Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 30
Hljómsveitin Roðlaust og bein-laust, eða No bone - No skin
eins og hún kallar sig upp á ensk-
una, hefur gef-
ið út sína
fyrstu plötu,
Brælublús.
Sveitin er að
stærstum hluta
skipuð áhöfn-
inni á frystitogaranum Kleifa-
bergi ÓF-2 frá Ólafsfirði. Platan
inniheldur 14 lög, flest eftir
Björn Val Gíslason, og eru þrjú
þeirra hljóðrituð á tónleikum.
Það er menningar- og listafélagið
Beinlaus biti á Ólafsfirði sem
gefur út.
Björg-vin
Halldórs-
son hefur
gefið út
plötuna
Duet en
þar syng-
ur hann 11
lög með
11 vel völdum söngvörum sem
flestir eru þjóðþekktir. Þar á
meðal tekur hann lagið með dótt-
ur sinni Svölu og syni sínum
Krumma. Einnig koma fram á
plötunni Sverrir Bergmann, Páll
Rósinkranz, Jónsi Í svörtum föt-
um, Leone Tinganelli, Birgitta
Haukdal, Stefán Hilmarsson,
Regína Ósk, Hansa og Sigga
Beinteins. Skífan gefur út.
Hrósið 30 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
Vinnudagurinn hefst klukkanfjögur á morgnana og það eru
vaktir til ellefu á kvöldin,“ segir
Vilberg Ágústsson, yfirverkstjóri
á Malbikunarstöðinni Höfða, sem
sér um snjóruðning og saltdreif-
ingu fyrir Reykjavíkurborg.
Snjóruðningsdeildin er nú
kominn á fullt en hún fer yfirleitt
á stjá í byrjun nóvember og
starfar fram í apríl. Nú eru um
átta bílar notaðir, sem bæði ryðja
snjó og dreifa salti, en þegar
mesti snjórinn er fjölgar þeim til
muna.
„Það sem er á götunum nú köll-
um við ekki snjó heldur föl. Þegar
snjórinn sjálfur kemur þurfum
við stundum að bæta við 25 vél-
um,“ segir Vilberg og á þá við
veghefla, hjólagröfur og önnur
tæki.
Vilberg vill ekki spá fyrir um
snjókomuna í vetur. „Ég er ekki
búinn að vera í þessu nema í 25 ár
en er lítill spámaður. Ég tek því
bara sem höndum ber.“ ■
Snjór
VILBERG ÁGÚSTSSON
■ Hann stýrir hópi vaskra drengja sem
moka götur borgarinnar á hverjum degi.
Vinnudagurinn hefst klukkan fjögur á
morgnana en lýkur klukkan ellefu.
...fær Bryndís Hlöðversdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar, og
aðrir þingmenn flokksins fyrir að
hafa lagt fram á Alþingi tillögu
til þingsályktunar um að aflað
verði upplýsinga um vaxtamun
og þjónustugjöld í bönkunum.
Moka í nítján tíma
í dag
Löggur vantar
í Reykjavík
Damon
svikinn um
húsið sitt
Davíð á
uppboði
Fyrsta boð 150 kall
Konurnar taka yfir
Í fyrsta sinn í sögunni eru ein-göngu konur í starfi fyrir fjöl-
miðlana á Alþingi. Það eru þær
Arna Schram fyrir Morgunblaðið,
Björg Eva Erlendsdóttir fyrir
fréttastofu Útvarps, Jóhanna Vig-
dís Hjaltadóttir fyrir fréttastofu
Sjónvarps og Bryndís Hólm fyrir
Fréttablaðið.
Arna Schram var þeirra fyrst
til að vera föst á þinginu en það
var árið 1997 sem hún hóf þar
störf. Hún var frá um eins og
hálfs árs skeið en hefur verið
samfleytt í þinginu síðan snemma
árs 2001.
„Ég held að þetta sé þriðja kjör-
tímabilið mitt í þingskrifum,“ segir
Arna en á milli þess sem þing starf-
ar er Arna á innlendu fréttadeild-
inni á Morgunblaðinu. Að öðru leyti
hefur hún fast aðsetur í þinginu.
„Ég kann mjög vel við þingskrifin
og hef gaman af að setja mig inn í
mál. Það má segja að maður hafi yf-
irborðsþekkingu í öllu en ég reyni
að kynna mér mál eins vel og ég get
áður en ég skrifa um þau.“
Arna hefur mikinn áhuga á
stjórnmálum og segist hafa gaman
af að spá í spilin og velta fyrir sér
enda er hún stjórnmálafræðingur
að mennt. „Jú, það fer ekki hjá því
að menn líti á mann sem fastan
starfsmann hér enda er ég á þingi
öllum stundum sem eitthvað fer
hér fram.“ Arna telur það af hinu
góða að konur skuli hasla sér völl á
þessu sviði og segir það sanna að
konur séu ekki síðri en karlar í
þessu sem öðru. „Við höfum sagt
að enn eitt karlavígið sé fallið og
ekki nema gott eitt um það að
segja,“ segir Arna og vill ekki upp-
lýsa hverjir eru hennar uppáhalds-
þingmenn. „Ég held að það sé ekki
rétt að taka einn fram yfir annan.
geymi það frekar með mér,“ segir
hún kíminn. ■
ALLT KONUR
Á Alþingi starfa fréttamenn fjölmiðla en í fyrsta sinn í sögunni eru það eingöngu konur.
Þingfréttaritarar
■ Allt frá því að fjölmiðlar hófu að hafa
sérstaka fréttaritara á þingi hafa karlar
verið í meirihluta. Nú hafa konur yfirtekið
Alþingi í fyrsta sinn og senda fréttir út til
almennings.
■ Nýjar plötur
VILBERG ÁGÚSTSSON
Mokar ásamt félögum sínum í Malbikunar-
stöðinni Höfða í nítján tíma.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M