Tíminn - 25.08.1971, Blaðsíða 16

Tíminn - 25.08.1971, Blaðsíða 16
«*> 17 fÆREYINGAR I lEIKfÖR MSðvifeudagur 25. ágúst 19«í- 1447 i Vv. -*»K ' ÚR LAXÁ A ASDM EB—Reykjavík, þriðjudag. f sumar hefur verið mokveiði í Laxá á Ásum. Samkvæmt upp lýsingum Jóns fsbergs sýslum. á Blönduósi voru í dag 1447 laxar komnir á land úr ánni. 20. júní hófst veiðin í ánni. Tvær stangir eru leyfðar í henni á dag, þannig að samkvæmt upp- lýsingum Jóns er meðalveiðin rúmir 22 laxar á dag eða 11 á hvora stöng. Jón ísberg sagði Tímanum, að á sama tíma í fyrra hefðu inn- an við þúsund laxar verið komn- ir á land úr ánni, svo að hér er um mikla veiðiaukningu að ræða. Þá skýrði Jón frá því, að fyrir skömmu hefðu tveir lax- veiðimenn fengið 47 laxa á ein- um degi úr ánni. — Ég veiddi meira að segja 13 laxa í ánni í glaðasólskini um daginn, og er þó ekki talinn góður veiðimað- ur, sagði Jón ísberg. 4—7 punda laxar veiðast mest, f Laxá á Ásum, en um eða yfir 12 punda laxar hafa veiðzt í ánni f sumar. Veitt mun jöfnum hönd um á maðk og flugu í ánni. Ráðstefna um markmið og umhverfi at- vinnurekstrar FB—Reykjavík, þriðjudag. Stjórnunarfélag íslands efnir nú um helgina til ráðstefnu að Laugárvatni. Fjallar ráðstefnan um efnið Markmið og umhverfi atvinnurekstrar — samræming viðhorfa. Ráðstefnan hefst á föstudaginn, en henni lýkur á sunnudag. Tilgangur ráðstefnunnar er að fá helztu aðila atvinnurekstrar __ atvinnurekendur, launþega, Færeysku leikararnir á svióinu í ISnó í gær, þegar veriS var aS koma upp sviðsmyndinni fyrir leikritið Uppi t eini eikilund. (Tímamynd GE) BATUR SOKK UT AF REYKJANESI OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Óstöðvandi leki kom að 40 tonna báti út af Reykjanesi í gær. Sökk báturinn, en skipverjum var bjarg að í annan bát, sem var með hinn í togi í átt til Grindavíkur, er hann sökk, og var því enginn mað ur þá um borð. Báturinn sem sökk var Gylfi ÍS-303, en hann var gerður út frá Grindavík. Eigandi og skipstjóri Gylfa var Ólafur Sverrisson í Grindavík. Gylfi var 40 lestir að stærð, smíðaður úr eik 1928. Gylfi lagði af stað frá Grinda- vík síðdegis í gær, og var ferð- inni heitið til Reykjavíkur. Þeg- ar báturinn var staddur út af Reykjanesi kom að honum leki, sem skipverjar réðu ekki við að stöðva. Þá var þar staddur skammt frá Gullþór KE-85, en sá bátur er einnig gerður út frá Grindavík. Skipstjórinn á Gylfa hafði sam- band við Gullþór og bað um að- stoð. Var Gylfi tekinn í tog og stefnan tekin til Grindavíkur. En allt seig á ógæfuhliðina, og hélt lekinn áfram, og þegar sýnt var að ekki væri hættulaust að vera um borð í Gylfa, fóru skip- verjar yfir í Gullþór. Þegar búið var að draga bátinn í um hálfa klukkustund, var hann mjög sig- inn í sjó, og þegar sýnt var að ekki tækist að draga hann til hafn ar var tauginni sleppt frá Guil- þóri og skömmu síðar hvarf Gylfi í djúpið. Gulþór kom rnn. til Grindavík- ur í gærkvöldi með skipverjana af Gylfa. Ekki þótti ástæða til að senda út neyðarskeyti þótt óviðráðanlegur ÞÓ—Ncskaupstað, þriðjudag. Fyrir hádegi í dag vildi það slys til um borð í skuttogaranum Barða, að þegar verið var að taka inn trollið, hlaut einn skipverja mikinn höfuðáverka. Pilturinn, sem er 18 ára, var að taka togvírinn upp úr togblökk, sem er aftast á skipinu, þá stríkk- aði allt í einu á vírnum, þannig að hann sló piltinn í bringuna leki væri kóminn að bátnum, þar sem Gullþór var nærri og kom strax til aðstoðar, þegar beðið var um hjálp. Hins vegar barst til lands neyðarkall frá brezkum tog- ara, sem var nærri þegar bátur- inn sökk. Héldu Bretarnir að árekstur hefði orðið milli Gylfa og Gullþórs, en þeir höfðu ckki orðið varir við að annar bátur- inn var í togi. En hið sanna kom fljótlega í ljós, og var því eng- inn björgunarleiðangur gerður út. með þeim afleiðingum, að pilt- urinn kastaðist niður í borðstokks rennuna. Við það hlaut hann mikinn höfuðáverka. Barði hélt rakleitt til Neskaup- staðar og kom hann þangað um fimmleytið í dag. Þar beið sjúkra- flugvél eftir slasaða piltinum og flutti hún hann á sjúkrahús í Reykjavík. Líklegt er talið að pilt urinn sé höfuðkúpubrotinn. 18 ÁRA PILTUR SLASAST UM BORÐ í BARÐA FB—Reykjavík, þriðjudag. Havnar Sjónleikarafélagfð er komið til Reykjavikur í leikfor, og verða hér þrjár leiksýningar á þess vegum. Flutt verður leik- ritið Uppi í eini eikilund eftir Jens Paula Heinesen. Er þetta leikur í þrem þáttum, sem gerist í borg, sem gæti verið hvar sem er í heiminum, og lýsir fólki sem lifir innilokuðu lífi, og viðbrögðum þess undir slíkum kringumstæð- um. Leikstjóri er Kristin Daniel- sen, og er þetta frumraun henn- ar sem leikstjóra. Uppi í eini eikilund var frum- sýnt í Þórshöfn í marz í vetur, og voru þar tuttugu og fimm sýningar á leiknum. Havnar Sjónleikarafé- lagið sýnir venjulega 3 til 5 leik- rit á hverju ári, og fer það í leik ferðir um Færeyjar. Þetta leikrit, sem hér verður sýnt, hefur m.a. verið sýnt á nokkrum stöðum utan Færeyja. Hins vegar hefur félagið ekki áður farið í leikför til annarra landa. í leikförinni hingað eru sautján manns, en í leiknum sjálfum koma fram níu leikarar._ Fararstjóri er Knút Wang ritstjóri og þingmaður, en hann er einnig meðal þeirra níu, sem í leiknum leika, auk þess, sem hann er formaður leik- félagsins. Sveinn Einarsson leikhússtjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur, en það tekur á móti liinum fær- eysku gestum, sagði það vera mik- ið gleðiefni að fá þá hingað í heimsókn, og hefði verið vonazt eftir færeyskum leikflokki hingað í heimsókn allt frá því Leikfélagið fór til Færcyja með Hart í bak. Loks nú gat orðið af þessari heim- sókn, og fékk leikfélagið styrk frá Norræna menningarsjóðnum til þess að taka á móti Færeying- unum. Jens Paula Heinesen er ungur maður, sem til þessa hefur verið bezt þekktur fyrir ljóð sín, og einnig hefur hann gefið út smá- sögur. Þetta er fyrsta leikrit hans. Nafnið á leikritinu Uppi í eim eikilund er úr færeyskri bama- þulu. Færeyingar voru að koma ieik- tjöldum sínum fyrir á sviðinu í Iðnó í dag. ÍUcnzku leikaramir, sem voru þeim til aðstoðar, og höfðu séð leikritið, sögðu það sér lega spennandi og skemmtilegt, en gátu þess í leiðinni, að enn einu sinni hefði komið í ljós, hversu nauðsynlegt væri, að Leik- félagið eignaðist nýtt og fullkom- ið leikhús. í leiknum er ætlazt til þess að fólk brjóti sér leið niður um gólf, en ekkert gat er á gólfinu á leiksviðinu í Iðnó, sem er vcnja í öllum „fullkomn- um“ leikhúsum. Verður þvi að Framhaló á bls. 14 sveitarfélög og fulltrúa rikis- valdsins til að kynna og setja fram markmið sín og síðar í framhaldi af því að draga upp nokkra mynd af því, hvaða áhrif hver þessara aðila hefur á aðbúnað atvinnurekstrarins og það félagslega og rekstrarlega umhverfi, sem hann starfar' í. Forsætisráðherra, Ólafur Jó- 24 metra net fannst við árós Krossár í Dölum hannesson, hefur orðið við til- mælum félagsins um að kynna viðhorf ríkisstjórnarinnar á þess ari ráðstefnu. Þá hafa stjórnir Alþýðusambands íslands, Banda lags starfsmanna ríkis og bæjá, Vinnuveitendasambands íslands og Sambands ísl. sveitarfélaga fallizt á að tilnefna ræðumenn, er túlki viðhorf þeirra til við- fangsefna ráðstefnunnar. Ráðstefna þessi er, sem fyrri ráðstefnur Stjórnunarfélagsins, eingöngu opin íélagsmönnum og bátttökufjöldinn er takmarkað- ur. EB—Reykjavík, þriðjudag. Það mun örugglega vera sam- dóma álit þeirra manna, sem áhuga liafa á fiskirækt hér á landi, að um gróft lögbrot sé að ræða, þegar girt er mcð neti fyrir á, sem í mörg ár hefur verið reynt að rækta upp sem laxvciðiá, og er leigð út til stangaveiði. Þess vegna munu eflaust allir vera sammála um að taka cigi hart á slíkum veiðiþjófnaði. Þegar Hreiðar ögmundsson úr Reykjavík átti leið bjá Krossá í Dölum, laugardaginn 14. þ.m., kom hann að neti sem var girt þvert yfir álinn i ánni. — Að sögn Ingva Ólafssonar, sýslumanns Dalasýslu, var netið 24 metra langt. Málið er enn í rannsókn hjá sýslumannsembætt- inu. Veiðiþjófurinn er líklega fundinn. Hreiðar Ögmundsson, er kærði veiðiþjófnaðinn, sagði Tímanum í gær, að ljóst væri að netið hafi verið búið >ð liggja þarna nokkuð lcrgi, þar cð nokkuð slý var í því. Ingvi Ólafsson, sýslumaður í Búðardal, sagði að málið væri í rannsókn, og auglýsti veiðþjófur- inn væri líklega fundinn, en ítrek aði að málið væri enn í rannsókn, og þess vegna væri að sjálfsögðu ekki hægt að gefa það upp, hver veiðiþjófurinn væri. Veiðifélagið „Gári“ hefur Krossá á lcigu og síðustu 7—8 árin hef- ur félagið verið að reyna að rækta ána upp. Fyrstu árin slepptu þeir 500 seiðum árlega í ána, en nú síðustu árin hafa þeir sleppt 1000 seiðum árlcga í hana. Árangurinn af þessari fiskirækt hefur elcki komið í ljós og mun ánni fremur hafa farið hrakandi, enda engin furða, ef það hefur verið stundað í mörg ár af veiði- þjófum, að girða net þvert yfir álinn. Það var því engin furða þótt Gunnar Jónsson í Reykjavík, einn af aðstandendum „Gára“, væri harðorður í garð veiðiþjófs- ins, ’pegar Tíminn átti stutt við- tal við hann í gær, en Gunnar var einmitt við stangaveiði ofar í ánni, þegar kunningi hans, Hreið ar, kom að netinu. Lögum samkvæmt eru sektir fvrir veiðiþjófnað allt að hálfri milljón kr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.