Tíminn - 18.07.1971, Page 1

Tíminn - 18.07.1971, Page 1
^TT^rt. FRYSTIKISTUR * FRYSTISKÁRftR * é ■* ! *- ■;'* .wa.'U*B-B+u: ^irta.i.r^iia-.axiftgaau Jdt/z xrj£í*œSuvfÍjLcL.,í^ h-f * ífc BAiTÆXJADEiy), HAFHARSTPJEH-23, StJ« ,18335 ALLT FYRm BOLTAlÞRÓTTÍR SpoHvoruverzluti - INGÓLFS ÓSKARSSONAR Klapparstíg 44 • Sími 11783. 1». ftSL — Sunnudagur 18. fúfí 1971 — 55. árg. Forsetarnir hittust á Fréttir frá Peking herma að Bandaríkjamenn æffi að KALLA HEIM HERAFLANN FRÁ flugveiiinum FORMOSU FYRIR HEIMSOKNINA KJ—Reykjavík, laugardag. Chro Kekkonen forsetí Finn lands, kom tíl íslands um há- degisbilið í dag, og mun hann dvelja hér í einkaheimsókn fram á fimmtudagsmorgun, ásamt nokkrum öðrum Finn- um, sem komu með honum. Kekkonen var meðal farþega í Flugfélagsþotunni Sæfaxa, sem lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan rétt rúmlega tólf. Á flugvellinum var forseti fs- lands dr. Kristján Eldjám mættur til að taka á móti Kekk onen, en að öðru leyfi var ekki nein sérstök móttökuat- höfn á flugvellinum eins og þegar um opinberar móttökur er að ræða. Kekkonen stóð í fremri þotudyrunum þegar stig anum var rennt að vélinni, og eftir að forsetamir höfðu heils azt, kynnti forseti íslands Kekk- onen fyrir viðstöddum íslend- ingum. Þarna var mættur Pét- ur Thorsteinsson ráðuneytis- stjóri os Pétur Eggertz am- bassador, Gunnar J. Friðriks- son iðnrekandi, og fleiri. For- setarnir settust strax inn í forsetabílinn, og eftir skamma stund var ekið af stað í fylgd lögreglubíla með blikkandi rauð ljós. Var ekið rakleiðis til Reykjavíkur ó Hótel Sögu þar sem gestirnir hvíldust, og nærðust eftir ferðalagið, en klukkan fjögur hafði forseti íslands móttöku á Bessastöð- um fyrir Kekkonen og nokkra aðra gesti. Að móttökunni lok Framhald á bls. 10. Kekkonen Finnlandsforseti geng- or frá þotunni f fylgd forseta fstands dr. Kristjáns Eldjárns. (Tímamynd Gunnar) NTB—Peking og San Clementek, laugardag. + Talið er all sennilegt sam- kvæmt áreiðanlegum upplýsingum | i Peking, að Bandaríkjastjóm kalli heim herafla sinn frá For- mósu og gefi tryggingu fyrir heim köllun bandarískra hersveita frá Indókína áður en Nixon forseti Bandaríkjanna heldur f fyrirliug- aða heimsókn sína til Kína. -fr Þá eru uppi miklar bollalegg- inga um það, hvort Nixon for- seti muni hitta sovézka ráðamenn áður en hann heldur tíl Kína, en ráðamenn í Moskvu eru ekki yfir sig ánægðir með hennsókn Nix- ons tíl Peking. Tilkynningin um heimsókn Nix- ons til höfuðborgar Kína vakti mikla undrun manna í Peking. Ljóst var, að sambúðin milli land- anna tveggja fór sífellt batnandi, en að tilkynning um heimsókn forsetans skyldi birtast svo fljótt, vakti furðu margra. Chou En-Lai, forsætisráðherra hefur boðið Nixon í heimsókn til Peking vitandi það, að slík heim- sókn yrði Nixon til mikils fram- dráttar í kosningabaráttunni í forsetakosningunum á næsta ári. Greiðslustaða borgarsjóðs er blekking Sjá bls. 15 og 16 EKKERT LÁTÁ LAXVEIÐUM I SJÓ VIÐ STRENDUR NOREGS Ótakmörkuð veiði er leyfð á tímabilinu frá 5. maí til 1. júlí. ÞÓ-Reykjavík, laugardag. í morgun hafði Tíminn tal af Magnus Berg, fulltrúa hjá veiSimálastjóra Noregs, en hann hefur aðsetur í Þrándheimi. Við spurðum hann, hvernig laxveiði hefði gengið. Kom fram í viðtalinu, að laxveiði hafi verið frekar dræm hjá Norðmönnum í sumar. Ekkert lát er á laxveiðum í sjó við Noregsstrendur á leyfðum tíma, sem er frá 5. maí til 1. júlí. Aðspurður sagði Berg, að veiðin í norsku ánum hefði verið frekar dræm, en hann sagðist engar töl- ur hafa um veiðina, þó hefði veið- in verið sæmileg á Vesturströnd- ínnl, en í Noröur-Noregi, þar sem beztu árnar væru, hefði veiðin verið mjög léleg, ef miða ætti við árin 1969 og 70. Sanú eru nokkrar ár á Finnmörk, sem hafa skilað mc'.gum löxum á land í sumar, en nú fer að koma bezti laxatíminn li á okkur nr bá vonumst við til að veiðin fari að skána í Norður- Noregi. Ekki sagðist Berg vita hvernig laxveiði hefði gengið á Austurlandi, en hún væri varla cnikil, enda hefðu árnar þar farið il! undanfarin ár vegna meng- unar, cins og t.d. Glomma, stærsta á Noregs, sem var mjög góð lax- veiðiá hér áður fyrr. Upp úr Glommu fæst ekki orðið tittur, sagði 3t.g. Um laxveiðina undan Noregs- ströndum, sagði Perg, að nú væri luksins búið að takmarka veið arnar að því leyti, að aðeii.; væri leyft að veiða lax undan Noregs- ströndum á tímabilinu frá 5. maí til 1. júlí. En því miður eru eng- in takmörk fyrii því hvc mikið er veitt á þeim tíma, sem veiðin s' mdur yfir. Sagði Berg, að hann vissi ekki hve mikið hefði verið veitt nú í ár, því að þeir fengju eng ar rkýrslur fyrr en -eftir áramót um laxveiðina í sjónum og það spma væri að segja um laxveið- ina í ánum. En Berg sagði, að því miður þá virðist ekkert lát á lax- veiðum í sjó, og væru Danir þar verstir. Að öllum líkindum relknar kín- verski forsætísráðherrann með Framhald á bls. 10. 8 ára drengur týndur í þoku — drengsins var leitað í alla fyrrinótt, fannst um fjöguríeytið. SB-Reykjavík, langardag. Átta ára gamall drengur, ÞórSur Kristjánsson frá Vötn- um í Ölfusi, villtist í gær- kvöldi, er þoka skall 'yJfir. Var hann á gangi í nótt, rammvillt- ur, unz bóndinn á Völlum, bæ nokkra kílómetra frá Vötnum, kom auga á hann út um glugg- ann snemma í morgun. Þórður litli var þá sæmilega á sig kom inn og gat sagt frá atvikum. Hann er nú kominn hehn tíl sín, hvíldur og hress. Ekki neyndist unnt að ná tali af Þórði litla í morgun, en Bjöm Jónasson, bóndi á Völlum, sem fann drengmn, segir þannig frá: — Þegar maður er farinn að slá, þá þarf maður aBtaf að vera að líta eftir hlutunum og þess vegna var það að ég leit út um gluggann hjá mér um fjögur-leytið í morgun. Sá ég þá mann þarna úti, sem var á gangi, en fór mjög hægt. Mér fannst þetta vera fuöorðinn maður, því allt stækkar í þoku, en þar sem mér fatmst ölburð- ir hans allir undarlegir, fór ég út öl bans. Þegar ég kom -ið honum, sá ég að þetta var bara lítíll drengur, sem ég kannaðist ekki við. Hann var blautur og dauðuppgefinn, enda búinn að vera á gangi alla nóttina. Hann sagði mér, hvað hann hétí og hvaðan hann væri og sagðist hafa verið úti að leika sér með krökkum og mér skildist að þau hefðu orðið ”að ósátt og það atvik- aðist þannig, að Þórður varð viðskila við þau, rétt í þann mund sem þokan skall á. Ég fór með hann inn og hann var háttaður niður í rúm og svaf fram að hádegi. Ég lét móður hans strax vita og hún kom og sótti hann núna rétt eftir hádegið. Þá var Þórður litli orðinn hress, búinn að sofa vel og hafði sýnijega ekki orðið meint Um þnkuna sagði Björn, að hún hefði verið óvenju mikil og dim-.i og hefði skollið yfir á ellefta tímanum í gærkvöldi, miör snögglega.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.