Fréttablaðið - 26.11.2003, Page 31

Fréttablaðið - 26.11.2003, Page 31
31MIÐVIKUDAGUR 26. nóvembe 2003 ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Nino Burdzhanadze. Úsbekistan og Afganistan. Alonzo Mourning. Kynvitundarnámskeið fyrir konur NÁMSKEIÐ „Það sækja þessi nám- skeið konur á öllum aldri en elsta konan sem ég man eftir í svipinn var 66 ára að mig minnir,“ segir Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrun- arfræðingur, sem hefur í vetur verið með kynvitundarnámskeið fyrir konur. Ragnheiður segir að námskeið- in séu vel sótt og hún viti til þess að konur hafi bæði mikið gagn og ekki síður ánægju af að kynnast og fræðast. „Þetta er fyrir þær konur sem vilja taka sér tíma til að fræð- ast um sitt kynferði. Við förum heilmikið í fullnægingu konunnar og hvað raunverulega er að ger- ast í líkamanum við þær aðstæð- ur. Kennum æfingar og aðferðir sem geta hjálpað eins og öndun,“ segir Ragnheiður, sem stendur á því fastar en fótunum að þekking- in sé frelsandi. Næsta námskeið verður um helgina og hefst á föstudag og heldur áfram fyrri hluta laugar- dags og sunnudags. „Konurnar fá heimaæfingar sem þær eiga að stunda en ég tek það skýrt fram að það þarf engan karl. Konur geta sótt námskeiðið hvort sem þær eru einhleypar eða í hvaða sambúðarformi sem þær eru.“ ■ ÁNÆGÐ MEÐ LÍFIÐ Þau voru hress og kát krakkarnir á leikskólanum Hofi með fyrsta snjóinn. Þau renndu sér niður brekkurnar á snjóþotum af mikilli gleði og fengu hjálp frá leikskólakennurunum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Ragnheiður er þeirrar skoðunar að þekkingin sé frelsandi og lykillinn að góðu kynlífi. Undir sviðinu í Sandgerði áttiég fyrsta kossinn minn,“ seg- ir Rúnar Júliusson, tónlistarmað- ur úr Keflavík. „Það var með söngkonunni úr hljómsveitinni Skuggum. Hún heitir María Bald- ursdóttir. Ég er ennþá að kyssa hana svo ég veit ekki hvað koss- arnir eru orðnir margir.“ ■ Fyrsti kossinn Bókaforlagið Bjartur hefurgefið út bókina Syndirnar sjö eftir Jaakko Heinimäki í ís- lenskri þýðingu Aðalsteins Dav- íðssonar. Höfundur er finnskur guðfræðingur sem hlotið hefur fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. Í bókinni dustar Heinimäki rykið af dauðasyndunum sjö – hroka, ágirnd, öfund, heift, munúð, nautnasýki og andlegri leti – rekur sögu þeirra og tengir lífi nútímamannsins með eftir- minnilegum hætti. Höfundur sameinar gamansemi og alvöru þegar hann fjallar um þau heim- spekilegu og siðferðilegu álita- mál sem snerta okkur dýpst. Lárétt: 1 þróttur, 5 hestur, 6 tónn, 7 drykkur, 8 ásamt, 9 korntegund, 10 kyrrð, 12 títt, 13 nóa, 15 atviksorð, 16 tarfur, 18 safna saman. Lóðrétt: 1 hlekkina, 2 hátíð, 3 píla, 4 her- bergi, 6 gá að, 8 látinn ríkisleiðtogi, 11 reykja, 14 kaldi, 17 drykkur. Lausn. Lárétt: 1fjör, 5jór, 6la,7öl,8 með,9mais,10ró,12ótt,13ask,15ao, 16naut,18lesa. Lóðrétt: 1fjötrana,2jól,3ör, 4bað- stofa,6leita,8maó,11ósa,14kul,17 te. 1 7 8 9 10 11 13 16 17 18 14 15 12 2 3 4 5 6 ■ Nýjar bækur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.