Tíminn - 13.01.1973, Síða 20
20
TÍMINN
Laugardagur 13. janúar 1973
Alsherjarþingið
hafizt, þvi að á hina fundina er lit-
ið sem undirbúningsfundi ráð-
stefnunnar.”
,,Þá stóð Island i flokki þeirra
þjóða, sem tryggði framgang til-
lögunnar um stofnun Háskóla
íiameinuðu þjóðanna, en nokkur
ágreiningur rikti um það mál?”
,,Já, fsland var eitt Norður-
landa um að fylgja þessari hug-
mynd, þegar hún kom fram,og við
studdum málið á öllum stigum
þess eftir þvi sem við gátum. Til-
lagan um þennan skóla var sam-
þykkt, en hún gerir ráð fyrir, að
skólinn starfi i mörgum löndum
og i mörgum deildum. Gerum við
okkur vonir um, að íslandi gæti
staðið til boða að hýsa eina deild
skólans, þ.e.a.s. i haf- og fiski-
rannsóknum. Þarf að sjálfsögðu
ekki að fara mörgum orðum um
það, hve mikil lyftistöng slik há-
skóladeild á vegum háskóla Sam-
einuðu þjóðanna gæti orðið okkur.
Ekki ætti það að draga úr likun-
um á þessu,að við studdum há-
skólamálið dyggilega.
Auðvitað eru það fjölmörg mál,
sem gagnmerk eru og voru til
meðferðar á þinginu, en á annað
hundrað tillögur voru samþykkt-
ar. Ég reyni ekki að telja upp öll
þau fjölmörgu mál, en frá þeim
stærstu hefur verið sagt all náið i
fréttum"
27. þingið mjög
hagstætt íslandi
,,En hver telur þú heildaráhrif-
in á 27. allsherjarþinginu fyrir fs-
land hafa verið?
„Þau eru tvimælalaust okkur
mjög hagstæð, eins og raunar
þegar hefur komið fram i spjalli
okkar um landhelgistillöguna.
Með nýrri og sjálfstæðri utan-
rikisstefnu vinstri stjórnar á Is-
landi hefur ekki aðeins tekizt að
afla stuðnings mikils meirihluta
rikja heims við málstað okkar i
landhelgismálinu, heldur höfum
við einnig gert okkur gildandi
með sjálfstæðri afstöðu i mörgum
málum og aflað Islandi aukinnar
virðingar annarra þjóða á alþjóða
vettvangi og þar með aukna
möguleika til að hafa áframhald-
andi áhrif á framvindu mála á
komandi árum. Ég get i þessu
sambandi minnzt orða Oswaldo
de Heviera, Perúmannsins, sem
studdi okkur dyggilegast i land-
helgismálinu, en hann sagði, að
lokinni atkvæðagreiðslunni: ,rEf
að þær þjóðir, sem hafa stuðlað
að framgangi þessa máls á þing-
inu hérna nú, halda hópinn og
styðja hver aðra áfram i
framtiðinni, þarf ekki að spyrja
að úrslitum hafréttarráðstefn-
unnar.”
Island fékk
háa einkunn
,,Þá vil ég að lokum geta þess,
að til eru alþjóðleg samtök, sem
nefna sig „World Association of
World Federalist”, sem m.a. hef-
ur gengizt fyrir alþjóðlegum ráð-
stefnum um nýtingu hafsins og
Vanan mann
vantar á kúabú i S-Þingeyjarsýslu. íbúð ef
þess er óskað.
Upplýsingar i sima 2571« Iteykjavik eða Hlégarði um
Staðarhól.
Skýrsluvélastörf
Skýrsluvélar rikisins og Reykjavikur-
borgar þurfa að mæta auknum þörfum
opinberra aðila fyrir skýrsluvélaþjónustu.
Þvi auglýsir stofnunin nú eftir umsóknum
um störf i kerfisfræðum frá ungu og vel
menntuðu fólki.
Æskileg menntun er próf i viðskiptafræði eða annað há-
skólapróf. Til álita kemur þó að ráða fólk með stúdents-
próf úr stærðfræðideild eða sambærilega menntun.
Æskilegt er, að umsækjendur hafi starfsreynslu á við-
skiptasviðinu eða i störfum hjá opinberum stofnunum.
Nám og þjálfun i kerfisfræðum fer fram á vegum stofnun-
arinnar eftir ráðningu.
Upplýsingar um starfið verða veittar á skrifstofu vorri,
Háaleitisbraut 9.
Skýrsluvélar rikisins og
Ileykjavikurborgar
Stór útsala hefst á mánudag 15. janúar.
Kápur, dragtir, buxnadragtir,
jakkar.
Glæsilegt úrval, mikil verðlækkun.
Bernharð Laxdal
Kjörgarði
auðæfa þess, og sat ég eina slika
ráðstefnu i New York, þar sem
aðalsérfræðingar Bandarikjanna
i rannsóknum hafsbotnsins fluttu
erindi ásamt sérfræðingum frá
fjölda annarra rikja. Á þessari
ráðstefnu flutti Gunnar Schram
erindi, þar sem hann skýrði bar-
áttu okkar Islendinga fyrir vernd
fiskistofna.
Þessi samtök „Federalista”
hafa tekið upp þann sið að gefa
rikjum einkunnir fyrir stefnu
þeirra og sjálfstæði i utanrikis-
málum, þ.e. afstöðu sendinefnda
til mikilvægra mála á Allsherjar-
þinginu. Þeir birtu þessar ein-
kunnir að 27. allsherjarþinginu
loknu.og kom þá i ljós, að ísland
er á þessum lista i þriðja sæti
ásamt Svium og aðeins Júgó-
slavia og Rúmenia eru fyrir ofan
okkur.
—TK
pessi mynd var tekin á fundinum, þar sem stuöningsmenn Islendinga lögðu á ráðin um framgang land-
helgistillögunnar. Á fundinum var Haraldur Kröyer i forsæti og við hlið hans situr Gunnar Schram,
sendiráðunautur.
i Port Judith i Nýja Englandi. Fiskimaður kynnir Hannesi og Jónasi Árnasyni meðferð humargildru.
í'hléi frá þingstörfum. Pétur Sigurðsson, fulitrúi Sjálfstæðisfiokksins i sendinefndinni, og Alfreð Gisla-
son, læknir, fuiltrúi Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, ásamt Hallfriði Tryggvadóttur, starfs-
manni S.Þ. og Sigrúnu Ilelgadóttur, konu Hannesar Páissonar.