Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 26
■ ■ KVIKMYNDIR
20.00 Lundabíó kynnir kvöldstund
í Norræna húsinu samansetta af fimm
stuttmyndum sem og sýningu á verð-
launaheimildamynd eftir þýska kvik-
myndagerðamanninn Dietmar Post,
Reverend Billy and the Church of Stop
Shopping. Í myndinni er gjörningalista-
manninum Reverend Billy, öðru nafni
Bill Talen, fylgt eftir í aðgerðum hans í
hjarta verslunarsvæðis New York-borgar
sem endar með handtöku.
■ ■ TÓNLEIKAR
09.00 Íslandsdeild EPTA, Evrópu-
sambands píanóleikara, mun dagana
26.-30. nóvember 2003 standa fyrir II.
píanókeppni Íslandsdeildar EPTA.
Keppnin fer fram í Salnum, tónlistarhúsi
Kópavogs, og er hún ætluð efnilegum
píanónemendum 25 ára og yngri.
12.30 Graduale Nobili syngur
undir stjórn Jóns Stefánssonar verk
eftir Báru Grímsdóttur, Hjálmar H.
Ragnarsson, Jón Ásgeirsson (úts.),
Gustav Holst, Giuseppe Verdi og Ein-
ojuhani Rautavaara á Háskólatónleik-
um í Norræna húsinu. Aðgangseyrir
kr. 500 en ókeypis er fyrir handhafa
stúdentaskírteina.
20.00 Styrktartónleikar fyrir út-
varpsstöðina XA Radíó verða haldnir í
Austurbæ við Snorrabraut. Bubbi,
KK, Ellen og fleiri góðir skemmtikraft-
ar koma fram.
20.00 Í tilefni af útgáfu geisla-
disks með Strætókórnum verða
haldnir útgáfutónleikar í Ými, húsi
Karlakórs Reykjavíkur við Skógarhlíð
20. Söngstjóri er Guðmundur Ómar
Óskarsson. Davíð Ásgeirsson leikur
með kórnum á píanó.
20.30 Lúðrasveit Reykjavíkur
heldur tónleika í Borgarleikhúsinu.
Einleikar á altósaxófón verður Sigurð-
ur Flosason og stjórnandi Lárus
Halldór Grímsson.
20.30 Ómar Guðjónsson verður
með útgáfutónleika á Hótel Höfn.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.30 Sesselja Guðmundsdóttir
iðnhönnuður flytur fyrirlestur í Listahá-
skóla Íslands, Skipholti 1, stofu 113.
Þar fjallar hún um og sýnir hönnunar-
verkefni frá síðustu fimm árum.
16.30 Gunnar Smári Egilsson rit-
stjóri veltir því fyrir sér hvort sígild sjón-
armið blaðamennskunar eigi undir högg
að sækja á félagsvísindatorgi Háskól-
ans á Akureyri, Þingvallastræti 23, stofu
14.
26 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
23 24 25 26 27 28 29
NÓVEMBER
Miðvikudagur
Rúmlega þrjátíu ungir píanó-leikarar setjast í dag og á
morgun við píanóið í Salnum í
Kópavogi, hver á eftir öðrum, til
þess að þreyta keppni um það
hverjum tekst best upp við að
heilla fimm manna dómnefnd.
„Það er bara verulega fín
stemning. Allir hafa verið að
prófa salinn og þetta er bæði
spennandi, svolítið hættulegt og
rosa gaman,“ segir Arndís Björk
Ásgeirsdóttir píanókennari, sem
hefur að mestu séð um skipulagn-
ingu keppninnar fyrir hönd Ís-
landsdeildar EPTA, Evrópusam-
bands píanókennara, sem í ár efn-
ir öðru sinni til keppni af þessu
tagi hér á landi.
„Þetta eru regnhlífarsamtök
fyrir evrópska píanóleikara, sem
standa bæði fyrir þessari keppni
og öðrum álíka í öðrum löndum.
Samtökin voru stofnuð í Bretlandi
árið 1978 og Ísland var annað
landið sem gekk í þetta félag,
næst á eftir Bretlandi.“
Íslandsdeild EPTA efndi fyrst
til píanókeppni fyrir efnilega pí-
anóleikura, 25 ára og yngri, árið
2000.
„Þetta gekk svo vel að við
ákváðum að það væri upplagt að
hafa þetta á þriggja ára fresti,“
segir Arndís. Þá tók 21 nemandi
þátt í keppninni, en þetta árið
verða keppendurnir 31.
„Reyndar sóttu nærri 50 um,
en svo heltist fólk úr lestinni eins
og gengur og gerist. Þetta er ekk-
ert auðvelt.“
Keppnin fer fram í þremur
flokkum og fer forkeppni í þeim
öllum fram í dag og á morgun. Á
laugardaginn verður svo úrslita-
keppni og verðlaunaafhendingin
fer fram á sunnudag.
Dómnefndina skipa þau Anna
Guðný Guðmundsdóttir, Anna
Þorgrímsdóttir, Halldór Haralds-
son og Þorsteinn Gauti Sigurðsson
ásamt formanni dómnefndar, Pet-
er Toperczer, sem er rektor Lista-
akademíunnar í Prag.
„Sumir nemendur í píanóleik
ætla sér að halda áfram í þessu,
en aðrir ekki. Ef fólk ætlar á ann-
að borð að halda áfram þá er
þetta mjög góður grunnur, ekki
bara fyrir sigurvegarann heldur
fyrir hvern einasta nemanda sem
tekur þátt í þessu. Þetta er mjög
mikið prógram sem þarf að und-
irbúa og hver og einn hefur of-
boðslega gott af að komast í
gegnum þetta.“ ■
■ TÓNLEIKAR
Þrjátíu píanóleikarar þreyta kapp
Bókið hópa núna! Keramik fyrir alla,
Laugavegi 48b, sími 552 2882,
www.keramik.is
Opið alla virka daga kl. 11-18,
laugardaga 13-17,
opið hús miðvikudagskvöld kl. 20-23.
Hvernig fannst þér í
Keramik fyrir alla?
Hópurinn okkar kemur einu sinni í mánuði
allan ársins hring, við eigum frábært kvöld
og framfarirnar eru glæsilegar eins og sjá
má heima hjá okkur!
Stella 40 ára,
ein af stórum hópi.
Hlí›asmára 15 Sími 535 2100
D
ub
lin
D
ub
lin
36.220 kr.
Flug og gisting
á mann. Innifalið er flug,
gisting í 3 nætur á Camden Court
og flugvallarskattar.
VISA-tilbo›
4.-7. des.
VISA
korthafar
ekki
missa
af
Jón Múli bað um að þessi lögyrðu útsett fyrir blásararsveit.
Þetta var með því síðasta sem
hann óskaði sér,“ segir Lárus H.
Grímsson, stjórnandi Lúðrasveit-
ar Reykjavíkur.
„Félag tónskálda og textahöf-
unda gekk í það mál fyrir hann og
fékk Þóri Baldursson til þess að
útsetja þessi lög. Svo hafði félagið
samband við mig um að flytja
þessa tónlist.“
Í kvöld flytur Lúðrasveit
Reykjavíkur fjögur lög eftir Jón
Múla Árnason í útsetningum Þóris
á tónleikum í Borgarleikhúsinu.
Allt eru þetta lög úr söngleikjum
Jóns Múla og Jónasar Árnasonar,
Deleríum Búbónis, Allra meina
bót og Járnhausinn.
„Alls voru þetta sex lög, sem
Þórir útsetti. Lúðrasveitin flutti
þau öll á afmælissamkomu Fé-
lags tónskálda og textahöfunda
nýverið. En í kvöld erum við í
fyrsta sinn að flytja þau opinber-
lega.“
Á tónleikunum setur lúðra-
sveitin sig enn frekar í djassstell-
ingar og flytur ýmsa djassstand-
arda eftir Duke Ellington, Count
Basie og fleiri.
Sigurður Flosason kemur til
liðs við sveitina og leikur einleik
á saxófón í sumum laganna.
Tónleikarnir í kvöld eru þeir
fyrstu á þessu starfsári Lúðra-
sveitar Reykjavíkur. Í febrúarlok
verða tónleikar í samvinnu við
Listadansskóla Íslands, þar sem
Lúðrasveitin leikur ballettónlist
við ný íslensk dansverk.
Á þriðju tónleikunum, sem
verða í mars, stendur svo til að
færeyski söngfuglinn Eivör Páls-
dóttir syngi nokkur lög með
hljómsveitinni. ■
SIGURÐUR FLOSASON
Sigurður Flosason blæs einleik á saxófóninn með Lúðrasveit Reykjavíkur í Borgarleikhús-
inu í kvöld. Hljómsveitin flytur einnig nokkrar af þekktustu perlum Jóns Múla.
Ein síðasta ósk Jóns Múla uppfyllt
■ TÓNLIST
SIGURVEGARINN ÚR FYRSTU KEPPNINNI
Fyrir þremur árum bar Víkingur Heiðar Ólafsson sigur úr býtum í píanókeppni Íslandsdeildar EPTA. Í dag og á morgun mun fjöldi ungra
og efnilegra píanóleikara freista þess að sigra í keppninni þetta árið.