Tíminn - 25.08.1971, Side 1

Tíminn - 25.08.1971, Side 1
190. tbl. — Miðvikudagur 25. ágúst 1971 — 55. fig.! * * * * * * * * # * * * * * # SAMVINNUBANK4NN .i SAMVINNUBANKINN ÁVAXTA” <5PARIFÉ VBAR HÆSTU VÖXTUM Slökkviliðsmenn úr Kefiavík ráðast tíl atiögu við eldinn um borð i Jóni Oddssyni í Keflavíkurhöfn í gærkvöldi, (Tímamynd OE) Humarbáturina dreginn logandi Jón öddsson tii Kefíavíkur SB—Reykjavík, þriðjudag. Eldur kom upp í vélarrúmi vélbátsins Jóns Oddssonar GK 14 frá Sandgerði um hádegið í dag, en þá var báturinn stadd ur um 10 mflur vestur af Eld- ey. Magnaðist eldurinn fljótt og fengu skipverjar ekki við neitt ráðið. Fóru þeir í björg- unarbáta og voru síðan tekn- ir um borð í Útey KE 116. Vélskipið Helga Björg frá Skagaströnd kom einnig á stað inn og tók hún Jón Oddsson í tog og hélt með hann brenn- andi til Iands. Björgunarsveit Slysavarnaféiagsins í Sand- gerði kom á móti bátunum með dælu, en fékk ekki ráðið við eldinn. Bátarnir komu til Keflavíkur um kvöldmatarleyt ið og tók þá slökkviliðið þar við. Jón Oddsson mun hafa skemmzt allmikið, en engan af áhöfninni mun hafa sakað. Jón Oddsson var á humar- veiðum vestur af Eldey í sæmi- legu veðri, eða því, sem á sjó- mannamáli kallast „kaldaskít- ur“, þegar eldurinn kom upp í vélarrúminu. Skipverjar reyndu lengi vel að slökkva eldinn, en þegar þeir sáu að ekki varð við ráðið, lokuðu þeir vand- lega öllum gáttum og sendu út neyðarkall. Eitthvað var þó farið að huga að eldinum aft- ur, með þeim afleiðingum, að hann blossaði upp og sáu skip- verjar þá ekki annað ráð vænna, en að fara í bátana. Þeir voru svp að segja strax teknir um borð í Útey KE 116. Helga Björg frá Skagaströnd kom einnig þarna að um það bil klukkustund eftir i.ð eldur- inn kom upp. Tók Helga Björg Jón Oddsson í tog og hélt með hann áleiðis til lands. Björgunarsveit Slysavarna- félagsins í Sandgerði var köll- uð út um tvöleytið, og fóru sveitarmenn út á Snarfara og tóku með sér mikla slökkvi- dælu. Mætti Snarfari bátunum um hálffjögurleytið, og var þá ausandi rigning og svo slæmt skyggni, að þeir sáust ekki fyrr en um 10 minútna Framhald á bls. 3 Engin ókvörðun enn um hvort Alþingi verður kvatt saman áður en landhelgissamningunum verður sagt upp KJ—Reykjavík, þriðjudag. — Það er í athugun, hvort Alþingi verður kvatt saman áð- ur en landhelgissamningunum verður sagt upp, sagði forsæt,- isráðherra Ólafur Jóhannesson í útvrpinu í kvöld. — Það hefur ekki verið tekin formleg ákvörðun um þetta, en verður gert fyrir 1. september, sagði forsætisráðherra enn- fremur. — Það er vafalaust, að ríkisstjórnin hefur lagalega heimild til að segja upp þess- um samningum, án atbeina Al- þingis, en hitt er svo annaö mál, hvað eru talin heppileg vinnubrögð. í útvarpsviðtalinu sagði for- sætisráðherra, að ekki hefði verið tekin formleg afstaða til þess, hvort landhelgissamning- unum verður sagt upp fyrir 1. september eða ekki. Varðandi það, hvoft ísland beitti sér fyrir nánari sam- vinnu við aðrar þjóðir, sem áhuga hafa á landhelgismál- inu, sagði forsætisráðherra, að það væri stefna ríkisstjórnar- innar, og sérstaklega tekið fram í tillögu til þingsálykt- hinar, sem stjórnarandstæðing- ar á sínum tíma, eða núver- andi stjórnarflokkar, fluttu í vetur. - Þar var sagt m.a., sagði forsætisráðh. — Þá felur Al- þingi ríkisstjórninni að hafa á alþjóðlegum vcttvangi sem nán ast samstarf við þær þjóðir sem lengst vilja ganga, og miða vilja mörk fiskveiðilandhelg- innar við landfræðilegar, jarð fræðilegar, líffræðilegar, félags legar og efnahagslegaf aðstæð- ur og þarfir íbúa viðkomandi strandríkis. Það er því ekk- ert nýtt, að haft sé samstarf við þessar þjóðir. a Hundabannið: : BLAÐASKRIF j OG MÚTMÆLJ ; ERLENDIS FRÁ ■ EJ—Reykjavík, þriðjudag. ® Sú ákvörðun borgarstjórnar ■ Reykjavíkur, að skylda hundaeig- a endur til að losa sig við alla hunda _ sína fyrir 1. september næstkom- andi, og leyfa ekkert hundahald " í borginni eftir þann dag, hefur ■ nú vakið verulega athygli í Bret- ■ lanjdi. Eitt brezkt dagblað sendi B um helgina tvo blaðamenn hingað til lands til þess að kanna málið, og ýmis samtök úti í heimi hafa ® sent mótmæli til íslands. ■ Það var brezka sunnudagsblað- a ið The People, sem birti fyrst _ fréttina sl. sunnudag undir fyrir- sögnjnni „Borg dæmir alla hunda sína til dauða“. Þar segir, að inn- ■ an 10 daga eigi að fara fram ■ slátrun á öllum hundum í Reykja- a vík, þrátt fyrir mótmæli frá dýra- a verndarfélögum víða um heirn. Sé _ hér um ca. 2000 hunda að ræða. Rætt er um ákvörðun borgar- ■ stjórnar og segir blaðið, að sú ■ ákvörðun hafi verið býggð á ■ skýrslu heilbrigðisnefndar borgar- _ innar um að hundar væru hættu- legir fyrir heilsu manna, auk þess “ sem hundum líkaði illa borgardvöl ■ in. ■ Blaðið ræðir við dr. Jakob Jón- a asson, formann Hundavinafélags- _ ins, sem mótmælir fullyrðingum nefndarinnar í þessu máli. ® Síðan segir: „Nú háfa sérfræð- ■ ingar í dýrafræði víða um heim, ■ með Brian Singleton, fyrrum for- _ seta konunglega dýraskurðlækna- skólans í London (Royal College of Veterinary Surgeons) í broddi • fylkingar, gagnrýnt þessa skýrslu". ■ Blaðið segir að samtökin „World a Federation for the Protection of _ Animals", sem er heimssamband dýraverndunarfélaga, hafi sent " mótmæli til íslands vegna ákvörð ■ unar borgarstjórnar, og sömuleið- ■ is brezka dýraverndunarsamband- H ið RSPCA. Framhald á bls. 14. ] Kjötið j ódýrara : en í fyrra ® KJ—Reykjavík, þriðjudag. ■ Framleiðsluráð landbúnaðarins hef ■ ur tilkynnt um nýtt verð á kinda- _ kjöti af nýslátruðu, og kostar súpu- kjöt nú 167—176 krónur ldlóið, og mun það vera um fjörutíu krónum ® ódýrara en við sumarslátrun í fyrra. ■ Kjöt í 1. flokki í heilum skrokk- | um kostar 145 krónur kílóið, læri _ kosta 183 krónur kilóið og læris- sneiðar 232 krónur. Niðurgreiðslur ríkissjóðs eru um 49 krónur á hvert ■ kíló.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.