Tíminn - 18.07.1971, Síða 3

Tíminn - 18.07.1971, Síða 3
SUNNUDAGUR 18. júlí 1971 3 TÍMINN Túlkun Jóhanns G. Jóhannssonar á Cream (Tímamyndir — Gunnaft Litið inn á málverkasýningu Jóhanns G. Jóhannssonar Þarna stóð ég í rökkrinu, heyrði tónlist, andaði að mér reykelsisilmi og virti fyrir mér málverkin á veggjunum. Sann arlega leið mér vel, það var gott að vera kominn á rólegan stað utan úr ys og þys borgarinn- Eg var staddur í Casa Nova þar sem Jóhann G. Jóhannsson, tónlistar- og myndlistarmaður hefur undanfarna daga, haldið sýningu á 27 málverkum sín- mn, en þeirri sýningu lýkur kl. 10 f kvöld, sunnudag. — Jæja, þú ert kominn, sagði Jóhann. Klukkan var að verða 10 um kvöldið og síð- ustu gestir dagsins voru að kveðja. Já, ég var kominn og í þetta sinn var ég óvenju stundvís. Ég hafði frétt fyrir meira en mánuði, að Jóhann ætlaði að ^ halda þessa riiálverkasýningu, og daginn eftir að ég kom austan að landi úr sumarfríi, frétti ég, að hann væri búinn að hrinda sýningunni í fram- kvæmd. Og nú stóð ég þarna, virti fyrir mér myndirnar og varð ekki fyrir vonbrigðum. Myndirnar sem ég virti fyrir mér, virkuðu á mig sem hvild, þetta voru jákvæðar myndir, tryllingur tæknialdar átti ekki heima í þeim, rólegt yfirbragð þeirra gáfu til kynna, að lista- maðurinn var að skapa það, sem kalla má þægilegar mynd- ir fyrir fólkið, en fyrst og fremst voru þær skapaðar af þörf listamannsins fyrir hvíld. Það er mín skoðun, og Jó- hann bar ekki á móti henni. Jóhann G. Jóhannsson og hluti af verkum hans. henni. Áfengisneyzla fólksins gerir það að verkum, að fólk- ið vill tryllingslega tón- list, þannig að það geti ekki ræðzt við, án þess að æpa hvert ofan í annað. Síðan gerist það hvað eftir annað, að spilarinn á pallinum lendir í vandræð- um með einhverja persónu, sem endilega vill ræða við guð- inn sinn á pallinum, og varla getur spilarinn yfirgefið pall- inn án þess að lenda í erfið- Afleiðing? — Allar myndirnar á sýn- ingunni ehi nýmálaðar, út- skýrði Jóhann. Ég byrjaði að mála þær, þegar LP-plötur okk ar Óðmanna voru fullgerðar og hljómsveitin hætti að starfa. Ég þurfti að slappa af. Jóhann heldur áfram: — Ég hef alltaf haft gaman af að mála, ég hef málað frá því ég var smástrákur, enda teikn- aði ég þá gífurlega mikið. MB) INU FSH UMSJÓN: EINAR BJÖRGVIN Tónlist og myndlist hafa jú verið aðaláhugamál mín. — En hver er munurinn á því, að gera málverk og tón- verk? Jóhann: — Þegar maður mál ar, er maður einn, ræður ferð- inni. Þegar maður gerir tón- verk, er maður háður öðrum spilurum, þarf að taka tillit til þeirra. Það er meiri ró fólg- in í þvf að mála myndir, en gera tónverk. Að öðru leyti er þetta hliðstætt. Fullfrágengin mynd er eins og fullgert lag. Á sýningu Jóhanns eru mál- verk af popptónlistarmönnum. Þar eru málverk af Bjögga í Ævintýri, Jimi Hendrix og afar stór mynd af Cream. Hefur poppið mikil áhrif á myndlista sköpun, Jóhann? Jóhann: — Já, mjög mikil áhrif, sérstaklega Jimi Hend- rix. Þegar ég gerði myndina af honum, reyndi ég að sjálf- sögðu að draga fram persónu- leika hans og stöðu hans inn- an poppsins, þau áhrif sem hann hefur. Nú hafa 9 myndir selzt á sýningunni. Það er einkuro ungt fólk sem keypt hefur myndirnar, t.d. keypti Bjöggi í Náttúru myndina af sér og Rúnar í Trúbroti keypti mynd ina ..Ballerínur". Hins vegar hefur fólk úr öllum aldurs- flokkum komið á sýninguna. Reynsla Margir listamenn reyna að sveipa um sig dularfullri óg torkennilegri slæðu, þannig að erfitt er að komast að því, hvað þeir meina með listaverk- um sínum. Það er líkast því, sem þeir vilji forðast það, að almenningur skilji þá. Kannski er það ágætt — kannski ekki. • Komir þú á sýninguna hjá Jóhanni G. Jóhannssyni í dag, ÓSmenn — uDohaf. endir oq áhrif og verði hann við, er ég full- viss um, að hann ræðir við þig um málverkin sín, jafnframt því sem hann vill að þú reyn- ir á hugarflug þitt, er þú skoð- ar verk hans, þannig að þú Verður virkur þátttakandi í sýningunni. Og ég er alveg viss um, þú hvílist á því að líta inn í Casa Nova í dag, og þegar þú gengur aftur út í ys og þys borgarinnar, þekkir þú Jóhann G. Jóhannsson betur en áður. — EB. Persónuleiki Jimi Hendrix „FrummaSurinn frá Austurlöndum": Biöqql í Náttúru Orsökin í mörg ár hefur Jóhann G. Jóhannsson staðið í fremstu röð popptónlistarmanna okkar, og að vera í þeirri stöðu hef- ur þreytandi áhrif á marga. Kvöld eftir kvöld standa popp- tónlistarmennirnir á hljóm- sveitarpalli fyrir framan blind- fullt fólk, frá hljóðfærum þeirra streymir tónlist, sem fólkið hristir sig o,o skrækir eftir, án þess þó að hafa hina minnstu tilfinningu fyrir leikum með blindfullan skríl, sem hangir utan á honum. Kvöld eftir kvöld endurtek- ur þessi saga sig. Vonandi gef- ur þessi lýsing nokkuð raun- sanna mynd af stórum þætti^ í lífi popptónlistarmanns á ís- landi. Það svalar að visu hé- gómagirnd margra að vera guð inn á pallinum, en ég held að margir verði leiðir á því til lengdar og a.m.k. er ég full- viss um einn. Sá er Jóhann G. Jóhannsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.