Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 32

Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar SIGURJÓNS M. EGILSSONAR Bannað að teika Hvít jörð í Reykjavík er að verðaeins og hvert annað náttúruund- ur. Mér finnst að áður fyrr hafi verið snjór nær allan veturinn. Nægar eru minningarnar um leiki í snjó. Litlir krakkar byggja lágreist en borða þess meira af snjónum. Það nægir að leiða hugann að snjóáti til að finna bragðið. Þau eru ófá kílóin sem hafa bráðnað í munni mínum sem svo margra annarra. Stærri krakkar gerðu snjókalla eða jafnvel heilu hús- in, jafnvel þorpin. Snjórinn eykur svo mikið möguleikann til leikja að þeir eru nánast óteljandi. ÞAÐ MÁ EKKI skrópa í skólanum. Samt gerðum við Egill bróðir það einu sinni. Stóðumst ekki freistingarnar þegar við komum út, þykkur skjanna- hvítur snjór yfir öllu. Við horfðumst í augu og án þess að orð félli var ákvörðunin tekin. Sammála um að fara ekki í skólann. Teikuðum allan daginn. Fyrsti bíllinn var kókbíll. Í þá daga voru þeir opnir og með kjarki og útsjónarsemi var hægt að príla upp þá aftanverða og krækja sér í flösku. Þetta gerðum við bræðurnir. Vorum vanir svo verkið gekk vel. Það var á horni Framnesvegar og Holtsgötu sem við náðum bílnum. Kókflöskurnar voru komnar í vasa okkar áður en beygt var inn á Hringbraut. DAGURINN VAR ein salíbuna fram og aftur götur Reykjavíkur. Man hvað við vorum heppnir með bíl- inn sem við teikuðum heim. Bjalla, bestu bílarnir. Stuðararnir voru svo langt frá vélarhlífinni, að hægt var að setjast aftan áhyggjulaus og draga fæturna eftir götunni. Svo var vélin aftur í svo hún gaf yl þegar kalt var. Góður dagur var á enda. TIL AÐ VERA þriggja stjörnu teik- ari varð að standast þríþrautina. Fyrsta raunin var að teika pabba. Það var ekki flókið. Hann tók ekki eftir neinu. Enda á amerískum dreka sem munaði ekkert um stráksskrokk sem hékk aftan í. Næst var að teika kennarann. Það var spennandi. Enda var Magnea strangur kennari. Hún fattaði ekkert. Síðasta raunin var að teika lögguna. Það var mest spenn- andi. Ofsalega. Eftir lögguteikið var fátt eftir í teikinu. Nema kannski að átta sig hversu bjánalegt það er og stórhættulegt. Krakkar fá víst núna útrás fyrir spennuna í tölvuleikjum. Það er betri kostur. Enda er bannað að teika.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.