Tíminn - 25.07.1971, Qupperneq 3

Tíminn - 25.07.1971, Qupperneq 3
jWJNNUDAGUR 25. júlí 1971 TÍMINN 3 Táknmálið — Alheimskirkj a Það má heita merkilegt, að á slíkri öld, sem okkar 20. öld er, skuli sú hugmynd eða hug- sjón stöðugt sækja á, að eining skuli ríkja í stað þeirrar sundr- ungar, sem kirkjan hefur um aldaraðir þjáðst af. Allar kirkjudeildir skulu þá samein- ast um það, sem öllum getur orðið til friðar, en sleppa deil- um um það, sem á milli ber. Ágreiningsatriðin hafa, þeg- ar allt kemur til alls, aldrei verið annað en smáatriði og af hinu vonda. Þetta má heita hin stóra og dýrmæta uppgötvun 20. aldar- innar í kirkjunnar málum, bor- in fram af flestum hennar stserstu og mestu mönnum. oegar prelátarnir, fulltrú- í>r binna ýmsu kirkjudeilda á mótinu í Nyborg í vor voru spurðir: Hvað er aðalhlutverk kirkj- unnar nú á dögum? Voru svör þeirra nokkurra á þessa leið: Hans Martensen, biskup katólskra í Danmörku sagði: Merkasta viðfangsefni kirkj- unnar er að boða guð í ver- öld, þar sem hann virðist svo fjarlægur flestum. Æskulýðsleiðtogi frá Lút hersku kirkjunni í Saxlandi sagði: Aðalhlutverk kirkjunnar er að sanna, hvilíka þýðingu Krist ur, líf hans og kenning hefur fyrir heiminn Otr allt samfélag manna. Merkast í þessu finnst mér, að hér er haldið fram jafnrétti allra af hvaða þjóð eða kyn- flokki sem þeir eru, eining og bræðralag allra. RVAMON Thaibo, biskup spönsku mótmælendakirkjunn- ar, sem nemur 1200.000 af hin- um 32 milljónum Spánar, sagði: Aðalverkcfni allra kirkna er að lofa guð með þjónustu við manninn — mannkynið. Jenny Sutton, fulltrúi Meþodista frá Belfast á írlandi segir: Kirkjan leggur of mikla áherzlu á sína sérstöðu, horfir of mikið og lítur of stórt á sig. Nú á dögum er kirkjan hvorki meira né minna en merkileg samfélagsleg stofnun og vald hennar yfir sálum og hugsun fólks er mjög takmark- að. En samt má hún ekki gefast upp við að laga uppbyggingu og máttarviði samfélagsins. Kirkjan þarf fyrst og fremst að snúa sér að mannverunni eins og hún er, þörfum henn- ar, gleði og böli, þrám henn- ar og hörmum. Þess vegna verður að leggja langt um meiri áherzlu á vissa lærdóma en nú er gert ' t.d. fyrirgefningu og umburð- arlyndi, allt sem brýtur niður þá múra, sem aðskilja og sundi'fl. Ný von er að mynd- ast, vtinin um að takast megi að skapa nýjan heim. Það er aðalvórkefni kirkjunnar. Af hverju hefur veröldin ekki aðeins eina kirkju — og allar þessar stríðandi kirkju- deildir? Hans Martensen bisk- up svarar: „Sættir og málamiðlun taka langan tíma. En allt bendir til, að nú sé stefnt að því að má út forna fordóma, sem hafa orð- ið til af litlu tilefni fyrir mörg- um öldum. Deilur geta mynd- azt á einu andartaki, en sættir taka marga áratugi". Karl Brause frá Saxlandi sagði: „Við kirkjunnar menn höf um því miður oftast hugsað meira um smámuni en ein- ingu, oft lagt mesta áherzlu á það sem sundrar, en gleymt því sem sameinar, veitir frelsi og heillir. Tökum sem dæmi all ar deilurnar um altarissakra- mentið og misjafnlega túlkun þess. Guðfræðilegar deilur hafa þar oft eyðilagt það, sem átti að geta sameinað alla“. Raimon Thaibo sagði: Þótt guðsþjónustuform og kirkjusiðir séu á ýmsa vegu, þarf það engu að spilla til ein- ingar. Einnig í fjölbreytni er takmarkið. Það er líka fleira sem sameinar en flesta grun- ar að óathuguðu máli. Bændur - Kaupfélög - Verzlanir Hjá okkur fáið þér allar stærðir af pokum, frá brjóstsykurspokum uppí ullarballa, mjölpoka, sand- poka, hausapoka, steypupoka, rófu- og kálpoka o.m.fl. Net kartöflupokar 10, 25 og 50 kg. Hey- yfirbreiðsluefni 2ja m. breitt, yfirbreiðslur allar stærðir, sólskýli, töskupokar, ferðapokar, smíða- svuntur og verkfærapokar í bíla. Ennfremur fyrir verzlanir allar stærðir af plastpokum og litlar pakkningar fyrir neytendasölu. POKAGERÐIN, HveragerSi, sími 94-4287. Jenny Sutton hefur hér síð- asta orðið af þessum virðulegu fulltrúum Nýborgarmótsins: „Ég held, að öll þessi skipt- ing í kirkjudeildir byggist meira og minna á sögulegum misskilningi, sem hefur þróazt í f jarstæður og fordóma. Kirkjan hlýtur að nálgast þá stund, að hún sjái, að allt eru smámunir hjá þvi að geta unn- ið saman í elsku til guðs og manna“. Það væri óskandi, að þessir fulltrúar, orð þeirra, óskir og vinir séu raunverulegt berg- mál af hugsun hinna ýmsu kirkjudeilda. Nógu lengi hefur andi sundr- ungar og fordóma farið frost- stoirnum haturs og heimsku yfir gróandi lönd, þar sem heilagur andi Krists og kær- leika hans skyldi vekja hvert fræ til vaxtar. Árelíus Nielsson. TILBOÐ Tilboð óskast í 2 bogaskemmur, 10,0 m. x 26,0 m. að stærð hvor. Skemmurnar eru niðurteknar og eru til sýnis á lóð við Kleppsveg, austan við hús Eggerts Kristjánssonar h.f. Tilboð óskast í skemmurnar í núverandi ástandi. Heimilt er að bjóða í hvora am sig eða báðar saman. 1 Nánari upplýsingar eru veittar í skrifstofu vorri. Tilboð merkt: „Bogaskemmur — 1192“, verða opnuð á sama stað föstudaginn 30. júlí n. k. kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 "■r s griöriö þið sxovel. Síinimi er C90>mOO Verksmiðjuafgreiðsla K E A annast heildsöluafgreiðslu á vörum frá framleiðsludeild- um félagsins. Með einu sím- tali getið þér pantað allt það, sem þér éskið, af fjöl- breytilegri framleiðsluþeirra, landsþekktar úrvalsvörur, — allt á einum stað: Málningarvörur og hreinlæt- isvörur frá Sjöfn, kjöt- og niðursuðuvörur frá Kjötiðn- aðarstöð KEA og hangikjöt frá Reykhúsi KEA. Gula- bandið og Flóru-smjörlíki, Braga-kaffi og Santos-kaffi, Flóru-sultur og safar, brauð- vörur frá Brauðgerð KEA, ostar og smjör frá Mjólkur- samlagi KEA, allt eru þetta þjóðkunnar og mjög eftir- sóttar vörur, öruggar sölu- vörur, marg-auglýstar í út- varpi, sjónvarpi og blöðum. Innkaupastjórar. Eitt símtal. Fljót og örugg afgreiðsla. Kynnið yður kjörin og reyn- ið viðskiptin. Síminn er (96) 21400. SMJORLIKIS GERÐ VERKSMIÐJUAFGREIÐSLA K-E-A AKUREYRI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.