Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 31
31MIÐVIKUDAGUR 26. nóvembe 2003
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Nino Burdzhanadze.
Úsbekistan og Afganistan.
Alonzo Mourning.
Kynvitundarnámskeið fyrir konur
NÁMSKEIÐ „Það sækja þessi nám-
skeið konur á öllum aldri en elsta
konan sem ég man eftir í svipinn
var 66 ára að mig minnir,“ segir
Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrun-
arfræðingur, sem hefur í vetur
verið með kynvitundarnámskeið
fyrir konur.
Ragnheiður segir að námskeið-
in séu vel sótt og hún viti til þess
að konur hafi bæði mikið gagn og
ekki síður ánægju af að kynnast og
fræðast. „Þetta er fyrir þær konur
sem vilja taka sér tíma til að fræð-
ast um sitt kynferði. Við förum
heilmikið í fullnægingu konunnar
og hvað raunverulega er að ger-
ast í líkamanum við þær aðstæð-
ur. Kennum æfingar og aðferðir
sem geta hjálpað eins og öndun,“
segir Ragnheiður, sem stendur á
því fastar en fótunum að þekking-
in sé frelsandi.
Næsta námskeið verður um
helgina og hefst á föstudag og
heldur áfram fyrri hluta laugar-
dags og sunnudags. „Konurnar
fá heimaæfingar sem þær eiga
að stunda en ég tek það skýrt
fram að það þarf engan karl.
Konur geta sótt námskeiðið
hvort sem þær eru einhleypar
eða í hvaða sambúðarformi sem
þær eru.“ ■
ÁNÆGÐ MEÐ LÍFIÐ
Þau voru hress og kát krakkarnir á leikskólanum Hofi með fyrsta snjóinn. Þau renndu sér
niður brekkurnar á snjóþotum af mikilli gleði og fengu hjálp frá leikskólakennurunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Ragnheiður er þeirrar skoðunar að
þekkingin sé frelsandi og lykillinn að góðu
kynlífi.
Undir sviðinu í Sandgerði áttiég fyrsta kossinn minn,“ seg-
ir Rúnar Júliusson, tónlistarmað-
ur úr Keflavík. „Það var með
söngkonunni úr hljómsveitinni
Skuggum. Hún heitir María Bald-
ursdóttir. Ég er ennþá að kyssa
hana svo ég veit ekki hvað koss-
arnir eru orðnir margir.“
■ Fyrsti kossinn
Bókaforlagið Bjartur hefurgefið út bókina Syndirnar sjö
eftir Jaakko Heinimäki í ís-
lenskri þýðingu Aðalsteins Dav-
íðssonar. Höfundur er finnskur
guðfræðingur sem hlotið hefur
fjölda viðurkenninga fyrir verk
sín. Í bókinni dustar Heinimäki
rykið af dauðasyndunum sjö –
hroka, ágirnd, öfund, heift,
munúð, nautnasýki og andlegri
leti – rekur sögu þeirra og tengir
lífi nútímamannsins með eftir-
minnilegum hætti. Höfundur
sameinar gamansemi og alvöru
þegar hann fjallar um þau heim-
spekilegu og siðferðilegu álita-
mál sem snerta okkur dýpst.
Lárétt: 1 þróttur, 5 hestur, 6 tónn, 7
drykkur, 8 ásamt, 9 korntegund, 10 kyrrð,
12 títt, 13 nóa, 15 atviksorð, 16 tarfur, 18
safna saman.
Lóðrétt: 1 hlekkina, 2 hátíð, 3 píla, 4 her-
bergi, 6 gá að, 8 látinn ríkisleiðtogi, 11
reykja, 14 kaldi, 17 drykkur.
Lausn. Lárétt: 1fjör, 5jór, 6la,7öl,8
með,9mais,10ró,12ótt,13ask,15ao,
16naut,18lesa.
Lóðrétt: 1fjötrana,2jól,3ör, 4bað-
stofa,6leita,8maó,11ósa,14kul,17
te.
1
7 8
9
10 11
13
16 17
18
14 15
12
2 3 4
5 6
■ Nýjar bækur