra í keppninni þetta árið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.