Tíminn - 24.10.1972, Blaðsíða 20

Tíminn - 24.10.1972, Blaðsíða 20
i Sundahöl'n í fíær. Mi'/.ac t.v. of> Kdisto t.h. A milli þcirra sést hvar Soulhwind kemur til hafnar. ísbrjótarnir komnir til hafnar 400 manns voru tepptir í ísnum JGK-Reykjavik Eins og l'ram hefur komið i fréttum, lentu tveir bandariskir isbrjótar og eitt rannsóknaskip i miklum hrakningum i is um 700 milur norður af tslandi. Skipin eru nú komin heilu og höldnu til Reykjavikur og lögðust að bryggju i Sundahöfn um tvöleytið i gær. bað var upphaf þessa máls að rannsóknaskipið Mizar festist i isnum, þar sem það var i rann- sóknaferð. Var þá isbrjóturinn E- distosendur á vettvang til aðstoð- ar, en tókst ekki betur til en svo að hann festist lika. Þá var annar isbrjótur Southwind sendur til hjálpar, en allt fór á sömu leið. Var þriðji isbrjóturinn ferðbúinn norður á bóginn, þegar fregnir bárust um að skipin hefðu losnað. Varð það með þeim hætti, að hreyfing komst á isinn, svo þau losnuðu úr klemmunni. Nokkrar skemmdir höföu þá orðið á Edisto, skrúfa brotnað o.fl. og þurfti að draga hann til hafnar. Var þá Mizar búinn að liggja i isnum i heila viku. Skipin lögðu af stað til íslands að kvöldi sunnu- dagsins 15. okt. og hafa þvi verið átta daga á leiðinni. Samtals voru á skipunum þrem um 400 menn. Blaðamenn fengu að fara um borð i Edisto i gær og lýstu kafteinar isbrjótanna stuttlega atburðarásinni i isnum. Voru þeir að vonum ánægðir yfir að vera komnir til hafnar, eftir langa og erfiða útivist. Viðdvölin verður þó ekki löng, þvi að skipin munu leggja upp á miðvikudaginn til Bandarikjanna. Þess má geta til gamans að Edisto hefur fyrr komizt duglega i hann krappan. f leiðangri til Suðurskautsins snemma árs 1961 lenti skipið i fádæma ofviðri, eða 90 hnúta vindi og hlóð á sig 600 tonnum af is. Mönnum til glöggvunar skal bent á tólf vind- stig eða fárviðri eru 64 hnútar, en hærra er ekki mælt hér á landi. JAV.V/.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VAV.’.V.VV.VVV.V.V.V.V.V.V.VAV.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V, | Fríður á næsta leifi? Kissinger á heimleið frá Saigon NTB-Paris, Washington og London Aðilar Vietnamstyrjaldar- innar munu innan skamms gera með sér samkomulag um vopnahlé og er það liður i lausn deilunnar i áföngum. Þetta var haft eftir hlutlaus- um vietnömskum heimildum i Paris i gær. Allt bendir til þess, að vopnahléð verði til- kynnt rétt um forsetakosn- ingarnar i Bandarikjunum hinn 7. nóvember. Þá sögðu heimildirnar, að bandariskir striðsfangar yrðu látnir lausir i hópum og yrðu sennilega allir komnir heim fyrir jól.'í staðinn eiga Banda- rikjamenn að hætta loftárás- um á N-Vietnam, opna höfnina i Haiphong og öðrum hafnar- borgum N-Vietnam, sem lok- að var með tundurdufla- girðingum i sumar. Fulltrúar N-Vietnama i Paris staðfestu i gær, að mögulegt væri að Vietnam- deilan væri að leysast, en þeir sögöu, að Bandarikjamenn tefðu þó fyrir samningum. N- Vietnamar hafa haldið fast við svartsýni sina og telja sér- fræðingar i Paris, að þessi svartsýni á yfirborðinu sé að- eins liður i samningatækni N- Vietnama. Þeir muni senni- lega halda fast við hana allt þar til tilkynnt verður opin- berlega um vopnahléð. Það, sem nú er efst á baugi i friðarviðræðunum i Paris, er krafa Bandarikjamanna um tryggingu fyrir þvi að N-Viet- namar og þjóðfrelsishreyfing- in muni efna það loforð sitt að nota ekki tækifærið til að neyða kommúnistastjórn upp á S-Vietnama um leið og kommúnistar fá að taka þátt i stjórnmálalifi landsins. Bjartsýni i Washing- ton Hinir góðu spádómar frá Hanoi og n-vietnömskum diplómötum i Peking um að friður sé á næsta leiti, hafa vakið mikla bjartsýni i Washington. Kissinger var i gærkvöldi á leið heim frá Saigon, eftir að hafa rætt við Thieu forseta og skroppið til Pnom Penh i Kambódiu. Hann mun gera Nixon grein fyrir viðræðun- um, þegar forsetinn kemur heim i dag úr kosningaferða- lagi um New York. Banda- riskar heimildir i Saigon segja, að allheitt hafi verið i kolunum, stundum, þegar þeir Kissinger og Thieu ræddust við. Fjölmiðlar i Bandarikjun- um halda þvi fram, að þau mál, sem enn eigi eftir að leysa, séu þess eðlis, að aðeins Nixon geti tekið afstöðu Thieus íorseta við bráða- birgðalausn, sem er i þvi fólg- in að komið verði á sam- !■■■■■■■■■■■■■! >■■■■■■! steypustjórn með þátttöku kommúnista og þjóðfrelsis- hreyfingarinnar. Hin virtu timarit Newsweek og Time segja bæði, að samn- ingar hafi náðst milli Banda- rikjanna og N~Vietnam og sé vopnahlé fyrsta skrefið i lausn deilunnar. Newsweek segir, að Frakkar eigi að sjá um að aðilarnir haldi samninginn, sem innihaldi m.a. vopnahlé og að öllum striðsföngum verði þegar sleppt. Friðarvonin hækkar dollarann Vonin um að friður sé að komast á i Vietnam, varð i gær til þess að gengi dollarans hækkaði allmikið og er nú hærra i Evrópu en nokkru sinni siðan i febrúar. 1 kaup- höllum i Evrópu var geysileg eftirspurn eftir dollurum og eftir þvi sem hún jókst, hækk- aði hann i verði. ■ ■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■ i ■ ■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■ Fjórðungur þingfulltrúa skilaði auðu TK-Reykjavík Flokksþing Alþýðuflokksins, sem haldið var um helgina, samþykkti að stefna að stofnun kosninga- bandalags með Samtökum frjálslyndra og vinstri maniia. Var rætt um þetta kosninga- bandalag sem nýjan flokk i stil við uppbyggingu Vcrka- mannaflokksins brezka, þannig að bæði Alþýðu- flokkurinn og Samtökin myndu seni slik starfa áfram, þar til annað kynni að veröa Akveðið á næsta kjörtimabili. Samþykkt var, að tvo þriðju liluta atkvæða þyrfti á auka- flokksþiugi flokksins til þess að sanivinnan yrði endanlega samþykkt. Stjórn Alþýðuflokksins var endurkjörin, en fjórðungur þingfulltrúa skilaði auðu við formannskjör, þar sem Gylfi Þ. Gislason, var einn i kjöri. Hlaut hann 95 atkvæði, en 33 seðlar voru auðir. Benedikt Gröndal, var kjörinn varafor- maður með 100 atkvæðum, en 26 seðlar voru auðir. Eggert hlaut 101 atkvæði, sem ritari, en 25 seðlar voru auðir. Jón Þorsteinsson var foringi andófsmanna á flokks- þinginu. * Vildi hann og hans liðsmenn taka af vafa um, að ekki væri stefnt lengra en að kosningabandalagi, og jafn- framt að viðræðum við Samtökin yrði hætt, ef ekki hefði tekizt samkomulag um kosningabandalag fyrir 1. september 1973. Þessi tillaga Jóns var felld með 87 at- kvæðum gegn 41, en einn seðill var auður. 1 ályktunum um varnarmál kvað nú við nýjan tón hjá Alþýðuflokknum, og var ályktað, að rannsaka þyrfti, hvort Island gæti orðið óvopnuð eftirlitsstöð í sam- bandi við öryggisbandalag og hvort Islendingar geti með fjárhagslegri þátttöku At- lantshafsbandalagsins, komið upp sveit fullkominna óvopnaðra eftirlitsflugvéla, svo og nauðsynl. björgunar- flugvélum, og tekið við þýðingarmesta hluta verkefna varnarliðsins og stjórn varnarsvæðanna. Þriðjudagur 24 október 1972 E/nn á togara - týndur í Norðursjó NTB-Kaupmannahöfn Danski togarinn „Nord- kap”, með einum manni um borð, er nú týndur einhvers- staðar i Norðursjó, eftir að honum var rænt úr höfninni i Aberdeen i gærmorgun. Skip i Norðursjó hafa feng- ið fyrirmæli um að huga að togaranum, sem er 122 lestir að stærð. Þá hafa flugvélar leitað hans. Maðurinn, sem tók togar- ann traustataki og sigldi til hafs, er matsveinninn og mun hann ekki kunna hætis- hót til sjómennsku. Spáð er stormi i Norðursjó næsta sólarhringinn. Segovia fyrir bíl NTB-London Spánski gitarsnillingurinn André Segovia varð i gær að af- lýsa hluta af hljómleikum sinum, vegna umferðarslyss, sem hann lenti i i Lark Lane i London. Segovia, sem er nú 78 ára gamall, slasaðist á fæti, en ekki alvarleg- ar en svo að hann fékk að fara heim á hótel sitt að aflokinni rannsókn. Sjálfur sagði Segovia um slysið: — Gott að hendurnar á mér sluppu.. Engin her- skipavernd ÞÓ-Reykjavik Prior fiskimálaráðherra Breta, sagði i gær, að brezka stjórnin myndi ekki veita brezkum togur- um hverskipavernd við veiðar innan 50 milna fiskveiðimark- anna við Island i bráð. Priorsagði þó, að tvær brezkar freigátur myndu halda sig i nánd við islenzku 50 sjómilna landhelg- ina. Einnig sagði hann, að beiðni útgerðarmanna og sjómanna um hverskipavernd yrði tekin til nán- ari athugunar, en það mál þyrfti að ræða betur innan brezku rikis- stjórnarinnar. Fingralangir á ferð Stp—Reykjavik Fremur litið var um að vera i borginni um helgina. Að sögn rannsóknarlögreglunnar var þó eitthvað um smágripadeildir. Á laugardagskvöld var brotizt inn i kjallaraherbergi i Skipholti og stolið þar bókum, m.a. ritsafni Jóns Trausta og Eimreiðinni (árg. 1933-47). Brotizt var inn i ibúðarherbergi i Brautarholti og stolið þar m.a. ferðaútvarpstæki, rafmagnsrakvél o.fl. Þá var brotizt inn i Vélaleigu Simonar i Ármúla, en engu stolið (reyndar var þar engu að stela), og Fasteignasöluna i Austur- stræti 12 og stolið þar kassa með gömlum koparpeningum, fimm- eyringum og fleira rusli. Eitthvað var meira um smá- þjófnaði i borginni, en það er vart umtalsvert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.