Fréttablaðið - 22.12.2003, Blaðsíða 30
■ ■ TÓNLEIKAR
21.00 Kammerhópurinn Camer-
arctica heldur sína árlegu kertaljósatón-
leika í Dómkirkjunni í Reykjavík. Verkin
sem þau leika eru Divertimento nr. 3 K.
138 eftir Wolfgang Amadeus Mozart,
Kvartett fyrir klarinett og strengi í Es-dúr
op. 2 nr. 1 eftir Bernhard Crusell og
Kvartett í D-dúr fyrir flautu og strengi
eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
21.00 Hallveig Rúnarsdóttir sópr-
an og Steingrímur Þórhallsson org-
anisti verða með aðventutónleika í
Neskirkju.
Karlakórinn Þrestir, elsti karlakór
landsins, heldur jólatónleika í Víðistaða-
kirkju. Stjórnandi er Jón Kristinn
Cortes.
■ ■ SAMKOMUR
17.00 Ásatrúarfélagið fagnar sigri
ljóssins yfir myrkrinu að fornum sið með
ljósahátíð í Öskjuhlíð. Allir eru vel-
komnir á þessa jólahátíð félagsins.
Jólamarkaður Sirkus við Laugaveg
og Klapparstíg kl. 15–22. Alls konar
sniðugt grúví dót.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
30 22. desember 2003 MÁNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
19 20 21 22 23 24 25
DESEMBER
Mánudagur Ásatrúarmenn fagna jólum þóekki haldi þeir upp á fæðingu
frelsarans. Á laugardagskvöldið
héldu þeir árlegt jólablót með
rammíslenskum jólamat, tónlist-
aruppákomum og rímum, og í
kvöld fagna þeir sigri ljóssins yfir
myrkrinu með ljósahátíð í Öskju-
hlíð. Þetta er í fyrsta skipti sem
ásatrúarmenn skipuleggja ljósa-
hátíð, en slík hátíð hefur ekki ver-
ið haldin hér síðan á landnámsöld.
„Forfeður okkar voru ekki jafn
hræddir við neitt eins og að sólin
kæmi ekki upp aftur,“ segir Hauk-
ur Halldórsson Reyknesingagoði.
„Þeir fylgdust í skelfingu með sól-
inni síga neðar og neðar og fögn-
uðu auðvitað mjög þegar hún
hækkaði aftur á lofti.“
Ásatrúarmenn kveikja í bál-
kesti úr hrís í líki hests á
ljósahátíðinni. „Hesturinn er tákn
sólarinnar, en sólin er dregin af
tveimur hest-
um. Við mun-
um kveikja í
bálkestinum
og horfa
andaktug á
þegar sólin
hefur aftur á
loft,“ segir
Haukur, og
vill segja
b l a ð a m a n n i
allt um goðin,
eins og til
dæmis að þau
hafi komið til
m a n n h e i m a
og birst mannfólkinu í desember.
„Eins og vættir eða jólasveinar,“
segir Haukur. 6. desember kom til
dæmis sjálfur Þór til byggða. Og
hvað gerðu forfeðurnir? Þeir
bjuggu til litla hamra og hengdu á
hurðina hjá sér til að koma í veg
fyrir að Þór skellti hurðum. Þar
skyldi þó ekki vera kominn sjálf-
ur Hurðaskellir? Eða Bjúgna-
krækir sem er Týr. Hann kom og
nældi sér í sérstakar pylsur sem
héngu á snögum í útihúsum í
Þýskalandi. Og Heimdallur kíkti á
gluggana og fylgdist með elskend-
um.“
Sólstöðuhátíðin verður haldin í
Öskjuhlíðinni og er mæting
klukkan 17 á bílastæðunum við
veitingahúsið Nauthól. Allir eru
velkomnir á þessa uppákomu ása-
trúarmanna. ■
■ RÍMUR
Sigur ljóssins á myrkrinu
!
"#$ %&
&'&( )
& *
Ég smakkaði skötu í fyrsta skip-ti í fyrra heima hjá tengdó en
fyrir þann tíma fékk ég mér alltaf
pitsu á Þorláksmessu,“ segir sjón-
varpskonan Sigrún Ósk Kristjáns-
dóttir. „Ég hugsa að ég borði skötu
í ár en besti skyndibitinn er á
Grænum kosti. Þangað fer ég
alltaf þegar ég nenni ekki að
elda.“ ■
Kafa ofan í
kjarna jólanna
Við ætlum að snúa algjörlegavið þessu jólastressi öllu og
fara beint í kjarnann á hinum trúar-
lega hluta jólanna,“ segir Hallveig
Rúnarsdóttir sópransöngkona. „Við
erum alveg búin að fá leið á jólun-
um út af öllum látunum.“
Hún ætlar að syngja á kyrrðar-
tónleikum í Neskirkju í kvöld. Á
orgel leikur Steingrímur Þórhalls-
son. Þau ætla að flytja sálma og
Maríukvæði ásamt verkum eftir
Bach og Handel. Sum lögin syngur
Hallveig án undirleiks, önnur flytja
þau saman og svo leikur Steingrím-
ur sum verkin á orgelið án söngs.
„Svo spinnur hann á milli
sálmanna. Það gerum við vegna
þess að við viljum ekki að klappað
verði á milli verka, og helst ekki á
eftir tónleikunum heldur.“
Tónleikarnir í Neskirkju verða
sem sagt kyrrðartónleikar þar sem
fólki á að gefast tækifæri til íhug-
unar og tilbeiðslu. Tónlistin er öll
valin með tilliti til þess. Þau héldu
svipaða tónleika í Langholtskirkju
árið 1998, voru þá bæði nýútskrifuð,
og héldu síðan bæði utan til náms þá
um haustið.
Hallveig segir að þau Steingrím-
ur hafi mjög líkt viðhorf til tónlistar
og hafi því náð afskaplega vel sam-
an fyrir þessa tónleika.
„Við erum bæði þeirrar skoðun-
ar að tónlistin komi fyrst, síðan
listamaðurinn. Við erum bara verk-
færi í raun og veru og þess vegna er
nauðsynlegt að vinna allt voða vel
líka.“ ■
FRÁ JÓLABLÓTI ÁSATRÚARMANNA
Þar er mikið um dýrðir, kveðnar rímur, flutt tónlist og etið af lyst.
HAUKUR
HALLDÓRSSON
REYKNESINGAGOÐI
Telur jólasveinana eiga
rætur að rekja til
goðanna.
HALLVEIG OG STEINGRÍMUR
Hátíðleg kyrrðarstund verður í Neskirkju í kvöld með sópransöng og orgelspili.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Bestibitinn
■ TÓNLEIKAR