Fréttablaðið - 08.12.2003, Síða 18
Blaðauki Fréttablaðsins um undirbúning jólanna
jólin koma
á Sony
You make it a Sony
Kaup
nglu 88 7669 info
16N
ú þegar rúmar tvær vikur eru til jóla
ættu flestir að vera komnir í jólaskap.
Þeir sem enn hafa ekki komið því í
verk að setja jólaseríur í gluggana
gætu gert það í dag. Sömuleiðs er sniðugt að fara í
gegnum jólaskrautið, henda því sem er orðið svo
lasið og ljótt að það verður engum til gleði og hugs-
anlega kaupa eitthvað nýtt. Blómabúðir eru opnar
langt fram á kvöld og tilvalið að setjast inn á
kaffihús að kaupunum loknum og fá sér
rjómakakó.
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: jol@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
NÚ ER LÍKA OPIÐ Í
HÁDEGINU!
Réttur dagsins í dag er ristaður
karfi með bönunum og kókos á
670 kr. og stór bjór er á tilboði
í hádeginu á aðeins 350 kr.
SUÐRÆNT ELDHÚS
– á suðrænu verði –
Turnhúsinu Tryggvagötu
sími 511 1314 - www.casagrande.is
h
a
u
s
v
e
r
k
Jólahefðirnar mínar koma allsstaðar að úr heiminum,“ segir
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bach-
mann en hún er nýútskrifuð úr
leiklistarnámi í Bandaríkjunum.
„Ég bjó meðal annars í Svíþjóð
þegar ég var lítil og einu sinni
fékk ég í skóinn lítið plast-
líkneski af Maríu mey, Jósef og
Jesú. Mamma og pabbi höfðu
keypt þetta á flóamarkaði og
næstu árin upphófst mikil leit að
sögupersónum jólaguðspjallsins í
formi lítilla líkneskja,“ segir Þór-
dís. „Við fundum bæði vitringana
og kindur og að lokum heilt fjár-
hús. Við lentum reyndar í
smávandræðum þegar aukasett
af Jesúfjölskyldunni fylgdi með
nokkrum aukapersónum. María
og Jósef litu reyndar út eins og
fjárhirðar þannig að við smellt-
um bara kindum fyrir framan
þau og Jesúbarninu var smellt á
jólatréð. Núna eigum við lítið
jólaþorp og einn auka Jesú sem
fjölskyldan dregur fram við há-
tíðlega athöfn um hver jól.“
Þórdís á líka skemmtilegar
jólaminningar úr sænskum skóla.
„Þrettánda desember er Lúsíu-
dagurinn haldinn hátíðlegur í
Svíþjóð og þá vorum við krakk-
arnir allir klæddir í hvíta kyrtla
og strákarnir fengu hatta en
stelpurnar kerti í hendi og silfur-
glitrandi jólaskraut bundið um
mittið. Við gengum um eins og
englahjörð en fremst í flokki fór
Lúsían sem fékk auk kertisins
heila kertakórónu á höfuðið sem
þótti nú ekki lítið flott. Hún fékk
auk þess að leiða sönginn, það
þótti mikill heiður og í bekknum
var alltaf barist heiftarlega um
hver fengi að gegna hlutverki
Lúsíu. Mér skilst að þessi hefð
eigi rætur að rekja í kaþólska
dýrlingatrú en af einhverjum
sökum hafa Svíar haldið í þennan
jólasið.“ ■
KERTASLÖKKVARAR
Þessir litlu glerhólkar eru mikið þarfaþing
því sé þeim smeygt um kertin slökkva þeir
logann áður en hann kemst niður í skreyt-
ingar. Þeir fást í Duka.
Jólakort til landa utan
Evrópu:
Síðasti dagur
í dag
Síðasti skiladagur til þess aðsenda jólakort til landa utan
Evrópu er í dag, 8. desember, ef
fólk ætlar að vera öruggt um að
þau komist til viðtakanda fyrir jól.
Skiladagur fyrir jólakort til
Evrópu er 15. desember.
Íslandspóstur
hefur opnað jóla-
pósthús í Kringl-
unni, Smáralind,
Mjóddinni og Firði
Hafnarfirði fyrir
jólasendingarnar.
Frá 5. til 11. des-
ember eru þessi
jólapósthús opin
kl. 13 til 18 en frá
12. til 23. desem-
ber eru þau opin á
verslunartíma verslunarmiðstöðv-
anna. Á Glerártorgi á Akureyri
verður Íslandspóstur einnig með
jólapósthús frá 12. til 23. desem-
ber. Það verður opið á verslunar-
tíma. ■
ÞÓRDÍS ELVA ÞORVALDSDÓTTIR
Þórdís fékk Jesúfjölskylduna í skóinn þegar hún var lítil og hefur safnað í heilt þorp síðan.
Jólahefðir úr öllum heiminum:
Heilt jólaþorp
og auka Jesú
JÓLAKORT
Þurfa að fara tím-
anlega í póst.