Tíminn - 22.12.1972, Blaðsíða 20
Nixon hellir niður sprengjunum:
Geysilegt tjón
i loftárásunum
Slys í Kefla-
víkur- höfn
Slys varð i lest Goðafoss i gær-
morgun. Skipið lá i Keflavikur-
höfn og var verið að skipa upp
vörum þegar kassar iosnuðu af
gálga, sem verið var að hifa upp
og féllu þeir niður á lyftustjóra,
sem var að vinna niðri i lestinni.
Var maðurinn fluttur á Borgar-
spitalann i Reykjavik. Meiddist
maðurinn aðallega á mjöðm og
læri.
NTB-Saigon
Sveimur bandariskra sprengju-
flugvéla héldu i gær áfram loftá-
rásum sinum á Hanoi, Haiphong
og önnur skotmörk i N-Vietnam. í
l'réttum frá Hanoi segir að 215
manns, hafi látið lifið og 326 særzt
i árásunum fram að hádegi á
þriðjudag. Þá hefur eignatjón
orðið mjög mikið.
Sovézka fréttastoían Tass segir
egypzka sendiráðið stórskemmt,
aðaljárnbrautarstöðin og orku-
verið sömuleiðis, svo og flug-
völlurinn. Yíirstjórn bandariska
hersins i Saigon hefur ekkert sagt
um árangur árásanna.
Hins vegar hefur verið frá þvi
skýrt, að alls niu flugvélar af
gerðinni B-52 hafi verið skotnar
niður i árásarferðum. Banda-
rikjaher hefur yfir að ráða 200
slikum flugvélum, en þær eru á
stöðvum I Thailandi og á Guam-
eyju. Aðeins helmingur þeirra er
þó flugfær i einu, vegna viðhalds
og viðgerða.
Stjórn Vietcong-hersins hefur
fyriskipað vopnahlé i 24 stundir
um jól og áramót, en undanfarin
ár hefur vopnahléð varað i þrjá
sólarhringa vhort.
Bátur upp
i f\oru a
Stokkseyri
Erl—Reykjavik
í fyrradag geysaði ofsaveður
um allt Suðurland. Á Stokkseyri
var veðurhæðin, einhver hin
mesta, sem þar hefur lengi kom-
ið, en þó var ekki mjög mikið
brim.
Bólusetningar-
ferð á snjóbíl
FZ-Hóli, Svarfaðardal.
Hér i dalnum eru allir i jóla-
undirbúningnum, einkum þó
laul'abrauðsbakslri og steikt er og
skorið á hverjum bæ. Engin inflú-
ensa hel'ur gert vart við sig i
sveilinni, þvi strax og Ijóst varð,
að Dalvikingar voru að leggjast i
flensu, fór héraðslæknirinn, Egg-
ert Briem á snjóbil eina hringferð
um Svarfaðardalinn og bólusetti
á öllum bæjum.
Siðan hefur færðin lagast og nú
eru allir vegir l'ærir, en snjórinn
er ennþá mikill.
Staðnir að innbroti -
játuðu fjögur að auki
Tveir 16 ára gamlir piltar voru
staðnir að innbroti i Tizku-
skcmmuna, Laugavegi 66, að-
fararnótt limmtudags. Lögreglu-
menn, sem leið áttu niður Lauga-
veginn sáu til þeirra, þar sem
þeir voru að rusla lil i verzlun-
inni, og l'óru inn á eftir pillunum
og handlóku þá.
Við nánari alhugun kom i ljós,
að piltarnir voru l'yrr um nóttina
búnir að brjótast inn á þrem stöð-
um öðrum og gera tilraun til að
komast inn á 4 staðnum. Alls
tókst þeim að stela um l'jögur
þúsund krónum á þeim stöðum,
sem þeir komust inn. Fyrst brut-
ust þeir inn hjá Hvannbergs-
bræðrum á Laugavegi, siðan i
Bókaverzlun Lárusar Blöndal við
Skólavörðustig og inn á tann-
læknastoíu Jónasar Thorarensen,
sem er á hæðinni íyrir ofan bóka-
búðina. Siðan reyndu þeir að
komast inn i Guðrúnarbúð við
Klapparstig, en urðu frá að
hverfa er þeir brutu i falsinu
skrúfjárn, sem þeir notuðu til að
spenna dyr upp með.
Annar þessara pilta hefur áður
verið uppvis aö ýmiss konar af-
brotum, en hinn ekki.
Þakið fauk
af húsinu
— ekkert timbur til í verzlunum
SI5—Reykjavik
Ofsaveður gerði í Svarfaðardal
i l'yrrakviild og um kvöldinatar-
levtið tók þakið al' ibúðarluisimi á
Porsteiiisslöðiim. sem er næst-
fremsli bæriiin að vestan. Allir
viðir l'ylgdu þakinii. sem var ris-
þak og eru Svarfdæliugar nii að
safna samaii timbri. sem nota
ma'tli i bráðabirgðaþak á lnisið,
þvi að a 1II byggingareliii er upp-
selt i ver/.luiiiim fyrir norðan.
Rokið var á suðvestan og mun
vindhraðinn i verstu hryðjunum
hala verið ylir tólf stig. Niðri'á
Dalvik urðu engar skemmdir svo
vitaðsé, en þar fauk jólatré, sem
Lionsmenn höfðu nýkomið fyrir
við kirkjuna.
Brýna nauðsyn ber til að koma
þaki yl'ir höl'uð fjölskyldunnar á
Þorsteinsstöðum, áður en frekari
skemmdir verða, þvi að ekki er
steypt plata á milli hæða i húsinu.
Tjónið er tilfinnanlegt þar sem
húsið var ekJti tryggt fyrir slikum
áföllum.
Er l'arið var að huga að timbur-
kaupuni i gær, kom i Ijós að ekk-
ert timbur var að fá i verzlunum
og hafa sveitungar verið að safna
saman el'ni. Smiðir frá Dalvik
verða fegnir að koma þakinu
á . Lán i óláni er, að allir vegir i
dalnurn eru nú orðnir vel færir, en
l'yrir ekki löngu hefði verið nær
ógerningur að flytja byggingar-
efni þarna fram i dalinn.
Ræninginn handtekinn
Maöur var rændur utan við
Búnaðarbankaútibúið við
Rauðarárstig s.l. mánudags-
kvöld. Vatt sér maður að honum
og sleit tösku af öxl hans og hljóp
á brott. Sá rændi horfði á eftir
þjófnum og gat ekkert að gert,
nema kæra atburðinn. 1 töskunni
voru 20 þús. kr. og bankabók.
Á miðvikudag var handtekinn
maður i kaupstað úti á landi, sem
fastlega er grunaður um ránið.
Játning liggur ekki fyrir, þar
sem ekki var búið að yfirheyra
manninn i gærkvöldi.
Reiðubúin til viðræðna
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra hefur með simskeyti i dag
tilkynnt Otto Winzer utanrikis-
ráðherra þýzka alþýðulýð-
veldisins, að islenzka rikis-
stjórnin sé reiðubúin að taka upp
viðræður um stjornmálasam-
band milli tslands og þýzka
alþýðulýðveldisins.
„French Connection-
eitrinu” stolið
NTB-New York
Tvö hundruð sérþjálfaðir
lögreglumenn i New York
hafa verið sendir út af örkinni
i leit að 130 kilóum af heróini
og kókaini, sem hvarf frá lög-
reglustöð i borginni.
Lögreglustjóri borgarinnar
lét svo ummælt, að þetta væri
versta dæmiö um spillinguna
innan stéttarinnar, sem hann
hefði heyrt um. Rannsókn
mun fara fram á þvi hversu
mikið af þeim fiknilyfjum,
sem lögreglan hefur lagt hald
á undanfarin ár, er enn á
sinum stað.
Það magn, sem nú er horfið,
er siðan 1962, er „French
Connection”-eiturlyfja-
hringurinn var uppgötvaður.
Siðar var skrifuð bók og gerð
verðlaunakvikmynd um
málið.
Vélbátinn Hafdisi, sem er 50
tonn, sleit frá bryggju og rak upp
i fjöru, en svo hátt stóð sjórinn i
höfninni að báturinn kastaðist
upp i fjörukamb, og steytti litið á
klöppum áður. Liggur hann nú á
hliðinni á þurru landi og er ekki
talinn mjög mikið skemmdur.
i gær unnu menn frá Björgun
h.f. við að ná Hafdisiá flot, og voru
taldar góðar horfur á að það verk
tækist vel.
i þessu sama veðri fauk þak af
fjárhúsi að Hoftúnum i Stokks-
eyrarhreppi. Ekki varð þó féð
fyrir meðslum þar eð engin kind
var inni, er þakið tók af. Um aðr-
ar verulegar skemmdir er ekki
vitað i veðri þessu, en þvi fylgdi
seinnipartinn nokkur éljagangur.
Gefjatl
skgpar'
fotin fyiin
manninii
'V
AUSTU RSTR/ETI