Tíminn - 05.12.1971, Side 1
278. fbl.
Sunnudagur 5. desember 1971
55. árg.
g£SGflDKEBf5&i£
Fjórtán prósent á 2 árum
og meira fyrir þá lægstu
Félögin halda fundi um helgina. - Talið líklegt að bókagerðarmenn
samþykki ekki samningana. - Farmannaverkfallið heldur áfram.
EJ—Reykjavík, laugardag.
• í morgun náðu samninga-
nefndir Alþýðusambands ís-
lands og vinnuveitenda sam-
komulagi um meginatriði
rammasamnings fyrir verka-
lýðsfélögin. Sáttafundinum
var fram haldið kl. 13.30 í
dag, og átti að undirrita sam-
komulagið á þeim fundi með
venjulegum fyrirvara um sam
þykki félagsfunda, og verða
fðlagsfundir væntanlega
haldnir á morgun.
Eftir því sem Tíminn vissi
bezt, eru meginatriði ramma-
samningsins sem hér segir:
• í samkomulaginu er gert
ráð fyrir því, að samningur-
inn gildi til 1. nóvember 1973,
eða í tvö ár. Nú strax við und-
irritun samningsins kemur
4% almenn kauphækkun. 1.
júní á næsta ári kemur önnur
4% kauphækkun og 1. febrú-
ar 1973 kemur 6% kauphækk
un.
falla niður, en sérstakur
taxti verður fyrir unglinga
16 ára að aldri. Til viðbót-
ar kemur hauphækkun á
lægstu flokkana, sem mest er
rúmlega 3.8%. Hliðstæðar
breytingar verða á töxtum
annars láglaunafólks.
C Til viðbótar koma svo slysa
tryggingarnar, sem áður hafði
náðst samkomulag um, og
sem fela 1 sér m.a. 500 þús-
und króna bætur fyrir dauða-
slys og 750 þúsund króna bæt
ur fyrir fulla örorku.
• Síðan eru það löggjafar-
atriðin tvö, 40 stunda vinnu-
vika og fjögurra vikna orlof,
sem samtals eru metin á a.m.
k. 11%.
• Svo virtist í dag, sem al-
menn samstaða væri um þenn
an rammasamnmg, nema
hvað talið var sennilegt, að
bókagerðarmenn myndu
hafna honum. Er því senni-
legt, að til verkfalls þeirra
komi aðfaranótt mánudags-
ins. Fari svo, þá munu m.a.
dagblöðin stöðvást.
Samkomulag þetta náðist eins
og áður segir í morgun eftir lang
an og strangan sáttafund, sem
segja má að staðið hafi óslitið í
tvo sólarhringa. Gert var hlé
á fundinum kl. 8 í morgun, en
hann hófst síðan að nýju kl. 13.
30 eins og áður segir.
Það tafði fyrir undirritun samn
ingsins, að deilur risu milli samn
ingsaðila um túlkun á samnings-
atriðunum um láglaunafólkið.
Skriður komst fyrst á samninga
viðræðurnar eftir að fulltrúar
Vinnumálasambands samvinnufé-
laganna höfðu kynnt hugmyndir
sínar um kauphækkun.
Samkomulagið er í meginatrið
um byggt á hugmyndum sáttanefnd
ar, sem lagðar voru fram á þess
um langa fundi, en í sáttanefnd
inni voru Torfi Hjartarson, Jóhann
es Elíasson og Guðlaugur Þorvalds
son. Einnig starfaði Benedikt Sig
SB—Reykjavík, laugardag.
Félagsheimilið Brúarlundur í
Landssveit brann í gærkvöldi.
Húsið var 15 ára gamalt, útveggir
úr steini, en innréttingar allar
úr timbri. Húsið er ónýtt að inn-
an eftir brunann. Það var vá-
tryggt.
Brúarlundur stendur um 1
km frá næsta bæ og sést þó ekki
urjónsson, brl. með sáttanefndinni.
Undirmenn á kaupskipum eru
ekki með í þessu samkomulagi, og
stendur allt við það sama í þeirri
deilu.
Meðal þeirra félaga, sem þegar
hafa boðað til félagsfunda á morg
un, sunnudag er Dagsbrún í
Reykjavik, en hún heldur félags
fund um samningana á sunnudag
kl. 2 í Háskólabíói.
þaðan. Félagar ungmennafélags-
ins ætluðu að halda þar fund í
gærkvöldi, en þegar þeir komu
að, var eldur í húsinu. Slökkvilið
ið kom bæði frá Hellu og Hvols
velli og var búið að ráða niður
lögum eldsins um kl. 1. Allmikið
af húsgögnum var í Brúarlundi,
orgel og eldhústæki og eyðilagð
ist það allt. Eldsupptök eru ó-
kunn.
Brúarlundur í Landssveit
eyðilagðist í eldi í gærdag
Glaumbær brann í fyrrinótt
• Þá er gert ráS fyrir sérstök
um hækkunum fyrir láglauna-
fólk. Þær eru annars vegar í
því formi, að t.d. tveir lægstu
taxtar Dagsbrúnarmanna
Framleiðsla
ISAL dregin
samanum10%
ÞÓ—Reykjavík, laugardag.
Álframleiðslan hjá álverinu í
Straumsvík, verður dregin saman
um 10% nú á næstunni, og fyrir-
hugað er að það verði út allt
næsta ár. Þessar upplýsingar fékk
blaðið hjá Halldóri H. Jónssyni,
stjórnarformanni fslenzka ál-
félagsins. Halldór sagði, að þetta
þýddi ekki það, að fækkun yrði
á mananhaldi í álverinu. Engin
ker verða tekin úr notkun, held-
ur verða afköst kerjanna minnkuð
um 10%. Ástæðan fyrir samdrætt
inum eru hinar miklu umfram-
birgðir, sem til eru af, áli í
heiminum og til að minnka um-
frambirgðir ÍSAL.
Að lokum sagði Halldór, að
men nyrðu að vona, að ástandið
færi að batna á heimsmarkaðn-
um, þannig að ekki þyrfti að
grípa til frekari aðgei’ða.
EB—Reykjavík, laugardag.
Milljónatjón varð er veitinga
húsið Glaumbær við Fríkirkju-
veg brann í nótt. Er efsta hæð
hússins ónýt af eldi. og liinar tvær
hæðir hússins stórskemmdar af
vatni og reyk. 50—60 manns unnu
við að slökkva eldinn og tókst það
að mestu leyti á einum og hálfum
tima eða frá klukkan fjögur í
nótt til hálf sex. Þegar blaðið fór
í prentun voru eldsupptök ekki
kimn.
Leigubílstjóri frá Breyfli, er
leið átti Þarna um, tilkynnti
Slökkviliðinu um brunann og var
þá klukkan rúmlega fjögur. Þegar
slökkviliðsmenn komu niður að
Glaumbæ stóðu logarnir út um
glugga á efstu hæð. Var þá allt
tiltækt varalið kallað út. Efsta
liæð hússins var alelda. Var létt-
froða notuð fyrst í stað til þess
að koma í veg fyrir að hinar tvær
hæðir hússins skemmdust af vatni.
Samkvæmt frásögn Rúnars Bjarna
sonar, slökkviliðsstjóra, tókst ekki
að ráða niðurlögum eldsins að
fullu með léttfroðu, þar eð enn
var eldur laus í loftinu og þurfti
því að nota vatn.
Slökkvistarfið gekk vel og var
allur yfi borðseldur slökktur um
klukkan hálf sex í morgun.
Var aðstaða við slökkvistarfið
góð og stiilt og gott veður. Efstá
hæð hússins er ónýt af eldinum og
hinar tvær hæðir hússins mjög
mikið skemmdar af vatni og reyk.
Fjórir slökkvibílar voru notaðir
við slökkvistarfið og ein dæla. Þá
sagði slökkviliðsstjóri, að einn
slökkviliðsmanna hefði slasazt við
starfi©. Slóst stútur á háþrýsti-
slöngu í andlit hans, þegar vatn-
inu var hleypt á slönguna með
miklum krafti. Mun hann hafa
meiðzt töluvert og var fluttur á
Borgarspítalann.
Eins og kunnugt er, hefur
Glaumbær lengi verið vinsælasti
skemmtistaður ungs fólks í borg-
inni. Voru geymd í húsinu hljóð-
færi tveggja popphljómsveita og
skemmdust þau eða era ónothæf. |
Hljóðfærin voru hundruð þúsunda ,
króna virði. Rannsóknarlögreglan ,
hóf að kanna eldsupptök eftir há- '
degi í dag, og voru þau ekki kunn,
þegar blaðið fór í prentun.
Myndin er tekin í morgun í efstu hæð Glaumbæjar, en sú hæð hússins eySilagðist af eldi í nótt (Tímam. GE)