Tíminn - 13.01.1973, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.01.1973, Blaðsíða 1
----------------—\ ALÞÝÐU- BANKINN HF. wotel mŒm\ FUNDARSALIR „Hótel Loftleiðir" miðast við þarfir alþjóðaráðstefna og þinga, þar sem þýða þarf ræður manna jafnharðan á ýmis tungumál. LITID A SALARKYNNI HOTELS LOFTLEIÐA — EINHVER ÞEIRRA MUN FULLNÆGJA ÞORFUM YDAR. V--- Þannig var Reykjaborg eftir brunann. Milli skipanna sjást leifar „nautablóðsins”, sem dælt var á eldinn. — Timamynd: Róbert Þinghólsskóli ekki kennslu- hæfur eftir næturárás Klp-Rcykjavik Þegar kennarar og nemendur i Þinghólsskóla i Kópavogi komu á vettvang rétt fyrir klukkan átta i gærmorgun mætti þcim heldur ófögur sjón! Einhverjir óþokkar höfðu ráði/.t á skólann um nóttina og brotið rúður i kennslustofum svo og i anddyri og skrifstofu skólastjóra* Af' þessum sökum var skólinn óstarfhæfur um morguninn.og varð að gefa öllum nemendum leyfi meðan gert var við rúðurnar til bráðabirgða. Tjónið af völdum þessara skemmdavarga er metið á tugi þúsunda, enda er þarna um að ræða stóra, tvöfalda glugga. Rannsóknarlögreglan i Kópavogi fer með rannsókn þessa máls, og fengum við þær fréttir hjá henni i gærkveldi, að rannsóknin væri komin svoskammt á veg, að ekki væri timabært að segja neitt, hver eða hverjir hefðu verið þarna að verki. Þetta mun ekki vera i fyrsta sinn i vetur, sem rúður eru brotnar i barnaskólunum i Kópa- vogi. Hefur a.m.k. tvisvar verið ráðizt á glugga Kársnesskóla. Þar munu hafa verið brotnar tiu rúður i fyrri árásinni. Hvern var verið að jarða? Viðtal við Hannes Pálsson, sem var fulltrúi Fram- sóknarflokksins i sendinefnd Islands á siðasta allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna, birtist i biaðinu i dag. Segir hann m.a. frá furðulegum viðbrögðum Guðmundar 1 Guðmundss., sendiherra tslands i Washington, þegar sendinefndin leitaði til hans á örlagastundu i landhelgis- málinu, er verið var að undirbúa lokaafgreiðslu á tillögu Perú og Islendinga um réttindi strandrikja. Var Guðmundur t. beðinn að hefja viðræður við Banda- rikjastjórn um málið. Guðmundur sagðist ekki hafa tima til þess. Hann þyrfti að vera við jarðarför og siðan ætlaði hann að heimsækja einhvern konsúl suður i Texas. Sjá viðtal við Hannes Páls- son á bls. 10 og 11. SJORINN LOGAÐI MILLI BÁTA VIÐ GRANDAGARÐ „Nautablóð" notað til þess að kæfa eldinn Klp—Reykjavík Það er ekki á hverjum degi, sem slökkviliðið i Reykjavik er kallað út til að slökkva eld i sjónum. Þetta gerðist þó i gærmorgun, þegar eldur gaus upp i oliu- brák við eina bryggjuna vestur við Grandagarð. Oliubrákin var svo mikil, að sjórinn logaði KLIPPUM BEITT í 13. SKIPTI ÞÓ—Reykjavik. Varðskip skáru tvisvar á togvira hjá brezkum togurum i gærdag. t fyrra skiptið skar varð- skipið Óðinn vira togarans Ross Renown GY 666 frá Grimsby. t seinna skiptið skar Ægir á vira togarans Ross Kandahar GY 123. Margir brezkir togarar voru i veiðum langt innan fiskveiði- markanna út af Langanesi i gærmorgun. Þar á meðal var togarinn Ross Renown, og voru Framhald á 25. siðu. „Brúðhjón fá spurulan mánaðarins’’ gest í bæinn Hér eru „brúðhjón mánaðarins”, Elsa G. Jónsdóttir og Finnbogi Aðalsteinsson, Mið- vangi 4 i Hafnarfirði, með soninn Aðalstein á milli sin. Þeirra hlutur kom upp, er dregið var úr myndum þeim, sem birtust i Timanum i desembermánuði, af brúðhjónum, sem saman voru gefin i nóvember cða desember siðastliðnum. Sólveig Jónsdóttir heimsótti þau nú i vikunni og ræddi við þau, og birtist frásögn hennar, ásamt myndum Róberts Agústssonar á 6. og 7. siðu blaðsins i dag. Jafnframt þvi sem visað er til þessarar greinar, vill blaðið vekja athygli á auglýsingum, er þar fylgja með, frá fyrirtækjum þeim sem brúðhjón manaðarins þessi,sem nú voru valin.og önnur eftirleiðis — geta fengið hjá vörur, fyrir tuttugu og fimm þúsund krónur eftir eigin vali. á stóru svæði og sviðnaði t.d. öll málningin af stjórnborðshlið vélbáts- ins Reykjaborgar, RE. Verið var að vinna við logsuðu á hvalbaki Reykjaborgar, og er talið sennilegt, að neisti hafi hrotið i olíutvist eða pappir, sem flotið hafi i ollubrákinni þarna við bryggjuna. Eldur varð þegar nokkur, og teygðu logarnir sig upp með allri stjórnborðshlið skipsins • Allt slökkvilið borgarinnar var kallað út, enda búizt við, að þarna yrði mikið að gera, þvi margir bátar voru við bryggjuna. En þvi tókst fljótlega að ráða niður- lögum eldsins með þvi að dæla froðu,svokölluðu „ nautablóði ”, á eldinn, og varð tjón þvi litið sem ekkert. Hið eina, sem brann, var máln- ingin af annari siðu Reykja- borgar*og timburþil bryggjunnar sviðnaði einnig litils háttar. A meðan að slökkviliðs- mennirnir voru að dæla froðu á eldinn, voru menn að logsjóða um borð i Gisla Arna, sem lá hinu megin við bryggjuna. Þorðu þeir ekki annað en að dæla einnig froðu i sjóinn þeim megin, ef vera kynni, að neisti frá logsuðu- tækjunum hrykki i oliubrákina, sem þar var. Elsa G. Jónsdóttir og Finnbogi Aðalsteinsson með soninn á milli sín. — Timamynd Róbert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.