Tíminn - 18.07.1971, Blaðsíða 6

Tíminn - 18.07.1971, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 18. jólí 1971 TÍMINN '-- ■ ........-.......... Málefnasamningur stjórnarflokkanna Koma til samstarfs með góðan vilja Málefnasamningur hinnar nýju ríkisstjórnar hefur vakið verð- skuldaða athygli. Par eru mörg fyrirheit Oa það vcrður við mörg vandamál að glíma að hrinda þeim öllutn í framkvæmd og gera að veru- lcika. Höfuðatriði er að ríkis- stjórnin fái vinnufrið til að koma' málum í höfn. í viðtali, sem Tímirín átti við Ólaf Jóhannesson, forsætisráð- herra, er hann hafði formlega tekið við embætti sl. miðviku- dag, sagði hann cn.a.: „Mér er ljóst, að það hvílir mikil ábyrgð á mínum herðum. Mörg erfið verkefni bíða lausnar. Það er mér vissulega styi’kur, að ég hef undanfarna daga o-g vikur orðið greinilega var við cindreginn vilja almennings um að þessi stjórn yrði mynduö. Ég mun að sjálfsögðu reyna að -gera mitt bezta, en reynslan verður svo auðvitað að skera úr um, hvernig til tekst. Þrír flokkar með mismunandi sjónarmið á ýmsum málefnum standa að þess ari stjórn. Málefnasamningur Þeirra er því eðlilega málmiðl- un í ýmsum atriðum. Allir þess- ir aðilar, þótt ólíkar skoðanir hafi £ sumum greinum, hafa kom ið til samstarfsins meji. góðan vilja um að ná samkomulagi um málefni og um framkvæmd stefnu mála stjómarinnar.“ Stærsta málið Þá lagði Ólafur Jóhannesson á það áherzlu að landhelgismál- ið væri stærsta málið. Það er sett efst á blað í málefnasamn- ingi ríkisstjómarflokkanna og þar verður haldið fast við þá stefnu, sem mótuð var af þess- um flokkum á síðasta þingi, en fullt samráð verður þó haft við stjómarandstöðuna og henni gef inn kostur á að fylgjast með framvindu málsins. Þjóðin lýsti því í síðustu kosn ingutn afdráttarlaust yfir, að hún vill ekki láta aðgerðir í land- helgismálinu dragast. Um þá stefnu, sem þjóðin hefur þannig skýlaust mai-kað, verður nú að sameinast Mbl. og Einar Sigurðsson í því sambandi er ástæða til að vekja athygli á ummælum í grein eftir Einar Sigurðsson, útgerðarmann, sem birtist £ Mbl. st sunnudag. Einar sagði þar m.a.: „Það hefur ekki verið dregið í efa, að „nóta“ sú, er íslend- ingar sendu Bretum og Þjóðverj um £ lok þorskastríðsins, bindi að einhverju leyti, hendur ís- lendinga til aðgerða £ landhelgis málinu hversu aðkallandi, sem þær eru. Á þvi ekki að draga, eftir að málstaður íslendinga hef ur verið rækilega kynntur, að segja þessu „samkomulagi" upp. Menn hefur greint á um, hvort íslendingar eigi að láta til skar- ar skriða, um útfærslu fyrir eða eftir alþjóða hafréttarráðstefn- una 1973. Það verður sjálfsagt aldrei hægt að sætta alla við þetta stóra stökk. En er þetta meira stökk en útfærslan úr Hið nýja ráðuneyti Ólafs Jóhannessonar tók formiega við völdum siðdegis sl. miðvikudag á ríkisráðsfundi á Bessastöðum. * ■ ....... ... % 1 , j|| Jj|| ÉÉ. | m " :J|§ þremur mílum, þó að að í áföng- um væri, í tólf mílurnar? En þá reis engin þjóð gegn þessu nema Bretar. Það verður að vona £ lengstu lög, að svo mikil gifta fýlgi mál- stað íslendinga, að það verði aldrei verra en þá, þótt vont væri. íslendingar, vopnlaus þjóð in, vill heldur ekki trúa því, að hún verði framar beitt hern- aðarlegu ofbeldi." A þessu þarf stjórnar- andstoðan að átta sig Hér kemur tvimælalaust fram réttur skilningur á þeirri stefnu, sem hefur verið mörkuð af þjóð- inni og nú verður að sameinast um. Fyrsta sporið er að segja upp „samkotnulaginu", sem Ein- ar Sigurðsson nefnir svo, en auðvitað er rétt að kynna áður hinn islenzka málstað svo sem kostur er. Til þess þarf ekki langan tíma .Næsta sporið er svo sjálf útfærslan. Vissulega er það rétt hjá Einari Sigurðssyni, að það verður aldrei hægt að sætta alla um það, hvenær eigi að láta til skarar skríða £ þeim efnum. Þar verður að fara eftir því sem þjóðin hefur ákveðið £ kosningum. Það er hollast fyrir stjórnarandstöðuna að átta sig til fulls á þvi. Mestu máli skipt- ir, að nú standi íslendingar sam- an en verði ekki klofnir, eins og sumarið 1958. Eigum við einir þjóða að skuldbinda okkur i landhelgismálum? f viðtali, sem birtist í Mbl. sl. föstudag, segir Ólafur Jó- hannesson, forsætisráðherra, m. a. um landhelgismálið og hvemig rikisstjórnin hyggst standa að framkvæmd málsins: „Við munum' byrja á því að taka upp viðræður um upp- sögn landhelgissamningsins við Breta og Vestur-Þjóðverja. Við viljum ekki vera bundnir af þvi að tilkynna neinni þjóð með 6 mánaða fyrirvara að við ætl- um að færa út fiskveiðimörk- in, og í annan stað viljum við ekki vera skuldbundnir að leggja slikt mál undir Alþjóðadómstól- inn. — Hvers vegna ekki? — Ég býst við, að það sé tal- ið af færustu sérfræðingum í þjóðarétti, að skipan Alþjóða- dómstólsins nú sé ekki slík, að það sé heppilegt. — Hafið þér breytt skoðun yðar og hefur skipan Alþjóða- dómstólsins breytzt okkur í óhag frá yfirlýsingu yðar á Alþingi 14. nóv. 1960, þess efnis, að ís- lendingar ættu jafnan að haga málatilbúnaði sínum í landhelg- ismálinu á þann veg, að þeir væru reiðubúnir a? leggja ffleilBh mál undir úrskurð Alþjóðadóm- mtm — Þau ummæli min voru ekki á þann veg, að við ættum að vera almennt skuldbundnir fyr- irfram til að leggja málið fyrir Alþjóðadómstólinn, en hitt er annað mál, hvort við viljum vera við því búnir. En við vilj- um ekki einir þjóða vera skuld- bundnir á þennan hátt. Viðhorf- in í þessum málum eru alltaf að breytast. Og í þjóðarétti hef- ur orðið stórkostleg breyting. Þær breytingar hafa verið okk- ur hagstæðar þar til nú, að helztu stórveldin hafa gert það að stefnu sinni, að 12 mílna fiskveiðlögsaga skuli verða al- þjóðalög. Við álítum, að vegna stöðu sinnar eigi íslendingar þann mesta rétt, sem nokkur þjóð getur átt og lítum svo aft- ur á það, að mörgum rikjum hefur haldizt uppi að færa út án þess að vopnavaldi hafi ver- ið beitt. — Nú átti Framsóknarflokk- urinn aðild að þeirri ríkisstjórn 1952, sem lagði til þá, að land- helgisdeilan við Breta yrði lögð undir úrskurð Alþjóðadómstóls og Framsóknarflokkurinn átti aðild að þeirri rikisstjóm 1958, sem lagði fram tillögu á Gen- farráðstefnunni það ár þess efn- is, að alþjóðlegur gerðardómur skyldi skera úr deilumálum fs- lendinga og annarra þjóða um landhelgsimálið og Framsóknar- flokkurinn samþykkti fyrir sitt leyti slíkt tilboð af hálfu við- reisnarstjórnarinnar á Genfai’- ráðstefnunni 1960. Mundi ríkis- stjórnin nú vera reiðubúin til þess að leggja til við Breta, að alþjóðlegur gerðardómur kvæði upp úrskui’ð í hugsanlegum deil- um við Breta um landhelgismál- ið? — Ég vil ejxkert fullyrða um það, en álít að slíkt eigi að at- huga þegar þar að kemur. Við höfum trú á því, að þegar mál- staður okkar hefur verið túlk- aður fyrir Bretum, mæti hann skilningi." Varnarmálin Það er staðreynd, sem ekkert er verið að reyna að fela, að það er ágreiningur milli stjórnar- flokkanna um afstöðuna til Nato. Þar hefur þó verið tryggð óbreytt skipan. ísland mun áfram verða í Atlantshafsbandalaginu. Við munum nú taka til við að kynna oklcur varnarmálin og taka síð- an upp viðræður við Bandaríkja- stjóm uni brottför varríarliðsins . í áföngum og mun verða að því Stefnt- að' hún geti átt sér stað á kjörtímabilinu. Ákvæðið í málefnasamningn- um um brottför varnarliðsins í áföngum þarf engum að koma á óvart, sem fylgzt hefur með í íslenzkri pólitík, þvi að allir flokkamir, sem að stjórninni standa hafa haft það mál á stenfuskrá sinni. Framsóknar- flokkurinn hefur t.d. ályktað um það á undanförnum flokksþing- um og sú stefna er líka í fullu samræmi við þann fyrirvara, sem gerður var af íslands hálfu, er við gerðumst aðilar að Nató, þ. e. að hér væri ekki her á friðar- tímum. Við höfum ætíð vitnað til þess fyrirvara og viljum að hann haldi gildi sínu. En allar aðgerðir í þessu efni þurfa auð vitað sinn undirbúning Off því skulu menn ekki búast við nein- um skyndibreytingum. Könnun, viðræður, og undirbúningur sliks máls, hlýtur að taka langan tíma. Landhelgismálið er sett á odd- inn og það hlýtur að ganga fyrir. Framkvæmda- stofnun ríkisins Eitt af fyrstu verkefnum hinnar nýju ríkisstjómar er að hefja und irbúning löggjafar um Fram- kvæmdastofnun ríkisins. Stefnt er að því að frumvarp um þá stofnun verði lagt fyrir Alþingi þegar í þingbyrjun í október. Framkvæmdastofnun ríkisins á að hafa á hendi heildarstjórn fjár festingarmála og frumkvæði í at- vinnumálum, en ríkisstjórnin hef- ur einsett sér að efla undirstöðu- atvinnuvegina á grundvelli áætl- unargerðar undir forustu ríkis- valdsins. Framkvæmdastofnunin skal gera áætlanir til langs tíma um þróun þjóðarbúsins og Þ'amkvæmdaáætlanir tii skemmri tíma, þar sem greindar eru þær fiái’fcstingai’fi’amkvæmdir, sem forgang skulu hafa. Stofnunin mun fara með stjóm Fram- kvæmdasjóðs ríkisins og annarra þeirra fjárfestingarsjóða, sem eðlilegt verður talið að faíli und- ir Framkvæmdastofnunina. Þessi nýja stofnun mun hafa ná ið samstarf við aðila vinnumark- aðarins um það, hvað unnt sé að gera til að búa í haginn fyrir hverja atvinnugrein í því skyni að lækka rekstrarkostnað og gera m. a. mögulegt að bæta kjör starfsmanna, án þess að hækkun verðlags fylgi í kjölfarið. Þær stofnanir og nefndir, sem nú eru ta í landinu og gegna skyldum verkefnum og þessi nýja stofnun, mun fá til meðferðar, verða sam- einaðar henni eftir því sem ástæða þykir tíL Byggðajafnvægis- sjóður En í tengslum við Fram- kvæmdastofnun rDdsins skal svo starfa sjóður undir sérstakri stjóra, sem veiti fjárstuðning til þess að treysta sem bezt eðlilega þróun í byggð landsins. Eignir og tekjur atvinnujöfnunarsjóðs munu ganga til þessa sjóðs og aðr ar tekjur, sem þesstim sérstaka sjóði verða ákveðnar með lögum. Framkvæmdastofnuninni verð- ur falið að semja iðnþróunará- ætlun, þar sem höfuðáherzlan verður lögð á uppbyggingu fjöÞ breytts iðnaðar í eigu lands- manna sjálfra. Skal fara fram könnun á því, hvaða greinar iðn- aðar hafi mesta þjóðhagslega þýð ingu, og þær látnar njóta for- gangs um opinbera fyrirgreiðslu jafnframt því, sem haldið verður áfram með auknum þrótti rann- sóknum á möguleikum tíl íslenzks efnaiðnaðar. Stefnt verður að því að íslend- ingar smiði að miklu leyti skip sín sjálfir. Frystihúsareksturinn verður endurbættur. Gerð verður heildaráætlun um landgræðslu og skipulega nýtingu landsgæða. Fjölbreytni landbúnaðar aukin með ylrækt og fiskirækt og inn- lend fóðurframleiðsla efld. Stuðn ingur við félagsræktun aukinn. Lánakerfi landbúnaðarins endur- skoðuð og stuðlað að enduraýjun og uppbyggingu vinnslustöðva " landbúnaðarins. Kaupa svo fljótt sem verða má 15—20 skuttogara af ýmsum stærðum og gerðum, til viðbótar við þá, sem þegar hefur verið samið um og tryggt nægjanlegt hráefni til vinnslu á þeim stöðv- um, þar sem staðbundið atvinnu- leysi hefur ríkt. Þá verður allt bankakerfið end urskoðað, þar á meðal löggjöf varðandi Seðlabankann og hlut- verk hans, og unnið að samein- ingu banka og fjárfestingarsjóða. Vextir af stofnlánum atvinnuveg- anna verði lækkaðir og lánstími lengdur. Endurkaupalán Seðla- bankans verða hækkuð og vextir á þeim lækkaðir. Rekstrarlán til fi-amleiðsluatvinnuvega verða aukin. Hér hefur verið drepið á helztu atriðin í málefnasamningi stjórn- arflokkanna, er varða atvinnumál. Stefnumiðin í kjaramálum, trygg- ingamálum, samgöngumálum og menntamálum eru engu ómerk- ari, þótt þau verði ekki gerð að umtalsefni i þessum pistli að þessu sinni. — TK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.