Tíminn - 12.11.1971, Blaðsíða 5
FÖSTUÐAGUR 12. nóvember 1971
í jámbrautarklefa sat skap-
31, eldri kona við hliðina á
ungri móður með grátandi
bamið í fanginu. Sú gamla gaf
barninu lengi vel illt auga, en
gat svo ekki orða bundizt: —-
Það er hættulegt að ferðast
með böm, sem eru veik. Þetta
gæti verið smitandi.
— Þá ættuð þér að gleðjast,
svaraði móðirin. — því barnið
er að taka tennur.
Nýlega fréttum við um konu,
sem ætlar að steinhætta að
ganga í síðbuxum vegna þess,
að einu sinni kom hún að mann
inum sínum, þar sem hann var
að leita í buxnavösum hennar.
— Já, svona persónulega, þá
verð ég ekkert var við kennara-
skortinn.
— Lena! Því í ósköpunum
sögðuð þér manninum, að ég
væri heima? Nú verð ég að
borga 300 króna reikning.
— Já, en þér eruð heima.
— Lena! Eftir að hafa verið
svona lengi á heimilinu, ættuð
þér að geta séð það á fólki,
hvort ég er heima eða ekki.
— Það er til dýr, sem er
voldugra en ljón. Hvaða dýr er
það?
— Það hlýtur að vera líón-
ynjan.
— Hann er bezti sölumaður-
inn okkar. Fyrst reynir hann
rólega, en Þegar það dugar
ekki, þá þetta . . .
Nirfillinn var að kvarta við
vin sinn yfir Því, hvað bensín-
ið væri dýrt.
— Já, en þú átt ekki bíl.
— Nei, en ég á kveikjara.
Það var óperuæfing og stjórn
andinn var að vanda um við
tenórinn. — Þú verður að
syngja með meiri tilfinningu.
Hefurðu aldrei elskað?
— Jú, en ég söng ekki um
leið.
— Hvað kostar bindið?
— Þú færð tvö fyrir 200
krónur.
— En eitt?
— Það kostar 125 krónur.
— Gott, þá tek ég hitt.
DENNI
DÆMALAUSI
Ef ekkert sniðugt er í sjón-
varpinu geturðu iækkað tóninn,
og horft á myndina á haus.
TÍMINN
5
f Tito Jugóslaviuforseti og
j kona hans snæddu hádegisverð
j í Buckingham-höll í boði Elísa-
i betar Bretadrottningar, nú fyr-
| ir fáum dögum. Forsetahjónin
j — ★ — ★
e
j Edward Heath forsætisráð-
| herra Breta hefur alla tíð verið
j piparkarl, og fólk hefur aldrei
j svo mikið sem reynt að kenna
í hann við kvenmann. Nú er
í hann 55 ára gamall, og allt í
j einu eru komnar alls kyns sög-
j cr á kreik. Ekki seinna vænna.
j Ástæðan er sú, að forsætisráð-
j herrann bauð til miðdegisverð-
ar þekktri konu, og við höfum
meira að segja sagt frá þessu
heimboði hér í Speglinum, en
þá hafði enn engum dottið í
hug, að þarna gæti verið um
framtíðar forsætisráðherrafrú
að ræða. Hver var svo konan,
sem Heath bauð heim? Jú, það
rar Olivia de Havilland, sem eitt
sinn var þekkt leikkona. Hún
er 55 ára gömul, og reyndar
gift, en hefur ekki búið með
manni sínum í lengri tíma, svo
hver veit, nema hún í-eyni nú
ið fá lögskiinað á næstunni.
— ★ — ★ —
Alma Nissen, 75 ára gömul
dönsk dama, hefur skýrt frá
því, að ekki sé til betri lækn-
ing við liðagikt en að drekka
kartöflusoð, og lækningamátt-
urinn aukist að mun, sé bland
að saman við það vatni, sem
sellerí hefur verið soðið í. Frú
in rekur hressingarhæli fyrir
liðagiktarsjúklinga í Söder-
talje í Svíþjóð. og sjálf hefur
hún reynt lækningamátt þessa
vatns. Hún drakk það stanz
laust í 40 daga og borðaði ekk-
ert annað, og við það læknað-
ist hún algjörlega af liðagikt-
inni.
____
komu til hallarinnar í þyrlu,
og er þetta í fyrsta skipti, sem
slíkt hefur gerzt Þar um slóðir.
Hér er mynd af boðsgestunum,
þar sem drottningin og maður
Geysilegt uppistand varð ný-
lega í vændishúsahverfinu í
Amsterdam, þegar uppgötvað-
ist, að predikarinn mikli, Billy
Graham. var allt í einu kominn
þangað í dularklæðum. Predik-
arinn segir sjálfur, að hann
hafi komið þangað í Þeim til
gangi einum, að kynna sér,
það sem þar fer fram ósiðlegt,
én sumir hafa furðað sig á
heimsókninni, sér í lagi vegna
þess að Billy Graham kom í
dularklæðum, eins og fyrr get-
ur, með dökk gleraugu og hatt
niður í augu.
— ★ — ★ —
Svo virðist, sem Sinatra-fjöl-
skyldan ætli senn að hverfa af
sjónarsviðinu, eða að minnsta
kosti draga sig í hlé um sinn.
Allir vita, að Frank Sinatra hef
ur hætt algjörl.cga að koma
fram opinberlega, og gerði hann
það með því að halda mikla
kveðjuhátíð fyrr á þessu ári.
Nú er röðin komin að dóttur
hans Nancy. Hún er þekkt söng
kona, en ætlar að leggja söng-
inn á hilluna, um sinn, vegna
þess að hún er í þann veginn að
fjölga mannkyninu.
— ★ - ★ —
í Kasakhstan hefur fundizt
manganauðugt samband, kar-
folít, og önnur áður óþekkt
bergefni. Eitt þeirra hefur hlot-
ið nafn fyrsta geimfarans og
kallast gagarínít. Það inniheld-
ur kalcium, yttrium og fluor.
hennar Filipus prins bjoða þau
velkomin. Til hliðar stendur
Margrét prinsessa, sem virðist
orðin heldur bústin og
maddömuleg.
★ — ★ —
Hinn heimsfrægi leikari og
listamaður Maurice Chevalier
er orðinn mjög heilsutæpur.
Hann hefur dregið sig algjör-
lega í hlé, og býr nú einn og
út af fyrir sig með hjúkrunar-
konum tveim, sem hjálpa hon-
um. Maurice er 83 ára gamall,
nánar tiltekið, varð það 12.
september sl. Hann hefur arf-
leitt gamla leikara að þremur
stóreignum, sem hann á.
— ★ — ★ —
Hin yndislega franska leik-
kona, Marina Vlady, segist hafa
fundið leiðina að hamingju-
sömu hjónabandi. Hjónin eiga
ekki að sjást of oft. Hún er
gift rússneska leikaranum Vol-
odia Vyssotsky, og þau sjást
ekki nema fjórum sinnum á
ári, einn mánuð í senn. Þess
á milli vinna þau hvort út af
fyrir sig, hann í Moskvu og hún
í París. — Þessi mánaðartími
hverju sinni er eins og hveiti-
brauðsdagarnir, scgir Marina.
— Og svo fæ ég dásamlegustu
bréf, sem hægt er að hugsa sér,
þess á milli.
ukiuiuiaumuuiuiMiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiimiiiimifniiimiiuiuttHiuiiinHiiitiittiintHtu