Tíminn - 24.10.1972, Blaðsíða 11

Tíminn - 24.10.1972, Blaðsíða 11
10 TÍMINN Þriöjudagur 24 október 1972 Þriðjudagur 24 október 1972 TÍMINN Lillcstrand rckur leið flöskunnar frá Norðurpólnum til Islands fyrir fréttamann Timans. Timamynd: Gunnar. Er hægt að sjá frá París til Ameríku? Bandarískur vísindamaður og heimskautafari í heimsókn t s.l. viku var staddur hér á landi bandariskur heimskauta- fari, Robert Lillestrand að nafni. Hann er að því leyti meiri afreks- maður en flestir, að hann er þriðji maðurinn i sögunni, sem bæði hefur dvalizt á Norður-Grænlandi og á Norðurheimskautinu, og það meira aðsegja oftar en einu sinni. Forverar hans eru aðeins Robert Peary og hinn blakki aðstoðar- maður hans, Matthew Henson. Þeir fóru til N-Grænlands i mai aldamótaárið siðasta, og á Norðurpólnum voru þeir i april 1909. Eins og nafnið bendir til, er Lillestrand norrænn að kyni. Nafnið er heiti á bæ forfeðra hans á Mæri i Noregi, sem nú er i eyði. Þvi má skjóta hér inn, að tvær bæir á Islandi munu bera þetta sama nafn, Litla-strönd i Mý- vatnssveit og á Rangárvöllum. Lillestrand er mjög stoltur af uppruna sinum og skyldleika við hina fornu landkönnuði okkar og hefur mikinn áhuga á landa- fundasögu þeirra. Nyr/.ta land jaröar Fréttamaður Timans átti við- ræður við Lillestrand, er hann dvaldist hér sem áningarfarþegi, en dvölina notaði hann m.a. til að skjótast austur á land til að sjá með eigin augum þann stað, sem stendur i beinu sambandi við heimskautaleiðangur hans árið 1967. Að visu var hann ekki for- ingi hópsins, heldur yfirmaður allra mælinga. Robert Lillestrand starfar við visindastofnun i Minneapolis, Minnesota. Starf hans byggist á, hvernig nota megi tölvur við myndatækni ýmiss konar, t.d. við myndatökur af eldgosi, þar sem sjá mætti breytingarnar frá sek- úndu til sekúndu. Eins er þessi tækni notuð við krabbameins- rannsóknir af ýmsu tagi. Þar nemur tölvan strax hina minnstu breytingu. Störf hans eru einnig á sviði N.A.S.A., bandarisku geim- ferðastofnunarinnar. Hann var þátttakandi i tveim ferðum til Norðurpólsins, 1967 og ’69 og foringi i tveim leiðöngrum til N-Grænlands, 1968 og ’69. Til- gangur þessara ferða var að mæla dýpið og kortleggja botn- inn, svo og staðsetningar, gerðar eftir himintunglum. Merkasti árangur visindastarfs hans er vafalaust að sanna að nyrzti staður jarðar á landi er ekki þar, sem gömlu landkönnuð- irnir töldu hann vera, þ.e.a.s. Morris Jessup höfði, heldur Kaffiklúbbsey, sem er um 30 km austar og 800 m norðar. Peary sá eyna fyrstur 1909, en Danir gáfu henni nafn. Hinn frægi visindamaður Lauge Koch sá hana a ferð sinni um N-Græn- land 1921. Við komuna til Kaup- mannahafnar að henni lokinni ákvað hann að nefna eyna i höf- uðið á kaffifélaginu við jarðfræði- stofnun háskóians. Kaffiborðið er enn til, og skoðaði Lillestrand það m.a. á ferð sinni um Evrópu nú. Það verður nú að teljast mikil- vægara en áður, þar eð eyjan er orðin mikilvæg i landafræðinni. Tilvera þessarar eyjar var mikið deiluefni, þar eð hún sést mjög illa úr fjarlægð nema hillingar hjálpi til. Þetta gaf okk- ur tækifæri til rökræðna og athug- ana á, hve langt megi sjá, e.t.v. frá Evrópu til Ameriku, eins og lesa má um i lok þessarar greinar. 1 lokin benti Lillestrand á, að hann hefði lokið verki Eiriks rauða, er hann fann Grænland. — Eirikur fann landið og suður- odda þess, en nú hef ég loks stað- sett nyrzta blettinn, sagði hann og brosti. Fundið flöskuskeyti frá Noröurpólnum. I nóvembermánuði 1968 var ungur maður frá Borgarfirði eystra, Árni Sveinsson að nafni, að ganga við fé i Breiðuvík, sem er sunnan Borgarfjarðar, en næst norðan Húsavikur. 1 þessari ferð fann hann flösku, sem hafði að geyma skeyti frá Norðurpólnum, er að var gáð. Fundur þessi þótti mjög forvitnilegur, ekki sizt vegna þess, hve stuttur timi leið frá þvi hún var skilin eftir þar til hún fannst, eða aðeins eitt og hálft ár. Flaskan lá um 100 metra frá sjó, og telur Árni, að hún hafi get- að verið búin að liggja þar i tvo mánuði eða meira. Liklegasti timinn á komu hennar til landsins er þvi vorið eða sumarið 1968. Ferðir flöskunnar verða þvi at- hyglisverðari, sé þess gætt, að Hér má sjá leifar herstöövarinnar á Strauninesi. Skyldi Eirikur rauði hafa verið forveri hermannanna á þessum stað eða á öðrum vestfirzkum fjöllum, eins og t.d. Drangajökli, sem leiðin heim til hans lá yfir, og séð þaðan til Grænlands? Timamynd Gunnar. árin 1967 og 1968 voru mikil ísaár • hér við land. 'vekur þetta þvi spurningar um, hvort isinn, sem þá lá við landið, hafi verið hingað kominn beint frá Norðurpólnum. Það eru óneitanlega sterkar likur, sem benta til, að flaskan hafi borizt á land á sama isjakan- um og hún var upphaflega látin á. Flaskan skilin eftir — — frásögn Lillestrands — 1 kanadiska rannsóknarleið- angrinum til Norðurheimskauts- ins sem gerður var út árið 1967, báðu nokkrir loftskeytamenn i stöð á auðnum Norður-Kanada einn þátttakandann að taka með sér flösku, sem þeir höfðu lagt nöfn sin i, og skilja hana eftir á pólnum. Þetta var auðsótt og þegar flugvél fór til að sækja sið- ustu mennina út á isinn hinn 13. mai, var 'flaskan skilin eftir. Búðir okkar voru i ca. 50 km fjar- lægð frá pólnum á þessum tima, en lent var ca. 6 km frá pólnum, siðustu mælingar gerðar og flask- an lögð á isinn með beztu kveðju. Eins urðu þar eftir 6 eða 7 tómar rauðmálaðar benzintunnur, sem allar voru merktar. Á pólnum sjálfum var áður búið að sökkva tæki, sem gaf frá sér merki, til að gera staðsetningar eftir. Var þvi hægt að fylgjast mjög nákvæm- lega með isrekinu. Enginn átti von á, að flaskan myndi finnast. Mestar likur voru til þess, að hún klemmdist milli jaka og brotnaði. Ef hana ræki suður með Grænlandi, var hætt við, að hana bæri að landi i óbyggðum A-Grænlands, og hún gat einnig lent á eilifðar hringferð i N-lshafinu. Þar sem burðarþol flugvélanna var takmarkað, urðum við að skilja eftir i búðunum allt, sem við gátum án verið. Þær stóðu á ársgömlum is, sem var aðeins fjögurra feta þykkur, og myndi þvi bráðna fyrr en ísinn, sem flaskan var á, en hann var um 20 fet á þykkt! Isinn tak þarna um 2 sjóm. á dag i stefnu 20 gráður vestan við suður. Með svipuðum hraða ætti flaskan að hafa konxizt suður fyrir 80. gráðu n.br. á einu ári. Þar eykst hraðinn, og mun ekki fjarri lagi að áætla hana reka 10 sjóm. á dag eftir það, þvi getur það vel staðizt, að hún hafi i júni 1968 verið komin suður i Breiðu- vik, þar sem hún svo fannst i nóvember sama ár. Sá Eirikur rauði til Grænlands af bæjargötunni? Áður er á það minnzt, hve illa heimskautaförum hefur gengið að sjá Kaffiklúbbsey, án þess að hillinga nyti. Þetta ól af sér rök- ræður um, hve langt mætti sjá eftir reglum stærðfræðinnar, og þegar hillingar eru, má vitanlega sjá mun lengra. Hillingar eru algengar á norðurslóðum, eins og flestir Islendingar þekkja. Þeir eru ófáir, sem séð hafa Landeyjar hilla uppi, eða þá eyjarnar á Breiðafirði. A söndunum norður af Herðubreið eru einnig geysi- miklar hillingar i björtu veðri, og telja margir sig hafa séð Mývatn með öllum sinum eyjum þar. Lillestrand kenndi mér formúlu til að nota við að reikna út, hve langt mætti sjá. Þar sem hans tömustu mælieiningar eru milur og fet, mun ég halda þeim hér, en færa niðurstöðurnar til okkar vegar. Hvergi er tekið tillit til þeirrar hjálpar, sem orðið gæti að hillingum. Formúlan er þannig, að sé^ kvaðratrótin af hæð fjallsins i milum margfölduð með 90, • kemur út sú vegalengd, sem sjá má viðkomandi fjall úr af sjó. Þess skal getið strax, að ensk mila telst vera 1609 metrar. Þannig má sjá míluhátt fjall, eins og t.d. Eyjafjallajökul (1666 ^m úr 90 milna fjarlægð eða ca. 150 km. Sverrir Þór skipstjóri sagði mér, að landsýn á öræfajökul, væri ca. 120 sjómilur, e.t.v. Texti: Erlingur Sigurðsson meira. Þetta fer mjög nærri for- múlu Lillestrands. Þá er bezt að athuga stærð- fræðilega möguleika þess, að sjá megi frá Evrópu til Ameríku, frá Islandi til Grænlands. Dæmið sannað. Drangajökull er 925 metra hár. Þar sem stytzt er yfir Grænlands- haf er vegalengdin 287 km. Rétt þar á móti er Gunnbjarnarfjall, sem er tæplega 3700 m hátt. Til að einfalda málin við breyt- inguna i enskar milur köllum við Drangajökul 0,6 milna háan og Gunnbjarnarfjall 3,2 mílur á hæð. Kvaðratrótin af 0,6 er tæplega 0,8, og rótin af 3,2 ca. 1,8. Þegar þessar tölur eru margfaldaðar með 90, eins og formúlan segir, kemur út að Drangajökul má sjá úr 72 milna fjarlægð eða 115 km, en Gunnbjarnarfjall sést úr 162 milna fjarlægð eða ca. 260 km. Bein sjónlina á milli fjallanna er þvi 375 km, áður en bunga jarðar skyggir á. Fjöllin eru að sjálf- sögðu ekki alveg við ströndina, en fjarlægðin þeirra i milli nemur vart meira en 350 km. Þvi fær þetta dæmi vel staðizt. (Þess skal getið, að samkvæmt siðari upp- lýsingum er Gunnbjarnarfjall hærra, eða um 4000 m). Eirikur rauði hafði þvi alla möguleika á að sjá til Grænlands af bæjargötunni heim til sin, en hann átti fyrst bú á Dröngum, og leiðin þar i milli og Djúps liggur yfir Drangajökul. Á svo löngu færi er að sjálf- sögðu erfitt að greina hluti, sama þótt um stór fjöll sé að ræða. Fornmenn höfðu heldur enga sjónauka til að nota. Þvi getur ekki hafa verið um sýn að ræða nema i bezta skyggni, en þó að ekki sjáist landa á milli er enginn vandi fyrir kunnuga og athugula menn að sjá það á skýjum, hvort land er undir eða haf. Skýja- myndirnar segja ótvirætt til um það. Er ég hafði samband við Hjálmar R. Bárðarson, en hann mun einna kunnugastur allra á Drangajökli, og sá er þar hefur dvalizt lengst, sagðist hann ekki álita sig nokkurn tima hafa séð landa i milli, en eigi að siður væri alls ekki óhugsandi að svo mætti gera. Ef einhver er sá, sem álitur sig hafa séð þessa leið, er hann beðinn að hafa samband við blað- ið. Sést milli Fær eyja og íslands? Þegar hér er komið sögu, fer maður að hugleiða, hvort sjá megi landa i milli alla leið frá Evrópu til Ameriku. Þvi verður til að svara, að á milli Islands og Færeyja er of langt, til að bein sjónlina fáist milli hæstu fjalla. Vegalengdin er um 430 km, en má ekki vera nema rúmjega 300 km til að kúla jarðar skyggi ekki á. Hér verður þvi hilling að koma til, eða skýjamyndanir, sem greina má yfir landi. 1 þessu sambandi er vert að minnast sögunnar af Flóka og hröfnunum, en þar er þess þó getið, að hrafninn, sem sleppt var i miðið, hafi hvergi séð til lands, og þvi setzt aftur á skipið. Hinir flugu aftur um skut sá fyrri og fram um stafn hinn siðari. Þá vissi Flóki af landi fram undan. Fugl, sem er i 100—200 metra hæð sér til muna lengra en fugl á sjó og gæti þetta þvi auðveldlega hafa dugað hrafninum. Leiðin milli Færeyja og Islands er þvi eini kaflinn á milli Evrópu og Ameriku, þar sem ekki sést milli landa samkvæmt reglum stærðfræðinnar. Frá Grænlandi á að sjást til Ellesmere eyjar og eins á að sjást á milli Færeyja og Hjaltlands. Þaðan er svo auðvelt að rekja sig til meginlands Evrópu og Parisar þar með, og er þá komið i eina af miðstöðvum gamla heimsins. Þessi sjónhend- ing er rakin fyrir þá, sem aðeins fara til staða, sem sjást, en sú mun raunin hafa verið með forn- menn, flesta aðra en þá, sem lentu i hafvillum, eins og raunar er getið. Eins er ekki ósennilegt, að ibúar eyjanna hafi tekið eftir flugi farfugla haust og vor og vit- að af þvi, að land væri að finna i norðri. Grein þessi ber yfirskrift þess efnis, hvort hægt sé að sjá frá Paris til Ameriku. Með þvi að fara landleiðir er aðeins eitt sund, sem ekki fæst sjónlina yfir, þ.e. milli Islands og Færeyja, en frá Evrópu til Ameríku, þ.e. frá Is- landi til Grændlands, á að mega sjá. Þvi er hér slegið fram þeirri hugmynd, að fundir Grænlands og Vinlands hafi orðið með þeim hætti, sem áður er á minnzt, að sjá megi á milli nálægustu staða þessara landa, eða þá að hafa megi landsýn til beggja átta af miðjum sundunum á milli, Græn- landshafi og Daviðssundi. Löndin þurfa alls ekki að hafa fundizt upp úr hrakningum skipa, eins og frá er sagt i sögum, og enda þótt siglingatækni fornmanna hafi verið meiri en flestir gera sér i hugarlund, sigldu þeir mest með ströndum fram, þar til fsland fannst, og hættu sér sjaldan úr landsýn. Ilcr má sjá Robcrt Lillestrand og félaga hans úr heimskauta- leiðangrinum við snjóhús á Norðurpólnum. Eskimóinn hafði einkum þann starfa i leiðangrinum að byggja snjóhús yfir mælitæki þau, sem sizt máttu verða fyrir hnjaski. Þessar benzintunnur voru skildar eftir á sama stað og flaskan, sem um er rætt í greininni, ásamt fleira dóti. Þetta var um 6 km frá pólnum. E.t.v. hefur einhver þeirra borizt upp að ströndum tsiands. Hafi einhver fundið tunnu, sem komin gæti verið frá þessum leiðangri, er sá hinn sami beðinn að liafa samband við Timann. Robert Lillestrand og Árni Sveinsson á staðnum, þar sem flaskan fannst, — Breiöuvik i N-Múl.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.