Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 30

Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 30
Hljómsveitin Roðlaust og bein-laust, eða No bone - No skin eins og hún kallar sig upp á ensk- una, hefur gef- ið út sína fyrstu plötu, Brælublús. Sveitin er að stærstum hluta skipuð áhöfn- inni á frystitogaranum Kleifa- bergi ÓF-2 frá Ólafsfirði. Platan inniheldur 14 lög, flest eftir Björn Val Gíslason, og eru þrjú þeirra hljóðrituð á tónleikum. Það er menningar- og listafélagið Beinlaus biti á Ólafsfirði sem gefur út. Björg-vin Halldórs- son hefur gefið út plötuna Duet en þar syng- ur hann 11 lög með 11 vel völdum söngvörum sem flestir eru þjóðþekktir. Þar á meðal tekur hann lagið með dótt- ur sinni Svölu og syni sínum Krumma. Einnig koma fram á plötunni Sverrir Bergmann, Páll Rósinkranz, Jónsi Í svörtum föt- um, Leone Tinganelli, Birgitta Haukdal, Stefán Hilmarsson, Regína Ósk, Hansa og Sigga Beinteins. Skífan gefur út. Hrósið 30 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR Vinnudagurinn hefst klukkanfjögur á morgnana og það eru vaktir til ellefu á kvöldin,“ segir Vilberg Ágústsson, yfirverkstjóri á Malbikunarstöðinni Höfða, sem sér um snjóruðning og saltdreif- ingu fyrir Reykjavíkurborg. Snjóruðningsdeildin er nú kominn á fullt en hún fer yfirleitt á stjá í byrjun nóvember og starfar fram í apríl. Nú eru um átta bílar notaðir, sem bæði ryðja snjó og dreifa salti, en þegar mesti snjórinn er fjölgar þeim til muna. „Það sem er á götunum nú köll- um við ekki snjó heldur föl. Þegar snjórinn sjálfur kemur þurfum við stundum að bæta við 25 vél- um,“ segir Vilberg og á þá við veghefla, hjólagröfur og önnur tæki. Vilberg vill ekki spá fyrir um snjókomuna í vetur. „Ég er ekki búinn að vera í þessu nema í 25 ár en er lítill spámaður. Ég tek því bara sem höndum ber.“ ■ Snjór VILBERG ÁGÚSTSSON ■ Hann stýrir hópi vaskra drengja sem moka götur borgarinnar á hverjum degi. Vinnudagurinn hefst klukkan fjögur á morgnana en lýkur klukkan ellefu. ...fær Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og aðrir þingmenn flokksins fyrir að hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um að aflað verði upplýsinga um vaxtamun og þjónustugjöld í bönkunum. Moka í nítján tíma í dag Löggur vantar í Reykjavík Damon svikinn um húsið sitt Davíð á uppboði Fyrsta boð 150 kall Konurnar taka yfir Í fyrsta sinn í sögunni eru ein-göngu konur í starfi fyrir fjöl- miðlana á Alþingi. Það eru þær Arna Schram fyrir Morgunblaðið, Björg Eva Erlendsdóttir fyrir fréttastofu Útvarps, Jóhanna Vig- dís Hjaltadóttir fyrir fréttastofu Sjónvarps og Bryndís Hólm fyrir Fréttablaðið. Arna Schram var þeirra fyrst til að vera föst á þinginu en það var árið 1997 sem hún hóf þar störf. Hún var frá um eins og hálfs árs skeið en hefur verið samfleytt í þinginu síðan snemma árs 2001. „Ég held að þetta sé þriðja kjör- tímabilið mitt í þingskrifum,“ segir Arna en á milli þess sem þing starf- ar er Arna á innlendu fréttadeild- inni á Morgunblaðinu. Að öðru leyti hefur hún fast aðsetur í þinginu. „Ég kann mjög vel við þingskrifin og hef gaman af að setja mig inn í mál. Það má segja að maður hafi yf- irborðsþekkingu í öllu en ég reyni að kynna mér mál eins vel og ég get áður en ég skrifa um þau.“ Arna hefur mikinn áhuga á stjórnmálum og segist hafa gaman af að spá í spilin og velta fyrir sér enda er hún stjórnmálafræðingur að mennt. „Jú, það fer ekki hjá því að menn líti á mann sem fastan starfsmann hér enda er ég á þingi öllum stundum sem eitthvað fer hér fram.“ Arna telur það af hinu góða að konur skuli hasla sér völl á þessu sviði og segir það sanna að konur séu ekki síðri en karlar í þessu sem öðru. „Við höfum sagt að enn eitt karlavígið sé fallið og ekki nema gott eitt um það að segja,“ segir Arna og vill ekki upp- lýsa hverjir eru hennar uppáhalds- þingmenn. „Ég held að það sé ekki rétt að taka einn fram yfir annan. geymi það frekar með mér,“ segir hún kíminn. ■ ALLT KONUR Á Alþingi starfa fréttamenn fjölmiðla en í fyrsta sinn í sögunni eru það eingöngu konur. Þingfréttaritarar ■ Allt frá því að fjölmiðlar hófu að hafa sérstaka fréttaritara á þingi hafa karlar verið í meirihluta. Nú hafa konur yfirtekið Alþingi í fyrsta sinn og senda fréttir út til almennings. ■ Nýjar plötur VILBERG ÁGÚSTSSON Mokar ásamt félögum sínum í Malbikunar- stöðinni Höfða í nítján tíma. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.