Alþýðublaðið - 13.12.1995, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
m e n n i n g
■ Við höldum áfram að skoða hvaða myndir kvikmyndahúsin bjóða upp á yfir jólin.
Að þessu sinni eru jólamyndir Laugarásbíós á dagskrá.
Agnes og þrumuguðinn mikli
Tilbúnir í slaginn. Úr Mortal Kombat.
Sjötta Ijóða-
bók Ragnars
Inga
Ut er komin hjá bókaútgáfunni
Reykholti ljóðabókin Island í mynd-
um eftir Ragnar Inga Aðalsteins-
son. Island í myndum er sjötta ljóða-
bók Ragnars Inga. f henni eru fjöru-
tíu ljóð sem eiga það sammerkt að
vera stutt og gagnorð og fjalla á ein-
hvern hátt um fsland og sérkenni
þess. Ragnar Ingi er þekktur fyrir að
halda tryggð við hið hefðbundna
ljóðform og er þessi nýja bók þar
ekki undantekning. En þó hér séu
notaðir stuðlar og höfuðstafir og
hrynjandi ljóðanna minni á forna
hætti þá er ljóðform Ragnars Inga að
mörgu leyti nýstárlegt.
Ný íslensk stórmynd
Astríður, svik og blóðug hefnd eru
viðfangsefni Agnesar, nýrrar ís-
lenskrar stórmyndar, sem styðst við
atburði frá fyrri hluta nítjándu aldar.
Frumsýning veður föstudaginn 22.
desember í Laugarásbíói og verða
almennar sýningar þar og í Stjörnu-
bíói.
Agnes fjallar um þá dramatísku at-
burðarás sem leiddi til síðustu aftök-
unnar á íslandi árið 1830, þegar Ag-
nes Magnúsdóttir og friðrik Sigurðs-
son voru tekin af lífi fyrir morðið á
Natan Ketilssyni. Þessir atþurðir eru
kveikjan að handriti myndarinnar,
sem skrifað er af Jóni Ásgeiri
Hreínssyni og framleiðandanum
Snorra Þórissyni, en myndin lýtur
lögmálum skáldskapar fremur en
sagnfræði. Agnes er ung og aðlað-
andi einstæð móðir, sem starfar
sem vinnukona hjá sýslumanni í
Húnavatnssýslu og eiginkonu hans.
Hún fellur fyrir Natani Ketilssyni,
dularfullum og djarftækum kvenna-
manni og sjálfmenntuðum lyflækni,
sem dæmdur hefur verið fyrir ólög-
lega lækningastarfsemi. Dramatísk
samskipti aðalpersónanna þriggja,
Agnesar, Natans og Sýslumanns,
hrinda af stað örlagaþrunginni at-
burðarás, þar sem ástarsamþand
breytist í martröð ofbeldis og tortím-
ingar.
í aðalhlutverkum eru María El-
lingsen, sem leikur Agnesi, Baltas-
ar Kormákur fer með hlutverk Nat-
ans og Egill Ólafsson leikur sýslu-
mann. í öðrum helstu hlutverkum
eru, Hilmir Snær Guðnason,
Magnús Ólafsson, Hanna María
Karlsdóttir, Guðný Guðlaugs-
dóttir, Gottskálk Dagur Sigurð-
arson og Árni Pétur Guðjónsson.
Leikstjóri er Egill Eðvarðsson,
kvikmyndataka var í höndum Snorra
Þórissonar, hljóðvinnslu annaðist
Ragnar Ingi hefur áður sent frá sér
fimm ljóðabækur og þrjár kennslu-
bækur í bragfræði. Einnig kemur út
núna fyrir jólin hans fyrsta skáldsaga
Febrúarkrísur
Brúðkaup að fornum sið.
Þorbjörn Erlingsson, leikmynd Þór
Vigfússon, búninga hannaði Helga
I. Stefánsdóttir, Ragna Fossberg
sá um förðun, Klippingu Steingrím-
ur Karlsson og tónlist samdi Gunn-
ar Þórðarson. Framkvæmdastjóri
varSigrún Ósk Sigurðardóttir.
Agnes er framleidd af Pegasus hf. í
samvinnu við Journal Film í Berlín
og Zentropa Entertainments í Dan-
mörku og naut gerð hennar styrkja
úr Kvikmyndasjóði íslands, Berlin
Brandenburgsjóðnum, kvikmynda-
sjóði Evrópuráðsins Eurimages og
Norræna sjónvarps og kvikmynda-
sjóðnum.
Mortal Kombat
Heimsins bestu bardagahetjur há
alræmdustu orustu allra tíma í ævin-
týra og spennumyndinni Mortal
Kombat.
I niu kynslóðir hefur Shang Tsung,
illræmdur seiðmaður sem er ekki af
þessum heimi, leitt valdamikinn
prins til sigur gegn dauðlegum óvin-
um sínum. Sigri hann tíundu Mortal
Kombat keppnina mun illska og hat-
ur sem blómstra í heimi; myrkraafl-
anna, taka sér bólfestu á jörðinni að
eilífu.
Nú hefur Rayden, þrumuguðinn
mikli ákveðið að senda þrjár þar-
dagahetjur til að etja kappi við þessa
yfirnáttúrulegu og illu krafta. Tvo
menn og eina konu og þau verða að
kafa djúpt í hugarfylgsn sín til að
magna upp þann kraft sem þarf til
að sigra öfl myrkranna.
Myndin er uppfull með bardaga-
María Ellingsen í hlutverki Agnes-
ar.
senur og tæknibrellur og hefur notið
mikilla vinsælda í Bandaríkjunum á
þessu hausti.
Oöruvísi unglingabók
Lárus Már Björnsson:
K/K - Keflavíkurdagar/
Keflavíkurnætur
Mál og menning 1995
Þetta er unglingasaga, þroskasaga
Óla sem er fimmtán ára Keflvíkingur í
tíunda bekk. Það er Óli sem segir sög-
una og þar sem hann er einungis
fimmtán ára býr hann yfir orðaforða
sem gjaldgengur er í unglingaheimin-
um en hefur Ifklega ekki mikið vægi
annars staðar. Lárusi Má Björnssyni
tekst mjög vel að skrifa texta sinn á
unglingamáli án þess að gera hann að
glórulausum kynjatexta. Textinn er
áieynslulaus en hugmyndarík blanda
af kynlegum en skemmtilegum slett-
um og viðurkenndari orðnotkun. í
seinna tilvikinu er oft urn að ræða
ljóðrænan texta sem gerir verkið á
köflum mjög seiðandi. Árangurinn er
skemmtilega skrifuð bók.
Mér sýnist að í Lárusi Má Bjöms-
syni sé kominn höfundur sem vert sé
að veita athygli. A bókarkápu segir að
höfundur hafi lifað og hrærst í heimi
unglinga í fjölda ára og gjörþekki við-
fangsefni þeirra og væntingar. Bókin
ber einmitt með sér þennan skilning
sem er mikilvægur og mun örugglega
gera það að verkum að unglingum á
eftir að finnast að þessi bók komi
þeim við; að þar sé verið að fjalla urn
þá eins og manneskjur en ekki verið
að lesa yfir þeim.
Þetta er einkar trúverðug saga. Á
einstaka stað hefði höfundur reyndar
mátt kafa dýpra í krefjandi viðfangs-
efni. Það er of oft farið hratt yfir sögu
þegar tækifæri hefði verið til að
staldra við. Þetta á sérstaklega við um
heimiiisaðstæður og fjölskylduhagi
Óla, en þeim þáttum hefði mátt skapa
meira vægi og svigrúm til umfjöllun-
ar.
Þetta er unglinga-
bók sem ég mæli
með. Hún er ekki
bara betur skrifuð
en þær flestar,
hún einkennist
einnig af dýpri
skilningi á högum
og hugsunarhætti
unglinga en al-
gengt er að sjá í
íslenskum ung-
lingaskáldsögum.
Óli, sem segir söguna, lifnar á síð-
um bókarinnar, en aukapersónur eru
ekki nægilega vel mótaðar. Kennarinn
Ari kemur nokkuð við sögu. Hann er
eins konar málpípa höfundar og tjáir
sig í vel meinandi orðum, reyndar
stundum of predikunarkenndum. I
þeirri persónugerð sannast enn eina
ferðina gamla sagan að fáar persónur
eru jafn þreytandi og óáhugaverðar í
skáldverkum og góðu, skilningsríku
manneskjumar.
Þetta er unglingabók sem ég mæli
með. Hún er ekki bara betur skrifuð
en þær flestar, hún einkennist einnig
af dýpri skilningi á högum og hugsun-
arhætti unglinga en algengt er að sjá í
íslenskum unglingaskáldsögum. ■
■ Lóa fer út Leigjandinn
kemur inn
Nýtt verk á
Smíðaverk-
stæðinu
Nú er lokið sýningum á Taktu lagið
Lóa\ sem sýnt hefur verið á Smíða-
verkstæði Þjóðleikhússins við griðar-
legar vinsældir. Leikritið víkur nú um
sinn fyrir nýju verki sem heitir Leigj-
andinn sem er breskt verðlaunaleikrit
eftir Simon Burke.
Leigjandinn fjalar um unga konu
sem kemur til ókunnrar borgar í leit
að húsnæði. Hún hyggst hefja nýtt h'f
en fortíðin eltir hana miskunnarlaust
uppi. Æfmgar á Leigjandanum em vel
á veg komnar og er fyrirhugað að
fmmsýna um miðjan janúar.
Leikstjóri er Ilallmar Sigurðsson,
þýðandi Hallgrímur H. Helgason,
hljóðmynd annast georg Magnússon,
Vignir Jóhannsson er höfundur leik-
myndar og búninga en Jóhann
Bjarni Pálmarsson hannar lýsingu.
Leikendur em Tinna Gunnlaugs-
dóttir, Örn Ámason, Randver Þor-
láksson, Pálmi Gestsson, Stefán
Jónsson og Anna Kristín Arngrúns-
dóttir.
Saga ylræktar
Út er komin bókin Hallir gróðurs
háar rísa - Saga ylrœktar á íslandi á
20. öld eftir Haraíd Sigurðsson sagn-
fræðing. Bókin fjallar um það hvemig
ný atvinnugrein, yiræktin eða garð-
yrkjan, ryður sér til rúms á umbrota-
tímum í íslensku þjóðlifi og skapar sér
sess í menningu þjóðarinnar.
I bókinni er greint frá upphafi rækt-
unar í gróðurhúsum hér á landi á fyrri
hluta aldarinnar, þegar einstaka ifum-
kvöðlum hugkvæmdist að nýta þann
yl sem bjó í iðram jarðar til að rækta
suðræn blóm og aldin í íslenskri mold
á hjara veraldar. Auk þess sem saga
garðyrkjubænda er almennt rakin er
fjallað um hvemig afurðir gróðurhús-
anna, blóm og grænmeti, öðluðust
með tímanum sess í neyslumenningu
þjóðarinnar. Skýrt er frá því hvemig
matarmenning landsmanna breyttist
og saga blómaverslunar er rakin. Þá er
sérstakur kafli um upphaf trjáræktar
og eflingu skrúðgaiðyrkju í landinu.
Þó að aðaláhersla sé lögð á sögu garð-
yrkjunnar á 20. öld þá er í upphafi
bókarinnar gefið ágrip af garðyrkju
landsmanna á fyrri öldum.
Bókina prýðir á annað hundrað ljós-
myndir og sagan er krydduð léttari
frásögnum úr ýmsupi áttum.
Ný Ijóðabók
eftir Birgi Svan
WCP SV' •4'ON.VtSCN
$
ÉM
fc
m
Út er komin ljóðabókin Sniglapóst-
ur eftir Birgi Svan Símonarson. Þetta
er tólfta
1 j ó ð a b ó k
Birgis og
hefur hún að
geyma 28
ljóð. Við-
fangsefnin
eru fjölbreytt
að vanda. I
bókinni eru
ástarljóð,
þjóðfélags-
gagnrýni og
ljóð um nátt-
úra íslands. Bókin er gefin út í fáum
eintökum og fer ekki í almenna dreif-
ingu. Hún mun hins vegar fást í
stærstu bókaverslununum á Reykja-
víkursvæðinu og beint frá höfundi.
Þeir sem þekkja til bóka Birgis ættu
ekki að láta þessa vanta í safnið.
SlÍLsMSTUR