Tíminn - 18.07.1971, Qupperneq 9
SUNNUDAGDR 18. jálí 1071
•'^S'i’-Ííí Y'i"
m \\/ [\Tp m
M /yy// ■mI L* y
Efsa
Leika báða leikina
ytra
Því miður eru litlar sem
engar líkur til þess, að við
fáum að sjá Fram og Akranes
leika Evrópubikarleiki sína
hér heima. Forráðamenn knatt-
spymumála á Akranesi gáfu
strax til kynna, eftir að ljóst
varð, að Akranes hafði dregizt
gegn meistaraliði Möltu, að
þeir myndu leita eftir samn-
ingum við Möltubúa um að
báðir leikir liðanna yrðu háðir
á Möltu. Og nú hefur Fram
fetað í fótspor Skagamanna.
Hafa undanfarið staðið yfir
samningar milli Fram og Möltu
búa um sama efni, þ.e. að báðir
leikir Fram og bikarmeistara
Möltu verði háðir á Möltu. Eru
samningar það langt komnir,
að telja má fullvist, að Fram
leiki báða leikina ytra.
í þessum pistli hefur verið
bent á, að það sé í hæsta máta
óeðlileg og óæskileg þróun, að
íslenzk lið, sem þátt taka í
Evrópubikarkeppni, leiki báða
sína leiki ytra, nema þegar
þannig stendur á, að andstæð
ingaliðin séu frá mjög fjarlæg
um löndtrm. Verður að telja,
að swo sé í þessu tilviki, en
engn að síður er Ijóst, að stjóm
KSÍ þarf að setja ákveðnar
regiur um þetta, eins og bent
befur verið á.
Ef að er gáð
í síðasta tölublaði íþrótta-
blaðsins birtist smágrein undir
heitinu „Misheppnuð bylting",
en í þessari grein er gerður
samanburður á knattspyrnunni
sl. 2—3 ár — á „endurreisn-
artímabilinu“ — og næstu ár-
um á undan, sem stundum hafa
verið nefnd niðurlægingartíma-
bil íslenzkrar knattspyrnu, ekki
sízt vegna 14—2 leiksins á Id-
rætsparken.
En þegar að er gáð, kemur
í ljós, að árangurinn sl. 2—3
ár er ekki tiltakanlega betri.
Þannig hljótum við 7 stig úr
13 síðustu landsleikjum — á
því tímabili, sem núverandi
stjórn KSÍ hefur lagt megin-
áherzlu á starfsemi landsliðs-
ins — en í 13 landsleikjum
þar á undan, hljótum við 5
stig. Munurinn er því aðeins 2
sti'g.
Enginn ber á móti því, að
árangurinn síðara túnabilið er
betri, einkum, þegar það er
athugað, að á því tímabili era
leiknir fleiri leikir á útivelli.
Og markatalan er mun hag-
stæðari, vegna þess, að 14:2
leikurinn er á fyrra tímabil-
inu. En það hefur ekki orðið
nein stórkostleg breyting.
Forastumenn KSÍ hafa borið
sig illa út af greininni í íþrótta
blaðinu, enda þótt þeir hafi
ekki treyst sér til að gera at-
VARAHLUTIR I RAFKERFIÐ
■ '■íís-n.qnuloauí’áiisriJiul
HÖFUM Á LAGER
Dínamó-anker
6—12 og 24 v.
Dínamóspólur
6—12 og 24 t.
Startara-anker
6—12 og 24 v.
Startara-spólnr
6—12 og 24 v.
Startara-hendixa
Start-rofa
6—12 og 24 v.
Mercedes Benz
Skania Vabis
Volvo
Volkswagen
Ford Tannus
Ford Cortina
Opel
Simca
Peugeot
Fiat 1100
Saab
o. fL
Sendum í póstkröfu strax og hringt er. Svo má
tíka senda okkur dínamóinn eða startarann. Við
gerum við og sendum síðan með fyrstu ferð.
Hverfisgötu 50 — Símar 19811 — 13039
RAFSUÐUTÆKI
HANDHÆG OG ÓDÝR
Þyng 18 kg.
Sjóða vír 2,5—3,0—3,25 mm.
RAFSUÐUÞRÁÐUR,
RAFSUÐUTANGIR,
RAFSUÐUHJÁLMAR,
RAFSUÐUKAPLAR
góðar teg. og úrval.
S M Y R I L L
Ármúla 7. Sími 84450.
TÍMINN
hugasemd við hana á opinber-
um vettvangi.
Til fróðleiks birtist hér sam
anburður á landsleikjum síð-
ustu ára, en að öðru leyti eru
knattspymuunnendur hvattir
til að kynna sér greinina í
íþróttablaðinu:
Fyrra tímabilið
1964
ísland — Skotland 0:1
ísland — Bermuda 4:3
íslands — Finnland 1:2
1965
fsland —Danmörk 1:3
ísland —írland 0:0
1966
fsland —Wales 3:3
ísland — Frakkland 0:2
1967
ísland — Spánn 1:1
Spánn — ísland 5:3
fsland — England 0:3
Danmörk — Island 14:2
1968
fsland — V-Þýzkaland 1:3
ísland — Noregur 0:4
Samtals 13, landsleikir og 5 st.
Síðara tímabilið
1969
fsland — Bermuda 2:1
Noregur — ísland 2:1
Finnland — ísland , 3:1
Frakkland —_ ísland 3:2
Bermuda — ísland 3:2
1970
England — ísland 1:0
ísland — England 1:1
ísland — Frakkland 0:1
ísland — Danmörk 0:0
ísland — Noregur 2:0
1971
fsland — Frakkland 0:0
Noregur — ísland 3:1
Frakkland — ísland 1:0
Samtals 13 landsleikir og 5 st.
íþróttaviðburðir
helgarinnar
Íþróttasíða Tímans hefur tek
ið upp þann ágæta sið að birta
í laugardagsblöðunum skrá yfir
helztu íþróttaviðburði helgar-
innar. Geta íþróttaunenndur
þannig séð — i örstuttu máli —
hvað um er að vera í íþrótta-
heiminum hverju sinni.
Eftir skránni, sem birtist í
gær, má sjá, að mikið er um
að vera í íþróttaheiminum ura
þessar mundir .Meistaramót fs
lands í frjálsum íþróttum hófst
í gær og verður haldið áfram
á Laugardalsvellinum í dag
kl. 14,00. Þá er knattspyrnan
í fullum gangi — og síðar í
dag kl. 17,30 fer fram leikur
í 1. deild milli Fram og Akur-
eyringa. Bíða margir spenntir
eftir þeim leik, því að Akur-
eyringar komu mjög á óvart
í leiknum gegn Val á dögun-
um. Og nú er spumingin, tekst
Akureyringum að leika sama
leikinn gegn Fram? — alf.
ilmsterkt og bragdgott
Fundin hefur verið upp ný og fullkomn-
ari aðferð við framleiðsluna á Nescafé
sem gerir kaffið enn bragðbetra og
hreinna en áður hefur þekkzt. Ilmur og
keimur þeirra úrvaisbauna sem not-
aðar eru í Nescafé er nú geymdur f
kaffibrúnum kornum sem leysast upp
á stundinni f „ektafínt kaffi“ eins og
þeir segja sem reynt hafa. Kaupið glas
af nýja Neskaffinu strax f dag.
Nescafé Luxus — stórkornótta kaffið
í glösunum með gyllta lokinu verSur
auðvitaS til áfram, því þeir sem hafa
vanizt því geta aS sjálfsögSu ekki hætt.
I. BRYNIOLFSSON 8 KVflRflN
Hafnarstræti 9
Nýtt... ,
og enn betm