Fréttablaðið - 08.12.2003, Qupperneq 2
2 8. desember 2003 MÁNUDAGUR
„Erfitt verkefni var það hjá foreldr-
um mínum að ala mig upp.
En þau lögðu sig fram af fremsta
megni og systkini mín voru líka
afar hjálpleg við þetta erfiða upp-
eldi. Svo er annarra að dæma
hvernig til tókst.“
Garðar Sverrisson, formaður Örykjabandalagsins,
hefur ekki vandað ríkisstjórninni kveðjurnar og
sett spurningarmerki við uppeldi ráðherra.
Spurningdagsins
Guðni, var uppeldinu ábótavant?
Allt reynt til að
ráða lækni
Óánægja ríkir meðal íbúa á Reyðarfirði og Eskifirði vegna þess að
aðeins einn læknir þjónar héraðinu. Mikið hefur verið reynt til að ráða
lækni við hlið hans, en ekki tekist enn sem komið er.
HEILBRIGÐISMÁL „Það er rétt, við
höfum heyrt óánægjuraddir bæði
á Eskifirði og
R e y ð a r f i r ð i
vegna þess að
það skuli ein-
ungis vera einn
þjónandi læknir
á svæðinu,“
sagði Einar Rafn
H a r a l d s s o n ,
framkvæmda-
stjóri Heilbrigð-
isstofnunar Austurlands.
Þessi staða hefur verið uppi
um árabil, að sögn Einars. Mikið
hefur verið reynt til að ráða annan
lækni við hlið þess sem fyrir er,
en það hefur ekki gengið, þrátt
fyrir ítrekaðar auglýsingar í fjöl-
miðlum.
Alvarlegt slys varð í Fáskrúðs-
fjarðargöngunum snemma í gær-
morgun. Grjóthnullungur féll á
mann sem var að vinna inni í göng-
unum. Hann hlaut alvarlega áverka
og var fluttur á Fjórðungssjúkra-
húsið í Neskaupstað og þaðan með
sjúkraflugi á gjörgæsludeild Land-
spítala - háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi. Íbúar sem Fréttablaðið ræddi
við í gær lögðu áherslu á vaxandi
þörf fyrir tvo lækna á svæðinu af
öryggisástæðum.
„Eskifjarðarhérað er tveggja
lækna hérað,“ sagði hann. „Þar
þurfa að vera tveir læknir, annar
með búsetu á Eskifirði, en hinn bú-
settur á Reyðarfirði. Þessi læknir,
sem býr á Eskifirði, hefur setið einn
í héraðinu þar sem eru um 1.500
manns, sem er of mikið. Það er lítið
framboð af læknum til fastrar setu í
dreifbýlinu. Við erum þó nýbúnir að
ráða lækni á Djúpavog eftir auglýs-
ingu. Ég held að þetta hljóti að
takast á endanum. Við horfum fram
á tvöföldun íbúafjölda á næstu
árum og sú þensla er þegar hafin.“
Einar Rafn sagði, að mikið álag
væri á þeim eina lækni sem væri
starfandi í héraðinu. Það væri of
mikið fyrir einn mann að vinna
undir því svo árum skipti. Hann
kvaðst geta staðfest að þjónandi
læknir vildi fá annan með sér. Hins
vegar væri ósamið um kaup og
kjör ef læknarnir yrðu tveir í stað
eins.
Spurður hvort til greina kæmi
að stofna sérstakt læknishérað í
kringum Reyðarfjörð til að leysa
vandann sagði Einar Rafn svo
vera.
„Við höfum rætt þann mögu-
leika og kann vel að fara svo að
það verði gert,“ sagði hann. „Það
er ekkert því til fyrirstöðu. Við
reynum allt sem við getum til að
fá lækni á staðinn.“
jss@frettabladid.is
Sáttanefnd skilar áliti um Reykjavíkurflugvöll:
Stál í stál - engin niðurstaða
SAMGÖNGUMÁL Sáttanefnd sam-
gönguyfirvalda komst ekki að nið-
urstöðu um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar í Vatnsmýrinni í áliti
sem hún hefur skilað umhverfis-
nefnd Alþingis. Nefndin hafði
unnið að álitinu í tæpt ár.
Þrátt fyrir að engin niðurstaða
liggi fyrir telur nefndin eigi að
síður mikilvægt að borgaryfir-
völd í Reykjavík og samgöngu-
yfirvöld hefji formlegar viðræður
um framhald málsins.
„Það er pattstaða í þessu máli.
Ég sé ekki betur en að það séu
helst þrjár leiðir í stöðunni,“ segir
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra. „Í fyrsta lagi að aðilar taki
upp viðræður og reyni að semja. Í
öðru lagi gæti annar aðilinn gefið
sig, sem virðist lítið benda til í
augnablikinu. Í þriðja lagi er auð-
vitað möguleiki að grípa til laga-
setningar ef samgönguyfirvöld
telja málið vera þannig vaxið,“
segir Siv.
Hún segist hafa gert sér vonir
um að menn gætu nálgast eitthvað
í þessum viðræðum. „Ég gerði mér
líka grein fyrir því að embættis-
menn endurspegla þá stefnu sem
pólitískt kjörnir fulltrúar hafa tek-
ið. Það varð að reyna þessa leið
eigi að síður. Það má segja að það
sé eiginlega stál í stál eins og mál-
ið stendur núna. Reykjavíkurborg
vill flugvöllinn burt en samgöngu-
yfirvöld ekki.“ ■
Lögreglan stóð rjúpna-
veiðimann að verki:
Tekinn með
jólasteikina
LÖGREGLAN Lögreglan á Vopnafirði
stóð rjúpnaveiðimann að verki við
rjúpnaveiðar á innanverðri Vopna-
fjarðarheiði í gær.
Veiðimaðurinn var aðkomu-
maður og að sögn lögreglu ætlaði
hann sér að veiða sér nokkrar
rjúpur í jólamatinn. Veiðimaður-
inn má búast við ákæru á næstu
dögum en vopnfirska lögreglan
gerði afla rjúpnaveiðimannsins og
skotvopn hans upptækt á staðnum.
Lögreglan víða um land hefur
verið með eftirlit á rjúpnaveiði-
svæðum, enda er nú bannað með
lögum að veiða rjúpuna. ■
Palestínumenn funda:
Hlé á sjálfs-
morðsárásum
MIÐ-AUSTURLÖND Palestínskir stjórn-
málamenn, sem hafa undanfarna
daga verið á fundum í Kaíró í
Egyptalandi, samþykktu í gær að
hlé yrði gert á sjálfsmorðsárásum í
Ísrael. Ekki náðist þó samkomulag
um að gera hlé á árásum á ísraelska
hermenn eða landmema gyðinga.
Í lokayfirlýsingu fundarins er
Ísraelsmönnum kennt um að ekki
var staðið við vopnahlé í ágúst síð-
astliðnum, en samtök Palestínu-
manna segjast vera reiðubúin að
hætta árásum á óbreytta borgara.
Ákvörðun fundarins mun vera
áfall fyrir forsætisráðherra Palest-
ínu, Ahmed Quire, sem hugðist nota
vopnahléssamkomulagið sem grunn
fyrir viðræður við Ariel Sharon. ■
Sævar Gunnarsson:
Segist vera
dragúldinn
LÍNUÍVILNUN „Ég er dragúldinn
vegna þessa og lýsi eindreginni
andstöðu við línuívilnunarfrum-
varpið,“ segir Sævar Gunnarsson,
formaður Sjómannasambands
Íslands.
Hann segir
óviðunandi að til-
teknum hópi
manna sé hyglað
og á þar við smá-
b á t a s j ó m e n n
yfirhöfuð.
„Þó þetta gildi í
orði kveðnu um
alla dagróðrabáta
þá eru engir stær-
ri bátar á dagróðr-
um sem beita í
landi. Það er búið
að færa tugþús-
undir tonna til smábáta og enn á
að leika sama leikinn. Við erum á
móti sértækum aðgerðum eins og
þarna eru á ferðinni, sértækar að-
gerðir bitna alltaf á umbjóðend-
um mínum,“ segir Sævar. ■
REYÐARFJÖRÐUR
Hugmyndir eru uppi um að stofna sérstakt læknishérað um Reyðarfjörð til að auðvelda
ráðningu annars læknis í héraðið.
„Við reyn-
um allt sem
við getum til
að fá lækni á
staðinn.
Formaður Landssambands smábátaeigenda:
Stórt skref í rétta átt
LÍNUÍVILNUN „Ég gleðst sérstaklega
yfir einu í sambandi við línuíviln-
unina. Við erum í mjög mörg ár
búnir að benda stjórnvöldum á það
sé nauðsynlegt að taka sérstaklega
á málefnum aflamarksbáta í smá-
bátaflotanum. Þeir hafa orðið fyrir
meiri búsifjum en flestir aðrir en
með þessari aðgerð er komið til
móts við mjög marga þeirra, þó
ekki alla. Þetta er stórt skref í
rétta átt,“ segir Arthúr Bogason,
formaður Landssambands smá-
bátaeigenda um línuívilnunar-
frumvarp sjávarútvegsráðherra.
Samkvæmt því verður tekin
upp 16% línuívilnun í þorski á
næsta fiskveiðiári og í steinbít og
ýsu 1. febrúar næstkomandi.
„Ég hefði viljað sjá hærri tölur
í öðrum tegundum en þorski og
gildistakan hefði mátt vera strax,“
segir Arthúr.
Hann segir alvarlegt að ekki
skuli tekið á vanda dagabáta í
frumvarpinu. Sóknardagar smá-
báta eru nú 19 og segir Arthúr
nauðsynlegt að festa lágmarks-
dagafjöldann í lög.
„Ég hélt, meðal annars í ljósi
yfirlýsinga sjávarútvegsráð-
herra, að þetta yrði látið fljóta
með. Ég brýni þingmenn til að
klára þetta og sjá kannski í fyrsta
skipti í mörg ár, einhverja sæmi-
lega sátt við smábátaeigendur,“
segir Arthúr Bogason. ■
SÆMILEGA SÁTTUR MEÐ LÍNUÍVILNUN
Arthúr hefði kosið að sjá meiri ívilnun í ýsu og steinbít en ráðgert er að taka upp.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
ANDVÍGUR
LÍNUÍVILNUN
Segir aðgerðirnar
bitna á sínum
umbjóðendum.
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR
Reykjavíkurborg vill flugvöllinn burt en
sáttanefnd telur að annað staðarval komi
ekki til greina.
Rússnesku kosningarnar:
Stórsigur
Pútíns
RÚSSLAND, AP Samkvæmt fyrstu
tölum úr rússnesku þingkosning-
unum, sem fram fóru í gær,
stefndi í stórsigur stuðnings-
flokks Pútíns Rússlandsforseta,
„Sameinaðs Rússlands“. Flokkur-
inn hafði fengið tæp 37% atkvæða
og átti þá aðeins eftir að telja um
3% atkvæða.
Þjóðernisflokkur Vladimirs
Zhirinovskis og kommúnistar
voru í næstu sætum með helmingi
minna fylgi, Þjóðernisflokkurinn
með tæp 16% og Kommúnista-
flokkurinn með rúm 13%.
Kosið var um 450 þingsæti í
Dúmunni og buðu 23 flokkar
fram. ■
SPRENGJUREGN Í PERLUHÖFN
Alls fórust 2.390 manns í árásinni.
Árásin á Perluhöfn:
62 ár liðin
BANDARÍKIN Þess var minnst víða
um Bandaríkin í gær að 62 ár voru
þá liðin frá árásinni á bandarísku
flotastöðina í Perluhöfn á Hawaii,
sem varð til þess að Bandaríkja-
menn ákváðu að hefja þátttöku í
seinni heimsstyrjöldinni, en alls
fórust 2.390 manns í árásinni.
Hundruð manns voru einnig
viðstaddir minningarathöfn á
Hawaii í nágrenni flaksins af her-
skipinu USS Arizona, en um 1200
manns úr áhöfn skipsins fórust í
árásinni og eru flest líkin enn í
flakinu á hafsbotni. ■