Fréttablaðið - 22.12.2003, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 22. desember 2003
hvað?hvar?hvenær?
19 20 21 22 23 24 25
DESEMBER
Mánudagur
G Æ Ð A F R A M K Ö L L U N U M A L L T L A N D
www.kodakexpress.is SÍMI 570 7500 / www.hanspetersen.is
LS 633
• 3.1Mp
• 3x Optískur aðdráttur
• Schneider linsa
• Lithium Ion hleðslurafhlaða og hleðslutæki fylgja
• 2.2" OLED skjár
• Tekur video með hljóði
Skoska knattspyrnan:
Celtic sigraði
FÓTBOLTI Celtic heldur átta stiga for-
ystu á toppi skosku úrvalsdeildar-
innar eftir 2-0 sigur á Motherwell á
útivelli í gær. Ragers minnkaði for-
skotið í fimm stig á laugardag með
2-1 sigri á Hearts. Shota Arveladze
og Chris Burke skoruðu mörk
Rangers.
Walesmaðurinn John Hartson
skoraði þegar á þriðju mínútu leiks
Celtic og Motherwell en Alan
Thompson gerði út um leikinn þeg-
ar nítján mínútur voru til leiksloka
þegar hann skoraði með skoti beint
úr aukaspyrnu. Frammistaða
Robert Douglas, markvarðar Celtic,
átti drjúgan þátt í sigrinum.
Motherwell fékk vítaspyrnu eftir
hálftíma leik en Douglas varði fasta
spyrnu Derek Adams. ■
SJÓNVARP
15.00 Ensku mörkin á Stöð 2.
16.40 Helgarsportið á RÚV.
17.30 Ensku mörkin á Sýn.
18.25 Spænsku mörkin á Sýn.
19.20 NFL-tilþrif á Sýn.
19.50 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Manchester
City og Leeds United.
21.50 Meistaradeildin í hand-
bolta á Sýn. Útsending frá síðari
leik Magdeburg og Skjern í 16
liða úrslitum meistaradeildarinnar.
23.05 Markaregn á RÚV.
23.30 Ensku mörkin á Sýn.
00.25 Spænsku mörkin á Sýn.
Havnar Bóltfelag:
Kristinn ekki
þjálfari
FÓTBOLTI Daninn Heine Fernandez
verður næsti þjálfari Færeyja-
meistara HB. Kristinn Rúnar
Jónsson, fyrrum þjálfari ÍBV og
Fram, var lengi inni í myndinni
sem þjálfari færeyska félagsins
og gerði HB honum tilboð í fyrri
viku.
Fernandez hefur leikið í efstu
deildinni dönsku í átján ár með
Silkeborg, Viborg, FC København
og nú síðast með AB frá Kaup-
mannahöfn. Fernandez náði að
leika einn A-landsleik á ferlinum
en hann lék síðastu 23 mínúturnar
af leik Íslendinga og Dana á Laug-
ardalsvelli í september 1991. ■