Tíminn - 28.10.1971, Page 16

Tíminn - 28.10.1971, Page 16
Seðlabankinn byggir við Söfvhólsgötu Á árinu 1967 var gerður samn- ingur milli Reykjavíkurborgar og Seðlabanka íslands, sem gerði ráð fyrir byggingu fyrir bankann á lóð unum nr. 11 og 13 við Frikirkju- veg. Sú ráðagerð hefur verið nokk- uð umdeild og hefur m.a. verið bent á, að erfitt myndi reynast í framkvæmd að uppfylla þau á- kvæði samningsins, er kváðu á um, að sérkenni umhverfis Tjarnarinn- ar skyldu varðveitt. Einnig hefur verið á það deilt, að húsið við Fríkirkjuveg 11 yrði rifið og það fjarlægt. Snemma á þessu ári hófu aðilar því viðræður um aðra lausn á bygg ingarþörf bankans, sem hafa leitt til nýrrar samningsgerðar, sem borgarráð Reykjavíkur og banka- ráð Seðlabankans hafa nú sam- þykkt. Samkvæmt nýjum makaskipta- samningi aðila afsalar Reykjavík- urborg til Seðlabankans rúmlega 3000 fermetra lóð við Sölvhólsgötu milli Ingólfsstrætis og Kalkofns- vegar, en bankinn áformar að reisa á lóðinni hús fyrir starfsemi sína. Gert er ráð fyrir, að þar rísi skrifstofuhúsnæði á 4 hæðum, en í kjallara verði m.a. bifreiðageymsl ur vegna starfsemi bankans. Kim- fremur er fyrirhuguð á lóðinni bygging almenns bifreiðageymslu- húsnæðis neðan jarðar, og verður það í eigu og á kostnað borgar- sióðs. Seðlabankinn afsalar hins vegar til borgarsjóðs lóðunum nr. 13 við Fríkirkjuveg og nr. f við Lækjargötu ásamt húseign. (Frá skrifstofu borgarstjóra) Raforkuvinnslan jókst 13,8% s.l. um ar EJ-Reykjavík, miðvikudag. Á fyrra hluta þessa árs, eða á tímabilinu frá janúar til júniloka, héfur raforkuvinnslan í landinu numið alls 786 gígawattstundum (ein gígawattsstund er milljón kílówattsstundir), en það samsvar Framhald á bls. 14 Hver íslendingur keypti rafmagn fyrir 4317 kr. aö meöaltali árið 1969 EJ-Reykjavik, miðvikudag. Á árinu 1969 voru á landinu öllu seldar að meðaltali 2.483 kilówattsstundir af raforku á hvert mannsbarn í landinu, eða raforka að meðaltali fyrir 4.317 krónur á íbúa. Þetta kemur fram í nýút- komnum Orkumálum, sem Orkustofnunin gefur út. Þær rafveitur, sem selt hafa mest orkumagn á íbúa árið 1969, eru Snæfjöll og Akranes. Hin fyrrnefnda seldi þetta ár 5.857 kílówattsstundir á íbúa, en hin síðarnefnda 5.438 kwst. Fyrrnefnda rafveitan seldi svo til allt sitt rafmagn til búrekst- urs. Sé krónutalan tekin, þá er Grindavík og Njarðvikur efstar á blaði með 5.890 kr. og 5.885 kr. á íbúa. Síðan koma Akra- ness með 5.651 krónu, Gerðar með 5.536 kr. og Sandgerði með 5.155 krónur á ibúa. EKKERT GERIST í KJARAMÁLUM SJÓNVARPSFÓLKS SJ-Reykjavík, miðvikudag. „Það hefur engin hreyfing komið á málið“, sagði Sverrir Ólafsson, formaður félags starfsfólks sjónvarpsins í dag, þegar hann var spurður um hvernig kjarabarátta sjónvarps manna gengi. Sjónvarpsmenn telja að sum um þeirra hafi verið skipað ranglega í flokka við kjara- samningana í desember í fyrra. Kærðu þeir þegar í fyrravetur nokkur störf, sem þeir töldu vanmetin, og hafa þeir fengið minniháttar breytingar í gegn síðan. „En fjármálaráðuneytið virðist ekki vilja skilja sjónar- mið okkar“, sagði Sverrir Ólafs son,“ og lítið hefur þokazt í áttina þegar á allt er litið“. Sverrir brást ókunnuglega við þeirri spurningu, hvort „veikindaverkfallið“ í síðustu viku hefði haft nokkur áhrif á gang mála. Virtist hann ekki við það kannast, að þar hafi verið um skipulagða aðgerð að ræða hjá starfsfólkinu, og minntist á „að sig rámaði í að mikið hefði verið um lasleika einn daginn í síðustu viku!“ En sem sagt, ekkert hefur nýtt gerzt í kjaramálum sjónvarps- fólks. BÆJARÞING REYKJAVÍKUR: SAM fær engar bætur OÓ—Reykjavík, miðvikudag. 1 gær var kveðinn upp í Bæjar- þingi Reykjavíkur dómur í máli Sigurðar A. Magnússonar ritstjóra gegn fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Krafðist Sigurður 75 þús. kr. skaðabóta vegna hand- töku og sviptingu ferðafrelsis. En Sigurður var á sínum tíma hand- tekinn ásamt 10 öðrum, sem setið höfðu fund um Víetnamstyrjöld- ina og hugðust ganga forboðna leið frá Tjarnarbúð að bandaríska sendiráðinu. Dómurinn er á þá leið að fjármálaráðherra var sýkn- aður af bótakröfum og málskostn- aður felldur niður. L OGREGLUSKQUNNI NÝJUM HÚSAKYNNUM OÓ-Reykjavík, miðvikudag. Lögregluskólinn var settur í nýju húsnæði s. 1. mánudag. Er skólinn nú til húsa í byggingu nýju lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu. Er skólinn þar í hús næði sem sérstaklega er til þess ætlað að kenna nýjum lögreglu- mönnum og endurhæfa hina eldri. Lögregluskólinn hefur til um- ráða tvær kennslustofur, aðra af venjulegri stærð og hina stærri, sem einnig verður notuð til al- menningsfræðslu á sviði umferð mála og kannski síðar afbrota- varna, ef til kemur, sagði lög- lögreglustjóri Tímanum. Þá er sérstakt kennaraherbergi og lítil setustofa fyrir nemendur til að vera í frímínútum, Nú er byrjunardéild í skólan- um, einn fullskipaður bekkur. Eru þar ungir menn, sem fara í Reykjavíkurlögregluna og nokkr- ir víða utan af landi. Eftir áramótin verður skólinn í tveimur bekkjardeildum, nýliða deild og framhaldsdeild. 14 nýir menn munu nú bætast í Reykjavíkurlögregluna og sagði lögreglusljóri þörf væri á fleiri. Kvaðst hann vel geta bætt við allt að átta góðum mönnum, og hafi menn áhuga munu yfirlögreglu þjónarnir gefa nánari upplýsingar. Skólatími byrjunardeildar stend- ur allan daginn þann tíma, sem Afskrift dómsins er ekki full- gerð og er því ekki hægt að birta forsendur hans. Tíminn snéri sér til lögmanns stefnanda, Jóns E. Ragnarssonar. Jón sagðist enn ekki hafa séð forsendur dómsins, og biði hanr. þeirra með eftirvænt- ingu. — Mér kemur sýknudómur- inn á óvart, sagði Jón, og kvað hann ákvörðun hafa verið tekna um að áfrýja málinu til Hæsta- réttar. Ekki hefur verið tekin á- kvörðun um það, hvernig snúast skuli við því ákvæði dómsins um ''kostnaður félli niður, en nt lögum sé hér um gjaf- i^..„i.rmál að ræða. hann starfar, eða svipaða tíma- lengd og í öðrum skólum. Auk húsnæðisins við Hverfisgötu hef- ur lögreglan einnig þjálfunarstöð á Seltjarnarnesi og fara þar fram verklegar æfingar. Rangárvallasýsla Aðalfundur Framsóknarfélaganna í Rangár- vallasýslu verður haldinn að Hvoli sunnudaginn 31. október kl. 15.30. Fundarefni: Venjuleg aðal- fundarstörf, og kosning fulltrúa á kjördæmis- þing. Björn Fr. Björnsson alþingismaður mætir á fundinum og ræðir um stjórnmálaviðhorfið. :***VV#1 ■mw ♦ yM j ♦«. 0 Í ¥* „ y** **£ ■>? t : '*.**** ¥ *** j iiv * i ii I i. i 6 i i i i> $£« r. *** ilSt •i| i'óv * FUF í Árnessýslu Aðalfundur FUF i Árnessýslu verður haldinn í Framsóknarsalnum á Selfossi á morgun, föstu- dag, og hefst hann kl. 21. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, kosnir fulltrúar á kiördæmis- þing. Gestur fundarins verður dr. Ólafur R. Grímsson. — Stjórnin. Byrjunardeild lögreglusltólans í nýju liúsakynnunum. Að baki nemendunum stendur Guðinundur Ilermanns- son, aðstoðaryfirlögregluþjónn. (Tímamynd G.E.) SKAGFIRÐINGAR Framsóknarfélag Skagfirðinga heldur fund í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki fimmtudag- inn 11. nóvember n.k. Fundurinn hefst kl. 21. Áskell Einarsson, framkvæmdastjóri Fjórð- nngssambands Norðurlands talar um byggða- málefni Norðurlands.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.