Tíminn - 28.10.1971, Side 10

Tíminn - 28.10.1971, Side 10
10 TIMINN FIMMTUDAGUR 28. október 1071 HALL CAINE: GLATAÐI SONURINN 106 einmitt sú imannger'ö, sem ki>'kj- ur allra landa laða til sín. Ríki kirkjunnar er ríki hinna undirok- uðu og sorgmaeddu. Konan gerði krossmark, og Óskar hugsaði með sér, þessi kona cr móðir. Þegar hún hóf augu sín og horfði á Guðsmóður, mildaðist sorgarsvip tirinn á ásjónu hennar, hún brosti, eins og engill hefði komið og hvíslað huggunarorðum í eyra hennar. Svo hljómaði hin fagra tón list um alla kirkjuna, Óskar fékk kökk í hálsinn, honum varð hugs- að til móður sinnar, hann hugsaði sem svo, að ef hún héldi hann dáinn, þá mundi engill dauðans hugga hana, hún mundi þá fyrir- gefa honum ávirðingar hans og duft dauðans mundi hylja mis- gjörðir hans, hún mundi verða sælli, en ef hún vissi hann á lífi, hann einn bæri þá kvölina. Ósk- ar hugsaði líka til Magnúsar, hat- ur hans mundi hverfa, þegar hann frétti um dauða bróður síns. Óvin- ir hans heima mundu líka hætta að ámæla honum, hann mundi losna við óvild þeirra og fyrir- litningu og hverfa inn í þögnina og gleymskuna. Að síðustu hugsaði hann til indælu litlu stúlkunnar sinnar móðurlausu, aldrei framár mundi hún heyra föður sínum hallmælt, hún rnundi hugsa til hans sem manns, er hafði dáið ungur. Já, dauðinn var miskunnsam ur, þeir sem hötuðu, hötuðu hina látnu minna og hinir elskuðu þá heitar. Að vísu var erfitt að hugga sig við þá hugsun, að hann væri dauöur og hefði dáið við skömm á erlendri grund, þar sem engin móðurtár féllu á ásjónu hans og engin dóttir grét hann, slíkt var þó hin eina raunalega huggun hinna dánu. í sömu andrá hljóðn- aði tónlistin og bjöllu var hringt við altarið. Óskar leit upp og sá prestinn hefja upp hendur sínar og blessa söfnuðinn, helgi staðar- ins gagntók hann, hann huggaðist og honum fannst hann ekki vera dáinn heldur synd hans og kvöl, nú gæti hann ef hánn vildi risið á fætur og gengið út úr skugga dauðans og inn í annan og betri heim. Áður en hann vissi, var þessi hugsun orðin a'ð bæn, hann bað Guð að leyfa sér að hefja nýtt, líf og hverfa frá fortíðinni, að hann mætti hugsa sér hina glöt- uðu daga sem sáðkorn. sem ekki væri dautt, heldur lægi í jörðinni. Sú eina hljómlist, sem kom frá hjartanu, náði að snerta hjörtu annarra. Upp úr smán sinni og kvöl ætlaði hann að laða fram þá tóna. sem veitti öðrum syndugum mönnum huggun. En hver var hann að leyfa sér slíkt? Glataður ma'ður í ókunnu landi, sem hafði eitt efnum sínum í svall og óheið- arlegt líferni og sneri sér nú loks til föður síns á himnum, þegar engin lifandi sála á jörðinni vildi framar líta við ronum. Nú seint og um síöir hrópaði hann, „Faðir, ég hef syndgað gegn þér og er ekki lengur verður þess að heita sonur þinn“. Guðsþjónustunni var lokið, fólk- ið reis á fætur og gekk út. Um leið og Óskar fylgdi dæmi þess, ákvað hann. að einhvern tíma ætl- aði hann heim, að vísu var ves- lings faðir hans horfinn, en móð- ir hans var þó enn á lífi, hann ætlaði að bæta henni allar þraut- irnar, sem hún hafði þolað hans vegna, hann ætlaði að þerra tár hennar. hann mundi líka finna dóttur sina og krefjast réttar síns til hennar, eins og hann hafði ávallt ætlað sér að gera. Þó að hún þekkti hann ekki. mundu blóðböndin seg.ja til sín, hún mundi laðast að honum og hann mundi vernda hana, hún yrði hon um sönn dóttir, sem mundi elska hann og bæta honum allar hörm- ungar. Hann varð aðeins að þreyja enn um hríð. Þegar hann var kominn út úr kirkjunni. fannst honum hann kominn í hærra og hreinna veldi, hann var ekki lengur flóttama'ður, hann hafði öðiazt fyrirgefningu og end- urlausn. Þegar hann var setztur inn i lestina til Calais, fór hann að íhuga, hvaða nafn hann ætti að taka sér, það varð að vera ólíkt hans eigin nafni en þó alíslenzkt. I-iann ákvað aö nefna sig Kristj- án Kristjánsson, þýðing þess var göfug og ætti því að vernda hann frá að lækka seglin. Honum þótti sárt að afmá hið rétt nafn sitt, sérstaklega fö'ðurnafnið, sem föð- ur hans hafði dreymt um, að hann hefði til frægðar og frama, móðir hans hafi ætíð kallað hann Ósk- ar, enn kvað við í eyrum hans hljómurinn í rödd hennar og end- urvakti hamingjusamar bernsku- minningar. Honum fannst hann líka heyra skjálfandi og sæla rödd Þóru í brúðarsænginni og í móðurgleðinni og ekki sízt í biðjandi örvæntingu. Honum fannst hann vera að jarðset.ja hluta af sjálfum sér, en Óskar Stefánsson var dáinn, hann átti það nafn ekki lengur. Snemma næsta morgun kom hann til Lundúna, það voru sex mánuðir, síðan hann fór þaðan, honum fannst hann hafa verið dauður, en væri nú aftur lifandi. Um leið og hann heyrði bergmál- ið af fótataki sínu á mannlausum götunum, létti honum í skapi, hann óttaðist framtíðina ekki lengur. þó hann væri bæ'ði vina- laus og næstum félaus, þá sá hann sig í anda, eins og hann ætl- aði að verða sem tónskáldið' Kristj án Kristjánsson, ríkur og virtur og ef til vill elskaður. Það gat orð- ið langt þangað til þessi von rætt- ist, en ef Guð væri með honum, þá mundi hún rætast. í fyrstu datt honum í hug að er fimmtudagurinn 28. okt. — Tveggjapostulamessa Árdegisháflæði í Rvík kl. 00.43. Tungl í hásuðri kl. 20.50. HEILSUGÆZLA Slvsavartlstofan < Borgarsnttalan am et opln allan sótarhrlneii'n Simi 81212 Slökkviliðifl og sJhkrabifreiBir fvr li Revkjavík oc Kópavoc simi 11100 Sjúkrahifreið i Hafnarfirði simi arstig 27 frá kl. 9—11 f.h. Sími 11360 og 11680. Um vitjanabeiðnir vísast til helgidagavaktar. Sírni 21230. Ónæmisaðgerðir gegn mænusótt fyrir fullorðna fara fram í Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur á mánu- dögum frá kl. 17 — 18. Lyfjabúð Breiðholts og Apótek Austurbæjar hafa kvöldvörzlu Þessa viku. 16. til 23. október Næturvörzlu lækna í Keflavík 27. 10. annast Jón K. Jóhannsson. ORÐSENDING Basar kvenfélags Iláteigssóknar verður í Alþýðuhúsinu við Hverfis götu mánudaginn 1. nóvember kl. 2. Vel þegnar eru hvers konar gjafir til basarsins, og veita þeim móttöku Sigríður Jafetsdóttir, Mávahlí'ð 14 sími 14040, María Háifdánardóttir. Barmahlið 36 sími 16070, Vilhelmína Vilhelms- dóttir, Stigahlíð 4, sími 34114, Kristín Halldórsdóttir, Flókagötu 27. sími 23626 og Pála Kristjáns- dóttir, Nóatúni 26, sími 16952. ÆT a GSLÍF Sagnfræðingafélag íslands boðar til fundar í Menntaskólanum við Hamrahlíð í kvöld kl. 8.30. Umræðuefni: Sögukennsla á skvldu náms- og menntaskólastigi. Stjórnin. Skenuntikvöld. Kvenfélag Kópavogs og Norræna félagið halda sameiginlegt skemmtikvöld með Grænlandsvöku og félagsvist, fimmtudaginn 28. okt. kl. 8,30 e.h. í félagsheimili Kópavogs neðri sal. Kvenfélag Hreyfils. Fundur fimmtudag 28. okt. kl. 20,30 í Hreyfilshúsinu. Takið með ykkur handavinnu. Verkakvennafélagið Framsókn. Fimmtudagskvöldið 28. okt. hefst þriggja kvölda keppni í Alþýðu- húsinu við Hverfisgötu. Félagskon- ur fjölmennið og takið með ykkur gesti. Árnesingafélagið í Reykjavík. Aðalfundur í kvöld kl. 21 i Tjarn- arbúð uppi. Stjórnin. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra kvennadeild Föndurfundur verður í kvöld fimmtudag að Háaleitisbraut 13 kl. 20 30. Bazarinn verður 13. nóv. ELUGÁÆTLANIR Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug Sólfaxi fór til Kaupmannahafnar kl. 08:30 í morgun og er væntan- legur þaðan aftur til Keflavíkur kl. 16:55 í dag. Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup- mannahafnar kl. 08:30 í fyrramál- ið. Innaiilandsflug. I dag er áætlað að fljúga til Akur- evrar (2 ferðir) tii Vestmannaeyja (2 ferðir) til Hornafjai-ðar, Isa- fjarðar, og til Egilsstað'a. Á morgun er áætlað a'ð fljúga til Akureyrar (3 ferðir) til Húsavík- ur, Vestmannaeyja, Patreksfjarðar, ísafjarðar, Egilsstaða og til Sauð- árkróks. taka sér bólfestu, þar sem enginn þekkti hann, en í því upphafna ástandi, sem hann nú var, fannst honum það ekki nauðsynlegt, hann ákvað því að fala leigt í Short Street, þar sem hann hafði á'ður búið. Þegar hann kom að Westminster brúnni, nam hann sta'ðar og horfði á hina heimilis- lausu veslinga, sem enn sváfu á bekkjunum á árbakkanum, hann mundi. þegar hann hafði verið í þeirra hópi, hann hugsaði um framtíðina líka, þegar hann mundi uppskera fyrsta arðinn af því starfi, sem hann var a'ð hefja. Það var sem Óskar sæi fram- tíðina ljóslifandi, tjaldið var fall- i'ð, þa'ð var nýbúið að flytja óper- una hans, leikhúsið var troðfullt af fagnandi fólki, hva'ð eftir ann- að var söngfólkið kallað fram, svo hrópaði fólkið á tónskáldið, fagn- a'ðarlætin kvá'ðu við um allt lcik- húsið, allt frá konungsstúkunni uppi á efstu svalir, allir kröfðust þess, að hinn óþekkti höfundur sýndi sig, maðurinn, seim hafði blásið lífi í hinar fornu sögur og endurvakið dauða kappa. En hinn óþekkti mundi ekki sýna sig, hann mundi ekki vera í leikhús- inu, hvar væri hann: Einmitt hér á árbakkanum mundi hann vera grátandi af gle'ði og þakklæti, hann mundi tæma vasa sína í hendur hinna heimilislausu ves- linga og minnast þess, þegar hann var í þeirra sporum, þá ætlaði hann að heita því, a'ð aldrei skildi hann gleyma hinum bágstöddu né dæma þá, sem höfðu falli'ð í freistni og voru glataðir. Óskar sá þessa hugarsýn eins greinilega og atburðirnir hefður þegar gerzt, hann liét því líka, að þetta hng- arfóstur yrði a'ð veruleika, hann varð bara að þreyja enn uim stund. Þegar Óskar var kominn inn á iShort Street, heyrði hann skrölt- tffoi Hkvagninum. Enn var dregið fýrir flesta glugga í húsinu núm- er eitt, hann nam staðar fyrir neð an tröppurnar, allt í einu opnuð- ust dyrnar og ung stúlka kom út, hún var með sóp og skjólu i hend- inni, stúlkan starði á hann, eins og hún þekkti hann ekki, en hann STGLINGAR Skipadcild S.Í.S.: Arnarfell er í Rvík. Jökulfell er í Rotterdam. Dísarfell væntanlegt til Ventspils 29. þ.m. fer þaðan til Svendborgar. Litlafell fór frá Rotterdam í gær til Glasgow og Rvíkur. Helgafell fer væntanlega 30. þ.m. frá Leningrad til Larvik- ur. Stapafell er í olíuflutningum á Faxafióa. Mælifell fer í dag frá Rotterdam til Bordeaux. Skaftafell átti að fara í gær frá Baie Comeau til íslands. Skipaútger'ð ríkisins: Hekla íer frá Rvík á morgun vest ur um land í hi-ingferð. Esja er á Austfjarðahöfnum á norðurleið. Herjólfur fer frá Rvík kl. 21.00 í kvöld til Vestmannaeyja. 51336 Tannlæknavakt ei i Hetlsu'’erndar stöðinnl. þar sem Slysavarðsmi ari vai. og er opin laugardaaa n sunnudaga kl 5—6 e h - Sim 22411 Apotek Hatnarfjarðai er opið ai vtrka dag trá ki 9—7. a laugar dögum kl 9—2 oe * mnnudöc utn og öðrum nelgtdógum <»t ip fra ki z— 4 Nætur- og helgidagavarzla lækna Neyðarvakt: Mánudaga — föstudaga 08 00 — , 17.00 eingöngu i neyðartilfellum sími 11510 Kvöld-. nætur og helgarvakt Mánudaga — fimratudaga 17 00 — 08.00 írá -i 17.00 föstudag úi kl. 08.01 mánudag Sími 21230 Almennar upplvsingar om læknis þjónustu í Reykjavík eru gefnar ) síma 18888. Lækningastofur eru lokaðar á laugardögum, neraa stofur á Klapp- T LEAST / SOTMY TWENTy £>OLLA/?S BACE/ /F/MAP TO PLAY TPE CAÆPS //-/ELP H'/r//our tuatatmg, /'p _ //Al-'E LOST/ \ SOON' O/////M/ kóngsins, hefði ég svo sannarlega lapa'ð Nci, Þa'ð eru engin spil á honum að sem ásakar ínig um að hafa rangt við finna. — Við hættum a'ð spila. Eg tek spilum. — Ég fékk þó að minnsta kosti þeini. — Billy, komdu nteð Tonto. Við É | : aftur peningana, sein ég hafði lagt í pott inn. Ég get ekki verið að spila við fólk, lut.tugu dollarana mína aftur. Hefði ég orðið að lialda áfram íneð þetta spil án skuluni fara og hitta forstjóra WeUs Fargo. — Ah, þeir hafa þá samþykkt, að leggja mér til peninga.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.