Tíminn - 25.07.1971, Side 12

Tíminn - 25.07.1971, Side 12
12 TIMINN SUNNUDAGUR 25. júlí 1971 ferdaskrií stoía bankastræti 7 travel símar 16400 12070 VERÐ FRA KR. 9.950,- Beint þotuflug — 8 dagar, gisting og 2 máltíSir á dag. Brottfarárdagar: ágúst — 18. ágúst — 31. ágúst 7. september FYLKING Vallarsveifgras. FRÆ f GRASBLETTI GOLFVELLI OG ÍÞRÖTTAVELLI Eigum á larger smásendingu af hinU nýja afbrigði FYLKING sem ber af með vöxt. FYLKING er harðgert, myndar þétta, sterka grasrót. Mjög áferðarfallegt og fellur seint. Lágvaxið og bezt að nota einlómt eða aðeins með öðrum lágvöxn- um tegundum, sláist snöggt. Sáðmagn í velli: 50—60 kg. ha. Blettir við hús 1—3 kg. í 100 fermetra. MJÓLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR Símar: 11125 11130 FISCHER - LARSEN Með þessum ótrúlega árangri hefur Fiseher en einu sinni sýnt fram á, að ekkert er ómögulegt, þegar hann er annars vegar, og nú bíður hann fullur óþreyju eft- ir að komast í tæri við næsta and- stæðing sinn, sem væntanlega verður Petrosjan. Þau stórmerki- legu tíðindi hafa sem sé borizt frá Moskvu, að Petrosjan hafi tekizt að leiða 9. skákina til sigurs eftir 8 jafntefli í röð og nægir honum nú jafntefli í 10. skákinni til að ganga með sigur af hólmi í viður- /eigninni við Korchnoj. Takist hon- um þetta mun lokaorustan í Áskor endamótinu standa milli hans og Fischers og verður fróðlegt að sjá, hvor má sín betur í þessari viður- eign, „vinningsvélin" eða „jafn- teflisvélin“. Frændi vor Bent Larsen, er dapur í bragði þessa dagana, eins og vonlegt er, og íhugar nú þann möguleika að senda alþjóðaskák- sambandinu kæru vegna óviðun- andi keppnisskilyrða í Denver. í viðtali, sem danska blaðið BT hafði við Larsen 17. þ.m., en þá stóðu leikar 4—0, hefur Larsen m.a. þetta að segja: L.: — Það cr fáránlegt að láta eirtvígið fara fram að sumri til og enn fáránlegra að vejja því staði í Denver. Alþjóðaskáksambandið hefði átt að gera sér grein fyrir þvi, að hér- mundi verða alltof heitt. Ég hefi í hyggju að senda því kæru vegna keppnisskilyrð- anna, sem eru fyrir neðan allar hellur. Sp.: — Hafið þér möguleika á að sigra Fischer? L.: — Það er ósennilegt. Þá yrði hann líka að veikjast. Sp.: — Er það eingöngu lofts- laginu að kenna, að staðan í ein- víginu er nú 4—0? L.: — Eingöngu! Ég get ekld einbeitt mér. Fiseher er vanur hitanum. Við skulum nú líta á 6. skákina í einvíginu, sem jafnframt varð sú síðasta. Larsen teflir að sjálf- sögðu stíft til vinnings og fórnar tveimur peðum í þágu sóknarinn- ar. Honum tekst að opna nokkuð kóngsstöðu Fischer, án þess þó að Fischer stafi ver.uleg hætta af. Á einum stáð á Larsen kost á jafn tefli með þráskák, en hann kýs að tefla til þrautar, eins og vonlegt er. Allar atlögur Larsens að svarta kóngnum stranda hins vegar á skeleggri vörn Fischers og liðs- yfirburðir hins síðarnefnda fara brátt að láta að sér kveða. Fischer nær drottningarkaupum og eftir það eru úrslit skákarinn- ar ráðin. 6. SKÁKIN Hv.: Bent Lai-sen. Sv.: Robert Fischer. Birds-byrjun 1. f4 (Byrjun Birds. Larsen hefur frá upphafi haft mikið dálæti á þess- ari byrjun, en sjaldan beitt henni síðari árin.) 1. —, c5 2. Rf3, g6 3. e4, Bg7 (Nú er komin fram staða, sem líkist einna mest einu afbrigði Sikileyjarvarnarinnar.) 4. Be2, Rc6 5. 0—0, d6 6. d3, e6 (Traustara áframliald en 6. —, Rf6.) 7. Ra3, Rge7 8. c3, 0—0 9. Be3, a6 (Fischer hefur góðan skilning á eðli stöðunnar og undirbýr atlögu á drottningarvængnum. Hann hræðist ekki framrás hvítu peð- anna á miðborðinu.) 10. d4, cxd4 11. Rxd4 (Larsen ákveður að halda d-lín- unni opinni og beina skeytum sín- um að svarta peðinu á d6. 11. cxd4 væri svarað með —, b5 og hv. hefur engin tök á að færa sér sterka miðborðsstöðu sína í nyt.) 11. —, b5 12. Rxc6 Rxc6 13. Dd2, Dc7 (Fischer á ekki í neinum erfið- leikum með að valda peðið á d6. Hins vegar gæti hvíta peðið á e4 fljótlega orðið skotspónn svörtu mannanna.) 14. Hadl, Hd8 15. Rc2, IIb8 (Framrás svarta b-peðsins gæti komið til álita við tækifæri.) 16. a3 (16. Rd4 virðist eðlilegri leikur.) 16. —, Ra5 (Með þessum leik gefur Fiseher andstæðingi sínum til kynna að hann hyggist taka frumkvæðið í sínar hendur. Larsen sér, að hann verður að grípa til róttækra ráð- stafana.) 17. e5, Bf8 18. b4, Rc6 (Hæpið er 18. —, Rc4 19. Bxc4 vegna 20. Bd4 og hótunin Rc2 — e3 — g4 er óþægileg.) 19. Rd4 (Fórnar peði í þágu sóknarinnar. Gætnari skákmenn hcfðu leikið 19. exd6, Bxd6 20. Rd4.) 19. —, dxe5 (Fischer þykir bersýnilega lítið til peðsfórnarinnar koma og þiggur hana með þökkum.) 20. fxe5, Rxe5 21. Bg5, Hd5 (Ekki 21. —, Be7 22. BxeV, Dxe7 23. Rf5!) 22. Df4, Hb7 (22. —, Dxc3 gengur ekki í þessari stöðu vegna 23. Bf3! og sv. beygður.) 23. h4, Bg7 24. Bf6, Bxf6 25. Dxf6, Dxc3 (Nú fyrst var öruggt að taka peð- ið að áliti Fischers.) 26. h5, gxlið (Ekki er ráðlegt að leyfa peðinu að komast til h6.) 27. Khl, (Sv. hótaði 27. —, De3ý ásamt 28. —, Hxd4.) 27. —, Rg4 (Hv. hótaði m.a. 28. Hcl.) 28. Bxg4, hxg4 29. Hli6 (Ekki 29. Hel vegna —, Hh5ý 30. Kgl, De3ý og sv. vinnur.) 29. —, Bd7 30. Hf4 (Hér hefði nægt til jafnteflis: 30. Hxf7, Kxf7 31. Dxh7ý o.s.frv. En Larsen vill meira.) 30. —, f5 31. Df6 (31. Dg5ý, Kf7 32. Hxg4, fxg4 33. Hflý leiðir ekki til neins vegna —, Hf5.) 31. —, Bc8 32. H4fl, Hf7 33. Dh6, Bb7! 34. Rxe6, Df6 (Þar með er sókn hvíts brotin á bak aftur.) 35. De3, He7 36. Hdel, Hd6 37. Dg5t (Það hlýtur að hafa verið ömur- legt fyrir Larsen að þurfa að leika þessum leik.) 37. —, DxD 38. Ihsíi, IIxH 39. IIxH, Bd5 40. Hc8t, Kg7. Larsen gefst upp. F.Ó. Leiðrétting: í síðasta þætti brenglaðist 29. leikurinn í 5. skákinni, en hann á að vera sem hér segir: 29. Bc3, h5. Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag Nivada OMEGA ©|—Hii JUpjlUL PIERPOm lUVIiagnús E. Baldvinsson Laugavcgi 12 - Símf 22804 FERÐAFÓLK ís — Ö1 — Sælgæti — Heitar pylsur — Benzín og olíur. — Verið velkomin. — Verzlunin Brú, HrútafirSi. *

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.